Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1991, Side 13
ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 1991.
13
LífsstOI
Sláturtíðin hafin:
Nú er sláturtíðin hafin og hagsýn
heimili farin að huga að sláturgerð.
Slátur og annar innmatur er bæði
holl og afhragðsgóð fæða, fyrir utan
það a.ð vera mjög ódýr matur.
Slátursala er hafin af fullum krafti
og á höfuðborgarsvæðinu er hún á
vegum tveggja aðila. Goði á Kirkju-
sandi við Laugarnesveg selur slátur
og einnig er sala á vegum Sláturfé-
lags Suðurlands. Slátursala Goða er
opin frá 10-18 alla virka daga. Slátur-
sala SS er á tveimur stöðum, Hag-
kaupi í Skeifunni og Fjarðarkaupi,
Hafnarfirði. Þar er opið frá 14-18
þriðjudaga til föstudaga og frá 10-16
á laugardögum en lokað á mánudög-
um.
Neytendasíða DV kannaði verð á
slátri og sláturafurðum á þessum
Neytendur
tveimur stööum og virðist verð í
sumum tilfellum vera það sama hjá
báðum aðilum en í öðrum tilfellum
lægra hjá SS. Hitt er athyglisverðara
að verð á sláturafurðum nú er mun
hærra en á sama tíma í fyrra. Ef
keypt eru fimm heil slátur kosta þau
nú 2.830 krónur. í fyrra kostuðu þau
tæplega 2.600 krónur.
Hækkunin er enn meiri ef tekið er
mið af einstökum sláturafurðum.
Vömb og keppur kosta 90 krónur nú
en 83 í fyrra, lifur er á 423 kr. kílóið
en var á 390 í fyrra, hjörtu kosta nú
514 en 474 í fyrra, nýru eru á 256 og
289 nú en voru á 236 í fyrra, eistu eru
nú á 160 og 161 en voru á 148 í fyrra
og mörinn hefur einnig hækkað, úr
85 krónum upp í 88 og 110 krónur.
Kílóið af óhreinsuðum sviðahaus-
um var á 264 og 273 krónur í fyrra
en kostar nú 304 krónur. Þess ber
þó að geta að hausarnir hjá SS eru
hreinsaðir og sagaðir miðað við 304
króna kílóverð. Hækkunin á milli
ára er það mikil að hún er umfram
verðlagsþróun, hvað sem veldur.
’ Algengt er að heimili taki sig sam-
an um sláturgerð og ungt fólk, sem
er að taka slátur í fyrsta skipti, nýtur
þar gjarnan leiðsagnar sér reyndara
fólks enda hefur sláturgerðin lærst
mann fram af manni.
-ÍS
Goði, Kirkjusandi Sláturfélag Suðurlands
Heilt siátur, 5 stk. 2.830 2.830
Vömb + keppur 90 90
Lifur 423 423
Hjörtu 514 514
Nýru 289 256
Eistu 160 161
Mör 110 88
Óhreinsaðir sviðahaus- 304 304
ar
Hvemig gera má slátur
Eftir að búið er að fylla vambarkeppina verður að gæta þess að sauma
vei fyrir svo ekki flæði úr keppnum.
Flestir þeir sem taka slátur hafa
ákveðna uppskrift að fara eftir og
notast við hana árum saman. Ekki
er víst að allir hafi aðgang að slát-
uruppskrift. Sumir eru að taka
slátur í fyrsta sinn eða vilja jafnvel
breyta til. Hér eru því birtar nokkr-
ar uppskriftir. Þær eru margreynd-
ar og menn geta valið á milh eftir
smekk.
Blóðmör I
11 blóð
11 vatn
50 g gróft salt
200 g haframjöl
100 g heilhveiti
um 1 kg rúgmjöl
um 2 kg mör
vambir
Brytjið mörinn fremur smátt.
Skolið síðan vambirnar, sníðið 4-6
keppi úr hverri vömb og saumið.
Gætið þess að opin séu ekki of
þröng. Blandið saman blóði, salti
og vatni og hrærið í þar til saltiö
er runnið.
Hrærið haframjöh og heilhveiti
saman við og síðan rúgmjöh, svo
miklu aö úr verði þykkur velhng-
ur. Blandið mömum saman við
jafnóðum og látið er í vambar-
keppi. Saumið fyrir. Látið þá keppi,
sem á að frysta, í plastpoka, merkiö
og látið sem fyrst í frost. Annaö er
soðið í 2-3 tíma, eftir stærð kepp-
anna, í söltu vatni.
Blóðmör II
11 blóð
/i 1 vatn
1 'A matskeið gróft salt
150 g haframjöl eða bygg
150 g heilhveiti
1 teskeið allrahanda
/i teskeið negull
50 g sykur
250 g rúsínur
um 600 g rúgmjöl
1-1'/: kg mör
vambarkeppir
Blóðmör II er búinn til eins og
blóðmör I.
Blóðmörmeð
fjallagrösum
7 dl blóð
3 dl vatn
1 matskeið gróft salt
100 g haframjöl
um 250 g rúgmjöl
I kg mör
vambarkeppir
Hreinsiö fjallagrösin vel. Hellið á
þau sjóðandi vatni og þerriö þau.
Saxið grösin niður og blandið í um
leið og vatninu. Að öðru leyti er
blóðmörinn búinn til á sama hátt
og hinar uppskriftirnar.
Lifrarpylsa I
114 kg lifur og nýru
II mjólk
40 g gróft salt
200 g haframjöl
300 g hveiti eða heilhveiti
um 700 g rúgmjöl
um 1 kg mör
vambarkeppir
Þvoið lifur og nýru, skerið úr
grófustu himnur og æðar. Hakkið
lifur og nýru einu sinni eða tvisv-
ar. Blandið í mjólk og salti og hrær-
ið vel. Blandið þvinæst í haframjöli
og hveiti og síöan rúgmjöh. Hræran
á aö vera eins og þykkur vellingur.
Látið í vambarkeppi um leið og
mörnum er blandað í. Saumið fyr-
ir. Látið í sjóðandi saltað vatn og
sjóðið í um það bh 2-2 ‘A tíma.
Lifrarpylsa II
1 kg lifur og nýru
2 matskeiðar salt
6 dl kjötsoð
400 g haframjöl
um 600 g rúgmjöl
um 600 g mör
vambarkeppir
Búið til á sama hátt og lifrarpylsa
I.
Þá er ekkert að vanbúnaði að vinda
sér í sláturgerðina. Margir vilja
ekki nota nýru í lifrarpylsuna og
finnst betra að sleppa þeim. Þá er
einungis notuö lifur. -ÍS
Nú er sláturtiðin hafin og rétti timinn til þess að taka slátur.
DV-mynd Brynjar Gauti
Skóta- «9Aer£a0
RVTVH.RR
KJABAH - skr,íSaofUnu aí hinum UsleUu
Kynnir Carrera sKóia - og
terðariWélum- minni Wrir
gluggainns\attog
geymsiu gagna.
Titvalin skólaritvél
Fáanleg ttja
umboðsmonnum
um allt land.
A&G
OLYMPIA
X
KJARAN
Skrifstofubúnaður
• SÍÐUMÚLA 14 • SÍMI 91-813022 •