Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.1991, Side 6
P£
22
ioó ífflffMÆ'Píi.'tfj? pp ^uctinu'Potya
FOSTUDAGUR 27. SEPTEMBER 1991.
Bíóborgin:
f sálarfjötrum
í sálaríjötrum (Jacob’s Ladder)
er leikstýrt af Adrian Lynn sem
meðal annars hefur leikstýrt Flas-
hdancem, 9‘A Weeks og Fatal
Atraction. Tim Robbins leikur fyrr-
verandi Víetnam hermanninn Jac-
ob Singer. Þegar myndin hefst er
hann á leið heim eftir að hafa verið
á næturvakt. Hann gengur fram á
gamlan mann sem sefur á götunni
vafinn í teppi. Ladder er vanur
þessari sjón og mundi ekki hafa
tekið eftir manninum ef hann hefði
ekki séð snák koma undan teppinu
eða eitthvað í líkingu við snák.
Þetta er ofsjón og hann veit það en
sjónin hræðir hann samt mikið.
Árum saman hefur hann haft
martraðir vegna þátttöku sinnar í
Víetnamstríðinu en nú eru mar-
traðirnar farnar að birtast honum
þegar hann er vakandi. Sýnirnar
aukast og fer þetta að hafa áhrif á
lífsvenjur hans. Ladder gerir sér
grein fyrir því að hann mun verða
geðveikur reyni hann ekki að kom-
ast fyrir orsök martraðanna. Hann
verður því að leita skýringa og sú
leit kemur honum á slóð kald-
rifjaðra glæpamanna og það er ekki
fyrr en á lokamínútu myndarinnar
sem sannleikurinn um Jacob kem-
ur í ljós.
Handritshöfundur myndarinnar
Bruce Joel Rubin hefur sagt að
hann hafl langað til að skrifa um
það sem honum fyndist vera það
hræðilegasta sem fyrir hann gæti
komið, ekki aðeins bein hræðsla
heldur einnig hræðsla um eigin
sálarheill. Handrit Rubins hafði
lengi legið óhreyft áður en Lynn
sýndi því áhuga. Og meðan það lá
óhreyft komst það í hið virta kvik-
myndablaði American Film þegar
það birti lista yflr bestu handritin
sem ekki hafa verið kvikmynduð.
Það er Tim Robbins sem leikur
aðalhlutverkið. Þessi geðþekki
leikari vakti fyrst athygli í Bull
Durham þar sem hann lék eftir-
minnilega hafnaboltaleikara og
skyggði meira að segja á sjálfan
Kevin Costner. Aðrir leikarar eru
Elizabeth Pena og Danny Aiello og
barnastjarna Macaulay Culkin og
var Jacob’s Ladder sú mynd sem
hann lék í áður en hann varð
heimsfrægur fyrir leik sinn í Home
^lone.
-HK
Daryl Hannah lelkur drauginn Mary og Steve Guttenberg Jack sem
verður ástfanginn af henni.
Regnboginn:
Draugagangur
Draugagangur (High Spirits) undan álögunum er Jack ef hann
segir frá hjónakomunum Jack þá þorir...
og Sharon sem taka sér ferð á Aðalhlutverkin í Draugangi eru
hendurtilírlandstilaðlappaupp leikin af Steve Guttenberg, sem
á hjónabandið sem stendur ekki leikur Jack, og Daryll Hannah
mjög traustum fótum, Ætlun semleikurdrauginnMary.Eigin-
þeirraeraðdveljaírómantiskum konu Jacks leíkur Beverly
kastala. Auglýstur er drauga- D’Angelo og kastalaeigandinn er
gangur í kastalanum sem þau leikinn af Peter O’Toole.
taka ekki mikið mark á fyrr en Leikstjórí Draugagangs er hinn
Jack hittir Mary og verður ást- ágæti breski leikstjóri Neil Jord-
fanginn. an sem meðal annars hefur gert
Mary er írsk fegurðardís með hina þekktu sakamálamynd
ódauðlegar ástríður og býr hún í Mona Lisa og ævintýarmyndina
kastalanum og hefur búið þar sið- mögnuð Company of Wolves. „Ég
astliðin tvö hundruð ár. Hún dó vildi gera myndina í írlandi. Hin
einnig í kastalanum og það gerir írska þjóðsöguhefð gerir það að
ást Jack erfiða í framkvæmd því verkum að auövelt er að ímynda
Mary er draugur sem hfir í enn sér að draugagangur geti átt sér
erfiðara hjónabandi heldur en stað þar,“ segir Jordan. Einnig
Jack þvi eiginmaöur hennar segir hann að tilliugsunin um aö
myrðir hana á hverju einasta gera gamanmynd úr draugasögu
kvöldi í miklu afbrýðikasti. Eini hafl gert það að verkum að hann
maðurinn sem getur losað hana skrifaðihandritiðsjálfur. -HK
Sylvester Stallone fyrir miðju í
hlutverki smyglara sem verður að
taka upp heiðarlegri viðskipta-
hætti. Með honum á myndinni eru
Peter Riegert og Chazz Pafminteri.
/ Bíóhöllin:
Oscar
Oscar er nýjasta kvikmynd John
Landis og er hér um gamansama
sakamálamynd að ræða. Aðalhlut-
verkið smyglarann Angelo „Snaps“
Provolone leikur Sylvester Stall-
one. Þegar hann er kallaður að
dánarbeði fóður síns býst hann víð
hinu versta en aldrei þó því að
gamli maðurinn vilji að sonurinn
gerist heiðarlegur en hjá því verður
ekki komist. í vitna viðurvist lofar
hann gamla manninum að héðan í
frá skuli hann gerast heiðarlegur
maður og stofna fjölskyldu.
Loforð þetta reynist honum þó
erfit að efna. Hann er umkringdur
glæpamönnum og þekkir ekkert
annað líf en það sem hann hefur
lifað. Auk þess trúir honum enginn
þegar hann segist ætla að gerast
heiðarlegur.
Auk Stallone, sem fær hér tæki-
færi til að sýna að hann geti leikið
gamanhlutverk, leika stór hlutverk
í myndinni Omella Muti, Peter Rie-
gert, Don Ameche, William Ather-
ton og Yvonna De Carlo.
John Landis á langan og gifturík-
. an feril að baki í gerð gamanmynda
og þótt mistækur sé eru myndir
hans yfirleitt frumlegar og
skemmtilegar. Fyrstu kvikmyndir
hans voru Kentucky Fried Movie
og National, Lampoon’s Animal
House, myndir sem eru orðnar
klassískar gamanmyndir. Meðal
þekktra kvikmynda sem hann hef-
ur síðan leikstýrt má nefna The
Blues Brothers, An American
Werewolf in London, Trading Plac-
es, Into the Night, Three Amigos
og Coming to America.
-HK
John Malcovich og Andie MacDowell með heillagripinn sinn.
Tim Robbins ásamt barnasfjörnunni Macauley Culkin.
Háskólabíó:
Þar til þú komst
Frank Flynn er aðalpersónan í
Þar til þú komst (Till There Was
You). Hann býr í New York og er
einn af þeim sem aldrei helst á
neinum aurum. Flynn er hljóð-
færaleikari og blæs í saxófóninn
af miklum krafti en er ávallt með
tómt peningaveskið. Hann er orð-
inn leiður á þessu öllu saman og
tekur boði Charlie bróður síns að
hitta hann á afskekktri eyju, sér-
staklega þar sem bróðir hans borg-
ar fyrir hann farið.
Við komuna til flugvallarins hitt-
ir hann konu sem hann getur ekki
gleymt, Önnu Vivaldi sem komin
er til að hitta eiginmann sinn. Fljót-
lega fær Flynn fréttir af því að
bróðir hans hafi verið drepinn.
Hann fer því að rannsaka lát hans
en hann hafði rekið fyrirtæki.
Fljótlega verður á vegi hans sjarm-
erandi náungi en hættulegur sem
reynist vera eiginmaður Önnu.
Aðalhlutverkin eru leikin af
Mark Harmon, Deborah Unger og
Jeroen Krabbe.
Leikstjóri Þar til þú komst er
John Seale sem er mjög þekktur
kvikmyndatökumaður og hefur
oftar en einu sinni verið tilnefndur
til óskarsverðlauna. Meðal mynda,
þar sem hann hefur stjórnað kvik-
myndatöku, má nefna Dead Poet’s
Society, Rainman, Gorillas in the
Mist, The Mosquito Coast og
Children of Lesser God. Þar til þú
komst er fyrsta kvikmyndin sem
hann leikstýrir. „Ég hafði mikla
ánægju af að leikstýra og myndi
örugglega gera það aftur ef einhver
býði mér gott handrit," segir Seal.
„Ég var nokkuð öruggur um allt
sem viðkom tæknihliðinni en ekki
jafnöruggur í samskiptum mínum
viöleikarana." -HK
Aðalleikararnir i Þar til þú komst, Jeroen Krabbe, Deborah Unger og
Mark Harmon.
Laugarásbíó:
Heillagripur
John Malkovich og Andie
MacDowell leika aðalhlutverkin í
gamansamri spennumynd, Heilla-
grip (Object of Beauty), sem Laug-
arásbíó hefur nýhafið sýningar á.
Leika þau uppana Jake og Tinu
sem hafa vanið sig á lifnaðarhætti
sem kosta mikla peninga. Þegar
allt hrynur til grunna í viðskipta-
heimi Jakes eru þau hjónakornin
stödd á fínu hóteli í London en eiga
ekki fyrir ^reikningnum. Björgun
þeirra á aö felast litlum dýrum
grip, bronsstyttu, sem er í eigu
þeirra. Með því að selja hana geta
þau bjargað sér úr þrengingunum
en áður en hún kemst í hendurnar
á þeim er henni stolið.
Hingað til hafa þau haft lítinn
tíma til annars en að hugsa um að
eyða peningum en eru nú í fyrsta
sídpti í þeirri aðstöðu aö hafa næg-
an tíma til að gera hvað sem þau
langar til en enga peninga til að
framkvæma það. Og í fyrsta skiptiö
verða þau að reiða sig hvort á ann-
að til bjargast úr ógöngunum en
eins og oft vill verða verður það
versta sem getur komið fyrir þau
það sem reynist best að lokum.
Michael Lindsay-Hogg er leik-
stjóri myndarinnar. Hann er
breskur en ólst upp í Bandaríkjun-
um og móðir hans var hin þekkta
leikkona, Geraldine Fitzgerald.
Snemma snerist hugur hans að
kvikmyndum og tónlist. Þegar
hann flutti til Englands kynntist
hinum frægu Bítlum og leikstýrði
stuttum myndum með þeim, auk
þess sem hann leikstýrði síðstu
kvikmynd þeirra, Let It Be. Eins
leikstýrði hann sjónvarpsþættin-
um The Unseen Rolhng Stones og
vann jöfnum höndum fyrir báðar
þessar hljómsveitir.
Lindsay-Hogg hefur á síðari árum
haldið áfram samstarfi sínu við
poppgoðin og hefur leikstýrt mynd-
böndum fyrir Paul McCartney,
Paul Simon og Elton John. Auk
þess að stárffa með þessum tónlist-
armönnum hefur hann leikstýrt
mörgum sjónvarpsmyndum fyrir
BBC og er sjálfsagt þekktasta verk
hans Brideshead Revisited. Þá hef-
ur hann einnig leikstýrt á sviöi,
bæði í West End og á Broadway
með góðum árangri.
-HK