Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.1991, Blaðsíða 7
FÖSJUDAGUR 11. OKTÓBER 1991.
23
Fimm leikir í úrvalsdeildinni í körfu um helgina:
Njarðvík hefur titil-
vömina í kvöld í
„Ljónagryfjunni"
Mikið íjör vcrður um helgina í
keppninni á íslandsmótinu í körfu-
knattleik. Fimm leikir fara fram í
úrvalsdeildinni um helgina og þá
leika íslandsmeistarar Njarðvík-
inga sinn fyrsta leik í úrvalsdeild-
inni á þessu keppnistímabili.
Njarðvík mætir nýliðunum í
Skallagrími á íostudagskvöldið í
„Ljónagryíju" sinni í Njarðvík.
Meistararnir eru auðvitað sigur-
stranglegri fyrir leikinn, þrátt fyrir
að Borgnesingar eigi örugglega eft-
ir að bíta frá sér í vetur, sérstak-
lega þó á heimavelh sínum. Leikur-
inn hefst kl. 20.00.
Á laugardag leika Haukar og
Grindavík í Hafnarfirði. Þar verð-
ur um hörkuleik að ræða en bæði
þessi lið unnu fyrsta leik sinn í
deildinni um síðustu helgi. Leikur-
inn hefst kl. 16.00.
Á sunnudag verður Skallagrímur
aftur á ferðinni en þá mæta Borg-
nesingamir liði Snæfells frá Stykk-
ishólmi. Ætla margir að þar verði
um að ræða einn af úrslitaleikjum
vetrarins um fallið í 1. deild. Leik-
urinn í Borgarnesi hefst kl. 16.00.
Á Sauðárkróki fer fyrsti leikur-
inn fram á heimavelli Tindastóls á
sunnudagskvöldið. Þá tekur Tinda-
stóll á móti íslandsmeisturum
Njarðvíkinga og verður það örugg-
lega hörkuviðureign. Leikurinn
hefst kl. 20.00.
Fyrsti leikurinn á tímabili körfu-
knattleiksmanna fer fram á Akur-
eyri á sunnudagskvöldið. Þá leika
Þórsarar gegn Keflvíkingum á
heimavelli sínum og hefst viður-
eign liðanna kl. 20.00.
Tveir leikir fara fram um helgina
í 1. deild kvenna í körfuknattleik.
KR og Keflavík leika í Hagaskóla á
laugardag kl. 17.00 og kl. 17.30 leika
Grindavík og Haukar í Grindavík.
Fjórir leikir eru á dagskrá um
helgina í 1. deild karla. Á föstudags-
kvöld leika Akranes og Höttur kl.
20.00 á Akranesi. Á laugardag leika
ÍS og Höttur í Hagaskóla kl. 14.00
og strax á eftir, kl. 15.30, leika
Keilufélagið og Breiðablik í Haga-
skóla.
Bílaíþróttir
Rallökumenn verða á fleygiferð
um helgina eða nánar tiltekiö á
laugardag. Þá fer fram svokallað
Philips-rall og er það næstsíðasta
rallkeppni keppnistímabilsins sem
gefur stig til íslandsmeistaratitils.
Allar bestu áhafnir landsins verða
á meðal keppenda og er búist við
spennandi keppni. Alls mun 21 bíl
verða ekið í rallinu. Þar á meðal
verða þeir Ásgeir Sigurðsson og
Bragi Guðmundsson á Metro, Rún-
ar Jónsson og Jón Ragnarsson á
Maxda 4x4 turbo, Steingrímur og
Guðmundur á Nissan 240 RS og
Páll og Witek á Ford Escort 2000.
Rallið hefst kl. 7.30 á laugardags-
morgun og fyrsta sérléið er Trölla-
háls en þar verður fyrsti bíll ræstur
kl. 8.22 um morguninn. Tröllaháls
verður ekinn aftur fyrir matarhlé
kl. 11.25 en í hádeginu kl. 12.15
verður ekin stutt sérleið í Skútu-
vogi, tvívegis. Að auki verður ekið
um ísólfsskála, Stapa, Stapafell og
rallið endar á sérleið á ísólfsskála.
Fyrsti bíll á síðustu sérleiðinni
verður ræstur kl. 15.10.
Sund
Vitað er um eitt sundmót sem
fram fer um helgina. Það er ungl-
ingamót Ármanns sem fram fer í
Sundhöll Reykjavíkur á sunnudag-
inn.
-SK
Friðrik Ragnarsson og félagar hans í Njarðvík hafa í nógu að snúast
um helgina. Njarðvíkingar leika gegn Skallagrími á föstudagskvöld og
verða siðan aftur á ferðinni á Sauðárkróki á sunnudag er þeir leika á
Sauðárkróki gegn Tindastóli. DV-mynd GS
AMERICA FOR YOU!
Þú getur líka orðið íbúi í Bandaríkjunum.
Á hverju ári gerast 700.000 erlendir ríkisborgarar Bandaríkjamenn og fyrir-
tæki okkar býður alhliða þjónustu fyrir innflytjendur, þ.á.m. „Green Card
Immigration Program". Þú gætir orðið meðal þeirra 40.000 manna sem ge-
rast Bandaríkjamenn samkvæmt „Immigration Act" (innflytjendalöggjöfinni)
101-649 frá árinu 1990.
Vegabréfsáritanir fyrir innflytjendur, án tímatakmarkana, verða veittar árlega
þeim sem til þess veljast, í fyrsta skipti 14. október og svo næstu þrjú ár.
Borgarar í 33 löndum koma til greina við þessa úthlutun (sjá lista).
Til að auka líkur þínar á að koma til greina, þá fylltu út umsókn, skrifaðu
undir samkomulagið og sendu það með símbréfi(faxi) á símanúmer sem
gefið er upp hér á eftir. Þú getur greitt með American Express-korti, ávísun,
ferðatékka eða Visa og Master Card (kreditkortum og látið kortnúmer og
gildistíma fylgja með)'á bankareikning okkar:
Amefican Universal Unlimited, Inc.
Barnett Bank of South West Florida.
Transfer Nr. ABA-063109058 ACCT Nf, 1622145131
240 So. Pineapple Avenue,
Sarasota, Florida 34236 USA.
Við gefum bráðlega út bók, sem verður bráðnauðsynleg fyrir þá sem vilja
frekari upplýsingar um það að gerast innflytjendur til Bandaríkjanna. Hún
heitir „America For You" (Bandaríkin fyrir þig) og hún hefur að geyma fjöl-
margar upplýsingar frá þeim sem reynslu hafa í þessum efnum.
Flokkur verið í $ Tilboð umsóknarblöð (fjöldi)
1 50 2
2 100 10
, 3 500 50
4 1000 100
5 2000 1000
6 4000 3000
Beri umsóknir ekki árangur fyrsta árið, gildir greiðsla þín ... $ fyrir önnur
3000 umsóknarblöð á ári, sem send verða næstu tvö árin án frekari kostnað-
ar. Fáir þú jákvætt svar gerum við þér atvinnutilboð, til þess að þú getir feng-
ið innflytjendaleyfi.
íbúar eftirtaldra landa geta sótt um:
Alsir, Argentínu, Austurrikis, Belgíu, Bermúdaeyja, Bretlands og N.írl., Danmerkur, Eístlands, Finnlands, Frakk-
lands, Gibraltar, Gvadalupa, Hollands, Indonesiu, Írlands, íslands, italíu, Japans, Lettlands, Lichensteins, Litháen,
Luxemborgar, Monakos, Noregs, Nýju Kaledoniu, Póllands, Sanmarions, Sviss, Svíþjóðar, Tékkóslóvakíu, Túnis,
Ungverjalands, Þýskalands.
P.S. Dótturfyrirtæki okkar, „American Auto and Yachts,“ óskar eftir samstarfsfólki og
dreifingaraðilum með innflutning og útflutning í huga. Vinsamlega hafið samband við
okkur til aö afia nánari upplýsinga.
Fax (813) 379-9791 Simi (813) 378-0992 Simi/Fax (813) 378-3183
Landsnúmer:
Umsókn
(vinsaml. vélritið)
Föðurnafn (ættarnafn) ---------------
Skírnarnafn _________________________
Fæðingardagur___________Fæðingarstaður.
Flokkur:
Utanáskrift í USA: American Universal Unlimited Inc.
4509 Bee Ridge Rd. Suite E
Sarasota, Florida 34233 USA
Utanáskrift þín og símanúmer ---------------------------
Utanáskrift næsta sendiráðs Bandaríkjanna
Flokkur
Þáttökugjald (I $)
sendu staðfestingu greiðslu í símabréfi
(Taxi) ásamt umsókn en greiðsluna með
flugpósti.
Samkomulag:
Ég undirritaður fel „American Universal Unlimited, Inc." að koma á
framfæri umsóknum mínum við „US Immigration Department (Inn-
flytjendaskrifstofu Bandaríkjanna), skrá og útbúa umsókn mína sam-
kvæmt Immigration Act I (Innflytjendalögum) frá 1990. Ég sam-
þykki einnig að greiða óafturkræft framlag samkvæmt meðfylgjandi
gjaldskrá.
Undirskrift
S.M. Marchone.
varaframkvæmdastjóri
„American Universal Unlimited, Inc."