Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1991, Page 1
Ellen Kristjánsdóttir, Eyþór
Gunnarsson og Siguróur Flosa-
son djassa gesti Púlsins inn i
nóttina á sunnudagskvöld eftir
ijóöa- og hljóðaseið Kristjáns
Frlmanns og vina hans.
DV-mynd Hanna
Púlsinn:
Kaba-
rett
2007
Kabarett 2007 vaknar úr dvala
á sunnudagskvöldið 20. október á
Púlsinum klukkan 20. Þá fer
tímavél Kabaretts 2007 í gang.
Fyrstur til að stíga á stokk verð-
ur Jón Valur Jensson sem flytur
ijóðrænar náttúrustemmningar.
Jón Valur er kunnur ættfræðing-
ur og aldreí aö vita nema ættar-
tengsl beri á góma.
Þegar Jón hefur lokið sér af
mun músíkerinn Jens Hansson
munda saxófón sinn og með aö-
stoð tölvu mun hann töfra fram
sál tónlistar í tólf víddum. Því
næst gengur skáldið Berglind
Gunnarsdóttir í pontu og les úr-
val eigin Ijóða. Eftir það hefst
akademískur miðilsfundur. Að
honum loknum mun ijórði mað-
ur á stall stíga með drauma sina,
en það er skáldið og draumamað-
urinn Kristján Frímann sem
kynnir nýja bók sína, Ðraumar;
fortiö þín, nútíö og framtíö. Úr
draumum fer Kristján Frímann
hamfórum og tengist VIÐ, dúett
hans og Björgvins Gislasonar, en
þeir munu í sameiningu ílytja
seiö ljóöa og hljóða. Þegar VIÐ
eru allir kemur smágert hlé áður
en skyggnari orðs og mynda,
Bjarni Þórarinsson, flytur alís-
lenskan óð. Kabarett 2007 lýkur
svo að þessu sinni á djassi, en það
eru þau Ellen Kristjánsdóttir,
Eyþór Gunnarsson og Sigurður
Flosason sem djassa gesti inn i
nóttina.
Þjóðleikhúsið:
Gestimir orðnir þrjár og
hálf milljón um helgina
Gestur númer 3.500.000 kemur í Þjóðleikhúsið um helgina. Sá gestur fær ýmsar gjafir sem Stefán Baldursson þjóðleikhússtjóri færir honum. Gleðispilið
verður á sviðinu um helgina og kannski verður heppni gesturinn á þeirri sýningu. DV-mynd GVA
7 I l j * 1 M syg 1
Þ l# * Iw
Aðeins nokkra gesti vantar upp á
að þijár milljónir og fimm hundruð
þúsund manns hafi séð sýningar á
Stóra sviði Þjóðleikhússins frá
opnun þess 21. apríl 1950. Um helgina
er von á gestinum sem fyllir þessa
tölu.
Ekki verður ljóst fyrr en eftir að
miðasölu er lokið á viðkomandi sýn-
ingu hver hinn lánsami áhorfandi er.
Stefán Baldursson þjóðleikhússtjóri
mun tilkynna það í lok þeirrar sýn-
ingar. Áhorfandanum veröur færður
minningarpeningur Þjóðleikhússins,
gjafakort fyrir tvo á allar sýningar
Þjóðleikhússins í vetur, bæði á Litla
sviði og á Stóra sviði, auk þess sem
hann fær aðgöngumiða sinn endur-
greiddan.
Um helgina verður Gleðispilið eftir
Kjartan Ragnarsson sýnt fostudags-,
laugardags- og sunnudagskvöld
klukkan 20 og Búkolla eftir Svein
Einarsson laugardag og sunnudag
klukkan 14. Það verður því eftir-
vænting í loftinu í Þjóðleikhúsinu
um helgina.
Akureyri:
Stjömukvöld í Sjallanum
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Sjallinn á Akureyri er að hleypa
af stokkunum Stjörnukvöldum og
verður hið fyrsta annað kvöld. Slíkar
samkomur verða haldnar um hverja
helgi fram að áramótum en í byrjun
nýs árs er síðan ætlunin að setja upp
nýja sýningu.
Stjörnukvöldin verða með því sniði
að ávallt verður um föst atriði að
ræða en á hverju kvöldi verða sér-
stakir gestir, stjörnur kvöldsins.
Meðal þeirra sem verða „stjörnur" í
Sjallanum veröa Ragnar Bjarnason,
Helena Eyjólfsdóttlr og Finnur Ey-
dal, Guðrún Gunnarsdóttir og Val-
geir Skagfjörð, Jóhannes Kristjáns-
son eftirherma og fleiri. Annað kvöld
verða það Jóhannes Kristjánsson,
Helena og Finnur sem verða stjörnur
kvöldsins.
Föstu atriðin verða dans- og tísku-
sýningar, grín og glens á breiðtjaldi
og söngvarinn Eyjólfur Kristjánsson
verður „stjarna" öll kvöldin. Kynnir
verður Bjarni Hafþór Helgason laga-
smiður, fréttamaður og sjónvarps-
stjóri.
Á hveiju Stjömukvöldi veröur
dregið í happdrætti sem fylgir hverj-
um aðgöngumiða. Verðlaunin eru
allóvenjuleg, en sigurvegarinn fær
10 þúsund króna matarúttekt í versl-
un á Akureyri. Þegar keypt hefur
verið hráefni til veislumáltíðar fyrir
4-6 manns sendir Sjallinn mat-
reiðslumeistara heim til viðkomandi
ásamt framreiðslumanni og munu
þessir meistarar sjá um veislu heima
hjá vinningshafa. Miðaverð á
Stjömukvöldin veröur 3600 krónur
en það er 300 krónum lægra verð en
var á samsvarandi sýningar í Sjal-
lanum á síðasta vetri.
Jóhannes Kristjánsson eftirherma verður ein af „stjörnunum" í Sjallanum
annað kvöld.