Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1992, Qupperneq 13
Vil sömu upplifun og í tónleikasal
- segir Finnur Torfi Stefánsson
„Það sem ég vil fá er reynsla sem
er líkust því að vera á tónleikum,
það er hvað hljóðið varðar. Maður
er ekki að leita eftír því að heyra
andardrátt fólks eða klapp og svo-
leiðis. í þessu sambandi er ég að
tala um tónhst sem spiluð er á
venjuleg hljóðfæri, ekki raftónlist,
og þá vil ég fá svipaða upplifun og
maður verður fyrir í góðum tón-
leikasal," segir Finnur Torfi Stef-
ánsson, tónlistargagnrýnandi, tón-
skáld og fyrrum rokkari með
hljómsveitinni Óðmönnum, um
væntingar sínar gagnvart hijóm-
tækjum. Finnur Torfi hlustar mjög
mikið á tóniist.
„Það sem skiptir éinna mestu
máli eru atriði eins og skýrleiki,
að maður greini í sundur hin ýmsu
hijóðfæri, th dæmis þegar hlustað
er á hljómsveitartónlist. Græjurn-
ar þurfa að vera næmar fyrir styrk-
breytingum, þurfa að skila öllum
þeim fínu blæbrigðum í fínu og
sterku sem tónhstin býr yfir og
góðir flytjendur nota til að gera
túlkun sína sem allra besta. Hvað
varðar htinn, yfirbragð tónhstar-
innar, vih maður að græjumar
hafi ekki nein áhrif til htunar. Þær
eiga að skila þeim ht sem er í hljóð-
fænmum. Mér finnst vont að
hlusta á hljómtæki þegar græjuht-
ur verður á tónhstinni. Takmarkiö
er eiginlega að græjurnar hverfi,
skiptí ekki máh.“
Hlustar mest á diska
- Hvemig eru græjumar sem þú
hlustar á?
„Ég hlusta nær eingöngu orðið á
tónhst af geisladiskum. Þar með er
ekki sagt að þeir séu alltaf hetri en
gömlu plöturnar, til em margar
mjög góðar gamlar upptökur á
hljómplötum. Diskamir hafa þó
vissa kosti og virðast vera hag-
kvæm lausn fyrir hlustandann.
Vhji maður nálgast fyrrgreind
markmið með analóg-græjum
(hefðbundnum með plötusphara)
held ég að maður þurfi miklu ódýr-
ari græjur en þarf til að fá góðan
hljóm úr geislasphara.
Með heyrnartólin
Mínar græjur eru ekkert sérstak-
ar en vel frambærilegar þó. Mér
finnst ég fá langfahegasta hljóðið
þegar ég hlusta á tónhst með
heymartólum, beint úr geislasph-
aranum. Það er þó óskemmthegra
og óþæghegra. Skemmthegast væri
að eiga nógu góðar græjur th að
heyra það sem maður heyrir í
heymartólunum. “
Finnur á fjögurra ára Marantz
magnara og hátalara og NEC-
geislasphara. Ef efnahagurinn leyf-
ir getur hann vel hugsað sér að
eignastbetritæki. -hlh
Hljómflutningssamstæðan
sem sló í gegn í Ameríku
MIÐVIKUÐAGUR 11. MARS 1992.
Hljómtæki
Hvers væntir tónlistargagnrýnandi af hljómtækjum?
Finni Torfa Stefánssyni finnst vont þegar græjulitur er af tónlist. Græjurn-
ar þurfa helst aö hverfa, skipta ekki máli. DV-mynd JAK
Sherwood hljómtækin hafa svo sannarlega gert garðinn
frægan í henni Ameríku, frábærir dómar og gríðarleg sala á
þeim segir meira en mörg orð. Góðar viðtökur hér á íslandi
hafa sýnt okkur að hægt er að mæla með MC 1200
hljómffutningssamstæðunni.
ÚTVARPSTÆKIÐ
Grafískur skjár, 30 stöðva
minni, sjálfvirkur leitari og
fínstilling.
MAGNARINN
Mjög öflugur, 2x100 músik
Wött. 5 banda grafískur tón-
jafnari (Equalizer). Mótordrif-
inn styrkstillir. Aukainngangur
fyrir videó og sjónvarp.
TVÖFALT SEGULBAND
Frábær hljómgæði (Dolby B).
Tvöfaldur upptökuhraði. Sjálf-
virk spilun á spólu beggja
vegna. (Auto Rev.) Sjálfvirk
upptökustilling. Sjálfvirk
stöðvun á enda.
GEISLASPILARINN
Fullkominn lagaleitari. 20 laga
minni. Grafískur skjár. Hægt
er að láta sama lagið eða lögin
hljóma endalaust. Tekur bæði
5 og 3ja tommu diska.
HÁTALARARNIR
Þriggja-átta lokaðir hátalarar
með bassa „Woofer".
FJARSTÝRINGIN
Mjög fullkomin fjarstýring sem
gefur þér möguleika á að sitja
í rólegheitum í hæfilegri fjar-
lægð og stýra öllum aðgerðum.
PLÖTUSPILARINN
Hálfsjálfvirkur, tveggja hraða
45 og 33 snún. Verð kr. 7.890,-
-g~
tfjSU*** Heimilistæki hf
® SÆTÚNI8 SÍMI691515 ■ KRINGLUNNISÍMI6915 20
Traust þjónusta í 30 ár.
VISA