Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1992, Side 10
10
ÞRIÐJUDAGUR 12. MAÍ 1992.
Utlönd
Það er alltaf handagangur í öskjunni þegar smástirnin fækka klæðum við ströndina á meðan á kvikmyndahátíðinni
í Cannes stendur. Ljósmyndararnir flykkjast í kringum þau eins og hrægammar til að ná myndinni sem lesendur
blaða þeirra bíða eftir. Sfmamynd Reuter
Suður-afrísk kvikmynd í Cannes:
Dans- og söngvamynd
gegn kynþáttastefnu
Afganska
sfjóminvillfá
börnin heim
Hinir nýju íslömsku stjómar-
herrar í Afganistan hafa krafist
þess að þúsundir afganskra ung-
tnenna, sem sendar voru til
. mennta til fyrrum Sovétríkjanna,
verði fluttar aftur heiin. Börn
þessi voru ýmist munaöarleys-
ingjar eða synir og dœtur félaga
í gamla valdaflokknum.
Sum barnanna hafa veriö íjatri
heimahögum i allt að tíu ár. Búist
er við aö máliö verði rætt við
rússneska sendinefnd sem kemur
með þrjáflugvélarfarma af hjálp-
argögnum síöar í vikunni.
Krötumbetur
treystandifyrir
sænskuefna-
hagslifi
Rikisstjóm jafnaðarmanna er
best treystandi til að standa vörð
um sænskt efnahagslif. Það er
álit 36 prósenta landsmanna en
29 prósent telja aö stjórn borgara-
flokkanna sé hæfari til verksins.
Þetta kemur fram í skoðana-
könnun sem sænska blaðið Ex-
pressen birti í. gær. Þeir sem
gagnrýna efnahagsstefnu núver-
andi sfjómar borgaraflokkanna
eru konur yngri en 30 ára. Helm-
ingur þeirra telur stjóm jaftiað-
armanna betri kost en tæplega
þijár af hveijum tíu hallast á
sveif þeð þeim borgaralegu.
í sams konai könnun, sem gerð
var í ágúst í fyrra, töldu 38 pró-
sent aðspurðra að borgaraleg rík-
isstjórn væri best til þess fallin
að hleypa auknum krafti í efna-
hagslif landsins. Þá töldu 28 pró-
sent aö kratarnir væru betri.
Örvhentbörn
erumeirihrak-
fallabálkar
Meiri líkur eru á því aö örvhent
börn verði aö leita á slysavarð-
stofuna með meiðsl en rétthent
börn. Rjóröungur foreldra örv-
hentra telja börnin sín klaufaleg
en aðeins limmtán prósent for-
eldra rétthentra.
Þetta kemur fram í rannsókn
sem Charles Graham við háskól-
ann í Little Rock í Arkansasfylki
í Bandaríkjunum gerði á 761
barni sem leitaöi á slysavarð-
stofu, þar af 267 vegna algengra
barnaslysa.
Fyrrí rannsóknir hafa leitt í ljós
að örvhentir deyja yngri en rétt-
hentir, sennilega af völdum slysa.
Grahara, sem sjálfur er örv-
hentur, hefur enga skýringu á því
hvers vegna svo er.
innaðrennaaf
ftl j-itai!ll—im rii ntmn ■ mr>» : :
noromonnum
Norðmenn em haldnir svo
miklum bölmóði og vantrú á
sjálfum sér um þessar mundir
vegna bágborins efnahags-
ástands að víkingarnir, forfeður
þeirra, mundu snúa sér viö i gröf-
inni.
„Við þurfum svo sannarlega á
bjartsýni og trú á framtíðina að
halda,“ sagði Gro Harlem
Brundtland forsætisráðherra á
dögunum þegar hún hratt af stað
herferö til að stappa stálinu í
landa sína.
En þrátt fyrir viðleitni Gro og
mikla auglýsingaherferð, þar
sem heimsfrægir Norðmenn á
borö við landkönnuðinn Thor
Heyerdahl og leikkonuna Liv Ull-
mann leggja sitt af mörkum, eru
lítlar líkur íaldar á að víkinga-
móðurinn blossí aftur upp,
TT og Reuter
Þegar söngleikurinn „Sarafma!",
um bömin í blökkumannabænum
Soweto í Suður-Afríku, gerði það gott
á Broadway árið 1986 var kynþátta-
aðskilnaður enn við lýði í landinu.
Sex árum síðar er söngleikurinn
orðinn að kvikmynd sem var frum-
sýnd á kvikmyndahátíðinni í Cannes
í gær, aðeins sjö vikum eftir að íbúar
Suður-Afríku hentu kynþáttaað-
skilnaðarstefnunni á haugana. Kvik-
myndagerðarmennimir segja hins
vegar aö myndin sé ekki verri fyrir
það og hún eigi fullt erindi til fólks.
Myndin var tekin í Soweto og fram-
leiðandinn, Anant Singh, sagði að
Milljarðamærmgurinn Ross Perot
frá Texas fór fram á það í gær að
nafn hans yrði sett á kjörseðilinn í
heimafylkinu fyrir forsetakosning-
amar í Bandaríkjunum í haust. Um
leiö lagði hann fram undirskriftalista
með nöfnum 225 þúsund kjósenda.
Um fimm þúsund stuðningsmenn
auðjöfursins fóra fylktu liði um göt-
ur fylkishöfuðborgarinnar Austin og
héldu síðan íjöldafund eins og Tex-
asbúum einum er lagið á grasflötinni
fyrir framan þing fylkisins til að
fagna þessum áfanga í kosningabar-
Dr. Eamonn Casey, einn þekktasti
kaþólski biskupinn á írlandi, viður-
kenndi í gær að hann væri faðir
sautján ára pilts í Bandaríkjunum.
Biskupinn sagði af sér í síðustu viku
vegna málsins.
Bamsmóðir biskupsins, hin 44 ára
Annie Murphy frá Ridgefield í
Connecticut, hélt írlandi í heljar-
greipum þegar hún skýröi frá því á
fostudag að Peter sonur hennar væri
fyrir tveimur árum hefði verið úti-
lokað að taka hana þar. „Við höfðum
ekki leyfi stjómvalda en taka mynd-
arinnar fór fram fyrir opnum tjöld-
um,“ sagði Singh sem ásamt leik-
stjóranum Darrell James Roodt gerði
neðanjarðarkvikmyndir gegn kyn-
þáttastefnunni um árabil.
Kvikmyndin, sem sýnd er utan
lúnnar opinberu samkeppni, hlaut
hlýjar viðtökur áhorfenda. Ein júgó-
slavnesk blaðakona, sem sá í mynd-
inni hliðstæður við þaö sem er að
gerast í heimalandi sínu, féll í grát á
blaðamannafundinum eftir sýning-
una.
áttu Perots.
Nýjasta skoðanakönnunin í Texas
sýnir að Perot fylgir fast á hæla Bills
Clintons, sem væntanlega verður
frambjóðandi demókrata, og Georges
Bush forseta, þó svo að Bush kalli
Texas sína heimasveit.
Samkvæmt skoðanakönnun, sem
var birt í Kalifomíu í síðustu viku,
naut Perot meira fylgis en bæði Clin-
ton og Bush.
„Ef höfundar stjórnarskrárinnar
okkar eru að horfa á okkar ofan af
himnum í dag vitum við að þeir
ávöxtur undursamlegs ástarsam-
bands hennar viö biskupinn á miðj-
um áttunda áratugnum.
Kaþólska kirkjan krefst þess af
prestum sínum að þeir ástundi skír-
lífi. Casey, sem er 65 ára, sagði af sér
„af persónulegum ástæðum" og hélt
þegar af stað til Bandaríkjanna.
Hann sagðist ætla að helga sig
kristniboðsstarfi í framtíðinni.
Biskup viðurkenndi einnig í gær
Tvær myndir voru sýndar í sam-
keppninni í gær. „Simple Men“ eftir
ungan sjálfstæðan bandarískan leik-
stjóra, Hal Hartley, er fyndin og stíl-
færð saga um tvo bræður í leit að
foður sínum, anarkista og fyrrum
hafnaboltaspilara sem er á flótta
undan lögreglunni.
„Draumur um ljós“ heitir hin
myndin og var gerð af spænska leik-
stjóranum Victor Erice og er hún
eins konar hugleiðing um tilraunir
málara til að fanga á strigann hvem-
ig sólarljósið fer um laufið á roðar-
unna.
brosa,“ sagði Perot við mannfjöld-
ann.
Það blæs ekki byrlega fyrir Bush
forseta um þessar mundir. Skoðana-
könnun, sem birt var í gær, sýnir að
fylgi hans hefur minnkað frá því
óeirðirnar urðu í Los Angeles. Sam-
kvæmt henni mundi Bush sigra Bill
Clinton og Ross Perot naumlega með
miklu minni mun en fyrri kannanir
hafa gefið til kynna. Bush fengi 35
prósent atkvæða, Perot 30 prósent
og Clinton 29 prósent.
að um sjö milljónir króna hefðu ver-
ið greiddar meö drengnum úr vara-
sjóði kirkjunnar en þaö fé hefði verið
endurgreitt með vöxtum.
Blaðið Irish Times hafði þaö eftir
Murphy í gær að hún hefði gert
leynilega myndbandsupptöku af því
þegar Casey afhenti henni peninga.
Reuter
Reuter
Forsetakosningamar í Bandaríkjimum:
Perot á kjörseðilinn í Texas
Reuter
Biskupinn gengst við syninum
- sjö milljónir greiddar með drengnum úr varasjóði kirkjunnar
Daniróttast
ólætiábrúð-
kaupsafmæli
drottningar
Gizur Helgason, DV, Kaupmannahöfn:
Margrét Danadrottning og Hen-
rik prins eiga silfurbrúðkaup í
næsta mánuði og hefur undir-
búningur veislu- og hátíðahald-
anna staðið í marga mánuði.
Drottningin og prinsinn munu
meðal annars aka um nokkrar
af aöalgötum miöborgar Kaup-
mannahafnar í gullnum hest-
vagni þann 10. júní.
Nú hafa memi hins vegar af því
nokkrar áhyggjur að þau verði
fyrir aðkasti misdrukkinna
áhangenda enska landsliðsins í
knattspyrnu sem talið er að verði
þúsundum saman í borginni
þennan dag. Enska landsliöið
leikur nefuilega gegn Júgóslöv-
um í Málmey þann 11.
Forstjóri ferðamála í Kaup-
mannahöfn segist vera viss um
að ensku íþróttaunnendurnir
muni flykkjast til borgarinnar
þegar þeir uppgötvi veröið á
bjórnum í Svíþjóð.
Fæmíháskóla
íSvfþjóðení
grannlöndunum
Umtalsvert færri ungir Svíar
sækja í háskóla en gengur og ger-
ist hjá jafnöldrum þeirra á hinum
Norðurlöndunum.
Þetta kemur fram í nýrri rann-
sókn sem sagt er frá blaðinu Dag-
ens Nyheter.
í Svíþjóð sækja fjórtán prósent
ungmenna á aldrinum 20 til 24
ára nám í háskóla. í Finnlandi
eru það 32 prósent, 31 prósent á
íslandi, 28 prósent í Noregi og 27
prósent í Danmörku.
Svíar em einnig lægstir þegar
litið er á aldurshópinn 25 til 29
ár. Sjö prósent sænskra ung-
menna á þeim aldri eru í háskóla
en 11 til 14 prósent á hinum Norð-
uriöndunum.
Japanskir lög-
fræðingar viSja
grænan dómstól
Japanskir lögfræðingar hafa
lagt til aö stofnaður verði sérstak-
ur „grænn“ dómstóll til aö fjalla
um umhverfismál, Formaður
japanska lögmannafélagsins
sagði í gær að tillaga þess efnis
yröi lögð fram á umhverfisráð-
stefnunni 1 Rio í næsta mánuöi.
Dómstólnum er ætlað að starfa
innan vébanda Sameinuðu þjóð-
anna og hann gæti aðeins fram-
fylgt alþjóðalögum ef ákveðið
yrði að veita honum þau völd.
Nitjánfórusti
eldiíkeilusal
Nítján manns fómst þegar eld-
ur braust út í keilusal í borginni
Chungho á Tævan snemma í
gærmorgun.
Lögreglan sagöi að fórnarlömb-
in hefðu lokast inni 1 keilusalnum
sem er uppi á þriðju hæð eftir að
eldurinn eyðílagði lyftuna í hús-
inu.
Að sögn sjónarvotta lögöu
starfsmenn salarins á flótta þegar
eldurinn kom upp og höföu ekki
fyrir því að segja gestunum frá
hættunni. Um þrjátíu manns
komust þó óskaddaðir út úr saln-
um.
Eldsupptök eru ókunn en tals-
maöur lögreglunnar sagði að ekki
væri hægt aö útiloka íkveikju.
Hann sagði að ekki heföi verið
leyfi fyrir rekstri keilusalar í
húsinu og neyðarútgangar hetöu
verið illa merktir.
TT og Reuter