Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.1992, Qupperneq 3

Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.1992, Qupperneq 3
MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 1992. Fréttir Akureyri: husið? Gylfi Kris^ánsson, DV, Akureyri: Viöræöur hafa farið fram á milli Landsbanka íslands og for- svarsmanna dagblaðsins Dags á Akureyri um að höfð verði maka- skipti á húsi þrotabús Prentverks Odds Björnssonar við Tryggva- braut og hiisnæði Dags og Dags- prents við Strandgötu. Eiríkur Jóhannsson hjá Lands- bankanum, sem hefur með þessi mál að gera fyrir hönd bankans, staðfesti í samtali við DV að þessi möguleiki hefði verið ræddur en engar ákvarðanir veríð teknar. Samkvæmt heimildum DV er fyr- irhugað ef af þessu verður að Dagur og Dagsprent flytji alla sína starfsemi í Tryggvabrautina og gangi þar inn í verkefni sem Prentverk Odds Björnssonar hef- ur unniö fyrir Landsbanka ís- lands mörg undanfarin ár, s.s. prentun ávisanahefta og fleira, Landsbankinn myndi þá eignast húsnæði Dags og Dagsprents við Strandgötu sem talin er mun selj- anlegri eign en POB-húsíð. Eiríkur Jóhannsson vildi sem minnst tjá sig um þetta mál en sagði að víðæður hefðu staðið yfir við tjóra aðila varöandi þetta mál. Niöurstöðu úr þeim viöræð- um væri ekki að vænta fyrr en undir lok mánaðarins í fyrsta lagi. Fangelsismál: Fangaverðir ánægðirmeð Fangavarðafélag íslands hefur lýst yfir ánægju með nýútkomna skýrslu fangelsismálanefndar þar sem lagt var til að nýtt fang- elsi verði byggt og að starfsemi annarra fangelsa verði lögð niður að hiuta eða öllu leyti. Félagið tekur undir niðurstöður nefhdar- innar í ílestum atriðum. Þetta kom meðal annars fram á aðal- fundi félagsins á Selfossi um helg- ina. í tilkynningu, sem DV hefur borist frá fangavörðum, segir m.a.: „Fangaverðir hafa unnið við vægast sagt slæmar aðstæður íram að þessu en ávallt verið reiðubúnir til að bæta ástandiö í fangelsum. Fangaverðir vonast eftir að fá aö fylgjast með og hafa áhrif á skipan fangelsismála í landinu og að gott samband náist milli félagsins og rikisins. Að lokum mótmæhr félagið harðlega vistun ósakhæfra manna í fangelsum landsins, samkvæmt lögum nr. 48/1948 urn fangelsi og fangavist." Eínn ósak- hæfur fangi er vistaður í einu fangelsanna á höfuðborgarsvæð- inu. -ÓTT Kvikmyndasjóöur Evrópu: Kariakórinn Hekla fær 12,7 milijónir Við úthlutun peninga úr Kvik- myndasjóði Evrópu fékk ein ís- lensk kvikmynd úthlutun upp á 12,7 milljónir íslenskra króna. Var það Karíakórinn Hekla sem Guðný Haildórsdóttir leikstýrir. Er áætlað að hefla tökur á mynd- hmi í sumar. Við úthlutun úr Kvikmynda- sjóöi íslands fyrir árið 1992 fékk Kvikmyndafélagið UMBI, sem framleiðir Karlakórinn Heklu, 21 milljón króna, þannig aö í pottinn eru komnar aö minnsta kosti 32,7 milljónir. -HK NY BELTAVEL JSZ40LC 'r í' Þfr- '■'i HSHÖ . SYNING Laugardaginn 16. maí kl. 11-17.' Fullkomin og vöndub beltavél meb tölvustýröum stjórnbúnabi (CAPS). JCB JS240LC beltavélin er ein af nýrri kynslóö beltavéla frá JCB, sem eru frá 7-46 tonn ab eigin þyngd. Sýningarstabur er í sandnámum í landi Fitjakots ofan vib Mosfellsbæ. Laugardaginn 16. maí kl. 11-17. Þar gefst mönnum kostur á ab skoba og prófa nýju beltavélina ásamt JCB 4CX, 3CX, 2CX og 801 minibeltavél. Einnig verba til sýnis úrval vökvaknúinna fylgihluta frá JCB. JCB 4CX JCB3CX JCB 2CX JCB 801 Globust heimur gœðal LÁGMÚLA 5-SÍMI 91-681555

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.