Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.1992, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.1992, Page 14
14 MIÐVIKUDAGUR 13. MAl 1992. Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JONAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, 105 RVlK, SlMI (91)63 27 00 SlMBRÉF: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91 )63 29 99 GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Askrift: 99-6270 AKUREYRI: STRANDGÖTU 25. SlMI: (96)25013. Blaðamaður: (96)26613. SlMBRÉF: (96)11605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1200 kr. Verð í lausasölu virka daga 115 kr. - Helgarblað 150 kr. Markaðurinn ráði vöxtum Mikill hvellur hefur oröiö, vegna þess að Landsbank- inn lækkaði útlánsvexti ekki niður á sama stig og aðrir bankar og sparisjóðir í tengslum við kjarasamningana. Þjóðarsáttarmenn telja, að um ræði svik á samningum, einkum ef svo færi, að aðrir bankar hækkuðu vexti að nýju upp að Landsbankavöxtunum. Ráðamenn annarra banka láta að því liggja, að þeir muni þurfa að endurskoða afstöðu sína og hugsanlega hækka vexti, ef Landsbankinn lækkar ekki fyrir mán- aðamótin. Þjóðarsáttarmenn fara hörðum orðum um bankann. „Ég tel það samningsrof, lækki Landsbankinn ekki sína vexti til jafns við aðra banka og sparisjóði,“ sagði Björn Grétar Sveinsson, formaður Verkamannasambandsins, í viðtali við DV. „Ef Landsbankinn lækkar ekki vext- ina, hlýt ég að spyrja mig, hvort við höfum verið að leggja miðlunartillögu ríkissáttasemjara fyrir fólk á fölskum forsendum,“ sagði hann. Þórarinn V. Þórarins- son, framkvæmdastjóri Vinnuveitendasambandsins, sagði við DV, að það væri Landsbankinn, sem væri að svíkja fyrirheitið frá samningunum. Því yrði ekki tekið þegjandi, ef bankinn héldi uppi háum vöxtum, sem verði til þess að aðrir bankar og sparisjóðir hækki sína vexti. Hvað hangir í raun og veru á spýtunni? Lækkun vaxta var þáttur í kjarasamningunum, en hvernig? Að sjálfsögðu þýðir ekki að ætla sér að lækka vexti með handafli, ef aðstæður á markaði leyfa það ekki. Slíkt mundi sannarlega hefna sín. Það sem gerðist í raun og veru í kjarasamningunum var, að menn sáu, að með hófsamlegum kjarabótum yrði verðbólgan hverf- andi lítil. Ríkið lofaði að bæta ráð sitt og draga úr láns- fjáröflun. Menn komu auga á, að þessir þættir leiddu til þess, að grundvöllur skapaðist á markaðinum til að hafa vexti lægri en þeir voru fyrir. Auðvitað var það einungis á þessum nótum, sem vaxtalækkun gat af viti orðið þáttur í þjóðarsáttinni. í tengslum við samningana gáfu fulltrúar banka og sparisjóða yfirlýsingar um vaxtamál. í yfirlýsingu Landsbankans sagði meðal annars: „Þess má vænta, að markaðsaðstæður leiði til almennt svipaðra og sam- bærilegra kjara banka, hvort heldur er í verðtryggðum eða óverðtryggðum bankaviðskiptum." Ennfremur sagði í yfirlýsingunni, að Landsbankinn mundi breyta kjörum á algengustu vísitölubundnum skuldabréfalán- um með hliðstæðum hætti og yrðu ákveðin á nýjum spariskírteinum ríkisins í kjölfar kjarasamninganna. Því liggur fyrir, að Landsbankinn gaf í viðræðunum ekki ákveðið loforð um að fara niður á eitthvað, hár- fínt, vaxtastig. Allir bankar og sparisjóðir lækkuðu vexti töluvert, einnig Landsbankinn, en vextir Landsbankans höfðu um nokkurt skeið verið hærri en hinna. Svo var enn eftir lækkunina. Það er grundvallaratriði, að markaðsaðstæður ráði vöxtunum. Að sjálfsögðu mátti meta það sem plús í kjarasamningunum, að hóflegir samningar gátu leitt til lægri vaxta. Auðvitað máttu bankarnir gefa yfirlýsingar í tengslum við þessa staðreynd. Landsbankinn verður fyrir mestum skakkafóllum vegna tapaðra skulda. En hann ætti að geta lækkað vexti meira en orðið er. Lands- bankinn ætti ekki að þurfa svo háa vexti vegna markaðs- tæðna, að vaxtastigið færist upp. Líkur eru til þess, að Landsbankinn lækki útlánsvexti sína frekar innan skamms og allir megi vel við una. Haukur Helgason „Rikisstjórnin er uppi með hugmyndir um að einkavæða orkufyrirtækin ...“ Einkavasðing í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Davíðs Oddssonar er einkavæðing- unni gefið mikið pláss. Einkavæö- ing opinberra fyrirtækja þarf ekki að vera af hinu illa, síður en svo. Það er hins vegar undirbúningur, framkvæmd og tímasetning einka- væöingarinnar sem máli skiptir. Framsóknarflokkurinn leggur áherslu á að atvinnureksturinn sé í höndum einstaklinga og félaga- samtaka þeirra og telur að ríkis- rekstur eigi fyrst og fremst við þeg- ar almannaheill krefst þess. Framsóknarflokkurinn hafnar því ekki einkavæðingu opinberra fyrirtækja. Hann hafnar hins vegar einkavæðingu mikilvægra þjón- ustustofnana á sviði mennta-, menningar- og heilbrigðismála. Sama gildir um banka sem veita atvinnulífinu nauðsynlega þjón- ustu og orkufyrirtæki sem tryggja yfirráð íslendinga yfir orkulindum landsins. Af sem áður var Það skýtur liins vegar dálítið skökku við að ríkisstjórn Davíðs Oddssonar skuh leggja höfuð- áherslu á einkavæðingu opinberra fyrirtækja, því þegar þær stað- reyndir eru hafðar í huga að á meðan núverandi forsætisráð- herra var borgarstjóri í Reykjavík þá var hann jafnframt fram- kvæmdastjóri fyrir fyrirtækjum í opinberri eigu, sem voru í beinni samkeppni við einkafyrirtæki. Hann sem framkvæmdastjóri þessara opinberu fyrirtækja talaði aldrei um einkavæðingu þeirra. Hann vildi reka stærstu rörasteyp- una, stærsta trésmíðaverkstæðið, stærstu malbikunarstöðina og flesta veitingastaðina. Þá voru eng- ar hugleiðingar uppi um einkavæð- ingu þótt flest þessara fyrirtækja væru í beinni samkeppni við einka- fyrirtæki. Hálfbrjálaðir prófessorar í október 1991 birtist í Morgun- blaðinu viðtal við Breta sem heitir Douglas Smith. Smithfylgir breska íhaldsflokknum að rnálurn og sat í borgarstjóm Harringey-hverfisins í London í 25 ár og var borgarstjóri þess í nokkur. Smith heldur því fram að stjóm Thatchers hafi geng- ið alltof langt í einkavæðingu. Hann segir að einkavæðingin hafi hafist á skynsamlegum nótum í upphafi 9. áratugarins en endað sem rugl. Smith segir að hugmyndimar um einkavæðingu hafi aðallega komið frá svokölluðum hugmyndabönk- um íhaldsflokksins. Þeim hafi öO- um verið það sammerkt að í þeim hafi setið mjög hægri sinnaðir flokksmenn og í röðum þeirra manna hafi veriö hálfbrjálaðir pró- KjaUarrnn Finnur Ingólfsson alþingismaður fyrir Framsóknarflokkinn i Rvk fessorar. Hann segir að þetta hafi verið menn sem hafi ekki veriö í neinum tengslum við raunvem- leikann, menn sem hafi lifað í ein- hverjum filabeinsturni. Margt líkt með skyldum Margt er nú líkt með þessari lýs- ingu Douglas Smith á vinnubrögð- um og hugmyndum breska íhalds- flokksins og þeim íslenska. Við ís- lendingar höfum ekki mikla reynslu af einkavæðingu fyrir- tækja. Vegna reynsluleysis okkar á þessu sviði væri skynsamlegt fyrir okkur að hlusta á menn eins og Douglas Smith og ekki síöar að styðjast við þau boöorð sem dr. Madsen Pirie, formaöur Adam Smith stofnunarinnar, gaf okkur á aðalfundi Vinnuveitendasambands íslands í erindi sem hann hélt þar fyrir tæpu ári. Fyrir Alþingi liggja nú nokkur lagafrumvörp sem gera ráð fyrir að jafn mörg ríkisfyrirtæki verði gerð að hlutafélögum og hlutur rík- isins síðan seldur í þeim. Boðorð dr. Madsen Pirie Því er nú fróðlegt að fara yfir boðorðin frá dr. Madsen Pirie og skoða hvernig ríkisstjórnin fer að ráðum þeirra sem reynsluna hafa. Hér er því miður ekki hægt aö minnast á öll boðorðin 12 sem Pirie taldi að við þyrftum að hafa í huga ef við ætluðum að standa vel að verki heldur er minnst á þau er sérstaklega snúa nú að okkur. Madsen Pirie sagði: 1) Vandið allan undirbúning. - Undirbúningur ríkisstjórnar- innar er enginn. Það er hlaupið til án skilgreindra markmiða og tilgangs. 2) Vinnið starfsmenn á ykkar band. - Það hefur ríkisstjórnin ekki reynt. Dæmi um það er að starfsmenn fyrirtækjanna, sem á að einkavæða, hafa lýst yfir andstöðu sinni við hana. 3) Fellið ekki niður sérréttindi sem starfsmenn hcifa hlotið sem op- inberir starfsmenn. - Að þessu hyggur ríkisstjórnin ekkert, síður en svo, og öll þau lagafrumvörp, sem liggja fyrir þinginu, gera ráð fyrir því að svipta starfsmennina þeim rétti sem þeir hafa áunnið sér sem opinberir starfsmenn. 4) Ráðist ekki á garðinn þar sem hann er hæstur heldur byrjið á þeim fyrirtækjum sem einfalt og fljótlegt er að einkavæða. - Ríkisstjómin er uppi með hug- myndir um að einkavæða orku- fyrirtækin, stærstu fyrirtækin og fyrirtækin sem hafa einokun- araöstöðu. Tímasetning röng Fyrir utan þessi forkastanlegu vinnubrögð þá held ég að það blandist engum hugur um að sú tímasetning, sem nú er vahn til einkavæðingar á fyrirtækjum, er röng þar sem sparnaður er óvenju- lítill í þjóðfélaginu, og þau fyrir- tæki, sem nú eru starfandi í at- vinnulífinu, þurfa á auknu eigin fé að halda. Það mun því gera þeim fyrirtækj- um, sem starfandi eru, erfiðara fyr- ir að fjármagna sig og ekki síöur það að það verð, sem fæst fyrir þau opinberu fyrirtæki sem boðin verða til kaups á hlutabréfamark- aði, verður mjög lágt eöa a.m.k. mun lægra en ef sparnaður í þjóðfé- laginu væri meiri. Undirbúningur, framkvæmd og tímasetning einkavæðingarinnar eins og hún birtist hjá ríkisstjórn- inni er því röng. Finnur Ingólfsson „ .. .sú tímasetning, sem nú er valin til einkavæðingar á fyrirtækjum, er röng þar sem sparnaður er óvenjulítill í þjóðfélaginu, og þau fyrirtæki, sem nú eru starfandi í atvinnulífmu, þurfa á auknu eigin fé að halda.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.