Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.1992, Qupperneq 16
16
MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 1992.
Nauðungaruppboð
Eftir kröfu skiptaréttar Reykjavíkur fer fram opinbert uppboð að Kleppsvegi
150, Matvöruverslun Sigga og Lalla hf„ miðvikudaginn 20. maí 1992 kl.
10.30. Seldir verða eftirtaldir munir: kassaborð, 2 stk., peningakassar, vegg-
kælir, kjötborð, vegghillur frá Matkaup, 21 stk., grindur, 22 stk., innkaupa-
vagnar, 18 stk„ kjötsög, vacuumvél, kókskápur, 2 stk„ frystiborð, eyjur á
gólfi, 7 einingar, áleggshnífur og fleira. Greiðsla við hamarshögg.
UPPBOÐSHALDARINN í REYKJAVlK
Nauðungamppboð á eftirtöldum eignum fer fram í skrifstofu embættisins á neðan- greindum tíma: Höfðabraut 12, neðsta hæð, þingl. eig- andi Hólmfríður Dröfh Guðmunds- dóttir, föstudaginn 15. maí 1992 kl. 11.00. Uppboðsbeiðandi er Guðjón Ármann Jónsson hdl.
Vallholt 13, kjallari, þingl. eig. Lýður Sigmundsson, Ingþór Lýðsson & Grét- ar Lýðsson, talum eigandi Guðni Jónsson föstudaginn 15. maí 1992 kl. 11.00. Uppboðsbeiðendur em: inn- heimtumaður ríkissjóðs og Akranes- kaupstaður.
Akursbraut 22, þingl. eig. Björgheiður Jónsd., Bettý Guðmundsd., Kristrún Guðmundsd. o.fl., föstudaginn 15. maí 1992 kl. 11.00. Uppboðsbeiðandi er Tryggingastoíhun ríkisins.
Bárugata 15, þingl. eigandi SkagaveiL ingar hf., föstudaginn 15. maí 1992 kl. 11.00. Uppboðsbeiðendur em: inn- heimtumaður ríkissjóðs og Akranes- kaupstaður. Vesturgata 46, þingl. eig. Finnbogi Þórarinsson & Vilborg Guðjónsdóttfr, föstudaginn 15. maí 1992 kl. 11.00. Uppboðsbeiðandi er Akraneskaup- staður.
Bjarkargrund 43, þingl. eigandi Röð- ull Bragason, föstudaginn 15. maí 1992 kl. 11.00. Uppboðsbeiðendur em: Veð- deild Landsbanka íslands, Kristján Ólaísson hdl. og Akraneskaupsstaður. Vesturgata 71b, þfrigl. eigandi Tómas Rúnar Andrésson, föstudaginn 15. maí 1992 kl. 11.00. Uppboðsbeiðendur era Fjárheimtan fif. og Veðdeild Lands- banka Islands.
BÆJARFÓGETINN Á AKRANESI
✓ ✓
Smfðum hvers kyns verksmiðjuframleidd hús úr
timbrí á mismunandi byggingarstigum á mettíma.
Getum enn bætt við nokkrum húsum í sumar.
Aðstoðum við gerð kostnaðaráætlana og gerum
föst verðtilboð.
Hringið og pantið ykkur bæklinga yfir húsgerðir.
SAMTAKI
HUSEININGAR
Gagnheiði 1 - 800 Selfossi
Sírni 98-22333
Fréttir
Lögreglumaður á Selfossi sem kærður var fyrir að aka fram hjá slysstað:
Ríkissaksóknari
krefst ekki
frekari aðgerða
- starfsfélagi lögreglumannsins kærði ásamt sjö öðrum aðstandendum
flytja mann sem talinn var alvarlega
slasaður. Aðrir lögreglumenn hafi
farið tafarlaust á slysstað.
„Við sjátun ekki annað en að þessu
slysi hafi verið sinnt strax og á eðli-
legan hátt,“ segir orðrétt í skýrsl-
unni. Yfirlögregluþjónn taldi við-
brögð og framkomu Hlöðvers hafa
verið eðlileg og ekki ástæðu til at-
hugasemda.
Eins og aö framan greinir urðu
lyktir þær við afgreiðslu málsins hjá
ríkissaksóknara að ekki voru talin
efni tfi frekari rannsóknar né ákæru
á hendur lögreglumanninum. Sýslu-
maðurinn í Ámessýslu hefur nú tfi-
kynnt hlutaðeigandi að málið verði
látið niður falla.
-ÓTT
Ríkissaksóknaraembættið krefst
ekki frekari aðgerða í máli lögreglu-
manns á Selfossi sem kærður var til
sýslumanns eftir að hafa ekið fram
hjá slysstað þegar 5 ungmenni slös-
uðust í bílveltu í lok september síð-
astliöins. Fem hjón, aðstandendur
hinna slösuðu, kærðu lögreglu-
manninn, þar á meðal starfsfélagi
mannsins í lögreglunni.
Slysið varð með þeim hætti að fjór-
h- piltar og ein stúlka vom aö koma
af dansleik í Aratungu þegar bfil
þeirra valt út fyrir veg á Biskups-
tungnavegi undir Ingólfsfjalli. Ung-
mennin slösuðust ekki mjög alvar-
lega en sum þeirra misstu meðvit-
und. Fljótlega eftir slysið ók um-
ræddur lögreglumaður, Hlöðver
Magnússon, á bifreið með blikkandi
ljósum fram hjá slysstað. Hann var
ásamt öðrum lögreglumanni að flytja
slasaðan pfit frá dansleiknum í Ara-
tungu. Lögreglumennirnir tfikynntu
um bfiveltuna í gegnum fjarskipta-
kerfið og kom sjúkraflutningabíll
nokkru síðar á staðinn þar sem bfi-
veltan varö.
Eftir slysið kærðu aðstandendur
ungmennanna umræddan lögreglu-
mann til sýslumanns og kröfðust
þess að honum yrði vikið úr starfi.
Þann 9. október barst sýslumanni þó
bréf þar sem fallið var frá þeim Uð
kærunnar að Hlöðveri yröi vikið úr
starfi en alvara málsins ítrekuð.
í skýrslu yfirlögregluþjóns á Sel-
fossi um atburðinn segir meðal ann-
ars að bíllinn, sem kom fyrst á stað-
inn, hafi verið í neyðarverkefni að
Frosta-
kaflinn
skaðaði
ekki gróður
„Þaö eru ekki merkjanlegir skaðar
á gróðri eftir frostið sem kom um
helgina. Það lítur út fyrir að gróður
hafi almennt sloppið við skemmdir.
Það hjálpar til að það hefur ekki ver-
ið neitt frost í jörðu. Það gæti verið
að frostið tefji eitthvað fyrir vextin-
um en engar skemmdir eru sjáanleg-
ar.
Snjókoman um helgina gerði engan
skaða, frostið getur hins vegar verið
varasamara. Að vísu er erfitt um
þetta aö segja, hugsanlegur skaöi á
gróðri kemur ekki fram strax, en
hann er ekki sjáanlegur eins og er,“
sagði Þórólfur Jónsson, landslags-
arkitekt hjá garðyrkjudefid Reykja-
víkurborgar, í samtali við DV.
Fjöldi fólks hefur áhyggjur af því
að gróður hafi skaðast í frostinu um
helgina en að öllum líkindum er ótt-
inn ástæðulaus. -ÍS
Gróður virðist ekki hafa orðið fyrir skemmdum i hretinu sem gekk yfir um
helgina. Myndin var tekin á Austurvelli i gær og er greinilegt að gróöur
eraliuraðkomatil. DV-myndGVA
Verkalýösfélögin í hækkunarstuði:
Hækkuð leiga fyrir orlofshús
Á sama tíma og verkalýösfélögin
börðust fyrir kauphækkunum fyrir
félagsmenn sína tóku þau ákvörð-
un um hækkun á leigu fyrir orlofs-
hús sín í sumar.
Vikuleiga á stórum húsum hjá
Bandalagi starfsmanna ríkis og
bæja, BSRB verður 8.500 krónur en
litlum 6.100 krónur. í fyrra var
sumarleigan á stórum húsum 7.800
krónur og litlum 5.600 krónur. Lín
er innifalið í leiguverðinu.
Verkamannafélagið Dagsbrún
auglýsti nýlega hækkað verð á
sumarhúsum frá þvi í fyrra eða
8.000 krónur fyrir vikuna. Að sögn
starfsmanns Dagsbrúnar var um
mistök að ræða. Rætt hafði verið
um hækkun en ákveðið var að
halda óbreyttu verði eða 7.000
krónmn.
Starfsmannafélagiö Sókn hækk-
ar leiguna fyrir orlofshús um 500
krónur á viku. Lín er nú innifalið,
sem var ekki áður, auk þess sem
húsin hafa verið endumýjuð. Verð
á húsum í eigu Sóknar er frá 7.000
tfi 8.500 fyrir vikuna. Hús, sem
Sókn endurleigir frá Ferðaþjón-
ustu bænda, kosta 10.000 á viku.
Vikuleiga á orlofshúsum hjá
Verkakvennafélaginu Framsókn
hækkar úr 7.000 krónum í 8.000
krónur. Lín er innifalið í leiguverð-
inu.
Verkamannafélagið Hlíf hækkar
leigu á stórum húsum. í fyrra var
vikuleigan 6.500 en verður 7.000 í
sumar. Leiga á htlum húsum verð-
ur óbreytt eða 6.000 krónur.
-IBS
Fyrirlestur:
Norrænisjónauk-
innáLaPalma
Arne Ardeberg, prófessor við
sljörnufræðideild háskólans í Lundi
í Svíþjóð, heldur almennan fyrirlest-
ur hér á landi laugardaginn 16. maí
um norræna sjónaukann á La Palma.
Fyrirlesturinn verður fluttur á
ensku í stofu 101 í Odda og hefst kl.
14. Hann er öllum opinn.
Norræni sjónaukinn, sem var tek-
inn í notkun haustið 1989, er 2,5
metra breiður spegfisjónauki og tal-
inn einn sá besti í heimi. Hann stend-
ur á fjallinu Roque de los Muchachos
á La Palma sem er ein af Kanaríeyj-
unum. Þar eru skilyrði tfi stjömuat-
hugana mjög góðar.
Ardeberg mun ræða við íslenska
stjamvísindamenn um hugsanlega
aðfid íslendinga aö sjónaukanum en
slíkt myndi gjörbreyta allri aðstöðu
íslendinga tfi stjömuathugana.