Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.1992, Side 30

Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.1992, Side 30
50 MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 1992. Fólk í fréttuin Jóhann Pétur Malmquist Jóhann Pétur Malmquist, prófessor viö HÍ og stjómarformaður Softis hf., Seiðakvísl 19, Reykjavík, hefur verið í fréttum DV vegna Louis- forritsins sem nú er verið að kynna fyrir tölvufyrirtaekjum í Bandaríkj- unum. Starfsferill Jóhann fæddist í Reykjavík 15.9. 1949 og ólst þar upp í foreldrahús- um. Hann lauk stúdentsprófi frá MA1970, lauk B.S.-prófi í stærð- fræði og eðlisfræði frá Caroll Col- lege, Wisconsin í Bandaríkjunum, 1973 og Ph.D.-prófi í tölvuverkfræði frá Pennsylvaniá State University í Bandaríkjunum 1979, stundaði framhaldsnám við Pennsylvania State University 1973-78 og vann að rannsóknarverkefni við Thomas J. Watson Research Center í New York 1979-80. Jóhann var kerfisfræðingur hjá IBM á íslandi 1973, var kennari við Pennsylvania State University 1976, deildarverkfræðingur hjá fjármála- ráðuneytinu við Fjárlaga- og hag- sýslustofnun 1980-85, var aðjunkt við HÍ1980-85 og hefur verð prófess- orviðHÍfrál985. Jóhann var formaður Félags há- skólakennara 1988-90 og hefur setið í ýmsum nefndum innan HÍ. Hann hefur setið í stjórn Softis frá stofnun 1990 og hefur, ásamt Snorra Agnars- syni, unnið að þróun Louis-forrits- ins. Fjölskylda Jóhann kvæntist 19.8.1972 Svönu Friðriksdóttur, f. 31.12.1951, kenn- ara. Hún er dóttir Friðriks Sigur- björnssonar, skrifstofumanns i Reykjavík, og Svanfríðar Friðjóns- dóttur húsmóður sem er látin. Böm Jóhanns og Svönu eru Skúli Friðrik, f. 14.3.1973, menntaskóla- nemi; Ari, f. 10.8.1978, nemi; Ásta Berit, f. 14.7.1980, nemi. Bróðir Jóhanns er Guðmundur Malmquist, f. 13.1.1944, forstjóri Byggðarstofnunar, kvæntur Sigríði J. Malmquist bankastarfsmanni og eigaþauþrjúbörn. Hálfsystir Jóhanns, samfeðra, er Þórdís R. Malmqmst, f. 30.5.1950, sölumaður í Reykjavík og á hún þrjúbörn. Foreldrar Jóhanns: Eðvald Bran- steð Malmquist, f. 24.2.1919, d. 17.3. 1985, ráðunautur í Reykjavík, og kona hans, Ásta Thoroddsen, f. 6.1. 1916, húsmóðir. Ætt Systir Eðvalds er Hildur, móðir Páls Stefánssonar, auglýsingastjóra DV. Eðvald var sonur Jóhanns Pét- urs Malmquist, b. í Borgargerði í Reyðarfirði, Jóhannssonar, b. í Áreyjum, Péturssonar. Móðir Jó- hanns Péturs var Jóhanna Indriða- dóttir, hreppstjóra í Seljateigi, Ás- mundssonar. Móðir Eðvalds var Kristrún ljós- móðir, systir Hildar, ömmu Regínu fréttaritara og Guðrúnar, ömmu Eyjólfs Kjalars Emilssonar heim- spekings. Bróðir Kristrúnar var Pétur, afi Gunnars S. Magnússonar myndhstarmanns. Kristrún var dóttir Bóasar, b. í Stakkagerði og á Stuðlum í Reyðarfirði, bróður Bóel- ar, langömmu Geirs Hallgrímssonar forsætisráðherra og Karls Kvaran listmálara. Bóas var sonur Bóasar, b. á Stuðlum, Arnbjömssonar, og konu hans, Guðrúnar, systur Páls á Sléttu, afa Páls sem var afi Kjartans Gunnarssonar, framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins, og Harðar Ein- arssonar, framk v'æmdastjóra og út- gáfustjóra DV. Guðrún var dóttir Jóns, gullsmiðs á Sléttu í Reyðar- firði, Pálssonar, hálfbróður Sveins, læknis og náttúrufræðings. Móðir Guörúnar var Guðný Stefánsdóttir, ættfóður Sandfellsættarinnar, Magnússonar, og konu hans, Guð- rúnar Erlendsdóttur, b. á Ásunnar- stöðum í Breiðdal, Bjamasonar. Móðir Kristrúnar var Sigurbjörg, systir Guðnýjar, móður Huldu Jóhann Pétur Malmquist. skáldkonu. Sigurbjörg var dóttir Halldórs, b. á Geitafelli í Aðaldal, Jónssonar, prests og læknis á Grenj- aðarstað, Jónssonar. Ásta Malmquist Thoroddsen er dóttir Guðmundar Thoroddsens prófessors og Regínu Magdalenu Benediktsdóttur. Guðmundur var sonur Skúla Thoroddsens, sýslu- manns, ritstjóra og alþingismanns, og Theodóru Friðrikku Thoroddsen Guðmundsdóttur. Regína var dóttir Benedikts Kristjánssonar, prófasts á Grenjaðarstað, og Ólafar Ástu Þórarinsdóttur. Afmæli Kristján S. Guðmundsson Kristján Sigurður Guömundsson jámsmiður, Skólavöllum 8, Selfossi, ersjötugurídag. Starfsferill Kristján er fæddur á ísafiröi og ólst upp þar og í Stóru-Sandvík í Sandvíkurhreppi í Flóa. Hann lauk sveinsprófi í vélsmíði frá kvöldskóla iðnaðarmanna á ísafirði 1946. Kristján vann lengst af við járn- smíði á ýmsum stöðum og var m.a. við tanksmíði á vegum Vélsmiðj- unnar Héðins í Reykjavík sem smíð- aði lýsistanka víða um land. Hann var einnig til sjós af og til. Kristján var skrifstofumaður verkalýðsfé- laganna á Selfossi í áratug og síöar við viðgerðir og vélgæslu hjá Slátur- félagi Suðurlands á Selfossi. Hann var skipaður iðnfulltrúi Suður- landsumdæmis 1972 og gegndi því starfi auk annarra til 1990. Kristján er einn stofhfélaga Járn- iðnaðarmannafélags Ámessýslu og var jafnframt fyrsti formaður þess. Hann sat í samninganefnd Málm- og skipasmíðasambandsins í mörg ár og var í stjóm Jámiðnaðar- mannafélags Árnessýslu þar til fé- lagið var sameinað Félagi járniðn- aðarmanna í Reykjavík. Hann átti auk þess sæti í mörgum samninga- nefndum sem starfsmaður verka- lýðsfélaganna á Selfossi. Kristján bjó á ísafirði til 1947, í Reykjavík 1947^9 og á Selfossi frá þeim tíma. Kristján var í sveit í Stóru-Sandvík á bernskuámm. Fjölskylda Kristján kvæntist 4.6.1953 Guð- mundu Guðmundsdóttur, f. 4.6. 1925, d. 1.1.1990, frá Hurðarbaki í Villingaholtshreppi í Árnessýslu, kjólameistara, en þau hófu sambúð 1951. Foreldrar Guðmundu: Þuríður Árnadóttir, fædd á Hurðarbaki, og Guðmundur Kr. Gíslason, fæddur á Urriðafossi, en þau voru ábúendur áHurðarbaki. Kristján og Guðmunda eignuðust þrjá syni: Guðmundur Guðni, f. 14.9. 1953, við doktorsnám í landafræði í Lundi í Svíþjóð, kvæntur Sólveigu R. Friðriksdóttur og eiga þau þrjú börn; Haraldur Magnús, f. 30.10. 1957, sóknarprestur í Vík í Mýrdal, kvæntur Guðlaugu Guðmundsdótt- ur, forstöðumanni dvalarheimilis- ins Hjallatúns í Vík, og eiga þau tvo syni; Lárus Þór, f. 20.1.1962, við framhaldsnám í fiskifræði í Osló. Systkini Kristjáns: Magnús, f. 1916, d. 1918; Ólafur, f. 1918, d, 1982; Magnús, f. 1920, d. 1941; Páll Stein- ar, f. 29.8.1926, skólastjóri Mýrar- húsaskóla á Seltjarnarnesi, kvænt- ur Unni Ágústsdóttur kennara og eiga þau fimm dætur; Haraldur, f. 1928, d. 1935; Sigrún, f. 26.6.1929, fóstra, gift Hallgrími Árnasyni bif- reiðarstjóra, þau eignuöustþrjú börn en eitt er látið; Lárus Þorvald- ur, f. 16.5.1933, sendiráðsprestur í Kaupmannahöfn, kvæntur Sigur- veigu Georgsdóttur hjúkrunarfræð- ingi, þau eiga þrjú börn. Foreldrar Kristjáns voru Guð- mundur Guðni Kristjánsson, f. 23.1. 1893, d. 1975, frá Meira-Garði í Dýra- firði, skrifstofustjóri Rafveitunnar á ísafirði, og Lára Ingibjörg Magnús- dóttir, f. 19.7.1894, d. 15.7.1990, frá Kristján Sigurður Guðmundsson. Sauðárkróki, húsfreyja, þau bjuggu lengst af á Ísaíirði en í Reykjavík síðustuárin. Ætt Guðmundur Guðni var sonur Kristjáns, skipstjóra og b. í Meira- Garði i Dýrafirði, Ólafssonar, b. í Ytrihúsum í Dýrafirði, Sakaríasson- ar. Móðir Guðmundar var Sigríður Þórðardóttir, b. á Lambavatni á Rauðasandi, Jónssonar. Bróðir Láru Ingibjargar var Lúð- vík C. Magnússon, skrifstofustjóri Sjúkrasamlags Reykjavíkur. Lára Ingibjörg var dóttir Magnúsar, verslunarmanns á Sauðárkróki, Guömundssonar, og Hildar Mar- grétar Pétursdóttur, dansks skip- stjóra, Eriksen. Kristján verður að heiman á af- mælisdaginn. Bridge Sumarbridge í Reykjavík Árlegur sumarbridge í Reykja- vík, á vegum Bridgesambands ís- lands hefst mánudaginn 18. maí. Spilað verður í húsi Bridgesam- bandsins Sigtúni 9. Umsjónarmenn sumarbridge í ár verða Ólafur og Hermann Lámssynir. Fyrirkomu- lag verður með nokkuð breyttu sniði miðað við undanfarin ár. Spil- aður verður Mitchell á mánudög- um, riðlakeppni á þriðjudögum og fimmtudögum og aftur Mitchell á laugardögum. Á mánudögum verður húsið opn- að kl. 18 og stefnt er að því aö spila- mennska hefjist um kl. 19. Á þriðju- dögum og fimmtudögum verður húsið opnað kl. 16.30 og hefst spila- mennska í hveijum riðli um leið og hann fyllist. Síðasti riðill fer af stað um kl. 19. Á laugardögum er opnað kl. 13 og stefnt verður að upphafi spilamennsku um kl. 13.30. Síðar í sumar verður boðið upp á hraðsveitarkeppni (4 spilarar), 3. kvölda keppni. Til stendur einnig að bjóða upp á barómeterkeppni á laugardögum þar sem keppendur verða fyrirfram skráðir og spil for- gefm. Keppnisgjaldi veröur stillt í hóf og verður það sama og gilt hef- ur í allan vetur, 500 krónur á spil- ara. Sérstök verðlaun verða veitt í lok sumars þeim sem flest stig hljóta í sumarbridge. Þriðjudaginn 19. maí verður sum- arbridge spilaður í Drangey við Stakkahlíð (sunnan megin við Miklubraut) þar sem húsnæðið við Sigtún 9 verður upptekið. Nánari upplýsingar um sumarbridge veitir Ólafur Lámsson í síma 16538. Til hamingju með afmælið 13. maí ara Ástríður Jósefsdóttir, Sóiheimiun 27, Reykjavik. Ásdís Sigríður Pétursdóttir, Ljótsstöðum 2, Vopnafiaröarhreppi. Sigurdis Skúladóttir. Háaleitisbraut 45, Reykjavik. Jóhann Guftmundsson. Barðstúni 3, Akureyri. ara Bima 0. Óskarsdóttir, Fellsmúla 17, Reykjavík. Erla Fiosadóttir, Hraunbergi 11, Reykjavík. Guttormur Jónsson, Bjarkargrund 20, Akranesi. Eirikur Jónsson, Bárugötu 36, Reykjavík- Aðaiheiður Þóroddsdóttir, Gnoðarvogi 34, Reykjavík. Sigurbjörg Alexandersdóttir, Krossnesi, Ámeshreppi. Áslaug Stefánsdóttir, Mörk, Hálshreppi. Hún tekur á móÚ gestum á heimilí sinu laugardaginn 16. maí. Pétur Þörsteinsson, Austurbrún 6, Reykjavik. 40 ára ara Þórdis Sigurlaug Friðriksdóttir, Hnumargötu 1, Isafirði. Björn Marteinsson, Háteigi 11, Keflavík. Þorgerður Árnadóttir, Hamraborg 14, Kópavogi. Helga Vibnundardóttir, Bæjargíli 38, Garðabæ. Kristín Emmi Finnhogadóttir, Þorsteinsstöðura, Lýtingsstaðahreppi. Guðbjört Einarsdóttir, Eyrargötu 19, Eyrarbakka. Ólafur Einarsson, Torfastöðmn, Biskupstungnahreppi. Konráð Ásgrímsson Konráð Ásgrímsson, fyrrv. bóndi á Skálá í Sléttuhlíð og síðar starfs- maöur við Niðursuðuverksmiðju K. Jónsson, Skarðshlið 4c, Akur- eyri, er sjötíu og fimm ára í dag. Starfsferill Konráð fæddist á Mýrum í Sléttu- hlíð í Skagafirði og ólst upp í for- eldrahúsum að Tjörnum í sömu sveit til tuttugu og fimm ára aldurs. Á unglingsárunum stundaði hann öll almenn sveitastörf, var í vega- vinnu og stundaði nám viö bænda- skólann að Hólum einn vetur. Konráö hóf búskap tuttugu og fimm ára aö Syðsta-Hóli í Sléttuhlíð og bjó þar í eitt ár en þá keyptu þau hjónin Skálá í sömu sveit og bjuggu þar til 1970. Þau fluttu þá til Akur- eyrar þar sem þau hafa búiö síðan. Á Akureyri starfaði Konráð hjá Nið- ursuðuverksmiðju K. Jónsson í átján ár en hætti þá störfum fyrir aldurs sakir. / Fjölskylda Konráð kvæntist 1942 Guðrúnu Þorsteinsdóttur húsfreyju. Börn Konráðs og Guðrúnar em Alda, starfsmaður að Hólum í Hjaltadal; Eyjólfur, húsasmiður í Svíþjóö; Þorsteinn, járnsmiður á Akureyri; Ólöf, húsmóðir á Sauðár- króki; Veronika, húsmóðir á Dalvík; Bragi, starfsmaður við Sláturhús KEA. Konráð átti fimm systkini og em tvöþeirraálífi. Foreldrar Konráðs voru Ásgrímur Halldórsson, b. og vegaverkstjóri á Tjörnum, og Ólöf Konráðsdóttir húsfreyja. Konráð og Guörún veröa ekki heima á afmælisdaginn. r . . • í afmælisgrein, sem birtist sl. Isafirði, en sambýlismaður hennar laugardag um Helgu Hannesdóttur er ólafur S veinsson; Hannes Val- geðlæltni, eru meinlegar rangfærsl- garður, f. 1.6.1969, laganemi við HÍ; ur í upptalníngu á bomum þeirra Stefán Hallur, f. 25.12.1970, lækna- hjóna, Helgu og Jóns G. Steíansson- nemi við HÍ, og er unnusta hans arlæknis. Steilalngvarsdóttir, Valgerður Réttur er eftirfarandi kafli um Björg, f. 4.5.1975, nemi við F)öl- bömþeirra: brautaskólaBreiðholts. Böm Helgu og Jóns em Aðalbjörg, Viðkomandi eru beðnir velvirð- f. 12.8.1966, héraðsdýralæknir á ingar á þessum leiðu mistökum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.