Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.1992, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.1992, Blaðsíða 36
 Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafn- leyndar er gætt. Við tökum við frétta- skotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 63 27 00 MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 1992. i í i i í i i i i i i i Í i i i i Í i i i i i i i Söluaðila sumarhúsa á Spáni gefið að sök skjalafals ogfjárdráttur upp á 13 milljónir: Forsvarsmaður Sólarhúsa ákærður og í farbanni / • > i / ,4 Ríkissaksóknari hefiir höfðað opínbert sakamál á hendur einum forsvarsmanna Sólarhúsa sem bjóða sumarhús til sölu og leigu á Spáni. Maðurinn, sem er um fer- tugt, er ákærður fyrir skjalafals, fjárdrátt og umboðssvik upp á sam- tals tæplega 13 milljónir króna. Brotin tengjast að mestu leyti ýms- um bíia- og bankaviðskiptum, td vegna Bílasölu Suðurnesja. Maðurinn hefur verið úrskurð- aður í farbann til 1. september að kröfu ríkissaksóknara þar sem „talin hefúr verið brýn þörf á nær- veru mannsins“. Maðurinn hefur veriö 5 farbanni frá 12. desember siðastliðnum vegna rannsóknar og dómsmeðferðar sakamálsins. Mál- ið verður tekið fyrir í Sakadónú Reykjavíkur á næstunni. Bú umrædds manns var tekið til gjaldþrotaskipta með úrskurði í júlí 1991. Engar eignir fundust í búinu. Ekkert fékkst greitt upp í lýstar kröfur sem námu samtais 10,6 milljónum króna auk vaxta og kostnaðar. Hinn ákærði maður viöurkenndi hin stórfelldu skjalafals- og auög- unarbrot sín við yíirheyrslur hjá Rannsólmarlögreglu ríkisins. Rannsókn málsins beindist fyrst og fremst að fólsunum hans á um tveimur tugum víxla og skulda- bréfe á tímabilinu frá ágúst 1989 til maímánaðar 1991. Maðurinn not- aði nöfn foreldra, annarra skyld- menna og fleira fólks í heimildar- leysi sem útgefenda, framseljenda og ábekinga á víxla. Auk þess not- aði hann nöfn fólksins í heimildar- leysi sem greiðenda og ábyrgöar- manna á skuldabréf og falsaði nöfn vitundarvotta á nokkur bréfanna. Skuldabréfm notaði maðurinn að- allega í bílavíðskiptum, til skuld- breytinga í banka, til að greiða eldri lán, til viöskipta við tryggingafélag og fleira. Auk þess falsaði maöur- inn nöfn í heimildarleysi á 1,1 millj- ónar króna tryggingavíxil vegna Visagreiðslukorts síns sem hann aíhenti Sparisjóði Keflavíkur. Auk skjalafals eru manninum gefin að sök fjársvik með því að hafa falsað að öllu leyti tilkynningu um eigendaskipti að bifreið til skráningar í Bifreiöaskoðun ís- lands. Þetta var gert í því skyni að láta þinglýsa 600 þúsund króna skuldabréfi á bifreiðina til að greiða hluta af kaupverði annarrar bifreiðar sem maðurinn tók í ura- boðssölu. Manninura er einnig gef- ið að sök að hafa heimildariaust bætt inn ákvæði um veðsetningu síöarnefhda bilsins. Umræddur maöur hefur mót- mælt úrskurðum Sakadóms Reykjavíkur um farbann. Hann hefur meðal annars borið því við að hann þurfi nauðsynlega að kom- ast úr landi vegna viðskipta sinna á Spáni. Síðasti úrskurður Saka- dóms Reykjavíkur um farbann yflr manninum hefur verið kærður til Hæstaréttar. Sólarhús bæðí selur og leigir hús- næði í umboði eigenda eignanna í Torreviejaá Spáni. Framangreind- ur ákærður maður er forsvarsmað- ur þess hér á landi. Sólarhús eru hvergi skráð sem fyrirtæki sam- kvæmt upplýsingum DV - hvorki í firmaskrám, hlutafélagaskrám né sem sameignafélag. -ÓTT Keflavlkurflugvöllur: Bannað að halda stof nf und Þrjú handtekin eftireltingarleik starfsmannafé- lags á veHinum „Við stofnum félagið fyrir utan hiiðið því við fengum ekki leyfi til aö halda fundinn innan valiar. Yfir- maður tlugvallarins bannaði okkur að halda hann þar,“ sagði talsmaður í samstarfsnefnd um atvinnuöryggi á Keflavíkurflugvelli. í dag verður stofnað starfsmanna- /élag Islendinga sem starfa á Kefla- víkurflugvelli. Tæplega 700 manns hafa skráð sig í félagið en samtals starfa nú um 900 á Vellinum. „Þetta félag er stofnað til að reyna að stuðla að auknu atvinnuöryggi hjá okkur," sagði viðmælandi DV. „Það verður eina hlutverk þess. Við ætlum ekki inn á verksvið annarra verkalýðsfélaga. í þessu félagi verða engin félagsgjöld. Okkur finnst verkalýðsfélögin ekki hafa staðið sig sem skyldi í því að vinna að atvinnu- öryggi okkar og þess vegna erum við að þessu." Hann sagði að íslendingamir hefðu beðið um leyfi til að halda stofnfund- inn 1 kvikmyndahúsi inni á vellinum. Þeim hefði verið synjað um það og yfirleitt um aö halda hann innan vallar. -JSS Lögreglan í Reykjavík handtók tvo pilta og eina stúlku sem höfðu reynt að stinga af á sportbfl í eltingarleik á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Bfllinn sást á ofsahraða á Sæbraut- inni og var veitt eftirför upp í Breið- holt, yfir Rjúpnahæð og að Vífflsstöð- um. Bíllinn fannst síðan mannlaus við íbúðargötu í Þrastarlundi í Garðabæ. Þremenningamir voru þá komnir út úr bflnum en þeir fundust stuttu síðar og vom handteknir. Grunur leikur á að um ölvunarakst- urhafiveriöaðræða. -ÓTT Fannstlátinnvið Slökkviliðsmenn vinna við hreinsun olíunnar í fjörunni við Strandgötu í gær. Togarinn Víðir sést í baksýn. DV-mynd gk Tvö til þrjú tonn af svartolíu í sjóinn Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyii „Eg veit ekki nákvæmlega hversu mikið þetta er en mér sýnist á öllu að tvö til þrjú tonn af svartolíu hafi farið í sjóinn," sagði Guðmundur Sig- urbjörnsson, hafnarstjóri á Akur- eyri, í gær er bæjarstarfsmenn og slökkviliðsmenn unnu hörðum höndum við að hreinsa svartolíu úr fiörunni meðfram Strandgötunni. Verið var að setja svartolíu um borð í togarann Víði. Guömundur sagðist telja að þegar skipta átti á milli tanka heföi eitthvert óhapp átt sér stað með þeim afleiðingum að olían fór í sjóinn. Vindátt var hag- stæð þannig að olíuna rak strax upp í fiöruna og þar unnu tugir manna við hreinsun sem var að mestu lokið um kvöldmatarleytið í gær. 28 ára Njarðvikingur fannst látinn í sjónum handan hafnargarðsins í Sandgerðishöfn um klukkan níu í gærkvöldi. Mannsins haföi verið saknað frá því um helgina. Síðast sást til hans aðfaranótt sunnudagins við krána Vitann sem er skammt frá höfninni í Sandgerði. Lögreglunni barst tilkynning í gær um að mannsins væri salínað. Björg- unarsveitarmenn og þyrla hófu þá leit. Menn í gúmbát fundu lík manns- ins við hafnargarðinn um kvöldið. Óljóst er með hvaða hætti lát manns- insbaraðgarði. -ÓTT LOKI Var ekki hægt að kaupa miða í bíóið á Vellinum? Veörið á morgun: Léttskýjað sunnan- lands Á morgun verður norðan- stinningsgola eða allhvass, rigning eða slydda um norð- austanvert landið. Norðaust-. anstinningskaldi eða slydduél verða norðvestanlands en létt- skýjað verður að mestu sunn- anlands. Hiti verður á bflinu 2-4 stig. Veðrið í dag er á bls. 52 V itl0,BiLAsr00/ ÞRÚSTUR 68-50-60 VANIR MENN —

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.