Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1992, Page 26

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1992, Page 26
34 MIÐVIKUDAGUR 15. JÚLÍ 1992. Afmæli Njáll Benediktsson Njáll Benediktsson fyrrverandi útgerðarmaður og fiskverkandi, Garðbraut 84, Garði, verður áttræð- urámorgun. Starfsferill Njáll er fæddur í Bensahúsum í Gerðum, Garði og hefur búið allan sinnalduríGarði. Njáll stundaði vörubílaakstur á eigin bifreið frá 1933 til 1950. Það ár hóf hann útgerð og fiskverkun, verkaði saltfisk, skreið og í fryst- ingu. Hann stundaði þessa verkun til ársins 1975 er hann hætti öllum rekstri. Synir hans hafa síðan fetað ífótsporhans. Fjölskylda Njáll kvæntist 24.12.1937 Málfríði Baldvinsdóttur, f. 8.9.1915 að Vatns- holti í Villingaholtshreppi. Foreldr- ar hennar voru Baldvin Jónasson, f. 21.2.1873, d. 7.6.1952, og kona hans Þóra Kjartansdóttir, f. 11.2. 1879, d. 17.1.1961. Börn Njáls og Málfríðar: Karl Njálsson, f. 17.3.1936, útgerðarmað- ur og fiskverkandi í Garði, kvæntur Guðrúnu Ágústu Sigurðardóttur úr Garði og eiga þau fimm börn; Bald- vin Njálsson, f. 30.7.1937, útgerðar- maður og fiskverkandi í Garði, kvæntur Þorbjörgu Bergsdóttur frá Sanderði og eiga þau tvö böm; Þóra Sigríður Njálsdóttir, f. 3.10.1950, húsmóðir í Garði, gift Hafsteini Sig- urvinssyni múrarameistara úr Keflavík, og eiga þau þijár dætur. Systkini Njáls: Klara Olafia, f. 31.7. 1905, d. 23.6.1934, húsmóðir í Reykjavík og átti hún þrjú böm, bamsfaðir hennar var Gústaf Sigur- bjamason; Benedikt, f. 6.9.1907, d. 27.5.1987, bifreiðastjóri og útgerðar- maður í Reykjavík, var kvæntur Önnu Jónsdóttur og áttu þau sex böm, Anna býr í Reykjavík; Guð- jóna, f. 25.11.1909, fyrri maður henn- ar var Jón Guðmundsson, f.10.1. 1907, nú látinn, og áttu þau fimm böm, seinni maður var Jakob Ein- arsson bóndi á Norður-Reykjum í Mosfellsbæ, nú látinn, og áttu þau tvo syni, Guðjóna býr enn að Norö- ur-Reykjum; Hans Benedikt Garðar, f. 5.8.1914, d. 7.4.1991, bifreiðastjóri og slökkviliðsmaður í Hafnarfirði, var kvæntur Kristínu Sigurðardótt- ur, f. 16.10.1916, og áttu þau fimm börn, Kristín er búsett í Hafnarfirði. Foreldrar Njáls; Benedikt Sæ- mundsson, f. 6.2.1870 að Vatnagörð- um í Útskálasókn, d. 16.6.1914, for- maður á bátnum Haffrúin, og kona hans Hansína Marie Karlsdóttir, f. 17.5.1873 á Blönduósi, d. 24.11.1957, húsmóðir í Reykjavík. Njáll og kona hans Málfríður verða að heiman á afmælisdaginn. Guðríður Guðmundsdóttir hús- freyja, Hlíf, ísafirði, verður áttræð 12.ágústnk. Starfsferill Guðríður er fædd á Brekku á Ingj- aldssandi og ólst þar upp. Guðríður vann almenn sveitastörf á heimaslóðum en tvítug að aldri flutti hún á Flateyri og bjó þar til 1989. Hún vann í sláturhúsinu í mörg ár, prjónaði mikið og var í fiski ásamt því að sinna húsmóðurstörf- um. Guðríður starfaði með kvenfélag- inu og slysavamafélaginu. Fjölskylda Eiginmaður Guðríðar var Bjarni Þórðarson, f. 7.11.1903, látinn, húsa- smiður. Foreldrar hans: Þórður Bjamason, bóndi Kleifakoti í Mjóa- firði, og Kristín Hannesdóttir, hún bjó síðar í Bolungarvík og á Flateyri. Böm Guðríðar og Bjama: Þórunn, húsmóðir og verkakona í Reykjavík, hennar maður var Kristján Finn- bogason, látinn, þau eignuðust þrjú böm; Ásgeir, dó ungur; Guðrún, húsmóðir á Hrauni á Ingjaldssandi, maki Guðmundur Hagalínsson bóndi, þau eiga sex böm; Skúli, húsasmíðameistari í Reykjavík, maki Halldóra Ottósdóttir, starfs- maður Reykjavíkurborgar, þau eiga sex böm; Þórður, mótasmiður í Sví- þjóð, maki Ulla Eriksen skrifstofu- maður, þau eiga tvö börn. Fóstur- sonur Guðríðar og Bjama er Sæþór Þórðarson, húsasmíðameistari í Njarðvík, maki Marta Haraldsdóttir bankastarfsmaður, þau eiga fjögur böm. Guðríður eignaðist sextán syst- kini og fjögur hálfsystkini. Foreldrar Guðríðar: Guðmundur Einarsson, bóndi og refaskytta, og Guðrún Magnúsdóttir húsfreyja, þau bjuggu á Brekku á Ingjalds- sandi. Guðríður tekur á móti gestum í Hlíf á ísafirði fóstudaginn 17. júlí frá kl. 16. Guðríður Guðmundsdóttir. Andlát Sigurgeir Þorgrímsson Sigurgeir Þorgrímsson, blaða- maður og sagnfræðingur, Drápuhlíð 46, Reykjavík, lést á Landspítalan- um 8. júií sl. Jarðarfór hans fer fram frá Fossvogskirkju í dag kl. 13.30. Starfsferill Sigurgeir fæddist í Reykjavík 4. nóvember 1943. Hann lauk lands- prófi 1959, stundaði nám við MR um skeið og KÍ, lagði stimd á sagnfræði við HÍ og lauk þaðan BA-prófi vorið 1990. Sigurgeir var rannsóknarmaður við Rannsóknastofnun landbúnað- arins að Keldnaholti á seinni helm- ingi sjöunda áratugarins, starfaði fyrir Eríðafræðinefnd HI á Þjóð- skjalasafni og Hagstofunni á fyrri hluta áttunda áratugarins en sinnti lengst af sjálfstæöum ættfræðirann- sóknum fyrir stofnanir og einstakl- inga. Sigurgeir hóf störf á ritstjórn DV 1987 og starfaði þar meðan heilsa hans leyfði til 1991. Þar sá hann um ættfræðiskrif blaðsins og skráði frá grunni gagnasafn DV um ættir ís- lenskra einstaklinga. Eftir Sigurgeir liggur mikiU fjöldi af samantektum á framættum ýmissa einstaklinga. Út hafa komiö eftir hann ritin Jósafat Jónasson (Steinn Dofri) og stofnun Sögufé- lags, sérprent úr Sögu 1980, Ættar- skrá Þorkels Magnússonar, 1985, og ásamt Jóni Vali Jenssyni Ættir Daníels Guðmundssonar og Ástu Jónsdóttur, 1987. Hann fylgdi úr hlaði með eftirmála hinu mikla ætt- artölusafni Snóksdalíns auk þess sem hann lauk við handrit að Nesja- yaUaættinni. Þá var hann ritstjóri Árbókar templara síðustu árin. Sigurgeir var virkur meðlimur í fjölda félaga og samtaka. Hann starfaði mikið fyrir góðtemplara- regluna, var lengi félagi í stúkunni Víkingi í ReykjavUc, var stór- fræðslustjóri Stórstúku íslands 1980-62 og stórritari Stórstúkunnar 1982-92. Þá sat hann í Áfengisvarn- amefnd Reykjavíkur um skeið og átti í aUmörg ár sæti í samstarfs- nefndinni Átak gegn áfengi. Hann var formaður íþróttafélags fatlaðra í Reykjavík 1987-90, skipulagði síð- asta hjólreiðadaginn í Reykjavík, sat í undirbúningsnefnd sólstöðu- göngunnar frá upphafi, 1985, sá um kvöldvökur á GrensásdeUd vetur- inn 1991-92, var einn af stofnendum Oddafélagsins 1990 og sat í fuUtrúa- ráði þess, sat um skeið í varastjóm Ættfræðifélagsins, var félagi í Sögu- félaginu, Þjóðdansafélagi Reykja- víkur, Hinu íslenska bókmenntafé- lagi og Kvæðafélaginu Iðunni, var einn af stofnendum Lífsvonar og í stjóm þar 1991-92, félagi í Amnesty Intemational, meðlimur í Sam- frímúrarareglunni og söng um skeið með Fílharmóníukómum auk fleiri félagsstarfa. Bræður Sigurgeirs: Sveinn EmU, f. 1. janúar 1946, d. 8. september 1947; Sveinn, f. 5. nóvember 1948, verk- fræðingur hjá Landsvirkjun, búsett- ur í Reykjavík, kvæntur Onnu Þóru Ámadóttur auglýsingateUcnara og eiga þau þijú böm; Magnús, f. 21. mars 1952, sálfræðingur ogfram- kvæmdastjóri Svæðisstjómar fatl- aðra á Vesturlandi, og á hann eina dóttur. Foreldrar Sigurgeirs: Þorgrímur Magnússon, f. 12. desember 1905, d. 13. september 1964, afgreiðslumaður í Reykjavík, og kona hans, Ingibjörg Sveinsdóttir, f. 25. nóvember 1911, húsmóðir. Ætt Föðurbróðir Sigurgeirs var Sigur- jón, verkamaður í Reykjavík. Þor- grímur var sonur Magnúsar, smiðs á Hellishólum í Fljótshlíð, Guð- mundssonar, b. og formanns á Bala í Þykkvabæ, Guðmundssonar, föður Þórðar, langafa Gunnbjargar, móð- ur Óla Ágústssonar, forstöðumanns Samhjálpar. Móðir Magnúsar var Þórunn, systir Sigurðar, langafa Sigrúnar, móður Ragnheiðar Helgu Þórarinsdóttur, fyrrv. borgarminja- varöar. Þórunn var dóttir Jakobs, b. í Deild í Fljótshlið, Ólafssonar og Ingibjargar HaUvarðsdóttur, b. og smiðs í Neðridal undir Eyjafjöllum, Jónssonar og konu hans, Ingibjarg- ar, systur Guðrúnar, langömmu Sigurðar, afa Þorsteins Pálssonar alþingismanns. Ingibjörg var dóttir Jóns, hreppstjóra á Stórumörk und- ir Eyjafjöllum, Guðmundssonar. Móðurbræður Sigurgeirs: Sveinn, b. á Sveinsstöðum í Álftaneshreppi; Helgi, lést ungur; Jón á Urriðaá í Álftaneshreppi; Jakob, yfirkennari 1 Reykjavík, faðir Steinars verk- fræðings, forstjóra Lánasjóðs Vest- ur-Norðurlanda, og Sveins, doktors í jarðfræði; Magnús, kennari í Reykjavík, faðir Guðnýjar Margrét- ar myndlistarmanns; Helgj, prestur og skáld í Hveragerði, faðir Hauks, aðstoðarritstjóra DV, og Maríu hjúkrunarkonu; Sigurður, garð- yrkjustjóri í Reykjavík, og Þor- steinn, hdl. og skrifstofustjóri í Rvík, faðir Petrínu Ólafar þroska- þjálfa, Jóns Ragnars héraðsdómara í Vestmannaeyjum, Óskars við- skiptafræðinema og Elísabetar Sigurgeir Þorgrimsson. þroskaþjálfa. Ingjbjörg er dóttir Sveins, b. á Hvítsstöðum í Álftaneshreppi, Helgasonar, b. og hreppstjóra í Álftatungu, Brandssonar, bróður Helga eldra, afa Bjama Þorsteins- sonar, prests og tónskálds á Siglu- firði. Annar bróðir Helga var Ölaf- ur, langafi Sigríðar, móður Rögn- valds Sigurjónssonar píanóleikara. Móðir Sveins var Sigríður, lang- amma Magnúsar Þórs Jónssonar (Megasar) tónlistarmanns. Sigríður var dóttir Sveins, b. og læknis á Laxárholti í Hraunhreppi, Þórðar- sonar. Móðir Ingibjargar var Elísabet Guðrún Jónsdóttir, b. í Drápuhlíð í HelgafeUssveit, Guðmundssonar og konu hans, Guðrúnar Kristínar, systur Matthildar, móður Magnúsar Þorsteinssonar, prests á Mosfelli, langafa Höskuldar Þráinssonar pró- fessors. Guðrún var dóttir Magnús- ar, b. á Fjarðarhomi í Eyrarsveit, Þorkelssonar og konu hans, Guð- rúnar Bjamadóttur. Njáll Benediktsson. Guðríður Guðmimdsdóttir Til hamingju með afmæiið Valdimar Pétursson, Hraunsholti, Garðabæ. 80 ára JónE.Helgason, fyrrverandi deildarstjóri hjáRíkismati sjávarafurða, Hörpugötu7, Reykjavík. Konahanser MargrétJó- hannesdóttir. Þau taka á móti gestum á afraælis- daginn í salFlugvirkjafélagsins, Borgartúni22,kl.20. Magnea Jónína Magnúsdóttir, Grænuhlið 20, Reykjavík. Finnbogi Ásbjömsson, Sæunnargötu 6, Borgamesi. Kjartan Magnússon, Lindargötu 11, Reykjavik. Þórður Snj ólfsson, Markarlandi3, Djúpavogi. Guðborg Kristjánsdóttir, Hringbraut 99, Reykjavík. Hún verður aö heiman. Ragnar Bergsveinsson, Ásholti 18, Reykjavik. Þorvaldur Stefánsson, Rjúpufelli 42, Reykjavík. SigurðurSkúlason, Ránargötu 6, Reykjavík. Kolbrún Svavarsdóttir, Stífluseh ll, Reykjavík. Aðalheiður Ása Jónsdóttir, Bjarkargrund 10, Akranesi. 40ára Jóhannes Laxdal Baldvinsson, Vestmannabraut 68, Akureyri. Haraldur Sverrisson, Höföavegi 59, Akureyri. ÁgústÁsgeirsson, Laufvangi 10, Hafnarfirði. Margrét Guðmundsdóttir, Funafold 30, Reykjavík. Trevor Alan Ford, Álfhólsvegi 143, Kópavogi. Gerður Helga Helgadóttir, Grenimel 32, Reykjavlk. Agnar Guömundsson, Vesturási 26, Reykjavlk. Þorgerður Traustadóttir, Logafold 184, Reykjavík. EmilÞór Guðbjömssou, Sundabakka2, Stykkishóhni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.