Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1992, Síða 2
2
FÖSTUDAGUP 17. JÚLÍ 1992.
Fréttir
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra um kvótaniðurskurðinn:
Mun leggja tillögur mín-
ar fyrir ríkisstjórnina
- endaþóttégberilagalegaábyrgð
„Ég lagði tillögur mínar um veiöi-
heimildir á botnfiski fyrir ríkis-
stjómina í fyrra. Ég geri ráð fyrir að
hafa sama hátt á að þessu sinni enda
er þetta stór og mikil ákvörðun," seg-
ir Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs-
ráðherra í viötali við DV.
„Sjávarútvegsráðherra ber fulla
lagalega ábyrgð á úthlutun kvóta,
lögin kveða mjög skýrt á um það atr-
iði,“ sagöi Þorsteinn.
- Er ágreiningur innan ríkisstjóm-
arinnar um það að hve miklu leyti
skuli farið eftír ráðgjöf Hafrann-
sóknastofnunar til veiða á þorski?
„Það er ekki ágreiningur þar sem
ég hef enn ekki lagt fram tillögur
mínar. Það er erfitt aö vera á önd-
verðum meiði meðan svo er.“
- Formaður og varaformaður sjáv-
arútvegsnefndar sendu frá sér bréf
þar sem þess er krafist að ákvörðun
um heildarafla verði ekki tekin fyrr
en búið er að kynna sjávarútvegs-
nefnd málið. Þá er þess óskað að far-
iö verði yfir tillögur Hafrannsókna-
stofnunar og þær skoðaðar ofan í
kjölinn.
„Ég ræddi við sjávarútvegsnefnd
daginn áður en skýrsla Hafrann-
sóknastofnunar um ástand nytja-
stofna var gerð opinber. Jafnframt
óskaði ég eftir því að nefndarmenn
kæmu með sínar tillögur og gæfu
álit á tillögunum. Ég mun í dag fá
niðurstöður frá bresku nefndinni
sem var falið að fara yfir aðferðir
íslensku fiskifræðinganna til stofn-
mats. í framhaldi af því mun ég boða
tíl fundar með hagsmunaaðilum þar
sem sú niðurstaða verður rædd og
leitað verður samráðs venju sam-
kvæmt.“
- Þær fréttir berast vestan af fjörð-
um að mikil veiði sé á grunnslóð og
sjómenn segja mikið af fiski á ferð-
inni. Breytti Vestfjarðafór þín í ein-
hveiju áliti þínu á ástandi þorsk-
stofnsins?
„Ferðin var mjög gagnleg, ég átti
miðnæturfund á Flateyri með sjó-
mönnum og öðrum hagsmunaaðilum
og hitti auk þess togaraskipstjóra og
fleiri á fundi á ísafirði og í Bolungar-
vík. Það bar svo sem margt á góma
en ég heyrði ekkert nýtt í þeim við-
ræðum,“ sagði Þorsteinn Pálsson
sjávarútvegsráðherra.
-rt
Forstjóri Hafrarmsóknastofnunar:
Öllum heimilt að hafa sínar skoðanir
Ég vil leiöa allan pólitískan ágrein-
ing þjá mér. Það er öllum heimilt aö
hafa sínar skoöanir, slíkt hefur ekki
áhrif á okkar niðurstöður,“ sagði
Jakob Magnússon, settur forstjóri
Hafrannsóknastofnunar, vegna
þeirrar gagnrýni sem fram hefur
komið, m.a. hjá stjómarþingmönn-
um.
„Viö höfum skoðaö alla gagnrýni
ofan í kjölinn og erum alltaf tilbúnir
að tala við rnenn," sagði Jakob Magn-
ússon.
-rt
Gróðurhús í Hveragerði:
Kartöf lurækt Ellerts eyðilögð
- lögreglan á Selfossi rannsakar málið
Kartöflurækt Ellerts Guðmunds-
sonar tæknifræðings í gróðurhúsi í
Hveragerði var eyðilögð í vikunni.
Verknaðurinn komst upp síðastlið-
inn miðvikudag og fór lögreglan á
Selfossi á staðinn til að rannsaka
málið. Ellert hefur ræktaö þama
kartöflur í tunnum í gróðurhúsi í
eigu Björgvins Gunnarssonar í
Blómaborg í Hveragerði. Um tilraun
er að ræða. Ellert og Björgvin hafa
deilt um þessa kartöflurækt og
Björgvin hefur viljað Ellert út með
tunnumar.
Þegar Ellert kom í gróðurhúsið á
miövikudag var búið að brjóta upp
hurð hússins og slíta upp öll kart-
öflugrösin frá rótum. Ellert taldi að
skemmdarverkin hefðu átt sér stað
aðfaranótt miðvikudags eða á mið-
vikudagsmorgun.
„Mér var boðið húsið til fullra af-
nota til júlí á næsta ári ef ég legði
hitalögnina. Hann býður mér þetta
undir þeim kringumstæðum að ég
geti ekki verið þekktur fyrir tor-
tryggni og biðja um skriflegt loforö.
Á þriðjudag afhenti ég eiganda gróð-
urhússins reikning fyrir hitalögn-
inni upp á 792 þúsund krónur og ósk-
aði eftir skriflegum húsaleigusamn-
ingi til júlí á næsta ári. Ég lét mæl-
ingastofu pípulagningamanna mæla
upp vinnuna og reikningurinn er
byggður á því. Þessi upphæð sam-
svarar sanngjamri leigu í 6 ár. Ég
fékk ekki önnur viðbrögð en þau að
hann ætlaöi að láta heyra frá sér
fljótlega," sagði Ellert.
Ellert segir Björgvin hafa leigt öðr-
um gróðurhúsið án þess að láta sig
vita. „Sá sem tók húsið á leigu leyfði
mér að hefjast handa með ræktunina
áður en hann var búinn að skila
húsinu," sagöi Ellert.
Ellert sagðist hafa sent Björgvini
bréf þar sem segir að verði skemmd-
ir unnar í gróðurhúsinu muni hann
gera bótakröfu upp á 4-5 milljónir
króna.
Ellert ætlar að biða niðurstöðu
rannsóknar lögreglunnar á Selfossi
í gróðurhúsinu áður en hann aðhefst
fleiraímálinu. -bjb
- takaber
„Sjávarútvegsráðherra ber aö
taka ákvörðun um heildarkvóta. í
svo stóm máli sem þessu þarf hann
að hafa samráð við ríkisstjóraina
og hann þarf líka að haía samráð
við sem flesta í samfélaginu. Þá ber
honum að mínu mati að ræða við
hagsmunasamtök og aðra þá sem
máliö snertir. Áö því loknu þarf
hann að táka ákvörðun,“ segir
Halldór Ásgrimsson, fyrrverandi
sjávarútvegsráðherra, f viðtali við
DV.
„Ég er þeirrar skoðunar að þaö
beri að taka mikið tillit til þess sem
fiskifræðingarnir segja. Ég myndi
ekki víkja mjög mikiö frá þvi. Ég
bendi hins vegar á að það eru
möguleikar til þess að endurskoða
þessa ákvörðun innan ákveðinna
sjóðs
tímamarka. Eg bendi líka á að til
þess að geta tekið þessa ákvöröun
í þeirri þröngu stöðu sem nú er
verður ríkisstjómin að úthluta
veiðiheimildum Hagrseðingarsjóðs
til jöfntmar fyrir fiotann, annars
kemur þessi ákvörðun alltof hart
niður á þeim sem byggja veiðar sín-
ar á þorski Annars veröur þetta
gjörsamlega óviðunandi.“
- Þú ert þá sammála þessari ráög-
jöfHafró.
Hafrannsóknarstofnun býður
upp á nokkra valkosti sem eru á
bilinu 1«) tii 210 þúsund tonn og
síðan kæmu veiðiheimildir Ha-
græöingarsjóðs til jöfnunar. Þessar
ákvarðanir veröur ríkisstjómin að
taka samhliöa,“ sagði Halldór Ás-
grimsson. -rt
Össur Skarphéðinsson, þingflokksformaður krata:
Sumir þingmenn
okkar vantrúaðir
á tillögur Hafró
- ríkisstjóminölltakiákvörðunumþorskkvótann
Það em menn innan þingflokks
Alþýðuflokksins sem em vantrúaðir
á tillögur Hafró, kannski em allir
vantrúaðir. Mér finnst ekki óeðlilegt,
miðað við hve mikil alvara er á ferð-
um, að ríkisstjómin öll taki ákvörð-
un um þorskkvóta næsta fiskveiði-
árs. Það er auðvitað hættulegt að
hunsa álit Hafrannsóknastofnunar
en það er bersýnilegt að hún hefur
farið mjög langt frá sanni í sínum
spádómum á síðustu árum. Það er
margt sem bendir til þess að þorsk-
stofninn sé minni en áður en hins
vegar bendi ég á það að árferðið er
gott í sjónum og í öllum öðrum stofn-
um er góðæri ef grálúðan er undan-
skilin," sagði Össur Skarphéðinsson,
formaður þingflokks Alþýðuflokks-
ins.
Samkvæmt heimildum DV eru
sumir ráðherrar Alþýðuflokksins á
þeirri skoðun að það sé ekki sjávar-
útvegsráðherrans eins að taka
ákvörðun um þorskkvótann heldur
eigi málið að koma til kasta ríkis-
stjórnarinnar. Þingflokksfundur
verður hjá alþýðuflokksmönnum í
dag þar sem ræddar verða niður-
skuröarhugmyndir -rt
Ellert Guömundsson við hluta af þeim kartöflum sem voru eyðilagöar i
tunnunum í gróðurhúsi einu í Hveragerði. Innfellda myndin var tekin á
sama stað fyrir tveim vikum þar sem ræktin sést í blóma.