Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1992, Side 8
8
FÖSTUDAGUR 17. JÚLÍ 1992.
____________________
Útlönd________________
Þýskisedla-
bankinnhækkar
vexti
Ákvörðun þýska seðlabankans
í gær um að hækka forvexti út-
lána sinna úr 8 prósentum í 8,75
olli miklu fjaðrafoki í löndum
Evrópubandalagsins. Ítalía, Belg-
ía og Holland fylgdu í kjölíariö
og hækkuðu sína vexti en seðla-
bankar annarra EB-landa hafa
ákveðið að halda vöxtum sínum
óbreyttum. Þýski seðlabanMnn
tók þessa ákvörðun í trássi viö
óskir Evrópubandalagslanda, til
að reyna að vetja stöðugleika
þýska marksins og hægja á verð-
bólgunni heima iyrir.
RíkisstjórnSvía
villlengja kjör-
tímabil þing-
manna
Carl Bildt, forsætisráðherra
Svia, hefur tilkynnt að ríkis-
stjórnin ætli að hefja viðræður í
haust við alla stjómmálaílokka
iandsins um lengingu þess tíma
sem sænska þingið situr og aðrar
breytingar á stjómarskránni.
Bildt sagði aö viðræöumar
myndu einblína á að lengja kjör-
tímabil þingmanna úr þremur í
fjögur ár og veita almenningi
meira vald til að hafa áhrif á val
einstakra þingmanna.
„Það að kjósendiu- hafa lítil sem
engin áhrif á val flokka á fram-
bjóöendum sýnir greinilega aö
lýðræði er ábótavant i sænska
kosningakerfinu,“ sagði Bildt.
Harkalegar
tannlækningarí
írak
Heilbrigðisráðherra fraks hef-
ur iýst því yfir að íraskir tann-
iæknar séu tilneyddir að draga
tennur úr sjúklingum sínum án
deyfingar þar sem viðskiptabann
Sameinuðu þjóðanna valdí því aö
mikil vöntun er á deyftlyfjum.
Ráðherrann sagði að sjúkrahús
hefðu neyðst til að draga úr starf-
semi sinni sökum viðskipta-
bannsins sem sett var á landíð
eftir innrásina i Kúvæt 1990.
Eyðnisjúklingi
bannaðaðspila
fótboKa
Áströlskum knattspyrnu-
manni, sem smitaður er af eyöni,
heftir verið bannað að taka þátt
í fótboltakeppnum, að því er yfir-
menn hans i Ástralíu sögðu í dag.
Að sögn var ákvörðunin tekin
eftir ráðleggingum lækna og lög-
manna. „Eyðnismitað fólk er
meðhöndlað eins og holdsveiki-
sjúklingar," sagði hinn 32 ára
gamli knattspyrnumaður, Step-
hen Roach, í viðtali.
„Við erum ekki aö gera upp á
mffli fólks. Vandamáiið er aö við
höfum áhyggjur af þvi að leik-
menu þeirra liða sem eiga aö
keppa við okkur vilji það ekki,"
sagði rítari félagsins.
277«ekniraflíffi
Yfirvöld í Yunnan-héraöi í Kína
hafa tekiö aö minnsta kosti 277
manns af lífi fyrir cituriytjasmygl
á fyrstu sex mánuðum þessa árs,
að sögn kínversku fréttastofunn-
ar. Yunnan-hérað liggur vlð
landamæri Kína við Burma en
þar eru ópíumakrar gullna þrí-
hymingsins, Stjómvöld í Kína
berjast nú hatrammlega gegn út-
breiðslu eituriyfja og tengdra
giæpa.
Reuter
Bosnískir hermenn standa vörð á meðan skriðdreki Sameinuðu þjóðanna fer fram hjá. Verið var að dreifa hjálpar-
gögnum rétt suður af Sarajevo. Simamynd Reuter
Ástandið 1 Bosníu-Hersegóvínu:
Ekkert gengur
í friðarviðræðum
Gífurlegir bardagar geisuðu í
Sarajevo, höfuðborg Bosníu, í nótt
og í morgun. Að sögn blaðamanna í
borginni stóðu hús í ljósum logum
eftir að sprengjur úr sprengjuvörp-
um Serba og fallbyssuskot höfðu lent
á þeim. Hófst árásin rétt eftir mið-
nætti að bosnískum tíma og stóð yfir
í um þrjá tíma. Beindist hún aðallega
að elsta hluta borgarinnar.
Utanríkisráðherra Breta, Douglas
Hurd, var væntanlegur til Sarajevo
í morgun til að líta á þær skemmdir
sem orðið hafa eftir þriggja mánaða
bardaga í borginni á milli íslama,
Króata og Serba. Einnig átti hann að
hitta forseta Bosníu, AUja Izet-
begovic.
Engar fréttir hafa borist frá ísl-
amska bænum Gorazde sem hefur
verið umkringdur serbneskum sveit-
um frá því í apríl. Leiðtogi Serba,
Radovan Kardzic, sagði í gær að
hann hefði skipað mönnum sínum
að virða vopnahléið. En í gærkvöldi
gerðu Serbar enn stórskotaárásir á
borgina, átta tímum eftir beiðni
Kardzic.
Leiðtogar stríðsaðilanna þriggja,
íslama, Króata og Serba, sitja nú við
samningaborðið í Lundúnum ásamt
Carrington lávarði. Hvorki gengur
né rekur í viðræðunum og er Carr-
ington ekki bjartsýnn á að samning-
ar takist þrátt fyrir að Kardzic hafi
t.d. boðið hálfsmánaðar vopnahlé
fram og með næsta mánudegi. Sagði
Carrington: „Ég held að það sé best
að vera svartsýnn þangað til eitthvað
gerist sem gefur tilefni til bjartsýni."
Utanríkisráðherra Bosníu sagði í
morgun að einn samningamanna
Evrópubandalagsins, Jose Cutileiro,
hefði tjáð honum að leiðtogar íslama,
Króata og Serba hefðu samþykkt
áætlun um að þungavopn yrðu undir
alþjóðlegu eftirliti.
Óryggisráð Sameinuðu þjóðanna
mun líklega fara þess á leit við Bout-
ros-Boutros Ghali, framkvæmda-
stjóra Sameinuðu þjóðanna, að hann
rannsaki möguleikana á því að hægt
verði að lenda með hjálpargögn á
flugvelli sem er á valdi bosnískra
sveita.
Reuter
Kosningabaráttan í Bandaríkjunum:
Perot hættur við
- Clinton fengi 56-58 prósent atkvæða
Flokksþingi bandarískra demó-
krata lauk í morgun með ræðu Bill
Clintons sem útnefndur hefur verið
forsetaframbjóðandi flokksins.
Ræða Clintons var löng og per-
sónuleg. Eyddi hann miklum tíma í
að tala um hvernig það hefði verið
að alast upp föðurlaus og hversu
móðir hans hefði verið hugrökk. Var
þetta liður í því að kynna forseta-
frambjóðandann fyrir bandarískum
kjósendum sem dæmigerðan banda-
rískan dreng - „an all-American
boy“. Byrjaði hann reyndar ræðuna
með því að segja: „Ég kom á þetta
þing af einni ástæðu, og aðeins af
einni ástæðu, til að klára þessa
ræðu.“
Clinton, sem endurskrifaði ræðuna
19 sinnum, talaði einnig beint til
stuðningsmanna Ross Perot, en
milljarðamæringurinn frá Texas
hætti við framboð sitt í gær. Sagði
Clinton: „Gangið í hóp okkar - saman
munum við endurlífga Ameríku."
Ákvörðun Perot um að hætta við
forsetaframboð sitt kom nokkuð flatt
upp á fólk í Bandaríkjunum, en fyrir
aðeins fimm vikum sýndu skoðana-
ROSS FEROT. Prcildentlal hopcful
Milljarðamæringurinn frá Texas, H.
Ross Perot, er hættur við framboð
sitt. Demókratar og repúblikanar
berjast nú um stuðningsmenn hans.
Telkning Lurle
kannanir aö hann haíði forystuna.
Var það algjörlega óþekkt að sjálf-
stæður frambjóðandi fengi slíkt fylgi.
Á síðusu vikum hefur hann þó misst
mikið fylgi.
Perot sagði að þar sem Demókrata-
flokkurinn væri aftur að styrkjast
myndi hann sjálfur aldrei ná veru-
legum árangri og að framboð af hans
hálfu myndi aðeins hafa slæm áhrif
á framgang stjómmála og draga úr
tilraunum til að leysa úr vanda
Bandaríkjanna. Bæðir repúblikanar
og demókratar önduðu léttar eftir
tfikynningu Perot og hófu strax að
keppa um hyffl stuðningsmanna
hans.
Tvær skoðanakannanir, sem gerð-
ar vom strax eftir tilkynningu Perot,
sýndu að Clinton hefur mun meira
fylgi en George Bush Bandaríkjafor-
seti. í könnun ABC-sjónvarpsstöðv-
arinnar kemur fram að 58 prósent
kjósenda styðja Clinton en aðeins 29
prósent myndu kjósa Bush. Niður-
stöður könnunar CNN og dagblaðs-
ins USA Today voru svipaðar, sýndu
Clinton með 56 prósent fylgi og Bush
fengi33prósentatkvæða. Reuter
Ungakonan
reyndistvera
miðaldra loddaii
Ung og falleg kona í peninga-
vandræðum auglýsti eftir aðstoð
í dagblaði nokkru í Japan og birti
mynd af sér með. Meira en 150
karlmenn sendu konunni blóm-
vendi og peninga að jafnvirði
tæprar einnar og hálfrar mfiljón-
ar króna.
Nú hefur komið á daginn að
„unga konan“ var reyndar mið-
aldra kaupsýslukarlmaður sem
hafði lent í gjaldþroti og vantaði
peninga. Svindlið komst upp þeg-
ar einn karlmannanna sem sendi
„henni“ bréf varð argur þegar
honum var ekki svarað og ákvað
að ieita konuna uppi. Þegar hann
gat ekki fundið ungu konuna leit-
aði hann tfi lögreglunnar með
umkvartanir smar.
Gátuekkisynt
fyrirfiski
í þrjá daga gátu rússneskir
sumarleyfisfarar á sumardvalar-
staðnum Berdyansk ekki synt sér
til ánægju og yndisauka fyrir
fjöldanum öllum af fiski. Dauður
fiskur, rækjur og krabbar, flutu
á sjónura svo að ekki var þverfót-
að.
Ástæða þessa er ekki kunn en
fiskurinn innihélt engin eitur-
efnasamhönd eða Önnur meng-
andi efni. Itar-Tass fréttastofan
hafði þó eftir vísindamönnum að
verksmiðja sem stendur nálægt
ströndinni hafi losað sig við eitur-
úrgang í sjóinn.
Deiltum hitastig
jarðarinnar
Bandarískur sérfræðingur
sagði í gær að það væru engar
ákveðnar sannanir fyrir því að
hitastig jarðarinnar væri að
hækka né að mannverur yllu því
að sveiflur kæmu á hitastigið.
Prófessor Richard Lindzen,
veðurfræðingur við MIT-háskól-
ann í Bandaríkjunum, sagði að
þetta mál hetði verið blásiö upp
af stjórnmáiamönnum og erfitt
væri fyrir þá að bakka ut ur því.
Aörir vísindamenn hafa mót-
mælt staðhæfingum Lindzen og
sagt að vísindalíkön sýni að lík-
legt sé að hitastig jarðarmnar
muni hækka um 1 gráðu á næstu
40 árum og yfirborð sjávar að
sama skapi hækka um 20 sm.
Hversu heppinn
getureinn mað-
urverið?
Franskur maður, sem beið eftir
gjaldþrotaskiptum eftir aö hafa
eytt fyrsta vinningi sínum í
franska lottóinu, sem var rúm-
lega 30 mfiljónir króna, í vitleysu,
datt heldur betur í lukkupottinn
í vikunni. Hann vann fyrsta vinn-
inginn í lottóinu aftur og í þetta
skiptið var hann tæplega 200
milljónir.
„Ég ætla ekki að gera sömu
mistökin aftur. Ég fer með þessa
peninga beint f bankann,“ sagði
hinn heppni Fransmaður sem
sagði vinum sínum að búast ekki
við neinum stórum greiðum í
þetta skiptið.
13 ára sumo-
13 ára sumo-glímumaður dó úr
hjartaslagi í vikunni og er það
þriðji ungi giímumaðurinn sem
deyr vegna hjartakvfila á þessu
ári. Þjálfun glímumannanna er
stíf og fiestir vega þeir vel yfir 100
kfló. Þyngsti sumo-glimukappinn
vegur264kíló. Reuter