Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1992, Qupperneq 11
FÖSTUDAGUR 17. JÚLÍ 1992.
11
Menning
Háskólabíó - Greiðinn, úrið og stórfiskurinn: ★★
Evrópskur formúlufarsi
Bretar og Frakkar gera í samvinnu þennan róman-
tíska farsa sem snýst í mestu um hlédrægan ljósmynd-
ara (Bob Hoskins) sem vinnur við það að setja á svið
helgimyndir úr Bibliunni.
Sagan er of flækt til þess að rekja nánar hér en til
skjalanna koma líka bijálaöur píanisti sem er lifandi
eftirmynd Jesú Krists (Jeff Goldblume), stúlka sem
dubbar klámmyndir (Natasha Richardson) og ofurk-
vefaður leikari (Cassel).
Myndin heppnast ágætlega, sérstaklega miðað við
hvað hún er samsett úr mörgum mismunandi bútum.
Hún telst ekki til ærslkenndra farsa heldur tekur það
að mestu rólega. Sumt í sögunni er óþarft og út í hött
án þess að vera fyndið, annað nýstárlegt en mest bara
gamlar lummur sem geta alltaf gengið upp ef rétt er
að því staðið.
íjölþjóðaleikhópurinn er góður og í raun halda þau
myndinni saman og gera persónur sínar trúverðugar
hvað sem á dynur.
Kvikmyndir
Gísli Einarsson
Þetta er mynd fyrirþá sem viija hvíla sig á amerísku
formúlumyndunum. I staðinn fá þeir hérna evrópska
formúlumynd.
The Favour, the Watch, & the Very Big Fish (bresk/frönsk
1992) 87 min. Handrit: Ben Lewin, byggt á smásögu Marcel
Ayme, „Rue Saint-Sulpice". Leikstjórn: Lewis. Leikarar: Bob
Hoskins, Jetf Goldblume, Natasha Richardson (Shadow-
makers, Comfort of Strangers), Michel Blanc (Monsieur Hire),
Jaques Villeret, Angela Pleasence, Jean-Pierre Cassei (Murd-
er on the Orient Express).
Löggan (Silvester Stallone) og löggumamman (Estelle Getty).
Laugarásbíó - Stopp eða mamma hleypir af ★ XA
Töggur í mömmu gömlu
Þegar myndin var um það bil hálfnuð áttaði ég mig
á því að ég var að horfa á endurgerð löggufélagamynd-
arinnar Tumer & Hooch en núna var komin pínulítil
gömul löggumamma í stað hundspottsins. Alveg eins
og Hooch verður gamla konan vitni að morði og er sú
eina sem getur borið kennsl á morðingjana. Alveg eins
og Tom Hanks situr Sylvester Stallone uppi með hana
(sérstaklega af því að hann er sonur hennar). Alveg
eins og síðast leysir löggan málið með aðstöð mömmu
gömlu og lærir að meta hana í leiðinni.
Alveg eins og síðast fannst mér ekkert varið í mynd-
ina þvi þetta er næfurþunn framleiðsla með engu nýst-
árlegu eða sérstaklega vel gerðu. Því má samt ekki
neita að hún hefur ákveðið aíþreyingargildi, heldur
sig fast við forskriftina með einstaka ljósum punktum
inni á miUi.
Stallone vill vera bæði vöðvabúnt og gamanleikari
eins og Schwarzenegger. Hann er auðvitað betri leik-
ari en á ekki að leika í svona mynd ef hann vill ein
hvern tímann láta taka sig alvarlega. Mömmu gömlu
leikur hin eiturhressa Estelle Getty og er sú eina sem
kemst vel frá myndinni.
Kvikmyndir
Gísli Einarsson
Stop! Or My Mom Will Shoot (Band. 1992) 87 min. Handrit:
Blake Snyder, William Osborne, William Davies. Leikstjórn:
Roger Spottiswoode (Turner & Hooch, alveg satt!). Leikarar:
Sylvester Stallon, Esteila Getty (Golden Girls), JoBeth Will-
iams (Poltergeist, Switch).
^ „ • • Jijj ý- ! V ^ \
||| 1 : • '..M
TIL SÖLU
þessi glæsilegi Ford Econoline
250 Club Wagon, árgerð 1991,
ekinn 5000 mílur, vél V-8 351.
Blllinn er hlaðinn aukahlutum
innan sem utan: 6 tonna spil
og spilstuðari, 8 Ijóskastarar,
lækkuð drif, loftlæsingar fram-
an og aftan, loftflautur o.fl.
Einnig getur fylgt farsími, tvær
talstöðvar, lóran lóran o.fl.
Upplýsingar gefur
Guðmundur, vs. 98-11259 og
hs. 98-11827.
ERT ÞU ORUGGLEGA
ÁSKRIFANDI?
EINN BÍLL Á MÁNUÐI í ÁSKRIFTARGETRAUN
fMÆMÆÆ
A FULLRI FERDI
. . . OG SIMINN ER 63 27 00
OvX';A
Veitingastaöur
^ í miöbæ Kópavogs
\ -
3ŒE
Tilbod vikunnar
Spönsk grœnmetissúpa (Gastacio)
Ofnbökuð grísasneið, gratineruð, með
bakaðri kartöflu og grænmeti
Kr. 1.490
Pitsur, hamborgarar, steikur
á vœgu verði
Veisíuþjónusta
Hamraborg 11 - sími 42166
I
2E
UOSHLIFAR - GRJOTGRINDUR
Flugufælur frá EGR
Fallegur
aukahlutur á
bílinn
sem getur i '' '•;'■■ - í 'jf
sparað t-Æe.' SL
þér stórfé L ' ¥
Ásetning á
sekúndum
Smurstöðin, Fosshálsi 1
Bílaborgarhúsinu - simi 673545
9 2
Vertu klár í slaginn Garcia
rr •••11 / 1 / V * V « » / V • _ ""
Fjölbreytt úrval afgóðum veiðivörum ú verði,
sem kemur skemmtilega ú óvart
Opið til kl. 18 mánud,-fimmtud.
til kl. 19 á föstudögum
frá kl. 10 til 16 á laugardögum
og á sunnudögumfrá kl. 11 til 16.
Hafnarstræti 5, Símar 1 67 60 og 1 48 00
\\\\\v\\