Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1992, Blaðsíða 23
FÖSTUDAGUR 17. JÚLÍ 1992.
31
■ Verslun
Dráttarbeisli, kerrur. Odýru, ensku
dráttarbeislin á flestar gerðir bíla.
Samþykkt af Bifreiðaskoðun Islands.
Ásetning á staðnum. Póstsendum.
Opið alla laugardaga. Víkurvagnar,
Dalbrekku 24, s. 43911 og 45270.
Fatnaður i miklu úrvali, gott verð.
Póstsendum. X & Z bamafataverslun,
Skólavörðustíg 6B (gegnt Iðnaðarhús-
inu), sími 91-621682.
Nýkomnir gosbrunnar og fleira garð-
skraut. Vörufell hf., Heiðvangi 4,
Hellu, s. 98-75870, faxnúmer 98-75878.
Látum bíla ekki
í gangi aö óþörfu!
Utblástur bitnar verst
Lá börnunum
tir” J\
Vatnsslöngur - Garöslöngur. Mikið
úrval af vatnsslöngum á mjög hagst.
verði. Vandaðar slöngur m/12 ára
ábyrgð. Heildsala & smásala. Land-
vélar hf., Smiðjuvegi 66, Kóp., s. 76600.
Eigum til mikið úrval af glæsilegum
undirfatnaði á frábæru verði. Opið
virka daga frá kl. 10-18 og laugard.
frá kl. 10-14. Myndalistar 250 kr.
Erum á Laugavegi 8, sími 28181.
Smáauglýsingar
Það er staðreynd að vörumar frá okk-
ur gera þér kleift að auðga kynlíf þitt
og gera það meira spennandi og yndis-
legra. Troðfull búð af alls konar
spennandi hjálpartækjum ástarlífsins,
f/dömur og herra, o.m.fl. Ath., allar
póstkr. dulnefhdar. Erum á Gmndar-
stíg 2 (Spítalastígsmegin). S. 91-14448,
opið 10-18 virka daga, 10-14 laugard.
Vertu öruggur meö bilinn. Sparkrite
SR-150 þjófavamakerfin em komin
aftur. Einu kerfin sem em viðurkennd
af Félagi breskra bifreiðaeigenda.
Innflytjandi versl. Fell, sími 666375.
Útsölustaðir Ingvar Helgason, sími
674000, og Nesradíó, Hátúni, s. 16454,
Bílasala Vesturlands, Borgarnesi.
■ Vagnar - kerrur
■ Bátar
TRAKTORSVAGNAR - STWRTUVAGNAR
5 tonna sturtuvagnar til afgreiðslu strax,
smíðaðir á Islandi fyrir íslenskar
aðstæður. Verð aðeins 192.600 + vsk.
meðan birgðir endast. Veljum
íslenskt. Víkurvagnar, Dalbrekku 24,
símar 43911 og 45270.
Quicksilver gúmmíbátar, 4 stærðir.
Mercury utanborðsmótorar. Fjöldi
stærða á lager. Verð frá kr. 89.000
(bátur + mótor). Vélorka hf., Granda-
garði 3, Reykjavík, sími 91-621222.
■ Bílar tíl sölu
Fyrlr ísl. veðráttu. Chevrolet van, árg
’75, með lyftanlegum toppi, gasmið
stöð, 2 gashellum, vaski, vatni, kæli
skáp o.fl. S. 91-44736 og 985-28031.
Volvo F 610, árg. 1983, sjálfskiptur,
kassi 5,40 m, lyfta 1500 kr. Ástand og
útlit gott. Uppl. í síma 96-33202.
BMW M.3, árg. ’87, tll sölu, ekinn 67
þús. km, bíll með öllum aukabúnaði,
ath. skipti á ódýrari. Uppl. í síma
92-15981.
Tilefnislaus
líkamsárás
Islendingar hafa löngum hreykt
sér yfir þvi hversu vel þeir hafa
sloppið við ýmis vandamál sem
hrjáð hafa frændur okkar í Skand-
inavíu og íbúa á meginlandi Evr-
ópu.
íslenska þjóðfélagið er að breyt-
ast hraðar en nokkurn grunar.
Þegar breytingamar verða gerast
þær með svo miklu offorsi að fáir
geta hamið skriðuna þegar hún fer
af stað.
Fyrir 5 árum var verið að opna
Kringluna og síöan hafa risið upp
krár á öðru hveiju götuhomi, út-
varpsstöðvar eru fleiri en 6 stöðva
minni á bílaviðtækjum geta numið
og verslun hefur að miklum hluta
færst úr miðbænum til verslunar-
kjarna austar í borginni.
Gífurlegur hraði, efnishyggja og
ytri glæsimennska virðist hafa hel-
tekið stóran hiuta af íbúm þessa
lands. Alhr þurfa að eignast allt og
það helst í gær. Allir eiga að líta
út eins og útklipptar tískubrúður í
glanstímaritum, grannir, stæltir,
-stundandi bardagaíþróttir og í flnni
grein í háskólanum. En mitt í
hringiðu þessarar glysgjörnu ver-
aldar blundar hættan sem er of-
beldið, eiturlyfin og hrösunin.
Vitni að líkamsárás
Firringin sem þetta þjóðfélag
býður upp á er gífurleg. Ekkert
jafnvægi virðist vera hvert sem ht-
ið er. Efnahagslegar ákvaröanir
virðast thvhjunarkenndar, þannig
að verðbólga er ýmist sú mesta í
vestrænum heimi eða að hún skal
vera sú minnsta hvað sem það
kostar. Aht þetta gerist eins og
hendi sé veifað. Samfara shkum
sveiflum verða brestir, brestir sem
fram koma í mótsagnakenndum
ákvörðunum stjónivalda eins og
bráðabirgðalögin um kjaradóm eru
lýsandi dæmi um.
Loks hefur aöskhnaður dóms-
valds og framkvæmdavalds átt sér
stað en hefur starfsháttum rann-
sóknarlögreglu verið breytt? Því
miður hefur það ekki verið gert.
Nú er loks komið að því hvers
vegna undirritaður hefur séð sig
thneyddan th að skrá þessar hnur.
Undanfarin fimm ár hefur undir-
ritaður búið úti á landi en er nú
fluttur th Reykjavíkur. Það er þess
vegna sem ég verð kannski frekar
var við ahar þessar breytingar en
þeir sem vaxið hafa með þeim. Það
sem slær mig mest er hversu of-
beldi hefur aukist, hversu víðtæk
eiturlyfjaneyslan er orðin og thefn-
islausar líkamsárásir ekki lengur
tilfahandi atburðir.
Það var því ekki að ástæðulausu
sem viö hjónin höfum beðið son
okkar, sem var aö ljúka 10. bekk,
aö fara varlega á kvöldin þegar
hann ætti erindi niður í bæ. Sonur
okkar kemur úr vemduðu um-
hverfi, ef svo má segja, og því var
ástæða th að benda honum á hugs-
anlega hættu. Sonur okkar er
íþróttalega sinnaður, hvorki reykir
né drekkur og hvers manns hug-
ljúfi í allri framkomu og skapgerð.
Það kom því sem reiðarslag yfir
okkiu- hjónin að frétta að hann
hafði orðið fyrir líkamsárás aðfara-
nótt 17. júní sl. Við þessa líkamsá-
rás brotnuðu tvær tennur í syni
mínum, og samkvæmt mati sér-
fræðinga verður um mjög kostnað-
arsama viðgerð að ræða. Þijú vitni
voru að þessari líkamsárás og við
skýrslutöku hjá rannsóknarlög-
reglu ríkisins 18. júní sl. kemur
fram að árásin var algjörlega thefn-
islaus. Meintur árásaraðih yrti
aldrei á son minn og virðist helst
hafa haft ástæðu th að beita ný-
fenginni karatekunnáttu sinni á
saklaust fólk með því að sparka úr
því tennumar.
KjaHariim
Rúnar Þorvaldsson
aðstoðarskólastjóri
Heiðarskóla Leirársveit
A-mál og B-mál
Undirritaður er nú að fara úr
landi th náms um lengri tíma og
mun því ekki geta fylgt umræddu
máh eftir sem skyldi. Sökum þessa
var sérstaklega farið fram á að
máhnu yrði hraðað með skýrslu-
töku af meintum árásaraðha. - Nú
er um það bh mánuður liðinn frá
því að árásin var kærð en rann-
sóknarlögreglan hefur ekki séð sig
knúna th að flýta málinu. í upp-
hafi sneri undirritaður sér th rann-
sóknarlögreglunnar í Hafnarfirði
þar sem árásin átti sér stað í Hafn-
arfirði. Vísaði rannsóknarlögregl-
an í Hafnarfirði máhnu til rann-
sóknarlögreglu ríkisins í Kópavogi
þar sem um meiriháttar líkamsá-
rás var að ræða samkvæmt þeirra
skhgreiningu.
Þegar undirritaður grennslaöist
síðar fyrir um máhð var honum
vinsamlegast bent á að mál væru
flokkuð í A-mál og B-mál. B-mál
væru þess eðhs að þau hlypu ekki
frá manni og mættu því bíða um
sinn frekari rannsóknar. Þetta mál
væri B-mál og ekkert yrði að sinni
tekiö á því. Ég hef nú sent þremur
embættum skeyti, rannsóknarlög-
reglu ríkisins í Kópavogi, rann-
sóknarlögreglunni í Hafnarfirði, og
svo dómsmálaráðherra Þorsteini
Pálssyni, þar sem segir að undirrit-
aður krefist þess f.h. sonar síns að
máhnu verði framfylgt með
skýrslutöku af meintum árásarað-
hja eða eins og segir í skeytinu.
að mikilvægt sé að ljúka skýrslu-
töku sem fyrst svo öhum aðiljum
sé máhð ferskt í rninni.” Skeytið
var sent 9/7 1992 eða um það bh
þremur vikum eftir að árásin var
kærð. Þegar þetta er skrifað er 14.
júh og enn er ekkert farið að gera
í málinu.
Ávísun á frekara ofbeldi
Það á að vera sjálfsögð krafa allra
borgara að mál séu rannsökuð.
Hvers konar seinagangur við rann-
sókn á svona málum er einskonar
ávísun á frekara ofbeldi. Það er
stórhættuleg þróun þegar hinn al-
menni borgari hefur á tilfinning-
unni að fáhðuð rannsóknarlög-
regla, slæm launakjör og takmörk-
uð yfirvinna sé afsökun fyrir
auknu ofbeldi og aukinni eitur-
lyfjaneyslu.
Hér er komið að akillesarhæl
okkar íslendinga. Samfara gífur-
legum breytingum á þjóðfélaginu
undanfarin 5 ár hefur beinlínis ver-
ið ýtt undir það að hér fái að dafna
og aukast hvers konar eiturlyfja-
neysla samfara öhum þeim hhð-
arkvihum sem ávaht gera vart við
sig: auðgunarbrot, líkamsárásir,
smáglæpir og það sem alvarlegast
er ofbeldi ofbeldisins vegna.
Við fljótum að feigðarósi ef við
eflum ekki löggæslu samfara
breyttum þjóðfélagsháttum og við-
urkennum að við Islendingar erum
ekkert öðruvísi en aðrar þjóðir. Í
sálartetri okkar er ekkert sem seg-
ir að við séum betri og saklausari
en aðrir, þjóð án ofbeldis, þjóð með
samúð, þjóð sem aldrei hefur upp-
lifað stríð. Þaö er von mín aö borg-
arar þessa lands þurfi aldrei að
taka lögin í sínar hendur með því
að ganga með „basebalTkylfu upp
á vasann því þeir hafi gefist upp á
réttarkerfmu, sem oft á tíðum virð-
ist heiöra skúrkinn en skilja fórn-
arlömbin eftir í sárum án bóta. Ég
vh enda þessi skrif mín með því
að segja: Hér var einu sinni Edens-
garður. Rúnar Þorvaldsson
„Nú er um það bil mánuður liðinn frá
því að árásin var kærð en rannsóknar-
lögreglan hefur ekki séð sig knúna til
að flyta málinu.“
Ofbeldi hefur aukist, eiturlyfjaneyslan er orðin víðtæk og tilefnislausar
likamsárásir ekki lengur tilfallandi atburðir.