Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1992, Qupperneq 24

Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1992, Qupperneq 24
I------------- 12. ^32 Afmæli Jón Þ. Sveinsson Jón Þórir Sveinsson kaupmaður, Mávahrauni 4, Hafnarfiröi, er fimmtugurídag. Starfsferill Jón er fæddur og uppalinn í Hafn- arfirði. Hann lærði bílasprautun og starfaði síðan í nokkur ár bjá BP Olís í Hafnarfirði sem skrifstofu- maður. Hann stofnaði verslunina Lækjarkot 1977 ásamt foður sínum og hefur rekið hana síðan. Jón starfaði í deildum og aðal- stjóm FH og í stjóm ÍBH um árabil. Fjölskylda Maki Jóns er Sigrún Pétursdóttir, f. 16.8.1946, verslunarmaður oghús- móðir. Hennar foreldrar: Pétur Danielsson, látinn, og Jóna K. Ei- ríksdóttir. Böm Jóns og Sigrúnar: Elfa Sif, f. 31.5.1968, verslunarstjóri, í sam- búð með Andrési Andréssyni og eiga þau eina dóttur, Aiexöndru Eir, f. 10.12.1989; Jón Arnar, f. 7.8.1977, nemi. Systkini Jóns em Karl H. Sveins- son, f. 14.4.1945, og Sveindís Sveins- dóttir, f. 28.5.1950. Foreldrar Jóns: Sveinn Kr. Magn- ússon, f. 27.2.1919, og Súsanna M. Bachmann, f. 4.12.1920. Þau em búsett í Hafnarfirði. Jón tekur á móti gestum á afmæl- isdaginn kl. 19-22 í íþróttahúsi FH, Kaplakrika. Jón Þ. Sveinsson. Hulda S. Hansdóttir , HuldaSigm-björgHansdóttirhús- móðir, Laufvangi 16, Hafnarfiröi, er áttræðídag. Fjölskylda Hulda er fædd og uppahn í Hafn- arfirði. Hún giftist 17.11.1934 Frið- jóni Guðlaugssyni, f. 7.8.1912, d. 28.12.1985, vélstjóra. Foreldrar hans: Guðlaugur Helgason verka- maður og Guðrún Ólafsdóttir hús- móðir. i— Hulda og Friðjón eiga sjö böm. Þau eru: Olafur Helgi, f. 5.4.1933, jámsmiður; GuðlaugHanna, f. 12.1. 1937, sjúkranuddari; Guðrún Halla, f. 20.10.1943, bóndi; Friðrik Hans, f. 13.7.1948, deildarstjóri; Sólveig Hrönn, f. 3.3.1951, fulltrúi; Júlíanna Helga, f. 23.10.1952, lyfjatæknir; Guðlaugur Helgason, f. 23.12.1956, rafvirki. Hulda og Friðjón eiga 24 bamaböm, 24 barnabamaböm og 1 bamabamabarnabam. Systkini Huldu: Sigríður H. Proppé, f. 17.12.1916, d. 2.11.1989. Hálfsystkini Huldu sammæðra em: Kristín J. Armann, f. 13.9.1923; Alda Jensdóttir, f. 7.9.1925, d. 16.6.1991. Foreldrar Huldu: Friörik Hans Friðriksson, f. 8.4.1888, d. 1924, tré- smiður og vélsmiður, og Júlíanna Jónsdóttir, f. 9.7.1890, d. 28.5.1961, húsmóðir. Hulda tekur á móti gestum á af- mælisdaginn að heimili dóttur og Hulda S. Hansdóttir. tengdasonar, Álfaskeiði 50, Hafnar- firði,eftirkl. 17. Meiming Bíóhöllin - Vinny frændi: ★ XA Silast í suðurríkjum My Cousin Vinny er andlaus formúlu-gamanmynd sem heföi verið þolanieg ef hún væri ekki ótrúlega hæg og langdregin. Joe Pesci leikur lögfræðinginn Vinny, sem er meist- ari í að þræta en óreyndur í málaferlum. Hann þarf að bjarga frænda sínum (Ralph Macchio), sem situr í steininum í smábæ Alabama, frá morðákæra, sem hann flæktist í að ósekju. Vinny kemur frá New York ásamt kærastunni sinni, Lísu, sem hann lofaði fyrir tíu áram síðan aö giftast um leið og hann ynni sitt fyrsta mál. Fyrir utan að þurfa að kljást viö máhð þarf hann líka að halda sönsum innan um sveitavarg- inn, druhuna, lélegu gistihúsin og fitusteiktan matinn. Það er eins og suðurríkjahitinn hafi lagst þungt á Kvikmyndir Gísli Einarsson aht og aha í myndinni. Hún drattast áfram og dregur kviðinn en einstöku sinnum rífur hún sig upp í smá tíma, rétt th að bjarga málunum fyrir hom. Myndin dugar ekki sem bíómynd og myndi sóma sér betur í videoinu, þar sem fjarstýringin er við höndina tíl að hraða málunum. Sökin er slappt handrit og kraftlaus leikstjóm, nokkuð sem er ansi erfitt að bæta fyrir með öðra, hversu gott sem það er. Joe Pesci sannaði með The Super að hann gæti einn síns hös hresst upp á formúlumynd ef hann fengi að rasa út. Héma er honum haldið í spennitreyju en erm- amar losaðar einstaka sinnum. Þetta er gert th þess að hann sé trúverðugri í nokkrum „dramatískum" atriðum, sem ekki einu sinni DeNiro gæti gert sér mat úr. Marisa Tomei, sem leikur kærastuna hans, er ágæt með „New Yawk“ hreiminn og hreyfingamar á tæra ásamt endalausu úrvah af eftirtektarverðum fatnaði. Ég get ekki annað en minnst á nokkuð sem stakk mig sérstaklega í augun. Kviðdómurinn og fólkið í réttarsalum var blandað bæði svörtum og hvítum og passað að hafa nærmyndir af bæði hvítum og svörtum andhtum þegar við átti. í raun og vera er hið blá- snauða Alabama-fylki gegnsýrt af kynþáttahatri og það er engin leið að svertingjar væra látnir að dæma Vinny lögfræöingur (Joe Pesci) meistari í að þræta en óreyndur I réttarsal. í morðmáh mihi hvítra, hvað þá að svartir myndu fylgjast með réttarhöldunum. Efdr réttarhneykshð í Rodney King-málinu er svona sögufölsun pirrandi, sama þótt að myndin hafi verið gerð á undan. My Cousin Vinny (Band. 1992) 119 mfn. Handrit: Dale Launer (Ruthless People, Dlrty Rotten Scoundrels). Lelkstjóri: Jonat- han Lynn (Nuns on the Run, Clue). Leikarar: Joe Pescl, Ralph Macchlo (To Much Sun, Karate-Kld 1-3), Marisa Tomei (Osc- ar), Mitcheil Whltfleld, Fred Gwynne (Pet Sematery). Merming dv Verk eftir Hlyn Helgason í Nýlistasafninu. DV-mynd JAK Sundur- setningar - Hlynur Helgason í Nýlistasafninu Nýhstasafnið hefur hingaö th ekki haldið úti mikilli kynningu á verkum úr fórum sínum, en nú virðist ætla að verða þar einhver breyting á. í SÚM-salnum gamla á efstu hæð safnsins hefur nú verið komið fyrir á gólfum og veggjum hinu margvíslegasta föndri eftir marga af eldri og reyndari brautryðjendum umbúðalausrar umbúðahstar og hugarfars- framleiðslu. Fyrir daga fjöltækninnar var nýhstin annaðhvort slys eða mistök í augum hstmunasala. En nú era verk af þessu tagi óðara sett í loftþéttar umbúðir og seld með eða án virðisauka. En uppsetning Nýhsta- safnsins er í hinum gamla umbúöalausa anda án sýningarskrár og kynn- ingar og er það ágætlega við hæfi. Þetta era táknmyndir síns tíðaranda fyrst og fremst. Það var tíðarandi bakþanka um að ekki væri aht með fehdu varðandi hina glæstu heimsmynd vestrænnar neyslu. Umhverfis- vernd steig sín fyrstu skref og sorphaugamir höfðu enn ekki tækni- væðst. En viðhorf nýlistamanna th umhverfisins var þó ööra fremur ljóð- rænt endurmat. Á miöhæð Nýhstasafnsins má þannig sjá u.þ.b. tólf ára Myndlist Ólafur Engilbertsson gamlar ljósmyndir af vikulöngu ferðalagi Hannesar Lárassonar upp og niður rafmagnsstaur og Guðrúnu Hrönn Ragnarsdóttur að mála sama staur að hætti augnabliksins. Á þeirri sömu hæð hefur nú verið komið fyrir blaða- og bókakrók ásamt kaffiaðstöðu sem lífgar mjög upp á starf- semi Nýhstasafnsins og á vonandi eftir að vinda enn frekar upp á sig þó svo að plássið sé vissulega ekki mikiö. Ljóðrænar teikningar Svo við fikram okkur áfram niður stiga Nýhstasafnsins, þá stendur nú yfir einkasýning Hlyns Helgasonar í tveimur neðstu sölunum. í anddyr- inu er talsverður fjöldi teikninga í ljóðrænum anda. Hlynur virðist vera undir nokkrum áhrifum frá spænska skáldinu og teiknaranum Federico Garcia Lorca, en línuteikningar beggja era léttleikandi og með ívafi skrif- aðra handahófskenndra orða, upphrópana eða ávarpa. Teikningaröð Hlyns Helgasonar hefur á sér hehdarsvip, þó svo að hann virðist leggja áherslu á hið einstaka og augnablikstilfinningu. Þannig er hann kominn nokkuð áieiöis með að þróa persónuiegt myndmál sem hefur yfirbragð ósjálfráðrar skriftar. Teikningar Hlyns era þó helst th risskenndar og það væri án efa th bóta að vinna þær meira. Þanin málverk Málverkin í neðsta salnum sýna að Hlynur hefur sérstaka og persónu- lega thfinningu fyrir ht og litajafnvægi. En í þeim birtast einnig tilhneig- ingar th að reyna á þanþol málverksins sem forms. Striginn er látinn bunga út í miðju og mynda einskonar fjahlendi. Tólf málverkanna era upphengd á veggi en fjögur hggja á neðsta gólfinu og blasa því vel við þegar kemur inn í saiinn. Þau hafa mestu þrívíddareiginleikana - eru eins og mismunandi þök eða kistulok. Hér er þó ekki um mikla rýmis- mögnun að ræða, th þess er hlutur hinnar tvívíðu „tálmyndar" of stór. Hafi Hlynur sterka þörf th að kljást við rými mætti hann athuga fleiri „sundursetningar", sundra þáttum rýmisins enn frekar og treysta meira á ljós og skugga en hann gerir hér. Hið ljóðræna er hins vegar það áber- andi hjá Hlyni að sennhega liggur það betur við að leita enn lengra inn á mið hins margræða fremur en að skammta naumt að hætti svo margra núhstamanna. Það krefst áræðis, en uppskeran er oftlega margfóld þegar mikið er lagt undir. Sýningu Hlyns lýkur nk. sunnudag, 19. júh.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.