Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1992, Blaðsíða 9
péSTuíöÁÖutí WÁ'óíf&T i'áfe'
I
Útlönd
Ungur sómalískur drengur, of veikburða til að geta hreyft sig, bíður við
landamæri Kenýa eftir því að flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna taki
fyrir mál sitt. Simamynd Reuter
Hungursneyðin 1 Sómalíu:
Einn þriðji
hluti íbúa
sveltur
Bandaríkjamenn munu fljótlega
flytja pakistanskar sveitir á vegum
Sameinuöu þjóðanna til Sómalíu en
gerð verður tilraun til að hjálpa íbú-
um Mógadishu sem nú hrynja niður
úr hungri.
George Bush, forseti Bandaríkj-
anna, bað varnamálaráðuneytið í
gær um að bjóðast til að leggja fram
flutninga fyrir Sameinuðu þjóðimar.
Samtökin þáðu boðið. Um 500 her-
menn eru í liðssveit Pakistana og
hafa þeir beðið mánuðum saman eft-
ir að geta farið til Sómalíu en sómal-
ískiu- stríðshöfðingi hefur staðið eins
og þrjóskt ljón í vegimnn fyrir að
þeir kæmust til landsins.
Sérlegur erindreki Sameinuðu
þjóðanna, Mohammed Sahnoun, til-
kynnti í gær að stríðshöfðinginn,
Mohamed Farah Aideed, hefði fallist
á að pakistanska sveitin kæmi til
Mogadishu. Verður gerð tilraun til
að auka matar- og lyfjasendingar til
íbúa landsins.
íbúar Sómalíu eru 4,5 milljónir og
er tahð að einn þriðji þeirra muni
verða hungurmorða ef ekkert verður
að gert. Sahnoun vonaðist til að síðar
yrði hægt að senda hjálparsveitir til
þriggja annarra staða í landinu og
tæknilið Sameinuðu þjóðanna mun í
næstu viku tilkynna á hversu mörg-
um hermönmnn og almennum borg-
urum er þörf.
Reuter
James Baker kosn-
ingastjóri Bush
George Bush, forseti Bandaríkj-
anna, tilkynnti í gær að James Baker
utanríkisráðherra myndi segja af sér
og flytja sig um set yfir í Hvíta húsið
til að taka við stjómartaumunum í
kosningabaráttu forsetans.
Bush hefur mun minna fylgi en
demókratinn Bill Clinton. Gerir
hann sér vonir um að Baker takist
að blása lifi í glæðumar og geti beitt
sömu töfrum og hann gerði fyrir fjór-
um árum. Heimildir herma að Baker
hafi ekki viljað skipta um starf og
gerði það eingöngu þegar ekki var
lengur hægt að líta fram hjá óvin-
sældum Bush. Formlega er Baker
sagður vera starfsmannastjóri Hvíta
hússins óg sérlegur ráðgjafi forset-
ans en ekki leikur vafi á að hann á
að tryggja að forsetinn sitji í fjögur
ár i viðbót.
SÖLUSYNING
Ford Econoline 350, dísil, 4x4, árg.
’88,15 manna, m/háum toppi. V. 2,9
milljónir.
Chevrolet van, 4x4, bensín, árg.
78, ferðabíll. V. 720 þús.
Ford Econoline 350, dísil, 4x4, árg.
’86, 15 manna. V. 2,5 m.
Ford Econoline 350, dísil, cargo,
4x4, m/háum toppi, árg. ’86. V. 1.650
þús.
Ford Econoline 350, bensin, árg.
’87,15 manna. V. 1.400 þús. m/vsk.
Ford Econoiine 350, dísil, cargo,
árg. ’86, m/háum toppi. V. 1.250 þús.
Ford Econoline 150, stuttur, árg.
’81, 6 cyl., ryðlaus, gott eintak. V.
550 þús. m/vsk.
Ford Econoline 150, árg. ’87,
m/gluggum, 6 cyl. EFi. V. 990 þús.
Ford Econoline 250, dísil, árg. '88,
12 manna. V. 1.650 þús.
I .........................—3
Ch. Suburban, dísil, 4x4, árg. '85, 8
manna. V. 1.370 þús.
GMC 6,2 disil, árg. ’85, sendibill.
V. 780 þús. m/vsk.
Chevrolet Suburban 20, bensín,
árg. '82, 4x4. V. 495 þús.
Ford Econoline 350, dísil, 4x4, árg.
'89, 15 manna. V. 3 m.
Ford Econoline 350, dísil, árg. ’84,
15 manna. V. 1.180 þús.
Ford pickup, 150, 4x4, árg. ’86, 8
cyl., 302 EFi. V. 990 þús.
Ford super cab, pickup, dísil, 4x4,
árg. ’87, 6 manna. V. 1.850 þús.
Ford pickup 150, árg. '85, 4x4, 351,
8 cyl. V. 980 þús.
GMC van 6,2 disil, m/gluggum +
sætum, árg. ’88. V. 1.470 þús.
Ford super cab, 250, dísil, 4x4, árg.
’88, mikið breyttur, 5 manna, með
eða án ferðacamper. V. 2,4 m.
Ford Econoiine 250, dísil, árg. ’86,
12 manna. V. 1.350 þús.
Ford Ranger ’90, extra cab, pickup,
4x4. V. 1.580 þús. m/vsk.
Ford Econoline 150, 4x4, árg. 78, Toyota Hilux, double cab, dísil, árg.
ferðabill. V. 850 þús. ’91. V. 1.490 þús., einnig árg. '90.
Bílasala Matthíasar
v/Miklatorg, á besta stað
Símar 624900 og 24540
„Stærsti sigurinn er að vera með.“
Reuter