Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1992, Blaðsíða 24
32
Fréttir
i r |
-
Hugsanlega er heimsóknin upphafið að umfangsmiklu samstarfi á sviði sjávarútvegs. F.v. Jens Valdimarsson,
Tamara Saturina og Alexander Abramov. DV-mynd ask
Alexander Abramov, forstjóri eins stærsta útgerðarfyrtækis Rússa:
Menning______________ dv
Ljúflingstónar
Þeir Martial Nardeau flautuleikari og Einar Kristján Einarsson gítar-
leikari efndu til tónleika í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar á þriðjudaginn
var.
Á efnisskrá voru Grande Sonate op. 85 í A-dúr eftir Mauro Giuliani,
Mouvements Perpétuels eftir Francis Paulenc, Entr’acte eftir Jacques
Ibert, Distribucao de Flores eftir Heitor Villa-Lobos og Histoire du Tango
eftir Astor Piazzolla.
Svo mikil aðsókn var á tónleikana að kom niður á hljómi salarins, sem
var óvenju þurr þetta kvöld, en þessi hljóðfæri þurfa fremur ómmikinn
salarhljóm. Hin stóra sónata Mauro Giuhani var vel leikin, eins og ravm-
ar öll sú tónlist sem á þessum tónleikum var flutt. Martial náði fallegri
syngjandi í tóninn í öðrum þættinum og skersóið var einkar létt og
Tónlist
Áskell Másson
skemmtilega flutt. Einar er vandaður en kannski fullhógvær meðleikari
þótt segja megi að tónlist þessi bjóði ekki upp á nein stór tilþrif frá gítars-
ins hendi. Hljómur salarins gerði það ennfremur að verkum að erfitt var
að greina þau hin fínlegri blæbrigði sem frá gítamum komu. Samhæfing
og samheldni þeirra félaga Einars og Martial var með ágætum.
í verkinu Mouvements Perpétuels eftir Francis Poulenc lék Martial
mikið með flölbreyttan htblæ, einkum í fyrsta þættinum og var sérlega
fallega gert. Tónlistin bað ekld um tilþrif frá gítamum eins og í fyrra
verkinu en leikur Einars var þéttur og vandaður. Entr’acte eftir Jacques
Ibert er liflegt og skemmtilegt verk og skrifað þannig að jafnræði ríkir
með hljóðfærunum. Verkið var vel leikið.
Hefjum sam-
vinnu strax
- gagnkvæmur áhugi, segir Jens Valdimarsson, viðskiptafuUtrúi ÚtQutningsráðs
„Tilgangur heimsóknar okkar var
að kynnast fiskiðnaði íslendinga og
sjá með eigin augum hvemig hann
er skipulagður. Við vissum að fisk-
iðnaðurinn hér er tæknivæddur en
það sem við sáum kom okkur mjög
á óvart. Undanfarin misseri höfum
við m.a. unnið með japönskum, am-
erískum og norskum fyrirtækjum.
Það sem við höfum séð hér er mun
betra en gerist meðal þessara þjóða.
Okkur virðist þið vera langt á undan
þessum þjóðum hvað varðar tækni-
þekkingu og skipulagningu," sagði
Alexander Abramov, forstjóri UTRF,
sem er eitt stærsta útvegsfyrirtækið
á Kamtsjatkaskaga. Alexander kom
hingað tÚ lands ásamt Tamara Satur-
ina, sem annast alþjóðleg viðskipti
UTRF, í boði Útflutningsráðs sl.
mánudag. Á miðvikudag hitti hann
Þorstein Pálsson sjávarútvegsráð-
herra.
UTRF er gamalt og gróið fyrirtæki
á sínu sviði. í eigu UTRF eru 83 skip
en þar af eru 53 meðalstórir togarar.
I flota fyrirtækisins eru einnig fiski-
leitar-, hafrannsóknar-, móður- og
flutningaskip. UTRF rekur einnig
niðursuðuverksmiðjur, viðgerðar-
verkstæði og hótel. Starfsmenn eru
6000 talsins. Heildarafli flota fyrir-
tækisins er 350 til 400 þúsund tonn á
ári.
Um þessar mundir leita ráðamenn
UTRF leiða til að afla nýjustu tækni-
og verkþekkingar. Ferð þeirra til ís-
lands er liður í þeirri viðleitni.
Útflutningsráð hefur lengi haft
áhuga á að ná góðu sambandi við
ýmis fyrirtæki á Kamtsjatkaskaga
og undanfamar vikur hefur Jens
Valdimarsson viðskiptafulltrúi dval-
ið þar. Jens sagði að möguleikar ís-
lendinga væru umtalsverðir á þessu
svæði og nú reyndi á þá svo um
munaði. „Rússamir hafa áhuga á að
ná góðu sambandi við okkur og ég
veit að áhuginn er gagnkvæmur,”
sagði Jens.
Alexander sagði að innan tíðar
myndu tæknimenn á vegum fyrir-
tækisins koma til íslands til frekari
viðræðna og til að afla sér þekking-
ar. í því sambandi nefndi hann sam-
vinnu á ýmsum sviðum, s.s. þjálfun
skipstjómarmanna og markaðsmál.
En geta íslensk fyrirtæki hafið viö-
skipti fljótlega? „Nú er rétti tíminn
til að hefja samvinnu og viðskipti.
Við höfum hitt fulltrúa ýmissa fyrir-
tækja og vomm afar ánægð með við-
tökumar,“ sagði Alexander
Abramov.
-ask
Gamalli (allbyssu úr varðskipinu Tý var komið fyrir viö fjörubakkann fyrir framan gamla útvarpshúsið við Skúlagötu
f gær. Tilefnið er siglingakeppni, sem verður haldin á morgun vegna afmælis Reykjavíkurhafnar, og verður byss-
an notuð til að ræsa keppnina. í gær var skotið æfingaskoti. Eins og myndin sýnir er um kraftmikla fallbyssu að
ræöa. Fallbyssan er dönsk smfð frá siðustu aldamótum. Hún var síðast notuð um borð í Tý en sett í geymslu
um siðustu áramót í stað nýrrar byssu. DV-mynd S
Fallegt gítarforspfl var að Distribucao de Flores og boöið upp á fjöl-
breyttan leikmáta. Stemningar vom fram kallaðar sem á stimdum minntu
á indíána og frumskóga Brasilíu. í þessu verki fóru flytjendumir á kostum.
Síðasta verkið, Histoire du Tango, í fjórum þáttum, sem taka mið af
ástandi tangósins á 30 ára fresti, frá 1900 tfl 1990 er skemmtflegt verk og
vel skrifað, einkum fyrir gítarinn. Annar þátturinn, Café 1930, er að uppi-
stöðu falleg flétta tveggja melódískra lína sem þeir Einar og Martial fóru
sérlega vel með. í síðasta þættinum, Concert d’aujourd’hui, lyftir Astor
Piazzolla tangóinum í listrænar hæðir og má segja svipaða sögu um flutn-
inginn á verkinu í heild.
Háskólabíó - Falinn íjársjóður ★★
Gullímund
Paydirt er ekkert verri afþreyingarmynd en hver önnur. Það er mikið
að gerast í henni þó fátt af því sé merkflegt en leikhópurinn er góður og
heldur athyglinni. Þetta er engin stórmynd og myndi ekki síður sóma sér
á litlum skermi.
Jeff Daniels leikur fangelsissál-
fræðing, sem að eggjan deyjandi
fanga gerir tilraun tfl að hafa upp
á foldum íjársjóði sem er grafinn í
húsagrunni í úthverfi. Konan sem
býr þar (Catherine O’Hara) er ný-
búin að henda út kallinum sínum
og nágrannamir fylgjast grannt
með öllu sem gerist. Ekki minni
vandræði valda tugthúslimir sem
komust á snoðir um fjársjóðinn en
fóru í vitlaust hús og hertaka hjón
sem búa þar. Tilheyrandi handapat
og moldargröftur fylgir og endar í
hamagangi þegar allir eru famir
yfir um á taugum.
Handritið er engin merkissmíði,
en vel skipulagt og með nóg af
ágætum hugmyndum tfl að manni
leiðist ekki en ekkert meira. Höf-
undurinn og leikstjórinn, Bill
Phillips, keyrir upp hraðann í sög-
unni en er ekki það góður að hann
geti hrifið áhorfandann inn í
hringavitleysuna. Persónumar era
svo knappt dregnar að það er ekki
hægt að taka þær alvarlega. Leik-
Kvikmyndir
Gísli Einarsson
aramir em hins vegar sterkir karakterar, enda flestir vinsælir auka-
leikarar. Þeir blása lífi í persónumar stutta stund. Bestur er Richard
Portnow sem sjúklega kynóður sölumaður, sem getur ekki látið kvenfólk
vera. O’Hara er líka mjög aðlaðandi leikkona á sinn hátt og er þetta henn-
ar stærsta hlutverk til þessa.
Paydirt (Band. 1992)
Handrlt og leikstjórn: Bill Phillips.
Leikarar: Jeff Daniels (Arachnophobia), Catherine O’Hara (Beetlejuice), Hector
Elizondo (Frankie & Johnny), Rhea Perlman (Cheers), Judith Ivey (In Country,
Hello Again), Jonathan Banks (Freejack), Harris Yulin (Fatal Beauty), Dabney Cole-
man (Where the Heart Is), Richard Portnow (Barton Fink).