Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1992, Síða 20
20
MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 1992.
MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 1992.
21
KR-ingurinn Oskar Hrafn Þorvaldsson lék allra manna best á vellinum í gær og hér hefur hann betur í baráttu viö Guðmund Steinsson. DV-mynd Brynjar Gauti
Samskipadeildin 1 knattspymu:
Ætlum að klára
mótið með sæmd“
- sagði Þormóður Egilsson eftir sigur KR á Víkingum 1 gær
„Þetta var opinn og skemmtilegur
leikur. Þeir fengu sín færi í fyrri hálf-
leik en í þeim síöari vorum við sterkari
og hefðum þess vegna getað skorað
fleiri mörk. Við höfum gaman af þessu
og meðan svo er getur allt gerst hjá
okkur. Við einblínum bara á næsta leik
og hugsum fyrst og fremst um að klára
mótið með sæmd,“ sagði Þormóður
Egilsson við DV eftir að KR-ingar höfðu
lagt íslandsmeistara Víkings að velli,
3-0, á KR-velli í gærkvöldi.
Með þessum sigri eiga KR-ingar enn
góða von um að verða Islandsmeistarar
í fyrsta sinn frá árinu 1968. KR-ingar
hafa svo sem oft verið í þessari aðstöðu
skömmu fyrir lok íslandsmóta síðustu
24 árin en ávallt hefur liðinu mistekist
að hampa bikamum eftirsótta. Víking-
ar eru hins vegar í fallbaráttu og mega
muna sinn fífil fegri en þeir urðu Is-
landsmeistarar í fyrra.
Eftir gott færi Ragnars Margeirssonar
KR-ings á upphafsmínútunum, þar sem
Guðmundur Hreiðarsson varði skot
hans, náðu Víkingar betri tökum á
leiknum og á 32. mínútu vom þeir
óheppnir að skora ekki. Guðmundur
Steinsson fékk þá stungusendingu,
vann einvígi við Atla Eðvaldsson og
skaut góðu skoti sem lenti í stönginni.
Fyrri hálfeikurinn var annars frekar
þófkenndur og hvomgt Uðið náði að
sýna góða knattspymu.
Síðari hálfleikur var hraður og
skemmtilegur og oft brá fyrir góðum
samleik, einkum hjá KR-ingum. Á 50.
mínútu kom fyrsta mark leiksins. Eftir
þóf fyrir framan vítateig Víkinga komst
Gunnar Skúlason inn fyrir vöm Vík-
ins, lék á Guðmund í markinu og sendi
boltann á Ragnar Margeirsson sem átti
ekki í erfiðleikum með að afgreiða hann
í netið.
Sjö mínútum síðar kom annað mark-
ið. Einar Danielsson átti þá góða rispu,
stakk knettinum inn fyrir vörn Víkinga
og þar komst Heimir Guðjónsson einn
gegn Guðmundi, lék á hann og skoraði
af öryggi. Lokaorðið átti Steinar Ingi-
mundarson á 86. mínútu þegar hann
skoraði fram hjá Guðmundi sem varði
skot Steinars en frá honum lak boltinn
í netið.
Eftir frekar rólegan fyrri hálfleik
sýndu KR-ingar á sér sparihliðarnar í
síðari hálfleik og léku þá á köflum mjög
vel. Leikmenn vesturbæjarhðsins beita
stuttum samleik og oftar en ekki
splundruöu þeir vörn Víkings með þrí-
hymingsspili. Varnarmaðurinn ungi,
Óskar Hrafn Þorvaldsson, átti stórleik,
fljótur og vel spilandi strákur og flestir
í KR-hðinu áttu góðan dag í síðari hálf-
leik. Rúnar Kristinsson lék ekki með,
tók út leikbann.
Víkingar léku ágætlega úti á vellinum
en þegar nær dró marki KR-inga fjaraði
leikur hðsins út. í liðið vantaði að vísu
sterka menn. Janni Zhnik og Guð-
mundur Ingi Magnússon vom báðir í
leikbanni og Helgi Björgvinsson er far-
inn til náms í Bandaríkjunum. Víkingar
em með góðan mannskap en samheldn-
in er ekki til staðar, eitthvert andleysi
virðist ríkjandi í herbúðum þeirra og
því er staða hðsins þessi í dehdinni.
-GH
Auður Skulad., fyríri* Stjörnunnar*
Breiðablik tapaði sínum fyrsta leik
í 1. dehd kvenna í gærkvöldi er
Stjömustúlkur lögðu þær að velli,
1-0, á heimavelh sínum í Garðabæ.
Sigur Stjömunnar Iheypir hehmiklu
Qöri í baráttuna um íslandsmeistara-
titilinn, Blikastúlkur sitja eftir sem
áöur í efsta sæti dehdarinnar, hafa
eins stigs forskot á Valsstúlkur, sem
eru í ööm sæti.
„Við lokuðum dehdinni á þriðju-
daginn og ákváðum aö opna hana
aftur í kvöld,“ sagöi Auöur Skúla-
dóttir, fyrirliöi Stjömunnar. Með
orðura sínura visaði hön th þess að
Stjaman sigraði ÍA sl. þriðjudag og
forskot í baráttunni um meistaratit-
ilinn.
Stjörnustúlkur byrjuðu leíkinn af
miklum krafti og vora mun ákveðn-
ari en Blikamir. Á 4. mínútu átti
Ragna Lóa Stefánsdóttir lúmskt skot
af 30 metra færi en Sigfrföur Soph-
usdóttir, sem var komin langt út úr
marki sínu, náöi að slá boltann út frá
marklínu. Stjaman hélt áfram að
sækja og á 22, mínútu tættu þær vöm
Breiðabliks sundur, boltinnbarst inn
í teig þar sem Laufey Sigurðardóttir
sendi boltann út, á Guðnýju Guðna-
dóttur, sera skilaöl honura af öryggi
efst í hægra homið.
Blikahðíð sótti af miklum krafti
allan síðari hálfleikinn. Sex dauöa-
færi litu dagsins Ijós upp viö Stjömu-
markiö en lukkan hafði gengið í hð
með Stjömustúlkum og inn vhdi
boltinn ekki. Eina umtalsverða færi
Stjömunnar kom um miðjan hálf-
leikinn, Rósa Dögg Jónsdóttir komst
ein inn fyrir vöm Breiöabliks, en
Sigfríður Sophusdóttir bjargaði með
Auður Skúladóttir var langbesti
leikmaður Stjömunnar. Hún sýndi
þaö í þessum leik að hún er öflugasti
varnarmaður fslenskrar kvenna-
knattspymu, þaö kemst engin með
tæmar þar sera hún hefur hælana.
Sigfríður Sophusdóttir og Vanda Sig-
urgeirsdóttir voru bestar í hði UBK.
-ih
íþróttir
Þór (1) 2
FH (0) 0
1-0 Sveinbjöm 4. víti.
2-0 Birgir 69.
Lið Þórs (3-5-2): Láms (2), -Þór-
ir (2), Július (1), Hlynur (2), - Ás-
mundur (1), Lárus Orri (1), Sveinn
(2), Sveinbjorn (2) (Kilstján (1) 73.),
Birgir (1), - Bjami (2), Halldór (i)
LiðFH (3-5-2): Stefán (1), -Bjöm
(1) , Daníel (1), Olafur (1), -Þórhall-
ur (1) (Þorsteinn (1) 70.), Hallsteinn
(2) , Davíð (l), Andri (2), Þorsteinn
(2), - Grétar (1), Hörður (1).
Gui spjöld: Olafur, Daníel, Andri,
Njáh, þjálfari FH.
Rauö spjöld: Bngin.
Dómari: Bragi Bergmann,
dæmdi ágætlega.
Aðstæður: Norðan átt og kalt.
Áhorfendun 528
ÍA (3) 7
IBV (1) 1
1-0 Bjarki 13.
1- 1 Tómas Ingi 15.
2- 1 Amar 15.
3- 1 Ólafur 33.'
■i-l Tbeodór 70
5- 1 Amar 75.
6- 1 Amar 77.
7- 1 Haraldur H.
Lið ÍA (3-5-2): Kristján (2), - Ólaf-
ur (2), Kostic (2), Theodór (2), -
Haraldur H. (2), Alexander (2), Sig-
ursteinn (1), Bjarki (3) (Heimir (1)
78.), Haraldur 1,(2), Þórður (2XSig-
urður S,(l) 83.), Araar (3).
Lið ÍBV (4-1-2): Friðrik F.(l), -
Friðrik S. (1), Bevic (2), Elías (2),
Jón B. (1), Heimir (1), Tryggvi (1)
(Martin (1) 70.), Nökkvi (l), Rútur
(1), - Leifur (1), Tómas (1) (Huginn
(1) 80.) - Gul spjöld: Friðrik S.
Nökkvi ÍBV.
Rauð spjöid: Engin.
Dómari: Gíslí Guðmundsson.
Aðstæður: Strekkingsvindur,
góður vöhur.
Áhorfendur: 700.
KR (0) 3
Víkingur (0) 0
1-0 Ragnar 50.
2- 0 Heimir 57;
3- 0 Steinar 86.
Liö KR (3-5-2): Ólafur (2), Óskar
(3), Gunnar (3), Þormóöur (2), Atii
(1) , Gunnar (1), Einar (1) (Arnar
86.), Heimir (2), Steinar (1), Ragnar
(2) , Ómar (X) (Siguröur Ó. 76. (1)).
Lið Víkings (3-5-2); Guðmundur
(1), Aðalsteinn (2), Þorsteinn (1),
Helgi Bjama (2), Marteinn (2), Ól-
afur (1), (Kristinn 59. (1)), Atli H.
(1), Hörður (1), Ath E. (2), Guð-
mundur S (Bosnjak 75, (D), Helgi
(l).
Gul spjöld: Þorsteinn (Vík).
Rauö spjöld: Engin.
Dómari: Þorvaröur Björnsson,
ágætur.
Aðstæður: Norðan stinnings-
kaidi og kalt í vesturbænum.
Áhorfendur: 700.
Staðan í
l.deildkarla
Akranes....15 10 3 2 32-15 33
Þór ..... 15 8 4 2 24-9 31
KR.........15 9 3 3 27-13 30
Valur......14 7 4 3 24-14 25
Fram.......14 6 1 7 20-19 19
FH......15 4 5 6 19-24 17
Vfkingur...15 4 4 7 20-27 16
KA.........14 3 4 7 15-25 13
UBK14 3 3 8 9-19 12
15 2 1 12 14-39 7
Markahæstir:
Arnar Gunnlaugsson, ÍA......12
Va!dimarKristófersson,Fram ...9
Helgi Sigurðsson, Víkingi....8
Andri Marteinsson, FH
Bjarni Sveinbjðrnsson, Þór...7
Gunnar Már Másson, KA........7
Anthony Karl Gregory, Val...6
S veinbjöm Hákonarson, Þór...5
Ormarr örlygsson, KA.........S
Atli Einarsson, Víkingi......5
Ragnar Margeirsson, KR.......5
Steinar Ingimundarson, KR....5
í kvöld em tveir leikir í 1. dehd,
UBK-Valur og Fram-KA leika kl.
18.30.
Samskipadeildin í knattspymu:
Þórsarar
nýttu færin
- og gefa ekkert eftir í toppbaráttunni
Ólafur Gyifason, DV, Akuieyri:
Þórsarar halda stöðu sinni í topp-
baráttu Samskipadehdarinnar eftir
2-0 sigur á FH nyrðra í gærkvöld.
Leikurinn var þokkalega leikinn en
aðstæður th knattspyrnuiðkunar
voru heldur kuldalegar.
FH-ingar voru heldur meira með
boltann í fyrri hálfleik, án þess þó
að skapa sér veruleg marktækifæri.
Eina markverða færi þeirra kom á
17. mín. en Láms varði skot Harðar
Magnússonar á glæshegan hátt.
Stuttu síðan misnotuðu Þórsarar
ágæta sókn er Bjarni náði ekki skoti
eftir að hafa lent í of þröngri að-
stöðu. Eina mark hálfleiksins gerðu
heimamenn eftir aðeins 4 mín. leik.
Bjami Sveinbjörnsson var felldur
innan vítateig og Sveinbjörn Hákon-
arson skoraði úr vítaspymunni.
Eftir stundarfjórðungs leik í síðari
hálfleik komst Höröur einn inn fyrir
vöm Þórs en féh klaufalega um bolt-
ann og náði ekki skoti á mark. Á 69.
mín. bættu Þórsarar við marki. Birg-
ir Karlsson skoraði þá eftir vel undir-
búna skyndisókn þeirra Bjama og
Sveinþjörns. Fjórum mín. fyrir leiks-
lok átti Þorsteinn Halldórsson, vara-
maöur FH, fast skot að marki Þórs.
Láms náði ekki að halda boltanum,
hann barst th Andra, en Þórsarar
björguðu skalla hans á marklínu.
FH-ingar hafa ekki veriö mark-
heppnir í sumar og á því varð engin
breyting i þessum leik. Þórsarar
nýttu hins vegar færin en það þarf
th svo hð sé í toppbaráttu í deildinni.
„Þetta var mjög erfiður leikur, við
áttum oft erfitt uppdráttar en spiluð-
um góða vörn og beittum hættuleg-
um skyndisóknum þar sem við nýtt-
um færin vel,“ sagði Hlynur Birgis-
son, besti leikmaður Þórs í annars
jöfnu liði, í spjalh við DV í leikslok.
-ÓG/BL
Knattspyma4. deild:
Mörkunum rigndi
áSeyðisfirði
Magnús Jónasson, DV, Egilsstöðum:
Huginsmenn frá Seyðisflrði unnu
nafna sína úr Fellabæ, 18-0, er hðin
mættust á Seyðisfirði í gærkvöld.
Markahrókurinn Sigurður HaU-
varðsson skoraði 8 mörk í leiknum,
Finnbogi Steinarsson geröi 5, Svein-
bjöm Jónasson 2 og þeir Jóhann Stef-
ánsson, Svavar Borgþórsson og Þórir
Viimundarson gerðu eitt mark hver.
Önnur úrsht leikja í D-riðli 4. dehd-
ar í gærkvöld urðu þessi: Sindri-
Höttur 1-7. Elvar Grétarsson gerði
mark Sindra en Jóhann Sigurðsson
5 og Ey steinn Hauksson 2 fyrir Hött.
Neisti-Leiknir 2-3. Ástþór Jónsson
og Sigurþjörn Hjaltason skomðu fyr-
ir Neista en Kári Jónsson, Ágúst Sig-
urðsson og Jóhann Jóhannsson fyrir
Leikni.
Valur-Einherji 1-2. Sindri Bjama-
son skoraði mark Vals en Hahgrímur
Guðmundsson og Guðjón Antoníus-
son fyrir Einherja.
KSH-Austri 2-6. Ríkharður Garð-
arsson og Björgvin Hansson gerðu
mörk KSH en Viðar Sigurjónsson 4,
Sigurður Magnússon og Benedikt
Jóhannsson fyrir Austra.
-MJ/SG/GH
Hlynur Birgisson var bestur Þórsara í gærkvöld
DV-mynd EJ
Iþróttir
Sport-
stúfar
BSigbjörn
GV, sigraði á golfmóti
sem haldið var
Golíklúbbnum Keih í
Hafiiarfirði um helgina. Sigbjöm
lék á 73 höggum.
Með forgjöf sigraöi Þorvaldur
Jóhannesson, GK, á 64 höggum.
Á mótinu náði Þorvaldur Krist-
leifsson frá Sandgerðí þeim
merka áfanga að fara holu í höggi
á 6. braut.
Golfmót hjá LEK
Landssamtök eldri kylfinga,
LEK, eru með golfmót hjá Golf-
klúbbi Reykjavíkur á fóstudag-
inn, Ræst er út frá klukkan 10 th
klukkan 16. Leikform: höggleikur
með og án forgjafar.
Hraðmót i körfubolta
¥
Valsmenn standa fyrir
hraömóti í körfúbolta
um næstu helgi þar
sem þátt taka átta úr-
valsdehdarhö. Leikið er í tveimur
riðlum, í A-riðli leika Tindastóll,
BreiöabJik, Valur og Snæfeh og í
B-riöli leika Keflavík, Skaha-
grimur, Grindavík og KR. Keppni
hefst kl. 20 á fóstudagskvöld og á
laugardag verður haldið áfram
kl. 13. Á sunnudag hefst keppni
kl. 12 og undanúrshtaleikir hefj-
ast um kl. 16.30. Gert er ráö aö
úrshtaleikurinn hefjist um kl. 19.
Körfuboitaskólí
í Keflavík
Hinn árlegi körfuboltaskóli ÍBK
hefst á fimmtudaginn og stendur
í sex daga. Skóftnn er ætlaður
krökkum á aldrinum 7-17 ára,
byrjendum jafnt sem lengra
komnum, Reyndir unglingaþjálf-
arar sjá um kennslu ásarat leik-
mönnum úrvalsdehdarhðs ÍBK.
Þátttökugjald er 1.800 kr. og inn-
ritun fer fram í íþróttahúsinu viö
Sunnubraut
Meistaramót öidunga
Um næstu helgi fer
fram á á Laugardals-
velh meistaramót öld-
unga í fijálsum íþrótt-
um. Keppt er í fimm ára aldurs-
flokkum og er yngsíi karlaflokk-
urinn 35-39 ára. Yngsti kvenna-
flokkurinn er30-34 ára. Þátttöku-
gjald er 500 kr. á grein. Tilkynn-
ingum ber að skha til skrífstofu
FRÍ í dag en einnig verður hægt
að skrá sig á mótsstað á milli kl.
12.30 og 13.00 mótsdagana.
Minningarmót
í handknattleik
Á fimmtudagskvöld
hefst í íþróttahúsinu
við Strandgötu í Hafn-
arfiröi handboltamót
sem haldið er th minningar um
Viöar Sigurðsson. Viöar lést í
umferðarslysi í febrúar 1991, þá
39 ára gamah. Viðar lék hand-
knattleik með félögunum í Hafh-
arfirði og Garðabæ og var einn
þeirra sem fyrir 10 ámm stóð að
stofnun íþróttafélags Hafnar-
fjarðar sem nú stendur að mót-
inu. Mótið hefst á fimmtudags-
kvöld með leik Hauka og Stiöm-
unnar kl. 20 en á fóstudag leika
FH og Haukar kl. 19.30 og ÍH og
Sljaman kl. 21. Mótinu lýkur á
laugardag en þá leika ÍH og FH
kl 11, FH og StjamankL 15 og ÍH
og Haukar kl, 16.30. Prentsmiðjan
Fjarðarprent gefur bikarinn sem
leikið er um en Viðar var um
árabh starfsmaður prentsmiðj-
unnar.
Firmakeppni Hauka
Firmakeppni Hauka í körfu-
knattleik verður haldin í Hauka-
húsinu á laugardag og sunnudag
um næstu helgi. Þátttökugjald er
krónur 10 þúsund en nánari upp-
Iýsingar eru í síma 651605 eftír
klukkan 19.
Enska knattspyman:
Cantona með
þrjú mörk
- þegar Leeds skellti Tottenham, 5-0
Úrsht leikja í ensku knattspym-
unni í gær urðu þannig:
Úrvalsdeild
Crystal P. - Sheff.Wed.......1-1
Everton - Aston Vhla...........1-0
Ipswich - Liverpool............2-2
Leeds - Tottenham............5-0
Sheff. Utd - Wimbledon.......2-2
1. deild
Charlton - Bristol R.........4-1
Notts County - Watford.......1-2
Enski deildabikarinn
seinni leikir í 1. umferð
Bamet - Peterborough...2-2 (2-6)
Bamsley - Grimsby............1-1 (3-5)
Birmingham - Exeter....1-4 (1-4)
Blackpool - Tranmere...4-0 (4-3)
Boumemouth - Walsall.....0-1 (1-2)
Brentford - Fulham...........2-0 (4-0)
Bristol C. - Cardiff.........5-1 (5-2)
Bumley - Carlisle............1-1 (2-5)
Bury - Wrexham...............4-3 (5-4)
Chester - Stockport..........1-2 (2-3)
Hartlepool - Halifax.........3-2 (5-3)
Lincoln - Doncaster..........1-1 (4-1)
Mansfield - Newcastle..0-0 (1-2)
Plymouth - WBA...........2-0 (2-1)
Port Vale - Bolton.............1-1 (2-3)
Rochdale - Crewe.............1-2 (2-6)
Rotherham - Huh...............1-0 (3-2)
Scunthorpe - Darhngt...2-0 (3-1)
Swansea - Oxford.............1-0 (1—3)
Torquay - Hereford....5-0...(7-2)
Wigan - Shrewsbury............0-1
• Wigan áfram á fleiri útimörkum
York - Chesterf...............0-0 (0-2)
-GH
Skoski deildabikarinn
Kilmamock - St. Johnstone.....1-3
Meistararnir í Leeds tóku leik-
menn Tottenham í kennslústund.
Franski landsliðsmaðurinn Eric
Cantona skoraði 3 mörk og þeir Lee
Chapman og Rod Wahace sitt markið
hvor og átti Cantona einnig þátt í
þeim mörkum. Staðan í leikhléi var
3-0.
Mark Walters og Jan Mölby (vití.)
gerðu mörk Liverpool en Jason Dozz-
eh og Chris Kiwomya fyrir Ipswich.
Skotinn Mo Johnstone tryggði
Everton sigurinn á Aston Villa með
marki tveimur mínútum fyrir leiks-
lok og Everton er á góðri siglingu í
deildinni.
Eric Young kom Crystal Palace yfir
gegn Sheffield Wednesday en Paul
Wihiamsjafnaðimetin. -GH
Þýska knattspyman:
Thom með þrennu
Þóraiiim Sigurðssan, DV, Þýskalandi
Fjórir leikir í 3. umferð þýska fót-
boltans vora spilaðir í gærkvöldi.
Stuttgart sótti Leverkusen heim.
Strax eftir 5 mín. vom úrshtin ráöin.
Andreas Thom skoraði eftir 45 sek.
og svo aftur eftir aðeins 5 mín.
Andreas Thom skoraði ettir 45 sek.
og svo attur eftir aöeins 5 mín. en
alls skoraði hann 3 mörk.
Bæði mörkin komu vegna slæmra
vamarmistaka hjá nýja þýska
landsliðsfyrirliðanum Gido Buc-
hwald en það var gert opinbert fyrir
leikinn að Buchwald mundi taka við
fyrirhðabandinu þangað th Lothar
Matthaus verður heill. Buchwald
hafði th þessa sphað „maður á
mann“ á móti Thom en eftir þessi tvö
mörk tók Eyjólfur við af honum.
Eyjólfi tókst aö halda Thom í skefjum
fram að 62. mín. en þá slapp hann
úr vörslunni og skoraði sitt þriðja
mark. Punktinn yfir i-ið setti Josef
Neh fyrir Leverkusen stuttu fyrir
leikslok. Andres Thom hefur nú þeg-
ar skorað fjögur mörk fyrir Lever-
kusen en á öhu síðasta keppnistíma-
bih skoraði hann 6 mörk.
Bomssia Dortmund sigraði Bayer
Uerdingen, 2-0, á útivelh. Gamla
kempan Frank Mih skoraði bæði
mörkin fyrir Dortmund en hann kom
inn í hðið fyrir Danann Pouvlsen sem
þurfti að spha með danska landslið-
inu.
Önnur úrsht:
FC Schalke - Bor. Mgladbach..1-2
Hamborg SV - l.FC Numberg....0-1
Góður árangur hjá
glímuköppunum okkar
Tuttugu íslenskir ghmumenn hafa
undanfarið verið á keppnisferð í
Bretlandi og tekið þátt í fjölmörgum
sterkum axlartakamótum. 20. ágúst
var keppt í mörgum þyngdarflokk-
um á hinum sögufrægu Grasmere
leikum í vatnabyggðum Norður-
Englands. Auk íslendinga kepptu
Skotar, Englendingar og Bretónar.
Bestum árangri íslendinga náði Jó-
hannes Sveinbjömsson sem keppti í
úrslitum í þyngsta flokki. Hann tap-
aði í úrshtum fyrir meistara síðasta
árs, Aif Harrington.
21. ágúst var fimmta landskeppni
unglinga í axlartökum milh íslands
og Cumberlands haldin í Carhsle.
Fimm vom í hvom hði og kepptu
allir við aha. Fyrirhðinn, Ingibergur
Sigurðsson, sigraði alla 5 andstæð-
inga sína og lagði grunninn að þriðja
sigri íslendinga, 14-11.
22. ágúst sigmðu Skotar í fiögurra
landa keppni Skota, íslendinga, Eng-
lendinga og Bretóna sem haldin var
nálægt Glasgow. Þar fór einnig fram
opna breska meistaramótið í axlar-
tökum. Þar stóðu íslensku keppend-
umir sig frábærlega. Karl Erhngsen
sigraði og varð breskur meistari í
léttvigt. Hann keppti einnig í mihi-
vigt og missti naumlega af sigri en
hafnaði í 2. sæti.
í þungavigt sigraði Jóhannes
Sveinbjömsson og varð breskur
meistari annað árið í röð. í öðra
sæti varð Ingibergur Sigurðsson og
í 3. sæti vom Amar Marteinsson og
Orri Bjömsson.
24. ágúst var keppt á móti í Great-
Sangdale. Þar sigraði Láms Kjart-
ansson í flokki 15 ára og Kolbeinn
Sveinbjömsson varð þriðji í 18 ára
flokki. \ -GH