Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1992, Síða 2
2
FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1992.
Fréttir_______________________________
Ný þjóðhagsáætlim fyrir 19931 burðarliðnum:
Útlitið ekki eins
dökkt og á horf ðist
- jafnvel gæti orðið um hagvöxt að ræða en viðskiptahallinn eykst
Samhliða íjárlagavinnu ríkis-
stjómarinnar er unnið að gerð
nýrrar þjóðhagsáætlunar fyrir
næsta ár í Þjóðhagsstofnun, Seðla-
bankanum og fjármálaráðuneyt-
inu. Aðilar frá þessum stofnunum
munu koma saman til vinnufundar
næstkomandi mánudag til að spá
sameiginlega í spiiin nú eftir að
ríkisstjómin hefur kynnt íjárlaga-
ramma næsta árs. Formlega verð-
irn ný þjóðhagsáætlun hins vegar
ekki kynnt opinberlega fyrr en í
byrjun næsta mánaðar.
Samkvæmt heimildum DV er út-
litið í efnahagsmálum þjóöarinnar
ekki eins dökkt og fyrri spár Þjóð-
hagsstofnunar og ýmissa hags-
munasamtaka hafa sagt fyrir um.
Allt bendir nú til að samdrátturinn
1 landsframleiðslu verði vel innan
við 1 prósent á næsta ári og jafnvel
geti orðið um hagvöxt að ræða. Á
hinn bóginn mun viðskiptahallinn
aukast milli ára vegna þeirrar
ákvörðunar ríkisstjórnarinnar að
setja 2 milljarða aukalega í fram-
kvæmdir.
í upphafi fjárlagavinnu ríkis-
stjórnarinnar vom taldar líkur á
umtaisverðum samdrætti í lands-
framleiðslu næsta árs. Eftir að
ákvörðun hafði verið tekin um
aflaheimildir ársins hljóðaði spá
Þjóðhagsstofnunar hins vegar upp
á 1 til 1,5 prósenta samdrátt.
Samkvæmt þjóðhagsáætlun fyrir
1992, sem Þjóðhagsstofnun kynnti
þegar fjárlagafrumvarp ríkis-
stjómarinnar var lagt fram síðastl-
iðið haust, var gert ráð fyrir að
landsframleiðsla þessa árs yrði
378,9 milljarðar og að viðskipta-
hallinn yrði 16,9 milljarðar. Nú
bendir hins vegar allt til þess að
landsframleiðslan verði 385 millj-
arðar og að viðskiptahallinn verði
um 14,6 milljarðar. -kaa
Gyffi Enstjánsson, DV, Akureyrí:
Fjöidi ökumanna á Akureyri
hefur þurft að seilast í budduna
sína nú í vikunni og borga 2 þús-
und króna sekt vegna þess að
þeir hafa ekki haft bilbeltin
spennt
í tilefni norrænnar umferðar-
viku hefur lögreglan á Akureyri
fariö tvisvar á sólarhring í um
klukkustund hvert sinn og kann-
að böbeltanotkun. Fyrstu þijá
daga vikunnar voru um 50 öku-
menn stöðvaðir vegna þess að
bílbeltin voru ónotuð, þar af 23 í
fyrradag. Ökumenn hafa því litið
upp úr því annað en óþægindi,
öryggisleysi og fjárútlát aö
spenna ekki beltin.
Biskup íslands um Víghóladeiluna:
Verst fyrir söfn-
uðinn og leiðin-
legt fyrir mig
- sér ekki hvemig friður á að komast á aftur
„Þetta er ótrúlega erfitt mál og að
munurinn skuli hafa verið svona lít-
ill gerir það ennþá verra. Þetta er
auðvitað verst fyrir söfnuðinn en
líka leiðinlegt fyrir mig sem biskup
kirkjtmnar. Ég hef haft af þessu
miklar áhyggjur og ítrekað talað viö
fólkið, bæði sóknarnefndina og eins
andstæöinga byggingarinnar. Þetta
setur ansi mikinn skugga á dvöl
mína héma sem hefur að öðru leyti
verið hin ánægjulegasta“, segir Ólaf-
ur Skúlason, biskup íslands, um þá
stöðu sem upp er komin í Digranes-
sókn. Ólafur er staddur i Madras á
Indlandi þar sem hann situr fund
Lúterska heimssambandsins.
Ólafur kemur heim mánudaginn
28. september. Hann sagðist ætla að
ræða við fólkið strax og heim kæmi,
að því tilskildu að ekkert hefði
breyst, en sagðist ekki sjá neitt sem
hann gæti gert núna.
„Það er búið aö blása þama tii
slíkra fylkinga að ég sé ekki hvemig
friður á að komast á aftur í söfnuðin-
um.“
Ólafur sagði alveg út í loftið að
færa sóknarmörk Digranessóknar. í
Hjallasókn ætti íjölgunin eftir að
verða. „Hjallasókn verður eftir
nokkur ár fjölmennasta sóknin í
Reykjavíkurprófastsdæmi. Jafnvel
þó þessi sneið komi ekki í viðbót.
Með þessu þarf að stokka upp alla
sóknarskipunina í Kópavogi. Það er
engin lausn.“
Aðspurður hvort Kópavogskirkja
dygði ekki fyrir söfnuðina sagði Ólaf-
ur að svo væri ekki. „Ef hún ætti að
vera kirkjan fyrir alla þessa Kópa-
vogsbúa þá yrði verið að ferma þar
langt fram á sumar." Það er mikil
þörf fyrir kirkju í austurhluta Kópa-
vogs. Þaö er full ástæða til þess að
Digranessóknfáisínakirkju." -Ari
Sóknamefhdin fimdaði í gærkvöldi:
Verst allra fregna
af fundinum
- gerði skyldu sína, segir dómprófastur
„Það mtm ekkert heyrast frá okkur
um þetta mál fyrr en búið er að
marka einhverja stefnu um fram-
haldið. Við verðum auðvitað að
bregðast við á einhvem hátt,“ segir
Þorbjörg Daníelsdóttir, formaður
sóknamefndar Digranessóknar.
Nefndin fundaði í fyrsta sinn eftir
aðalsafnaðarfund í gærkvöldi.
Dómprófastur, Guðmundur Þor-
steinsson, sat fundinn. Hann sagði
nefndina hafa verið að gera skyldu
sína, aö sjá sööiuðinum fyrir starfs-
aðstööu. Sóknamefiid sé sett til aö
sjá um að fyrir hendi sé viðunandi
kirkjuleg aðstaða. Deilumar hafi
hins vegar snúist um staðarvalið.
Þorbjörg sagöi ekkert liggja fyrir
um hvort nefndin hygðist kalla til
allsheijaratkvæðagreiöslu í sókn-
inni. Algjör forsenda væri að lög-
formlegar ástæður væra fyrir því,
ástæðrn- sem staðist gætu aUa gagn-
rýni. Þessar ástæður em ekki fundn-
ar ennþá.
Aðspurö hvort stjórnin myndi
segja af sér sagði Þorbjörg að tillag-
an, sem felld var á aðalsafnaðarfund-
inum, fæli ekki í sér að nefndin
þyrfti að segja af sér. Með tUlögunni
var aðeins farið fram á umboð safn-
aðarins til að halda byggingarfram-
kvæmdum áfram. Þorbjörg sagði að
ekkert lægi fyrir um hvort lóðinni
yrði skilað en Ijóst væri að semja
þyrfti viö verktakana, hvort sem það
yrði um vinnutöf eða samningsrof.
Bjami Bragi Jónsson, gjaldkeri
sóknamefndatinnar, varðist allra
frétta af fundinum og sagði að nefiid-
in mundi ekki láta fjölmiðla æsa
málin upp að nýju.
-Ari
Nýnemar Menntaskólans í Reykjavík fengu hefðbundna meðferð í gær. Þeir voru tolleraðir af stúdentsefnum skól-
ans. Sjöttu bekkingar voru hvítklæddir við athöfnina og busarnir fengu gott flug. DV-mynd ÞÖK
Tilboð hjá dómsmálaráðuneytinu vegna björgunarþyrlu:
Notuð Super Puma
býðst á 400 milljónir
- ákvörðun nauðsynleg bráðlega, segir Ari Edwald
Hjá dómsmálaráðherra liggja nú
fyrir ýmis tilboð frá framleiðendum
og eigendum björgunarþyrlna. Til-
boðin hljóða upp á þyrlur á verðbili
frá um 400-900 milljónum króna. Hér
er meðal annars um að ræða þrjár
Super Puma þyrlur - tvær notaðar
en eina ónotaöa. Lægsta tilboðið er
upp á um 400 miHjónir króna. Þar
er samkvæmt heimildum DV um að
ræða notaða Super Puma þyrlu. Hjá
ráöuneytinu liggur einnig tilboð
vegna Bell þyrlu. Nýtt tilboð frá
Bandaríkjunum vegna Sikorsky
þyrlu hefur ekki borist ráðuneytinu.
Eins og fram hefur komið í DV telja
þyrluflugmenn hjá Landhelgisgæsl-
unni svo og nefrtdir og starfshópar
sem hafa verið skipaðir vegna vals
og kaupa á björgunarþyrlu að Super
Puma þyrlur séu afgerandi álitleg-
asti kosturinn fyrir Gæsluna.
Litlar líkur em taldar á því að ný
björgunarþyrla verði keypt á næsta
ári með hiiðsjón af fjárlagagerðinni
sem stendur yfir þessa dagana. Að-
stoðarmaður dómsmálaráðherra
sagði við DV í vikunni að nauðsyn-
legt væri bráðlega að gefa seljendum
þyrlnanna svör varðandi afstöðu ís-
lenskra stjómvalda um hvort áhugi
væri fyrir tilboðunum eða ekki:
Ef menn vilja fresta því að kaupa
þyrlu er ljóst að það verður að taka
ákvörðun um það innan ekki mjög
langs tíma vegna þeirra aðila sem
hafa lagt fram tilboðin,“ sagði Ari
Edwald í samtali við DV í gær.
-ÓTT