Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1992, Blaðsíða 2
2
MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 1992.
Fréttir
Nýi niðurskurðurinn á flárlögunum:
Hafa náð að skera niður
rúmlega 900 milljónir
frekari niðurskurður fæðingarorlofs mætir andstöðu
Meirihluti flárlaganefndar hefur
náð samkomiilagi um enn frekari
niðurskurð íjárlaga upp á rúmlega
900 miUjónir króna. Rætt er um að
skera fæðingarorlof meira niður en
sú hugmynd mætir mjög harðri and-
stöðu margra stjómarþingmanna.
Þá er einnig ljóst að vegafé verður
ekki skorið niður um 400 miUjónir
króna eins og fjármálaráöherra talar
um. Landsbyggðarþingmenn, í báð-
um stjórnarflokkum, hafa lagst af
alefli gegn þeim niðurskurði. TaUð
var víst í gær að ekki yrði þar skorið
niður meira en 200 mUljónir.
Að sögn stjómarþingmanna, sem
DV ræddi við í gær, verður niður-
staöan sú að tína til hingað og þang-
að úr fjárlögunum í þessum niður-
skurði. Máltækiö margt smátt gerir
eitt stórt á þar við.
Meirihluti fjárlaganefndar hefur
fundað stíft síðustu daga tíl að finna
leiðir til frekari niðurskurðar á fjár-
lagafmmvarpinu. Endanleg niður-
skurðartala hggur ef til viU ekki fyr-
ir en verkið er komið mjög langt og
verður kynnt í þingflokkum stjóm-
arflokkanna í dag.
Ýmsar hugmyndir, sem meirihluti
fjárlaganefndar kynnti í stjórnar-
þingflokkunum síðastliöinn mánu-
dag og gerðu ráð fyrir niðurskurði á
nokkrum fjárfrekum liðum, mættu
mikUU andstöðu.
Hugmynd um að skera verulega
niöur af þeim 350 mUljónum sem eiga
að fara tíl Þjóðarbókhlöðu mættu
algerri andstöðu menntamálaráð-
herra. Menn tala líka um að skera
niður af viðhaldsfé opinberra bygg-
inga en tU þess verkefnis er gert ráð
fyrir 500 mUljónum. Þá verður skorið
af svokallaðri 6. grein fjárlaganna.
Þar em á milU 40 og 50 greinar sem
heimUa fjármálaráðherra aö kaupa
eða greiða eitt og annað.
Þá benda stjómarþingmenn á að
tekjuhUö fjárlagafrumvarpsins sé
ófrágengjn. Það sé leikur aUra fjár-
málaráðherra að áætla hana sem
lægsta við 2. umræðu en útgjöldin
sem mest tU þess aö eiga eitthvað
uppi í erminni við lokaafgreiðslu
fmmvarpsins.
Ekki er búist við aö endanlegar
niðurskurðartUlögur liggi fyrir í dag.
En það Uggur hins vegar fyrir að sú
aðferð að tína niðurskurðinn hingað
og þangað að úr fj árlagafrum varpinu
mætir minnstri andstöðu stjómar-
þingmanna og ráðherra.
-S.dór
Annir eru nú miklar á Alþingi og störf þingmanna teygjast fram á nótt. Þungir á brún hlýddu þessir þingmenn á
ræðu Halldórs Ásgrimssonar á Alþingi í gærkvöldi enda vakti ræðan athygli. Standandi frá vinstri eru Sigbjörn
Gunnarsson, Árni Johnsen, Kristinn H. Gunnarsson og Jón Kristjánsson. Sitjandi eru þeir Einar K. Guðfinnsson
og Stefán Guðmundsson. DV-mynd GVA
Þingfundi frestað um miðja nótt:
Ellefu enn á mætendaskrá
Þegar þingfundi var frestað klukk-
an 02.30 í nótt vom enn 11 þingmenn
á mælendaskrá við 2. umræðu um
EES-samninginn. TaUð er víst að
fleiri munu setja sig á mælenda-
skrána áður en umræðunni lýkur.
Það náðist óformlegt samkomulag
milU Össurar Skarphéðinssonar,
formanns þingflokks Alþýðuflokks-
ins, og Páls Péturssonar, formanns
þingflokks Framsóknarflokksins,
um að fresta fundi. Var það gert með
vilja Jóns Baldvins Haimibalssonar
utanríkisráðherra. Þetta samkomu-
lag er taUð geta stuðlað aö betra sam-
komulagi stjómar og stjómarand-
stöðu um þessar umræður.
Þegar fundi var frestað í nótt höfðu
bara 8 þingmenn talað á mánudag
og þriðjudag og þar af 4 að mæla fyr-
ir minnihlutaáUtum um máUð. Flest-
ir þingmenn töluðu í einn og hálfan
til tvo og hálfan tíma. Ræða Eggerts
Haukdals var langstyst, um það bU
10 mínútur.
Fyrir utan smáskorpur í þing-
skapaumræðum gengu umræðumar
nokkuö eðUlega fyrir sig í gær. Jón
Baldvin vUdi ekki kaUa hinar löngu
ræður stjómarandstæöinga málþóf.
Hann sagði í samtaU við DV aö hann
teldi eðUlegt að þær væm langar.
Eitthvað em menn famir að róast
eftir mjög stirða byrjun á þessum
umræðum og má búast við að trufl-
anir á umræðunum verði minni hér
eftir. Þó er sumum þingmönnum enn
heitt í hamsi og óvarlegt orö ráð-
herra getur hleypt öUu í þingskapa-
umræðu og málþóf.
Þingmenn töluðu um þaö að senni-
lega lyki 2. umræðu um EES-samn-
inginn ekki fyrr en á morgun því
hæpiö væri að þingfundur yrði hald-
inþriöjunóttinaíröð. -S.dór
Atvinnuleysi eykst enn:
Fimm þúsund
án atvinnu
Síðasta dag nóvember voru um
fimm þúsund manns án atvinnu hér
á landi en það jafngildir um fjögurra
prósenta atvinnuleysi. Ekki hafa
mælst fleiri atvinnuleysisdagar í ein-
um mánuði en í nóvember sl. frá því
mæhngar á atvinnuleysisdögum hóf-
ust á árinu 1975.
Sem fyrr er hlutfallslega mest at-
vinnuleysið á Suðumesjum eða 5,8
prósent. Hjá konum á Suðumesjum
er atvinnuleysið 10,3 prósent sem er
aukning frá fyrri mánuði. Atvinnu-
leysiö er næstmest á Norðurlandi
eystra eða 3,9 prósent en það er
minnst á Vestfjörðum, 1,5 prósent.
Frá síðasta mánuði hefur mest
aukningin orðið á Norðurlandi
eystra, í október vom 328 atvinnu-
lausir þar en í nóvember voru þeir
471.
Ef aukningin milli nóvember 1991
og nóvember 1992 er skoðuð sést að
atvinnuleysi á landinu hefur aukist
um nærri 113 prósent. Mest hefur
atvinnuleysið aukist á höfuðborgar-
svæðinu eða um 286 prósent. Á Vest-
urlandi hefur það aukist um 79 pró-
sent en það hefur minnkað um fjögur
prósent á Austurlandi. Það er líka
eina landsvæðið þar sem atvinnu-
leysi er minna nú en fyrir ári.
í síðasta mánuði voru skráðir at-
vinnuleysisdagar 93 þúsund. í nóv-
ember í fyrra voru þeir 44 þúsund
eða meira en helmingi færri en nú.
Ef hins vegar atvinnuleysisdagar í
nóvember næstu fimm ár þar á und-
an eru skoðaðir sést að meðaltalið í
nóvember þau fimm ár eru 25 þúsund
dagar sem er nærri því að vera fjórð-
ungurafþvísemþaðernú. -sme
Atvinnuleysið á Islandi
■ samanburður milli landshluta í % frá 1 .sept. '91 -1. sept. '92 ■
300'
250'
200
150'
100'
50'
o-
-50'
286,5
78,7 7 12,7
47,2 28,8 36.5 61,0 34,9
ir Ci ^ J® ;|||s —k. —
CO
E>
o
o
X
o
£
T>
C
—
B
«o
o
z
■O
c
(0
c/)
Á töflunni mé sjá breytingar á atvinnuleysi frá nóvember 1991 til nóvemb-
er 1992. Eins og sjá má hefur atvinnuleysi aukist mest á höfuðborgarsvæð-
inu en hins vegar hefur aðeins dregið úr því á Austurlandi.
Sjór gekk inn í hús nyrðra
- mjólkurlaust bæði á Siglufírði og Ólafsfirði og óvíst hvenær vegir opnast
Spjó kyngdi niður norðanlands í
gær og var alls staðar ófært sökum
spjóa og hvassviðris. Mjólkurlaust
er orðið bæði á Siglufiröi og Ólafs-
firði en óvíst er hvenær tekst að
opna vegi. Ófært er sjóleiöina þar
sem mikill sjógangur er á báðum
stöðum.
A Olafsfirði var háflæði og stór-
streymi um miðjan dag í gær. Sjór
var farinn að ganga upp að húsi á
Ólafsveginum og voru tveir
gluggar byrgðir. Þá sprengdi sjór-
inn sér leið í gegnum hurö á bæjar-
skemmunni og flæddi þar inn. Sjór-
inn gekk einnig á land viö höfnina
og á tímabili var óttast um báta sem
þar voru. Þá var talin hætta á að
flotbryggjur í smábátahöfninni
gæfu sig í verstu hryðjunum. Ekki
er talin hætta á snjóflóði í bænum
sjálfum en hesthúsabyggð vestan-
megin í firöinum er í töluverðri
hættu.
A Siglufirði gekk sjór einnig á
land og flæddi inn á nokkrar lægstu
götumar í bænum.Snjór hamlaöi
því aö sjórinn gengi út aftur og
mynduðust stöðuvötn á götunum.
Sjór flæddi inn í tvo kjallara en
óvist er hversu miklar skemmdir
urðu. Þegar búið var að ryðja
snjónum frá og opna fyrir niðurfóll
lagaðist ástandið.
Á Dalvík og Akureyri höfðu lög-
regla og hjálparsveitamenn í nógu
að snúast við að aöstoða fólk í og
úr vinnu. Flestar götur í úthverfum
vom ófærar og aðalgötur eingöngu
færarjeppum. -ból