Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1992, Qupperneq 13
MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 1992.
Ákveðin og heil -
steypt persóna
Nafn Thelmu Ingvarsdóttur þekktu allir ís-
lendingar fyrir þijátíu árum. Þá fór þessi unga
stúlka út í heim til þess aö láta drauma sína
rætast og þaö tókst. Nú, þrjátíu árum síðar fer
hún yfir lífshlaup sitt í bókinni Thelma i sam-
vinnu við Rósu Guðbjartsdóttur.
Sjálfsagt eru margir sem hugsa með sér hvað
rétt tæplega fimmtug konan geti haft merkilegt
að segja. Allar slíkar hugsanir eru á brott þegar
bókinni er lokað. Thelma hefur nefnilega lifað
margt og merkilegt og þankagangur hennar á
erindi til allra.
Fyrir fjórum árum játaði eiginmaður hennar
framhjáhald og veröldin hrundi í huga Thelmu.
Hún fór þá að endurskoða líf sitt og eins og hún
segir frá í formála fann hún að ræturnar voru
á Islandi þrátt fyrir að hún hefði búið í áratugi
erlendis.
Og saga Thelmu Ingvarsdóttur hefst í Skerja-
firðinum þar sem hún eyddi æsku sinni. Lýsing-
ar hennar á æskuheimilinu eru hlýjar og nota-
legar þótt peninga hafi oft skort. En peningar
eru ekki allt og hún sannfærist um það þegar
árin hða. Ásamt vinkonum brallar hún ýmislegt
og binst þeim böndum sem halda enn í dag.
Thelma fer ung að standa á eigin fótum íjár-
hagslega og setur markið hátt. „Ég var ekki
nema ellefu ára þegar ég setti framtíðardrau-
mana niður á blað í skólanum... Ég vildi kom-
ast áfram í útlöndum. Sautján ára fer hún til
Danmerkur til þess að gerast fyrirsæta.
Þar kynnist hún kærastanum sem fer með
henni fyrstu sporin í London og París en hann
getur ekki fylgt frama hennar eftir. Thelma
kemst á forsíður helstu tískublaða heims og
gatan er greið fram á við. Hún lítur samt á fyrir-
sætustörfin sem vinnu fyrst og fremst, ekki
upphefð. Og þess vegna nær hún langt og slepp-
ur ósködduð frá frægðinni. Þegar best gengur í
Thelma Ingvarsdóttir hefur getið sér gott orð í
Austurríki fyrir hönnun sína.
fyrirsætustörfunum kynnist hún ástinni í lífi
sínu, Fredí Herzl, frá Austurríki.
Alveg eins og hún helgaði sig vinnu helgar
hún sig manni sínum og börnum sem innan
fárra ára eru orðin fimm talsins. Allt er í góðu
lagi næstu tuttugu árin. Eiginmaðurinn, börnin,
húsið, garðurinn og íjölskyldan ganga fyrir öllu
öðru í lífi hennar. Einn góðan veðurdag játar
eiginmaðurinn framhjáhald og segist hafa átt
viðhald síðustu þrjú árin. Og tilveran umhverf-
is hana hrynur. Hún upplifir höfnun og niður-
lægingu og verður líkamlega veik.
En Thelma hefur að bera innri styrk og fetar
sig áfram. Hún lætur gamla drauma um list-
sköpun rætast og eins og áður náer hún tilsettum
Bókmenntir
Jóhanna Á.H. Jóhannsdóttir
markmiöum. „Nýtt skeið hófst fyrir íjórum
árum, þegar Fredí flutti af heimilinu. Ég lít svo
á að áfallið sem ég varð fyrir hafi haft jákvæð
áhrif á líf mitt þegar upp var staðið."
Þaö aö Thelma skyldi sjá jákvæðu hliðarnar
á áfalhnu er lýsandi fyrir þessa bók. Hún leggur
gott orö til allra og reynir ekki einu sinni að
draga eiginmanninn, sem sveik hana, niöur í
svaðið. Lesandinn hlýtur að virða hana fyrir
það að hún er samkvæm sjálfri sér í öllu sem
hún gerir.
Rósa Guðbjartsdóttir skráir frásögnina lipur-
lega og vel. Hún heldur vel utan um persónurn-
ar sem Thelma kynnir til sögunnar og lesandinn
fær að vita afdrif þeirra. Bókin um Thelmu er
skemmtileg og uppbyggileg saga um íslenska
stúlku sem gleymdi aldrei uppruna sínum.
Lokaorðin í bókinni eru lýsandi fyrir hana:
„Lifðu lífinu eins og þú munir fara á morgun
en verndaðu það eins og þú verðir hér um alla
eilífð."
Rósa Guðbjartsdóttir.
Thelma.
lóunn, 1992.
Menning
Sviðsljós
Jólavaka
Fríkirkjunnar
Kirkjugestum Fríkirkjunnar var
boðið upp á fjölbreytta dagskrá í tali
og tónum á árlegri jólavöku sem
haldin var um síöustu helgi. M.a.
söng Fríkirkjukórinn, börn úr
Flautuskólanum komu fram og þátt-
takendur í barnastarfinu fóru með
jólaguðspjallið. Ræðumaður jólavök-
unnar þetta árið var útvarps- og sjón-
varpsmaöurinn Eiríkur Jónsson.
Einsöngvarar voru Bergþór Pálsson,
Guðlaugur Viktorsson, Ragnar Dav-
íðsson, Sigurður Steingrímsson, Sig-
urjón Jóhannesson og Svava Ingólfs-
dóttir.
Börnin létu ekki sitt eftir liggja í jólavökunni.
DV-myndir ÞÖK
HLEÐSLURAFHLÖÐUR OG HLEÐSLUTÆKI
SEM SPARA ÞÉR ÞÚSUNDIR KRÓNA!
Bergþór Pálsson söng meó Fríkirkjukórunum.
Borgartún 24 • 105 Reykjavík
Sími: 91-626080
Gunnar Ásgeirsson hf.
í stað þess að kaupa nýjar rafhlöður aftur og aftur er hér kjörin
leið til sparnaðar. Kynntu þér kosti Sanyo Cadnica hleðslurafhlaða
og hleðslutækja. Fjölbreytt
úrval hleðslutækja og flestar
gerðir rafhlaða
til heimilis- og
sérhæfðra nota
oo VENJULEG RAFHLAÐA (LR6) SANYO HLEÐSLU- RAFHLAÐA (LR6)
VERÐ U.Þ.B. 45 KR. 250 KR.
ENDING 6 - 8 KLST. 6 - 8 KLST.
HLEÐSLUR ENGIN 800- 1100 SINNUM
VISTVÆN NEI JÁ
SÁPlVO