Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1992, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1992, Síða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 1992. Iþróttir ienf ica mætir Juventus Dregiö var í átta liöa úrslitum UEFA-keppninnar í knattspyrnu í Sviss í gær. Eftirtalin lið dróg- ust saman. Real Madrid-Faris St. Germain, AS Roma-Borussía Dortmund, Benfica-Juventus, Auxerre-Ajax. Fyrri leikirnir verða 3. mars og síðari viðureign- in 17. mars. Athyglisveröasti leikurinn er viöureign Benfica og Juventus. Ajax iiefur Evrópumeistaratitil að verja og voru forráðamenn liðsins ánægðir með dráttinn. -JKS Gullitmeð enövísthvort Þjálfari hollenska landsliðsins er að gera sér vonir um aö Ruud Gullit verði með Hollendingum gegn Tyrkjum í Istanbul í undan- keppni heimsmeistarakeppninn- ar í kvöld. Gullit var áður búinn að gefa út að hann léki ekki meira með landsliöinu. Hins vegar er alls óvist hvort Marco van Basten geti leikið með vegna meiðsla. Erik Meijer, sóknarmaður frá Maastricht, var í gær kallaöur í hópixm og verður til taks leiki Basten ekki með. Leikurinn í kvöld er afar mikfivægur fyrir Hollendinga sem verða að vinna til aö eiga möguleika á sæti í úr- slimkeppninni í Bandaríkjunum á næsta ári. -JKS/GH töpuðuheíma Tveir leikir fóru fram í undan- keppni Evrópumóts landsliða skipuðu leikmönnum 21 árs og yngri. í Ankara í Tyrklandi gerðu heimamenn og Hollendingar 1-1 jafntefii og í Þýskalandi töpuðu Þjóðverjar fyrir Spánverjum, 1-2. -GH 2.flokkurFH ástórmót íDanmörku 2. flokkur FH í knattspýmu hefur fengið boð um aö taka þátt i mjög sterku knattspyrnumóti í Danmörku næsta sumar. Það er Lyngby BK sem gengst fyrir mót- inu og er aöeins 12 liðum hoðin þátttaka. Þrjú felög koma frá Sví- þjóö, þrjú frá Noregi, færeyska U-20 ára landsliöiö, FH og íjögur dönsk liö. Verölaun fyrir 1. sæti á þessu móti eru 100 þúsund krónur. Þá heldur Lyngby einnig raót fyrir 3. fiokk og þar er enn laust sæti fyrir rajög gott íslenskt liö. Áhugasöm félög geta snúið sér til Urvals-Útsýnar, íþróttir, Alfabakka 16, sími 699300. -GH Ipswichí Ipswich er komiö J 8-liða úralit í ensku deildarbtkarkeppninni í knattspyrnu eftir sigur á Aston Villa á heimavefii sinum, 1-0, en Uðin höfðu áöur skihö jöfn á ViUa Park. Ipswich mætir Shefield Wednesday i 8-Uöa úrsUtunum. Þá fóru fram nokkrir leikir í 2. umferð ensku bikarkeppninnar og urðu úrsUt þessi: Exeter-Swansea.........2-5 Wigan-Bury....... .,..,1—1 Northampton-Bath.......3-0 Shrewsbury-Bumley......1-2 WBA-Wygome.............1-0 -GH Eyjólfur Sverrisson: Á sjúkrahús í stað sólarlandaferðar Eyjólfur Sverrisson, landsUösmað- ur í knattspymu, gekkst á mánudag undir aögerö á kjálka á sjúkrahúsi í Stuttgart. Fjarlægö var plata sem komið var fyrir í vor þegar Eyjólfur kjálkabrotnaði. Hann þarf aö dvelja á sjúkrahúsinu í 2-3 daga til aö jafna sig eftir aðgerðina. Þetta kostaði Eyjólf æfingaferö meö Stuttgart til sólareyjarinnar Martinique í Karabíska hafinu. Þangaö fór Uðið á mánudag og kemur aftur til Þýskalands á Þorláksmessu. Auk Eyjólfs fóru Guido Buchwald, Uwe Schneider og Ludwig Kögl ekki meö Stuttgart í ferðina. Buchwald er með þýska landsliðinu í BrasiUu, Schneider með 21 árs landsUöinu og Kögl er meiddur. -ÞS/VS Þýski handboltinn: Sigurður Bjarna i liði vikunnar Þóraiinn Sigurösscm, DV, Þýskalandi; Sigurður Bjamason, íslenski landsUðsmaðurinn hjá GrosswaU- stadt, er í Uði vikunnar í fyrsta skipti í vetur hjá handboltatímaritinu De- utsche Handball Woche sem kom út í gær. Sigurður lék mjög vel og skor- aði 7 mörk þegar Grosswallstadt gerði jafntefli við Niederwúrsbach, Sigurður Bjarnason leikmaður Grosswallstadt, er I liði vikunnar í þýska handboltanum. 24-24, um síöustu helgi, eins og fram kom í DV í gær. Sigurður fékk mjög góöa dóma fyr- ir leik sinn sem og Héöinn Gilsson sem skoraði 8 mörk fyrir Dússeldorf gegn Eitra. Báöir em sagðir bestu menn Uða sinna og á forsíðu blaðsins er stór mynd af Héðni. Konráð bestur hjá Dortmund Konráð Olavsson fær líka mikið hrós fyrir sinn leik en hann er sagður áberandi besti maður Dortmund gegn Emstetten í 2. deild. Konráð skoraði 9 mörk, tvö þeirra úr víta- köstum, en það dugði þó ekki til því Dortmund tapaði, 18-19. Landsliðsmenn í 3. deildinni Tveir fyrrum íslenskir landsUðs- menn leika síðan í 3. deUdinni. Bjarni Guðmundsson skoraði 4 mörk fyrir Wanne-Eickel sem vann Stenge, 21-15, og er Wanne-Eickel í öðru sæti í sínum riðU. Karl Þráinsson skoraði 3 mörk fyrir Östringen í sigri á Oftersheim, 18-14, og er Östringen í þriðja sæti í sínum riðh. íþróttamaður ársins 1992 Nafn íþróttamanns: íþróttagrein: 1._____________________________________________________________ 2. _________,__________________________________________________ 3. ___________________________________________________________ 4. ___________________________________________________________ 5. Nafn:--------------------------------------- Sími: ____________ Heimilisfang:________________________________________________ Sendið til: íþróttamaður ársins - DV - Þverholti 11-105 Reykjavik. Árbæjarpotturinn Árbæjarpotturinn í viku 50 var 15.948 raðir Vinningar: 9x10 réttir x 660 = 5940 Fylkisgetraunir 110 ÍSLANDSMÓT DEILDIN HAUKAR - SELFOSS i kvöld kl. 20.00 í íþróttahúsinu vió Strandgötu. Haukamenn, nú þurfum vió allan stuðning. Mætum öll og leggjum Selfoss að velli. Stjórnin : . . : .. ... Friðrik Ragnarsson, KR-ingur, sækir að körfu Borgnesinga í bikarleiknum í gærkvölc Bestiárai Skallagr - Borgnesingar í undanúrsht eftir örugg SkaUagrímur úr Borgamesi er kom- inn í undanúrsUt í bikarkeppni KKI í körfuknattleik eftir ömggan sigur á KR-ingum, 71-55 í íþróttahúsinu í Borg- amesi í gærkvöldi. Þetta er besti árang- ur Borgnesinga í bikarkeppninni frá upphafi. í fyrri hálfleik höfðu SkaUagrímsmenn undirtökin en þegar 4 mínútur vora til leikhiés jöfnuðu KR-ingar, 26-26, og komust inn í leikinn í fyrsta og síðasta sinn en í hálfleik höfðu Borgnesingar þriggja stiga forskot, 33-30. í síðari hálfleik breikkaði bihð, heima- menn léku ákaflega sterka vöm og virt- ist það slá KR-inga út af laginu. Um hálf- leikinn miðjan var munurinn orðimi 13 stig, 58-45, og úrsUtin þá nánast ráðin og á lokamínútunum játuðu vesturbæ- ingamir sig sigraða og heimamenn fogn- uðu gríðarlega í leikslok. Henning Henningsson átti stórleik í Uði Borgnesinga. Þórður Helgason var sterkur og Birgir Mikaelsson tók fyrrum félaga sinn, Guöna Guðnason, „í nefið“ í vörninni. Það var aUt annað KR-Uð sem lék í Borgarnesi í gær heldur en á dögunum þegar Uðin áttust við í Japisdeildinni. Liðið var mjög slakt í gær og ótrúlegt baráttu- og stemningleysi var ríkjandi þar á bæ. Bandaríkjamaðurinn Larry Houzer hóf leikinn ágætlega en hann fór fljótlega í sama far og félagar hans.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.