Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1992, Síða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1992, Síða 23
MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 1992. 23 Menning Gunnar Gunnarsson rithöfundur sendir frá sér tvær bamabækm’: Fyrir nokkru var gefin út geisla- platan Þegar þið eruö nálægt sem innheldur tólf lög sem öil eru sam- in af Ingva Þór Kormákssyni. Frek- ar litið hefui' farið fyrir þessari plötu enda hefur henni ekki verið dreift í buðir fyrr en á slðustu dög- um. Þegar þið eruð nálægt er gefin út til styrktar félagsskapnum Bamaheilium og var hún eingöngu seid í gegnum síma til að byrja meö. Ingvi Þór Kormáksson, sem á heiðurinn af þessari plötu, hefur áður sent frá sér plötur. Auk þess að semja öll lögin semur hann þijá texta en ljóð og textar eru annars eför marga. Má neína að þama eru lög við ljóð Hannesar Péturssonar, Steinunnar Sigurðardóttur og Geirlaugs Magnússonar. Aðspurður sagði Ingvi Þór að sal- an í áskrift heföi gengið mjög vel. Um tilurö plötunnar sagði harrn að í upphafi hefði verið ákveðiö aö gera plötu til styrktar Barnaheill- um en sá félagsskapur styður við bakið á vegalausum bömum. Ljóð- in vom valin með tilliti til þess að þau tengdust bömum. „Tónlistin sjálf er undir áhrifum frá suður- amerískri tónlist," sagði Ingvi Þór. „Aö vísu réöu ljóðin nokkuð ferð- inni en síöan var látið vaöa á suð- ur-ameríska stemningu. Ég vil taka það fram aö Þegar þið eruð nálægt er alls ekki barnaplata heldur er verið að fjalla um börn. Þarna era aö vísu lög sem börn hafa hrifist af en lögunum er ekki beint að smekk bama, miklu fremui' full- Ingvi Þór Kormáksson, höfundur laga á Þegar þid eruð nálægt. orðinna." Útsetningar á Þegar þið eruð ná- lægt era gerðar af Stefáni S. Stef- ánssyni en lögin era sungin af Agfi Ólafssyni, Guðrúnu Gunnarsdótt- ur og Berglindi Björk Jónasdóttur. -HK Kannski uppgjör við barnið í mér Gunnar Gunnarsson rithöfundur hefur hingað til ein- göngu skrifað fyrir fullorðna. Nú hefur hann snúið við blaðinu og sendir frá sér tvær barnabækur: Loksins gat hann ekki annað en hlegið og Sterki Böddi og Breki. Fyrmefnda bókin fjallar um Bangsa, tíu ára strák úr Reykjavík sem hefur ákveöið að brosa ekki framar eða hlæja vegna þess að honum finnst tilveran hundfúl. Pabbi hans og mamma eru skilin, mamma tekin saman við hálfvita og hann sjálfur er á leiö í sveit. Þar kynnist hans hins vegar skemmtilegu og skrítnu fólki og furðu- legum hestum sem gera ekkert nema að skemmta sér frá morgni til kvölds. Aðalpersónan í Sterka Bödda og Breka er Böðvar Böðvarsson, tíu ára sveitastrákur sem lendir í ýmsu ásamt hesti sínum Breka þegar breytingar steðja að íslenskum landbúnaði og foreldrar hans óttast að þurfa að bregða búi. Afi Böövars kemur við sögu sem og lögregluþjónar sem leggja leið sína í sveitina. Gunnar Gunnarsson er í tvöfóldu hlutverki því hann er einnig útgefandi bóka sinna ásamt þriðju barnabók- inni, Ævintýri á ísnum, sem er eftir Guðlaugu Bjama- dóttur. Fyrir börn á barnaskólaaldri Aðspurður hvers vegna hann fer allt í einu að skrifa fyrir börn svarar Gunnar: „Ég hélt ég myndi aldrei skrifa fyrir börn en svo kom það í ljós að þetta var eitthvaö sem hafði beðið eftir að fá útrás og mér fannst mjög gaman að semja þessar tvær sögur. Mér hefur alltaf fundist ég vera barnalegur og kannski er þetta uppgjör við barnið í mér. Annars vann ég þetta ekki einn, það voru tveir teiknarar sem störfuðu með mér, Snorri Sveinn Friðriks- son og Ólafur Pétursson, og eiga þeir sinn þátt í útkom- unni.“ - Þarf að hugsa öðruvísi þegar skrifað er fyrir böm? „Nei, ekki finnst mér það. Ég skrifa bækumar fyrir börn á bamaskólaaldri en reyni samt að tileinka mér tæpitungulaust mál. Og ég get alveg hugsað mér að full- orðnir lesi bókina fyrir lítil böm og þá þarf sjálfsagt að Gunnar Gunnarsson rithöfundur skrifar barnabækur i fyrsta sinn. útskýra einstök orð. En það er nú svo að þegar maður byrjar að skrifa, hvað sem það er, þá tekur efnið fljótt völdin." - Telurðu að frumsamdar bamabækur fái sömu almenna umfiöllun og önnur skáldrit? „í raun veit ég það ekki en ég hef talað við aðra sem hafa hugsað mikið um þessi mál og þeim finnst barnabók- um of litill gaumur gefinn og aö ekki sé talað við höf- unda bamabóka sem alvarlega þenkjandi fólk. Barnabækur verða af einhveijum ástæðum að vera mun ódýrari en aðrar bækur og það setur útgáfu á sfikum bókum strax ákveðnar skorður." -HK BÆKUR / i i Þorgeir Ibsen Hreint og beint HREINT OG 0EltyT LjOÐ OG LJOÐLIKI oÞasuf&isi Obbesi Hér ýtir nýr ljóðahöfundur úr vör með Ijóðabók, sem hann kallar Hreint og beint. Þar eru farnar troðnar slóðir í hefðbundnum stíl, en nýstárlegum þó um sumt. Höfundur á það til að víkja af alfaraleið í ljóðum sínum, einkum í þeim ljóðum sem hann nefnir Ijóðlíki en ekki ljóð. En ljóðlíki hans eru þó allrar athygli verð og standa vel fyrir sínu. Þar ber kvæðið Minning greinilega hæst - ljóðlíki eins og höfundur nefnir það - um Stein Steinarr, um atvik úr lífi hans sem er á fárra vitorði, atvik sem aldrei hefur verið lýst áður eða frásögn um það á þrykk komist. PÉTUR ZOPHONÍASSON VIKINGS LÆKJARÍTT VI NIÐJATAL GUÐRÍOAH EYJÓLFSOOTTUR OG BJARNA HALLDÓRSSONAR HREPPSTJÓRA A VIKINGSUFK. LITLAR SÖCUR &V&ISUA. PáU Litlar sögur eru safn sextán sagna um fólk og fyrirbæri og óvenjulegar hliðar hversdagsleikans. Meðal annarra koma við sögu Þórunn Sveinsdóttir fyrir- myndarhúsmóðir, Herjólfur skósmiður, Jóhanna af Örk, unglingurinn Gunnar og ég. Farið er á tónleika á gulum Renault, í leikhús, fylgst með kosningadegi, hlýtt á söng fiskanna og horft á húsið málað svart. Höfundurinn Sverrir Páll hefur áður gefið út ljóðabókina Þú og heima og þýtt bækurnar Kæri herra Guð, þetía er hún Anna og Önnubók. Litlarsögur eru fyrstu frumsamdar sögur hans sem dregnar eru upp úr skúffu og koma fyrir augu manna. VI í þessu sjötta bindi Víkingslækjarœttar er 2. hluti h-liðar ættarinnar, niðjar Stefáns Bjamasonar. Þar sem ákveðið var að rekja niðja hans fram á þetta ár, en miða ekki eins og í fjórum fyrstu bindunum við þau mörk, er æviskeið Péturs Zophoníassonar setti verkinu, verður að skipta niðjum Stefáns Bjarnasonar í nokkur bindi, slíkur sem vöxtur ættar- innar hefur verið. Rúmur helmingur þessa bindis eru myndir. Allsherjarnafnaskrá bíður lokabindis útgáfunnar. VIKINGSLÆKJARÆTT PétuA, SKUGGSJÁ SKUGGSJÁ BÓKABÚD OLIVERS STEINS SF.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.