Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1992, Síða 37
LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1992.
45
Sumir gleyma að lifa vegna þess að þeir hafa fest í eigin fortið. Löngu liðnir atburðir fá nýtt líf og mikilvægi.
Þeir verða að endurfæddum risaeðlum í sálarlifinu sem lifa á óánægju, öfund og eftirsjá og dafna og vaxa
eins og púki á fjósbita. Sumir lifa langa ævi á þessum nöglum fortíðarinnar og geta aldrei litið glaðan dag
vegna sársauka og vanlíðunar sem rænir þá lit daganna og Ijósi sólarinnar.
Einu sinni gengu tveir vel klædd-
ir menn í einu úthverfa borgarinn-
ar. Þeir voru ábúðarmiklir og
ræddu saman á spekingslegan hátt.
Skyndilega gengu þeir fram á hund
sem lá á stétt við glæsilegt hús.
Hann bæði ýlfraði og vældi, gelti og
spangólaði og lét heiminn vita að sér
hði ákaflega illa. Mennirnir stað-
næmdust um stund og horfðu á
hann.
„Hvað ætli sé að þessum hundi?“
sagði annar fullur samúðar.
„Hann Uggur á nagla,“ sagði hinn
kæruleysislegri röddu.
Þeir horfðu á dýrið um skeið en
gengu síðan áfram og ræddu um
stöðu himintungla, bókamarkaðinn
og efnahagsöngþveitið. Hundurinn
lá áfram á naglanum sínum og þjáð-
ist á áhrifamikinn hátt.
Margir eru þeir sem Uggja á nagla
allt sitt líf. Þeir horfa um öxl og
harma ótal ákvarðanir sem eitt sinn
voru teknar. Margir sjá eftir þeim
lífsfórunaut sem aldrei varð eða
bölsótast yfir þenn leiðum sem ekki
vorufarnar.
„Bara ef ég hefði vaUð mér aðra
vinnu, annan maka, önnur og betri
böm, aöra menntun, annað hús-
næði, annan bíl eða aðra lífsstefnu
í upphafi!... Bara ef ég hefði aldrei
fæðst/veikst/flutt/trúlofast eða eign-
ast barn!... Bara ef aUt hefði farið
á annan veg... - þá væri allt betra
núna.“
Enerþettarétt?
Svona hugsanir geta orðið að nögl-
um sem standa í gegnum merg og
bein sálarinnar. Menn Uggja á þess-
um ófógnuði og láta naglana eyði-
leggja fyrir sér aUa lifsnautn og
gleði. Þeir gleyma að lifa vegna þess
að þeir festust í eigin fortíð. Löngu
Uðnir atburöir fá nýtt líf og mikU-
vægi. Þeir verða að endurfæddum
risaeðlum í sálarlífinu. Þær Ufa á
óánægju, öfund og eftirsjá og dafna
og vaxa eins og púki á fjósbita eftir
Á læknavaktinni
því sem fortíðarhyggjan verður
þrálátari. Sumir Ufa langa ævi á
þessum nöglum fortíðarinnar og
geta aldrei Utið glaöan dag vegna
sársauka og vanhðunar sem rænir
þá Ut daganna og ljósi sólarinnar.
Harmur og eftirsjá verða óaðskilj-
anlegir hlutar daglegs lífs.
Sumir eru svo langt leiddir að þeir
geta ekki lengur Ufað án harms.
Kristján Jónsson FjaUaskáld lýsn-
þessu vel í einu kvæða sinna þegar
hann segir:
Éger fús og ég er trauður,
ég ber glaður votan hvarm,
ég er Ufs og ég er dauður,
ég er sæU og bý við harm.
Síðasta hendingin er stórbrotnust.
Harmurinn verður uppspretta sælu.
NagUnn í sálarholdinu verður for
senda lífsins og gefur því gildi. Þetta
verður skiljanlegt þegar menn
íhuga þá umbun sem fólki hlotnast
af stöðugum harmi og vanUðan.
Þeir sem Uggja á nöglum harmsins
fá athygli, umönnun, samúð og vel-
vilja. Auk þess losna þeir viö þá
ábyrgð sem fylgir daglegu lífl. Þeir
takast aldrei á við vandamál dagsins
vegna þess að þeir eru önnum kafn-
ir við að fóðra risaeðlur gærdagsins.
Eftir því sem risaeðlumar stækka
gefst æ minna ráðrúm til að hugsa
öðruvisi, axla ábyrgð, sinna dagleg-
um störfum eða Ufa lífinu. Menn
Uggja á naglanum sínum, aka sér á
honum og njóta þeirrar fróunar sem
vel fastur og hvass fortíðamagU
hefurásálartötrið.
Það eina sem hægt er að taka til
bragðs er að standa upp af naglan-
um, ýta honum tíl hUðar og hætta
að gefa dinosaurus gærdagsins að
éta. Fortíðinni verður ekki breytt
og enginn getur nokkm sinni tekið
aftur þær ákvarðanir sem eitt sinn
hafa verið teknar. Þær urðu til
vegna forsendna sem þá voru í gUdi
en hafa breyst með tímanum. Það
er tilgangslaust að ferðast fram og
aftur um eigin ævi með forsendur
Uðandi stundar í farangrinum og
endurmeta aUar gamlar ákvarðanir
í ljósi þeirra. Það er hoUara að hætta
að veltast á naglanum en koma sér
inn í núið og fara að lifa í því og
njóta þess sem hver einasti dagur
ber í skauti sér. Lífið er aUt of dýr-
mætt til að eyða því Uggjandi á
nagla. Betra er að standa upp og
sætta sig við þá hluti sem enginn fær
breytt og takast ótrauður á við
vandamál Uðandi stundar.
1 JÓLASVEINAR ÁJÓLABÖLL SÍMI 621643 f
Verkakvennafélagið Framsókn
Félagsfundur mánudaginn 21. des. kl. 15.30
í Sóknarsalnum.
Fundarefni: Uppsögn kjarasamninga.
Önnur mál.
Hjúkrunarfræðingar
Hjúkrunarfræðingur óskast að heilsugæsluselinu á
Laugarvatni frá 1. janúar 1993.
Staðaruppbót - íbúð.
Upplýsingar gefa hjúkrunarforstjóri í síma 98-68880,
rekstrarstjóri í síma 98-65523 og oddviti Laugardals-
hrepps í síma 98-61199.
Bifreiðatryggingar
Tilboð óskast í að ábyrgðartryggja bifreiðar og bifhjól í eigu rikis-
sjóðs íslands. Útboðsgögn eru seld á kr. 2.000 á skrifstofu vorri
að Borgartúni 7, Reykjavík. Tilboð verða opnuð á sama stað kl.
11.00 f.h. 12. janúar 1993 í viðurvist viðstaddra bjóðenda.
•'
Hornsófi - Svef nsóf i
Hornsófi - eitt handtak - svefnsófi.
Hornsett 2 + horn + 3 í fjórum litum.
Verð: staðgr. kr. 89.000,-
Gott úrval af leðursófasettum og hornsófum í
mörgum litum. Frábært verð.
VALHÚSGÖGN - ÁRMÚLA 8
SÍMI 812275 - 685375
Visa raðgr. - Euro raðgr.
afsláttur á takmörkuðum fjölda véla
í skamman tíma
EF ÞIG VANTAR
HÁGÆÐA-
UPPÞVOTTAVÉL
Á ENN BETRA
VERÐI ...
. . . ER
TÆKIFÆRIÐ NÚNA!
ASKO
ASKO760 6-manna. 8kerfi-45dB Kr. 42.370 stgr.
ASKO770 6-manna. 10kerfi-41dB Kr. 47.990 stgr.
ASKO1303 1 4-manna. 5kerfi-45dB Kr. 60.780 stgr.
ASKO1403 14-manna. 8kerfi-41dB Kr. 66.920 stgr.
ASKO1503 14-manna. 10kerfi-40dB Kr. 72.760 stgr.
/FOnix
HÁTÚNI 6A SÍMI (91)24420