Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1992, Qupperneq 55
LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1992.
63
Tommi og Jenni á íslandi
Tvær aí ástsælustu persónum i sögu teiknimyndanna, Tommi og Jenni, eru
komnir til íslands. Þeir voru i Kringlunni í gær og nutu þar mikilla vin-
sælda yngstu kynslóðarinnar sem hér þyrpist að Jenna. í dag, laugardag,
liggur leiðin til Akureyrar en á sunnudag verða þeir félagar aftur komnir
til Reykjavíkur. DV-mynd BG
Markús Öm Antonsson:
Ómerkilegar
dylgjur hjá Brim*
borgarmönnum
- villaðþeirnafngremiþannborgarráösmann
„Ég veit ekki á hverju þetta bygg-
ist. Það hefur komið fram í bréíi frá
þeim að einn borgarráðsmaður sé
vanhæfur. Þeir tilgreina þetta ekkert
frekar og mér þykja þetta vera
ómerkilegar dylgjur í garð borgar-
ráðsmanna að þeir skuli ekki
rökstyðja þetta og nanfgreina þann
sem við er átt,“ sagði Markús Örn
Antonsson borgarstjóri en í bréfi sem
Brimborg hefur sent öllum borgar-
fulltrúum er sagt að einn borgarráðs-
maður sé vanhæfur í lóðamálinu,
það er þegar ákveðið var að svipta
Brimborg lóðinni að Suöurlands-
braut 56. Heimildir DV herma að
þeir eigi við Vilhjálm Þ. Vilhjálms-
son.
„Ég kannast ekki við að þessir
menn hafi verið hér í Ráðhúsinu og
ég hef ekki hitt neinn frá MacDon-
ald’s. Þegar ég grennslaðist frekar
fyrir um þetta kom í fjós aö það hef-
ur enginn í nafni Reykjavíkurborgar
tekið á móti þessum mönnum. Það
hefur hins vegar verið upplýst í borg-
arráði og það vissi Ólína Þorvarðar-
dóttir mjög vel að umboðsmenn Mac-
Donald’s hafa komið í viðtal til borg-
arfulltrúans Vilhjálms Þ. Vilhjálms-
sonar en hann er með viðtöl tvisvar
í viku hér í Ráðhúsinu. Þeir sem
koma í þannig viðtöl eru ekki í opin-
berum heimsóknum eða í sérstökum
heimsóknum til Reykjavíkurborg-
ar,“ sagði Markús Örn Antonsson
borgarstjóri um þá fullyrðingu Ólínu
Þorvarðardóttur að fulltrúum Mac-
Donald’s hafi verið boðið til veislu í
Ráðhúsi Reykjavíkur.
Borgarstjóri leggur áherslu á að
um tvö mál sé að ræða. Annað máhð
er afturkall á lóðinni og hitt er út-
hlutunin til MacDonald’s. „Það skýt-
ur skökku við að fulltrúi Nýs vett-
vangs, Ólína Þorvarðardóttir, skuh
vera að efast um réttmæti sviptingar-
innar og vilja um leið að lóðin verði
auglýst og seld hæstbjóðanda."
-sme
Um 800 milQónir
f ara í jólabækurnar
- útlit fyrir 5-10% samdrátt í bókasölu
Samkvæmt úttekt DV, sem byggist
á upplýsingum um markaðshlutdeild
og veltu stærstu bókabúöanna í des-
embermánuði, verður bókasalan fyr-
ir jóhn 700 til 800 milljónir króna.
Að mati forleggjara og bóksala sem
DV talaði við má þó búast viö 5 til
10% samdrætti í bókasölu frá því í
fyrra. Það megi fyrst og fremst reKja
til almenns efnahagssamdráttar.
Margir voru á því að bókin komi
yfirleitt vel út þegar efnahagssam-
dráttur ríkir miðað við aðra smá-
söluvöru og einn benti á að bókin sé
til dæmis að auka við sig í jólaversl-
uninni í Noregi núna. Hjá Félagi ís-
lenskra bókaútgefenda var engar
upplýsingar að fá um sölutölur.
Nú er aðalsölutími bókanna hafinn
en oft er tahð að rúmlega 30% af
bóksölunni fari fram síðustu sex
verslunardaganafyrirjóhn. -Ari
Halldór Ásgrímsson um skattafrumvarpið:
í ófríði við öll
helstu hags-
munasamtök
í landinu
- skynsamleg leið, segir Vilhjálmur Egilsson
Skattafnunvarp ríkisstjórnarinn-
ar var tekið til umræðu á Alþingi í
gær. Af málflutningi manna að
dæma verður enginn friður um
frumvarpið á Alþingi.
„Það versta við þetta skattafrum-
varp er að þaö er gevt í ófriði við öll
helstu hagsmunasamtök í landinu;
samtök launþega og samtök vinnu-
veitenda. Á sama tíma standa fyrir
dyrum erfiðir kjarasamningar þann-
ig að mér er það ljóst að þetta mál á
eftir að breytast. Skattlagning lág-
tekjufólksins er of mikil. Það eru
lagðar of miklar byrðar á atvinnu-
greinar sem eru að vaxa sem mun
meðal annars hafa þau áhrif að fram-
ganga ferðaþjónustunnar mun
stöðvast. Því hefur þetta frumvarp
mjög slæm áhrif á atvinnulífið sem
aftur mun draga úr þjóðartekjum.
Það mun því ekki hafa jafnmikil
áhrif til bóta á hag ríkissjóðs og gert
er ráð fyrir en minnka alla verð-
mætasköpun í þjóðfélaginu," sagði
Hahdór Ásgrímsson í samtah við DV
en hann er talsmaður stjórnarand-
stöðunnar í skattamáhnu.
„Ef á að fella niður aðstöðugjaldið,
sem kostar rúma 4 milljarða, þá
verður að hækka tekjuskatt einstakl-
inga á móti. Ríkisstjórnin valdi þá
leið að taka líka hluta þess út í hækk-
un virðisaukaskatts. í hækkun tekju-
skatts er farin blönduð leið. Það felst
í hátekjuskatti, 1,5 prósent hækkun
tekjuskatts og smálækkun á per-
sónuafslætti. Ég held að þetta sé
skynsamleg leið, skynsamlegri en að
skera líka bamabæturnar eins og th
stóð áður en persónuafslátturinn var
lækkaður. Ef farið hefði verið út í
það að hækka bara skattaprósentuna
th að mæta aðstöðugjöldunum þá
hefði hún farið í um 45 prósent og
verið orðin óskynsamlega há. Þá
hefði enginn munur verið orðinn á
dagvinnu og aukavinnukaupi fólks.
Ef Alþýðusambandið ætlar í ein-
hverjar aðgerðir þá verði það ekki
vegna þessa, heldur efnahagsaðgerð-
anna í hehd sinni,“ sagði Vilhjálmur
Eghsson, talsmaður stjórnarflokk-
anna í skattamálinu. -S.dór
Fréttir
Falsaðar ávísanir
* ellefu mánuðir
Töluverð aukning hefur orðið á
ávísanamisferh á þessu ári miðað við
árið í fyrra. í fyrra bárust Rannsókn
arlögreglu ríkisins ahs 2043 falsaðir
tékkar en fyrstu 11 mánuði þessa árs
voru þeir orðnir 2808 talsins.
Samkvæmt upplýsingum frá RLR
er það mikið sama fólkið sem falsar
ávísanir, fólk sem kemur aftur og
aftur við sögu lögreglu. Það notar
ávísanafalsið gjarna ásamt innbrot-
um th að fjármagna fíkniefnakaup
og óreglu. Margir nota þá aðferð að
fylla tékka út heima og koma svo og
framvísa þeim með falsnöfnum í
verslunum. -ból
Klipptur úr bfl
Harður árekstur þriggja bha varð
á Nýbýlavegi við gatnamót Auð-
brekku seint í fyrrakvöld. Kalla
þurfti á tækjabíl slökkvihðsins th að
skera ökumann eins bílsins út úr
brakinu. -ból
Roland
EP-3 29.200,-stgr. HP-1700126.600,-sfgr. FP-8 142.550,-stgr.
EP-5 38.950,-stgr. HP-2700160.100,- stgr. KR-650 161.920,-stgr.
EP-7 58.300,-stgr. HP-3700191.700,-stgr. KR-3500198.400,-stgr.
||
Roland digital (stafræn) píanó hafa fyrir löngu sannað gildi
sitt hér á landi sem og erlendis. Þau eru nú þegar í notkun
í tónlistarskólum, heimahúsum, veitingastöðum, hljómsveit-
um og víðar. Þau eru öll með ásláttarnæmi, MIDI-tölvuteng-
ingum og síðast en ekki síst innstungu fyrir heyrnartól svo
hægt er að iðka tónlist hvenær sólarhringsins sem er án
þess að ónáða aðra.
Roland píanó þarf aldrei að stilla.
Roland píanó, raunhæfur valkostur.
f