Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1992, Síða 59
LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1992.
67
Afmæli
100 ára:
Jón Þorsteinsson
Jón Þorsteinsson, fyrrv. bílstjóri og
síðar starfsmaður hjá Vegagerö rík-
isins, Langholtsvegi 18, Reykjavík,
verður hundrað ára á morgun.
Starfsferill
Jón fæddist að Stóragerði í Hvol-
hreppi en var fjögurra ára er hann
missti fóður sinn og ólst því upp á
ýmsum bæjum í Árnessýslu. Jón
kynntist ungur öllum almennum
sveitastörfum þess tíma, var vinnu-
maður á bæjum í Ámessýslu, var
til sjós þrjár vertíðir frá Herdísarvík
en flutti til Reykjavíkur 1918.
Jón tók bílpróf 1919 og stundaði
síðan vörubflaakstur í rúma tvo
áratugi. Hann keyrði fyrstu árin
m.a. fyrir Skúla Thorarensen og
vann mikið fyrir Jón Þorláksson
forsætisráðherra. Jón var einn af
stofnendum Vörubflastöðvarinnar
Þróttar 1931 og stundaði akstur á
eigin bfl til 1940. Þá hóf hann störf
hjá Vegavinnu ríkisins þar sem
hann starfaði tfl ársloka 1972, fyrst
við akstur en síðar við ýmis almenn
störf.
Fjölskylda
Kona Jóns var Guðrún Jóhanns-
dóttir, f. 18.12.1900, d. 23.8.1979,
húsmóðir. Hún var dóttir Jóhanns
Teits Eiríkssonar trésmiðs og konu
hans, Guðrúnar Sigurðardóttur
húsmóður.
Böm Jóns og Guðrúnar em Unn-
ur Jónsdóttir, f. 21.10.1922, húsmóð-
ir í Reykjavík, var gift Þórami Hin-
rikssyni, sjómanni og síðar bíl-
stjóra, sem nú er látinn og em böm
þeirra Guðrún, Jón Reynir, Stefán,
Stefanía og Sigríður Ragna, en
seinni maður Unnar er Skúh Helga-
son prentari; Jóhann Gunnar Jóns-
son, f. 7.12.1939, húsasmiöur á Sel-
tjamarnesi, kvæntur Eddu Her-
bertsdóttur húsmóður og eru börn
þeirra Ragna Soffla, Jón Birgir og
Gústav.
Systur Jóns vom Jónína Þor-
steinsdóttir, f. 5.10.1894, d. 2.5.1938,
húsmóðir í Reykjavík, var gift
Magnúsi Ólafssyni leigubflstjóra og
eru böm þeirra þrjú; og Karitas, f.
í febrúar 1897, d. 1904.
Foreldrar Jóns voru Þorsteinn
Jónsson, f. 14.8.1866, d. 12.2.1897,
ogísleifMagnúsdóttir, f. 9.9.1870,
d. 20.1.1953.
Ætt
Þorsteinn var sonur Jóns, vinnu-
manns á Móeiðarhvoli, Gottskálks-
sonar, vinnumanns í Miðey, Jóns-
sonar. Móðir Jóns var Margrét Er-
lendsdóttir. Móðir Þorsteins var
Karitas Þorsteinsdóttir.
ísleif var systir Böðvars, hrepp-
stjóra á Laugarvatni, og Guðrúnar,
móður Ragnheiðar Jónsdóttur rit-
höfundar, móður Sigrúnar Guðjóns-
dóttur myndhstarmanns. ísleifvar
dóttir Magnúsar, b. í Holtsmúla á
Landi, Magnússonar, b. á Stokka-
læk, bróður Guðrúnar, langömmu
Hrafnkels Helgasonar yfirlæknis.
Magnús var sonur Guðmundar, b. í
Króktúni, Magnússonar, bróður
Þorsteins, langafa Þórhildar Þor-
leifsdóttur leikstjóra, Eggerts
Haukdal alþingismanns og Bene-
dikts Bogasonar, alþingismanns og
verkfræðings. Móðir Guðmundar
var Guðrún, langamma Magnúsar
Kjaran, afa Jóhanns Siguijónssonar
sjávarlíffræðings. Guðrún var dóttir
Páls, b. á Keldum, Guðmundssonar
og konu hans, Þuríðar Jónsdóttur,
systur Páls skálda, langafa Ásgeirs
Ásgeirssonar forseta.
Móðir ísleifar var Arnheiður
Böðvarsdóttir, b. á Reyðarvatni,
Tómassonar og konu hans, Guðrún-
ar Hahdórsdóttur, b. í Þorlákshöfn,
Jónssonar. Móðir Guðrúnar var
Jón Þorsteinsson.
Guðbjörg Siguröardóttir, systir
Jóns, afa Jóns forseta. Systir Guð-
bjargar var Salvör, amma Tómasar
Sæmundssonar Fjölnismanns.
Jón verður staddur á Þjónustu
aldraðra, Dalbraut 27 (matsal), milh
kl. 15.00 og 18.00 á afmæhsdaginn.
Líney Bogadóttir
Líney Bogadóttir húsmóðir, Hlíð-
arvegi 11, Siglufirði, verður sjötug á
morgun.
Starfsferill
Líney fæddist að Stóru-Þverá í
Fljótum en ólst upp að Minni-Þverá.
Auk heimihsstarfanna hefur hún
stundað ýmis störf. Hún var ráðs-
kona við Skeiðsfoss meðan virkjun-
in var í byggingu, vann við sfldar-
söltun á Siglufirði, vann þar í frysti-
húsi, auk þess sem hún var ráðs-
kona við Barnaheimih Siglufjarðar.
Líney hefur tekið mikinn þátt í
félagsstörfum. Hún var einn af
stofnendum Kvennakórs Siglufjarð-
ar og syngur enn með kómum, var
einn af stofnendum Samkórs Siglu-
íjarðar, söng með Kirkjukór Siglu-
fjarðar í meira en þijátíu ár, starf-
aði í mörg ár að húsmæðraorlofi,
átti sæti í Æskulýðsráði í mörg ár
og var um árabil í trúnaðarráði
verkalýðsfélagsins Vöku.
Fjölskylda
Líney giftist 15.10.1944 Hahdóri
Þorsteini Gestssyni, f. 15.4.1917, yf-
irpóstafgreiðslumanni. Hann er
sonur Gests Guðmundssonar, ferju-
manns á Sigluíirði, og Láru Thorsen
húsmóður.
Börn Líneyjar og Hahdórs Þor-
steins eru Kristrún, f. 15.10.1943,
búsett á Siglufirði, gift Sigurði Haf-
hðasyni og á hún fjögur börn; Lára,
f. 30.1.1945, búsett í Keflavík, gift
Herbert Eyjólfssyni og á hún tvö
böm; Gestur, f. 21.1.1947, búsettur
á Sigíufirði, kvæntur Ólöfu Markús-
dóttur og á hann tvö börn; Guðrún
Hanna, f. 28.7.1948, búsett á Helgu-
stöðum í Fljótum, gift Þorsteini
Jónssyni og á hún sex böm; HaU-
dóra Hafdís, f. 4.8.1949, búsett í
Keflavík, gift Bergsteini Gíslasyni
og á hún fimm böm; Bogi Guð-
brandur, f. 24.7.1951, búsettur í
Reykjavík, og á hann eitt bam; Lín-
ey Rut, f. 24.4.1961, búsett í Reykja-
vík.
Systkini Líneyjar: Hallgrimur,
búsettur í Reykjavík, nú látinn; Jó-
hannes, búsettur á Siglufirði; Guð-
ÁsbiöraJóhannesson,
90 ára 70 ára Fehsmúla 16, Reykjavík. Hafsteinn Engilbertsson,
Sigrún Helgadóttir, Bólstaðarhlíð 41, Reykjavík. Guðrún Sigurbergsdóttir, Grettisgötu 22c, Reykjavík, Rósa Ólafsdóttir Nolan, Kríuhólum 6, Reykjavík. Þorsteinn Jónsson, Ásholti lö.Reykjavík.
80 ára Melteigi 14, Keflavík. Páll Magnússon,
Sveinn Kristjánsson, fyrram b. Ðrumboddsstöðum, Kistuholti 5d, Biskupstungna- hreppi. Sveinn verður að heiman á aftnæl- Höfðavegi 5, Húsavík. 40 ára
60 ára Ósk Matthildur Guðmundsdóttir, Setbergi, Sandgerði.
isdaginn. Sigrún Þorláksdóttir, Skúlagötu 58, Reykjavík. Ragnheiður Bjarnadóttir, Einilundi 4a, Akureyri. Sigrún G. Gústafsdóttir, Skarðshlíð I8e, Akureyri. Einar Ernst Einarsson, Hringbraut 119, Reykjavík. Bragi Árnason, Tjarnarlundi 13h, Akureyri. Margrét Þór ðardóttir, Hraunbæ68, Reykjavík. Ásgeir Ingi Jónsson, Amarsíðu 6d, Akuroyri. Ragnar Árnason,
75 ára 50 ára Merkurgötu 7, Hafnarfirði. Karl Emil Gunnarsson,
Haildór Þorláksson, Magnús Þorsteinsson, jonaDaKKa 4, iveyKjav ik.
Víðimel46,Reykjavík. Tungusíðu24,Akureyri.
Wa smaauglysingasiminn
f FYRIR LANDSBYGGÐINA;
^ 99-6272
DV
DV
SÍMINN
-talandi dæmi um þjónustu!
Líney Bogadóttir.
rún, búsett í Noregi, nú látin; Sigur-
bjöm, búsettur á Siglufirði, nú lát-
inn; Sigurlaug, búsett á Hólavöhum
í Fljótum, nú látin; Anna, búsett á
Hofsósi, nú látin; Margrét, búsett á
Siglufirði; Ingibjörg, búsett á Siglu-
firði; Ragnheiður, búsett á Siglu-
firði.
Foreldrar Líneyjar: Bogi Guð-
brandur Jóhannesson, f. 9.9.1878,
b. að Minni-Þverá í Fljótum, og
Kristrún Hahgrímsdóttir, f. 3.12.
1878, húsmóðir.
Líney veröur að heiman á afmæl-
isdaginn.
Mörkinni 1 • Sími (91) 68 31 41
Einstök handunnin teppi í
ýmsum stærðum, litum og
mynstrum. Otrúlega
hagstætt verð!
Heiidsöludreifing: R&G, sími: 625465
Jólaskreytinguna
færð þú hjá okkur
Einnig allt efni til
jólaskreytinga
Ath. Mýtt
kortatímabil
Opiö
10-21
GARÐSHORNÍÍ <C
við Fossvogskirkjugarð, sími 40500