Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1993, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1993, Page 10
10 MÁNUDAGUR 15. MARS 1993 Utlönd HLAÐBORÐ í HÁDEGINU 590 kr. Fjölmargir bílstjórar hafa látið lífið við að ýta bílum sínum úr snjósköfium. Björgunarmenn segja að það og snjómokstur sé ein algengasta orsök dauðsfalla í óveðrinu. Hér er það dyravörður af hóteli á Manhattan sem kemur ökumanni til hjálpar. Þeir reyndust báðir hjartasterkir. Veður þetta er eitthvert hið versta í sögu Bandarikjanna og með þeim mannskæðustu. Simamynd Reuter aðu við okkur um BÍLASPRAUTUN BÍLARÉTTINGAR Auðbrekku 14, sími 64-21 -41 Anna María McCrann Fótaaðgerðafræðingur 25% afsláttur fyrir ellilífeyrisþega og öryrkja. á fótasnyritngum og aðgerðum Gæfuspor Fótaaðgeðastofa Skúlagötu 40, inngangur v/Barónsstíg, sími 626465 2 GERÐIR AF PIZZUM 0G HRÁSALAT Hótel Esja Mjódd 68 08 09 68 22 08 Látum bfla ekki vera í gangi að óþörfu!1 Utblástur bitnar verst á börnunum ||S£EnoAn 1 EKKI I RENNA I BUNTÍ SJÓINN! n Títan hf. kynnirfrábært nýtt GPS staðsetningartœki og þrjár gerðir affisksjám I fyrir smábátafrá | ’ hummw®wd Hringið og leitið upplýsinga hjá Boga og Magga ísíma 91-814077 I l_ TITANhf V- ' J LÁGMÚLA 7 SÍMI 814077 Nær átta tugir manna látnir í versta fárviðri í Bandaríkjunum í 112 ár: Hjörtu bílstjóranna bila í snjósköflum flölmargir hafa látist úr hjartaáfalli við að ýta bílum og moka snjó Björgunarmenn segja aö ein al- gengasta dánarorsökin í óveðrinu mikla, sem gengiö hefur yfir Banda- ríkin síðustu tvo daga, sé hjartaáfall. Bílstjórar falla örmagna niður á skott bfia sinna og eru látnir úr ofreynslu á hjartað þegar að er kom- iö. Aörir hníga niður meö snjórek- una í hönd viö að hreinsa heim- keyrslur við hús sín. Nú þegar er vitað um 77 dauðsfóll af völdum veðursins í Bandaríkjun- um og á Kúbu hafa fimm látist. I það minnsta tíu Bandaríkjamanna er saknað. Veðrið geisar nú í Kanada en ekki er enn vitað um Ijón þar. Veður þetta er það versta sem komið hefur í Bandaríkjunum í 112 ár eða frá því árið 1881. Snjóað hefur um öll ríkin á Austur- ströndinni. Syðst er fannfergi afar fátitt en nú eru dæmi um allt að 30 sentímetra djúpan jafhfalhnn snjó. Með veðrinu fylgir mikill kuldi og hafa útigangsmenn fallið af þeim sökum. Veðrinu tók að slota í gærkvöld eftir að hafa sett allt úr skorðum. Samgöngur hafa verið í lamasessi og hver einasti flugvöllur lokaðist. Á Flórída hafa hús hruniö unnvörp- um í óveðrinu. Símamynd Reuter Rauöi krossinn hefur komið upp tug- um skýla tfi að hýsa útigangsmenn og þá sem hafa misst heimili sín í veðrinu. Tjón er talið nema milljöröum dala. Mestur skaöi hefur orðiö í Flórída þar sem fellibylurinn Andrés olli hvað mestum usla í haust. Þar var uppbyggingu ekki lokið en nú veröur að byrja að að nýju. Bill Clinton hefur heitið aðstoð þeim sem orðið hafa verst úti. í fyrra var George Bush gagnrýndur fyrir að gera fátt fónarlömbum Andrésar tfi hjálpar. Reuter Jeltsín Rússlandsforseti er lagstur undir feldinn Cllnton Bandaríkjaforseti styður starfsbróður sinn Borís Jeltsín Rússlandsforseti íhugar nú næstu skrefin í baráttunni fyrir póhtísku lífi sínu eftir að hann varð að lúta í lægra haldi fyrir íhaldsmönnum sem vilja skerða völd hans á fulltrúaþinginu fyrir helgina. Jeltsín dró sig í hlé á sveitasetri sínu í gær. Starfsmenn forsetans sögðu að hann mundi segja áht sitt á fjögurra daga þinghaldinu þegar þar aö kæmi. Enginn embættismað- ur vfidi þó staðfesta fréttir þess efnis að Jeltsín ætlaði að ávarpa þjóðina í sjónvarpi í dag. Svo virtist sem íhaldsmenn í full- trúaþinginu, undir forustu þingfor- setans og erkifjanda Jeltsíns, Rúsl- ans Khasbulatovs, hefðu náð undir- tökunum í baráttunni um hver stjómaði Rússlandi eftir atkvæöa- Rúslan Khasbulatov, þingforseti i Rússlandi, og Jeltsín forseti heyja harða baráttu um völdin í landinu. Teikning Lurie greiðslur fyrir helgi. Ihaldsmenn meinuðu forsetanum m.a. aö efna tfi þjóðaratkvæðagreiðslu sem miðaði að því að finna lausn á valdabarátt- unni. Jeltsín sagðist ætla að virða bannið að vettugi og efna til skoðanakönn- unar meðal þjóðarinnar um hver eigi að stjóma. Sú könnun hefði ekkert lagalegt gildi. Þá gæti hann einnig sett neyðarlög. BUl Clinton Bandaríkjaforseti styð- ur umbótastefnu Jeltsíns hefishugar og að sögn talsmanns Hvíta hússins er ekki búist við að valdabaráttan í Moskvu verði tfi að breyta áætlunum um fund leiðtoganna. Þeir áforma að hittast í Vancouver í Kanada í apríl- byrjun. Reuter hvalveiðaráný Skýr; meirililuti ; Japana er hlynntur því að hvalveiðar í ágóðaskyni verði teknar upp á ný þrátt fyrir baráttu fyrir friðun dýranna á alþjóðavettvangi. Samkvæmt skoðanakönnun, sem birtist í biaðinu Asahi Slnmbun, voru 54 prósent að- spuröra á því að Japanir virtu alþjóðlegt hvalveiðibann aö vett- ugi en 35 prósent vildu hlýða þvi áfram. Engin þjóð í heiminum borðar meira hvalkjöt en sú japanska. Hún sporörenndi 2.500 tonnum árið 1991. Reutej- Vegna íréttar um isienska hesta í Danmörku fyrir viku skai tekið fram að rétt verð hestanna er 250 til 300 þúsund íslenskar krónur fyrir stykkið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.