Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1993, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1993, Qupperneq 14
14 I LAÚGARDAGUR 3. APRÍL 1993 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFANSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI 11, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 14, 105 RVlK. SlMI (91)63 27 00 FAX: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91 )63 29 99 GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Áskrift: 99-6270 AKUREYRI: STRANDG. 25. SlMI: (96)25013. BLAÐAM.: (96)26613. FAX: (96)11605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1200 kr. Verð i lausasölu virka daga 115 kr. - Helgarblað 150 kr. Lífeyrir í brennidepH Skemmtilegt kapphlaup fór fram á Alþingi fyrir nokkr- um dögum. Nokkrir þingmenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks kepptu um, hverjir yrðu fyrstir til að bera fram tillögur um úrbætur í lífeyrismálum, og urðu næstum jafnir. Þessi vakning meðal sumra þingmanna kemur í framhaldi af umfjöllun í flölmiðlum, sem DV hefur haft forystu um síðustu vikur en fleiri íjölmiðlar komið á eftir, einkum Stöð tvö. Athygli hefur beinzt að því, að greiðslur til lífeyrisþega eru oftast lágar og ónóg- ar. Margir lífeyrissjóðimir eiga við mikinn ^árhagsvanda að etja, svo að viðbúið er, að sumir þeirra þurfi að skerða greiðslur sínar til lífeyrisþega eða hækka iðgjöldin. Á meðan búa opinberir starfsmenn við betri kjör en aðrir, þar sem ríkið ber þungann af greiðslum úr lífeyrissjóðum opinberra starfsmanna. Misréttið er einnig gífurlegt, af því að sumir „toppar“, þeirra á meðal ráðherrar, banka- stjórar og alþingismenn, hafa miklu betri kjör en aðrir. Sjálfstæðisþingmennimir Ami M. Mathiesen og Vil- hjálmur Egilsson bera fram þingsályktunartillögu um aukið valfrelsi fólks. Menn ráði sjálfir, til hvaða lífeyris- sjóðs eða samsvarandi stofnunar þeir greiði iðgjöld eða kaupi lífeyristryggingar hjá. Þeir benda á, að stjórnendur lífeyrissjóðs hafi mikil áhrif á ávöxtun fjármagns sjóðsins og rekstrarkostnað hans. Þessi atriði hafa síðan geysi- mikil áhrif á getu sjóðs til að sinna meginverkefni sínu, það er að greiða sjóðfélögum og aðstandendum þeirra lífeyri. í skýrslu frá Seðlabankanum kemur fram, að raunverulegur munur er á árangri einstakra sjóða að þessu leyti og raunar svo mikill, að ekki er viðunandi fyrir sjóðfélaga þeirra sjóða, sem njóta lakastrar ávöxtun- ar eða bera mestan rekstrarkostnað. Þingmennimir segja, að ekki sé á nokkum hátt verjandi, að lög séu þannig, að tilteknir hópar manna séu skikkaðir til að greiða iðgjöld og ávinna sér lífeyrisréttindi í sjóðum, sem komi til með að greiða mun lægri lífeyri en almennt er. Þessir þingmenn vilja því, að einstaklingum verði gef- inn kostur á að velja sér lífeyrissjóð. Slíkt verði lífeyris- sjóðunum meiri hvatning til að keppast við að ávaxta fé sitt á sem hagkvæmastan hátt og gera reksturinn eins hagfelldan og kostur er. Þetta yrði hvati til samruna líf- eyrissjóða, en sjóðimir em nú alltof margir. Þá komi til greina, að fleiri en lífeyrissjóðum verði heimilt að keppa á þessum markaði, til dæmis trygginga- félögum, bönkum og sparisjóðum. Guðni Ágústsson er síðan fyrsti flutningsmaður frum- varps til laga um eftirlaunaréttindi launafólks, sem þrír framsóknarþingmenn flytja. Guðni hefur undirbúið mál- ið vel. Með framvarpinu er gert ráð fyrir, að launa- manni beri skylda til að greiða í eftirlaunasjóð, en hann velji sér eftirlaunasjóðinn sjálfur og þá lágmarkstrygg- ingarvemd, sem honum hentar að tilteknu lágmarki slepptu. Lífeyrissjóðir, viðskiptabankar, sparisjóðir, líf- tryggingafélög og verðbréfafyrirtæki fái heimild til rekstrar eftirlaunasjóða. Mikil bót yrði að því, ef valfrelsi um lífeyris- eða eftir- launasjóð yrði í lög leitt. Brýnt er að fækka sjóðunum, þannig að þeir, sem eftir verða, standi betur að vígi. En einnig þarf að eyða misréttinu, sem felst í lífeyriskerfi hins opinbera. Óeðlilegt er, að opinberir starfsmenn njóti sérkjara, og væri geðslegra, að þeir fengju hærri laun en slepptu hinum óréttlátu lífeyriskjörum. Tillögur þess- ara þingmannna taka á hluta vandans, en eftir mun standa mikið og óleiðrétt misrétti í lífeyrismálum. Haukur Helgason Umtumim á þingi en stefna lítt breytt Atkvæði tveggja fimmtu hluta kjósenda í kosningum til neðri deildar Frakklandsþings hafa fært bandalagi hægri- og miðflokka flóra fimmtu hluta þingsæta, 460 af 577. Þessi úrsht stafa af meiri- hlutakosningu í einmenningskjör- dæmum í tveim umferðum þar sem hreins meirihluta er krafist til að ná kjöri í fyrri umferð. Atkvæða- hæsti flokkurinn eða flokkabanda- lagið hefur aðstöðu til að sópa til sín þingsætum langt fram yfir fylg- ishlutfall. Sigurvegaramir náðu þessum árangri með lítt breyttu fylgi frá síðustu kosningum, vegna þess að helsti keppinautur þeirra varð fyr- ir fylgishruni. Sósíalistaflokkurinn tapaði helmingi atkvæðahlutfalls frá síðustu kosningum og náði með bandamönnum sínum 70 sætum. MiUi kosningaumferða þóttu jafn- vel horfur á að sósíalistar næðu ekki þingstyrk til að hafa heimild til að bera fram vantraust á ríkis- stjóm, tíunda hluta þingheims. Ósamræmið milli þingmannatölu og kjörfylgis er jafnvel enn meira hjá smærri flokkunum. Kommún- istar fengu 23 menn kjöma meö innan við níu af hundraði atkvæða af því að meginfylgi þeirra er mjög samþjappað. Þjóðemisfylkingin yst til hægri hlaut ekkert þingsæti, en hafði yfir 12% atkvæða. Francois Mitterrand forseti er sagður hafa vikið>að því á fundin- um þar sem hann veitti ríkisstjóm sósíalista lausn, að nær hefði flokknum verið að sinna sínum ráðum og hverfa aftur til hlutfalls- kosninga í einhverri mynd. Tregða við að bregða á þetta ráö stafaði ekki síst af því að menn skirrðust við breytingu á kosningafyrir- komulagi sem fært gæti þjóðemis- fylkingunni oddaaðstöðu á þingi. Rikisstjórnir sósíalista hafa setið við völd tíu af tólf ára forsetaferli Mitterrands. Kosningaúrslitin sýna að franskir kjósendur eru orðnir þreyttir, bæði á forsetanum og flokki hans. Hagur Frakklands má að ýmsu leyti teljast góður mið- að við önnur ríki Vestur-Evrópu en þrálátt atvinnuleysi nemur þrem milljónum eða tíu af hundr- aði. Hneykslismál, allt frá andvara- leysi gagnvart menguðum blóðgjöf- um fyrir átta áram til vafasamrar ijármögnunar kosningasjóða, hafa komið flokknum í koll. Kjörtímabil Mitterrands stendur til 1995 og framundan er því annað tímabil sambúðar forseta og ríkis- stjómar síns af hvoru sauðahúsi eins og var árin 1986 til 1988. Þá var forsætisráðherra Jacques Chirac, foringi nýgaulhstaflokksins RPR. Nú kærir hann sig ekki um stjórn- arforustu, bæði vegna þess hvemig Mitterrand lék á hann forðum og þó fyrst og fremst til að geta ein- beitt sér að undirbúningi forseta- framboðs 1995, þess þriðja sem hann færi í. Eins og við var búist valdi Mit- terrand því Edouard Balladur, Erlend tíðindi Magnús Torfi Ólafsson flokksbróður Chiracs og fyrrum fjármálaráðherra, th að mynda stjóm. Hann er eindreginn fylgis- maður aukinnar Evrópueiningar eins og forsetinn og Evrópusinnar skipa veigamestu ráöherrastööur. Ekki verður séð að mikh stefnu- breyting fylgi stjórnarskiptunum. Nýi meirihlutinn er skuldbundinn til að standa vörð um styrk frank- ans á gjaldeyrismarkaði og það þýðir að lítið svigrúm er th að breyta efnahagsstefnunni. Einu nýmæhn sem að kveður í kosn- ingastefnuskrá stjómarílokkanna era einkavæðing ríkisfyrirtækja og lækkun launaskatts th að örva eft- irspum eftir vinnuafli. Það sem sett getur strik í reikn- inginn er ef ríkisstjórnin tekur upp herta vemdarstefnu í þágu fransks landbúnaðar. Chirac hefur lýst yfir að málamiðlun Bandaríkjanna og Evrópubandalagsins um auknar hömlur við útflutningi niður- greiddra búsafurða sé dauður bók- stafur hvaö Frakkland varðar. Stefni sú afstaða GATT-viðræðum um víðtæka slökun á viðskipta- hömlum í hættu er Þýskalandi að mæta innan EB og komin sprunga í kjamann sem fram th þessa hefur verið hreyfiafhð í bandalaginu. Yfirgnæfandi þingmeirihluti er líklegur th að ýta undir ýfingar milli flokkanna sem að nýju ríkis- stjóminni standa, ekki síst vegna þess að Giscard d’Estaing, fyrrum forseti og foringi miðflokkasam- steypunnar UDF, hefur augastað á forsetaembættinu ekki síður en Chirac. Aðdragandi forsetakosn- inganna hlýtur að setja svip á frönsk stjórnmál út kjörtímabh Mitterrands. Michel Rocard, líklegasta forseta- efni sósíahsta, var á meðal forastu- manna flokksins sem féllu í kosn- ingunum. Að honum frágengnum er helst nefndur th Jacques Delors, forseti framkvæmdastjórnar EB. Magnús T. Ólafsson Nýi forsætisráðherrann, Edouard Baliadur (t.v.) og Pierre Béregovoy, fyrirrennari hans við valdhafaskiptin, úti fyrir Hotel Matignon, aðsetri forsætisráðherra. Símamynd Reuter Skodanir armarra Stofnanaræðið blífur „Þegar íhaldsmenn komust th valda árið 1979 lofuðu þeir að leggja niður hundrað hálfsjálfstæðra ríkisstofnana. Þeir gerðu það en komu í staöinn að- eins með hundrað stofnana til viðbótar, með meiri fjármuni og meiri völd. Nýja stofnanaræðið er óhkt hinu eldra í nokkram atriðum. í fyrsta lagi hefur það öðlast völd sem kjörnar bæjarstjórnir fóra með áður. í öðra lagi er seta í hinum fjölmörgu ráðum og stjómum nær eingöngu ákvörðuð af ráðherram.“ Úr forystugrein Independent on Sunday 28. márs Læknar og heilbrigðiskerfið „Hundrað lækna vora í skrifstofubyggingu þingsins í síðustu viku th að reyna að eyða öhum hugmyndum manna um verðstýringu á gjöldum þeirra. Þeir hafa rétt fyrir sér í einu tilhti: Viðvar- andi verðstýring á lækniskostnaði er hræðileg hug- mynd. Hún hefði aðallega í för með sér að ójöfnuður og óráðsía núverandi kerfis mundu festast í sessi. Verðstýring mundi gera raunverulegar umbætur miklu torsóttari. Þingið mundi líka gera rangt í því að setja lög um sjúkratrygginar fyrir alla Bandaríkja- menn, þar á meðal þær 35 mhljónir sem ekki njóta trygginga nú, án þess að tryggja að kostnaðurinn ryki ekki upp úr öllu valdi.“ Úr forystugrein Washington Post 30. mars Lifi kapítalisminn „Tíu mihjónir nýrra kapítahsta. Nei, þeir era ekki Kóreubúar, Bandaríkjamenn eða Vestur-Evr- ópumenn. Þeir eru Rússar. Eftir örfáa mánuði verð- ur búið að einkavæða tugþúsundir smáfyrirtækja og hundrað stórra fyrirtækja, afhenda þau verka- mönnunum, stjómendum og utanaðkomandi fjár- festum, sumum útlendum." Úr forystugrein New York Times 26. mars

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.