Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1993, Blaðsíða 36
48
EllertEiríksson:
Bæjarstjórinn
mætiráalla
heimaleiki ÍBK
Bæjarstjórinn í Keflavík, Ellert
Eiríksson, er mikill áhugamaður
um körfubolta og það þarf mikið
að ganga á í bæjarstjórastarfinu
til þess að hann mæti ekki á
heimaleiki ÍBK í körfunni.
Er sjúkdómur
„Þetta hefur yerið sjúkdómur hjá
mér lengi. Ég er í stuðnings-
mannaklúbbnum þar sem ég á
mitt sæti niðri á gólfinu og borga
fyrir þaö 18 þúsund krónur á ári.
Það er mjög hentugt fyrir mig að
geta keypt sæti. Oft er maður á
síðasta snúningi starfsins vegna
og þá er gott að geta troðið sér
framhjá mannþrönginni og sest í
sætið sitt,“ sagði Ellert í samtali
viöDV.
„Ég mæti á alla heimaleiki ÍBK
í karlaflokki og elti stundum liðið
til nágrannabæjanna og sé marga
heimaleiki hjá stelpunum. Það er
mjög gaman að sjá stelpunar spfla
og ég sá einn mest spennandi jeik
sem ég hef fylgst með þegar ÍBK
vann KR í Hagaskóla í úrslita-
leikjunum.“
Miklar framfarir
„Það er mikfl og góð auglýsing
fyrir bæinn að eiga svona af-
burðaíþróttamenn, það er ekki
spuming. Það er svo sem ekkert
nýtt að ÍBK vinni bikar en að
vinna fjóra bikara á sama keppn-
istímabilinu er frábær árangur.
Ég hef fylgst með þessari íþrótt
lengi og það hafa miklar framfar-
ir átt sér stað. Fyrst þegar útlend-
ingamir vom að koma hingað
vora þeir yfirburðamenn en í dag
em okkar menn síst lakari.
Fór og sá NBA-leik
Orlando er vinabær Keflavíkur
og EUert skrapp þangað í haust.
Að sjálfsögðu fór hann á körfu-
boltaleik og fylgdist með leik Or-
lando og Detroit.
„Það var geysOega gaman að sjá
þennan leik og stemmningin í
höllinni í Orlando var mjög lík
því sem hún gerist best í íþrótta-
húsinu í Keflavík. Það er hægt
að læra margt af Bandaríkja-
mönnunum og þá sérstaklega
hvað þeir halda áhorfendunum
vel við efnið allan tímann þegar
leikmennimir era í hléum. Ég
held að við verðum að fara að
taka upp á einhverju slíku hér
heima þannig að áhorfendur fái
virkOega skemmtun út úr því að
fylgjast með þessarri frábæru
íþrótt," sagði EOert að lokum við
DV. -GH
LAUGARDAGUR 3. APRÍL 1993
íþróttir
Uppskera vetrarins. Frá vinstri: Björg Hafsteinsdóttir, fyrirliði kvennaliðs ÍBK, Ellert Eiríksson, bæjarstjóri í Kefiavík, Hannes Ragnarsson, formaður körfu-
knattleiksdeildar ÍBK, og Guðjón Skúlason, fyrirliði karialiðs ÍBK.
DV-mynd Ægir Már
Hannes Ragnarsson, formaður körfuknattleiksdeildar ÍBK, í viðtali við DV:
Þetta eru gullaldar-
ár körfuboltans hér
Það er ekki amalegt að stýra skút-
unni hjá körfuknattleiksdeild Kefla-
víkur um þessar mundir. Keflvíking-
ar tryggðu sér í vikunni fjórða bikar-
inn í vetur en þá varð karlalið ÍBK
fslandsmeistari í úrvalsdeildinni og
hafði fyrr í vetur unnið bikarmeist-
aratitilinn.
Konumar í körfuknattleiksliði ÍBK
era engir eftirbátar karlanna því þær
unnu einnig tvöfalt og það má því
með sanni segja að Keflavík sé besti
og mesti og körfuboltabær landsins.
DV náði tal af Hannesi Ragnarssyni,
formanni köfuknattleiksdeOdar, og
spurði fyrst hverju hann þakkaði
þennan glæsOega árangur í vetur?
Hér er samsafn
af góðu fólki
„Það er yfir höfuð gott starf í deOd-
inni og samsafn af góðu fólki. Þetta
era guflaldarár körfuboltans héma,
þessi tvö síðustu keppnistímabO, og
kannski næstu tvö á eftir. Það er
mikOl uppgangur hjá okkur og mik-
ifi efniviður í yngri flokkum karla
og kvenna. Við höfum unnið að
markvissu uppbyggingarstarfi og
það hefur verið að skila sér. Ef ég
nefni sem dæmi kvennaflokkinn þá
er vel búið að stelpunum og mér er
tíl efs að það sé betur gert hjá öðra
félagi."
Hafði trú á að
við ynnum fjórfalt
- En átti formaðurinn von á að vinna
afia fjóra titlana?
„Já, það var stefnt að því fullum
fetum. Það var óopinbert leyndarmál
hjá okkur að hafa fuOa trú á að þetta
tækist og það gekk eftir. Ég held að
þetta sé einn albesti árangur íþrótta-
félags í boltaíþrótt á einu ári og þetta
met verður seint slegið þó svo að við
reynum að endurtaka leikinn á
næsta ári. Þetta er mjög gaman fyrir
mig og þá sem era þarna við stjórn-
vöhnn að eiga þess kost að vera við
völd á svona tíma.“
Hérfær enginn
peninga fyrir að spila
- En hvernig gengur svo að reka
deOdina?
„Viö eram ekki með neina leik-
mannasamninga við okkar fólk og
erum þar af leiðandi betur settir
miðað en margir aörir. Hér fær eng-
inn peninga fyrir að spila og þannig
verður það áfram. Þetta hefur ekki
fælt leikmenn frá okkur, því þeir
vOja spOa með góðum klúbbi þar sem
metnaður er mOcOl. Laun leikmann-
anna hjá okkur eru meistaratitlar og
þeir meta það. Mér sýnist að við
náum að reka deildina réttum megin
viö strikiö.
Vorúm að spá í
að taka ekki Bow
- Var það rétt að þið vOduð losa ykk-
ur við Jonathan Bow?
„Þetta voru bara sögusagnir. Að
vísu voram við ekkert ákveðnir í að
taka hann í haust en það varð samt
ofan á, sem betur fer. Það var þrýst-
ingur frá mörgum sem fannst að
skipta þyrfti um útlending, fá stærri
mann, en við tókum þá ákvörðun að
taka hann og sjáum ekki eftir því.
Við munum setjast niður einhveija
næstu daga og spá í spihn fyrir næsta
keppnistímabO. Ég veit ekki hvað
maður fær mikinn frið með leikmenn
sína en ég hef þá trú að það verði
ekki mikið um mannabreytingar.
Við eram með stóran og breiðan hóp.
TO að mynda þyrði ég ekki að veðja
um það hvort byrjunarliðið í karla-
flokknum væri öruggt með sigur á
móti þeim sem eru ekki í 5 manna
liðinu. Umfram allt mega menn ekki
ofmetnast af þessum glæsOega ár-
angri því baráttan veröur hörð á
næsta tímabOi því að sem alhr vOja
leggja meistarana að velli.“.
-GH
fyrsti Islendinguriim sem tekur þátt í stórmóti í kendó
Evrópumeistaramótiö í japönsk-
um skylmingum eða kendó, eins
og fþróttin er nefnd, verður haldiö
f Turku í Finnlandi dagana 8.-11.
aprfl. Þetta væri ekki í frásðgur
fierandi neroa fýrir þær sakir að í
fyrsta sinn tekur íslendingur þátt
í Evrópumeistaramóti f þessari
Sþróttagrein. Hann heitir Ingólfur
Björgvinsson. DV náði tali af Ing-
ólfi áður en hann hélt til Finhlands
á fimmtudaginn en þar ætlar hann
að dvclja við æfingar áöur en mótið
hefíst
Hef æftkendó
frá árinu 1986
„Ég er búinn aö æfe kendó frá ár-
inu 1986 eða f 7 ár. Það er sagt að
það taki um fiögur ár aö ná sæmi*
legu valdi á þessari fþrótt svo aö
ég tel mig nú vera tflbúinn að taka
þátt'í slíku móti,” sagði Ingólfur í
samtali við DV.
Að 8ögn Ingólfs leggja um 30
manns stund á kendó hér á landi
en þetta er íþrótt sem á uppruna
sinn í Japan og kendó er óumdeil-
anlega þjóðaríþrótt Japana. Vest-
urlandabúar hafa ekki lagt mikla
stund á kendó en íþróttin er þó aö
ryðja sér til rúms í mörgum lönd-
um.
Nútíma kendó er viðureign
tveggja manna í hlífðarbúningi
með bambussverðum. Reynt er að
koma höggum á mótheijann á þá
hluta llkamans sem varðir eru.
Aðalhöggin eru högg framan á og
á báðar hliðar höfuðhlífar, högg á
framhandlegg, högg á hliðar líkam-
ans báðum megin og stunga í háls-
hlíf. Vegna öflugs hlíföarbúnaðar
eru slys í kendó óþekkt, þrátt fyrir
að mikfll kraftur sé oft í viðureign-
um. Keppni í kendó fer fram á tré-
gólfi sem er 9x11 metrar að stærð.
Viðureignin stendur yfir í 5 minút-
ur eða þar til annar keppandinn
hefur unnið2 stig.
Eflir viljastyrk
og einbeitingu
„Ég byrjaöi fyrst í ólympískum
skylmingum en eför að ég las í
bókum og fræðiritum um kendó
vildi ég frekar reyna fyrir mér í
þeirri íþrótt og ég sé ekki eftir því.
Maður ræktar sjálfan sig með því
að stunda þessa íþrótt, eflir vOja-
styrk og einbeitingu og góður agi
fylgir henni.
„Ég veit raunar ekki hvað ég er
aö fara út í þegar um svona stórt
mót er að ræða. Takmarkið hjá mér
er að gera mitt besta en aðalatriðið
er að vera með en ekki endOega að
vinna.“
Hyggjasttakaþátt
í heimsmefstaramótfnu
Á næsta ári verður haldiö heims-
meistaramót í liðakeppni í kendó
og fer það fram í Frakklandi. ís-
lenska kendósambandið hyggur á
þátttöku í þvi ihóti en fimm menn
Ingólfur Björgvinsson er hér i fullum skrúða með bambussverðið og
höfuöhlífina tilbúinn að elja kappí við kendómenn á Evrópumótinu.
DV-mynd S
mynda hð í kendó. Kendósamband sögn Ingólfs hefúr lengi verið 1 at-
íslands er ekki aðtii að ÍSÍ en að hugunaðsækjaumlnngöngu. -GH