Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1993, Page 26
26
LAUGARDAGUB 3. APRÍL 1993 '
Fiska-
bókí
fiski-
bandi
- Ólafur Guðmundsson dundar við að binda inn baekur
„Ég læröi bókband lítillega þegar ég
var tólf ára gamall. Ég starfaði þó
aldrei við það, var lengi á sjó, síðan
gerðist ég lögreglumaður og loks
vann ég lengi hjá innheimtudeild
RÚV,“ segir Ólafur Guðmundsson,
79 ára gamall, sem hefur dundað við
það undanfarið að binda inn bækur
jafnt fyrir sjálfan sig sem aðra.
Nýjasta bókin, sem Ólafur batt inn,
er íslenskir fiskar eftir Gunnar Jóns-
son. Ólafur komst yfir steinbítsroð
og batt bókina í þaö. Roðið er í nokkr-
um litum og Ólafur hefur skorið það
til eins og fiskar liggi á bókinni. í
maga fiskanna hefur hann sett mynt
og snýr loðnan upp á tíkallinum en
þorskurinn á krónunni. Á öftustu
síðu bókarinnar hefur hann hmt upp
frímerki sem öll eru skreytt með fisk-
um.
„Ég er hér í Múlabæ þijá daga í
viku og þá dunda ég mér við þetta
og hef mjög gaman af. Þetta er mitt
líf og yndi,“ segir Ólafur. „Nú er
fiskabókin t.d. komin í fiskiband,"
segir hann.
Olafur segir að Unnur Ólafsdóttir
Olafur Guðmundsson, fyrrverandi lögregluþjónn, með fiskabókina sem hann hefur bundið inn í steinbítsroð. Á
borðinu standa einnig íslensk kvæði sem hann batt líka inn. DV-mynd BGS
hannyrðakona hafi gefið sér roðið,
sem var í þremur litum, og það hafi
ráðið úrshtum um að hann réðst í
að binda fiskabókina inn. Þá áskotn-
aðist honum einnig fallegt leður,
skreytt með íslandi, og batt hann ís-
lensk kvæði inn í það. Þá hefur Ólaf-
ur einnig verið að gera upp gamla
leðurhluti fyrir fólk sem dvelur með
honum í Múlabæ.
„Það er ekki langt síðan ég byijaði
að binda inn. Ætlaði raunar aldrei
að hafa mig í það. Ég var búinn að
eiga við veikindi að stríða lengi, þjáð-
ist af þunglyndi, en hef náð mér vel
og hef aldrei verið kátari,“ segir Ólaf-
ur.
- Ætlar þú að gera fleiri bækur?
„Ég veit það ekki. Núna er ég að
mála dúka og hef fengist við að
smyma teppi. Það er þó aldrei að
vita.“
Múlabær er dagheimili fyrir aldr-
aða og öryrkja sem af einhverjum
ástæðum geta ekki verið heima hjá
sér á daginn. Þar fer ýmis fóndur-
vinna fram og voru konurnar í óða-
önn að búa til páskaskraut þegar DV-
menn litu þar inn í vikunni. Margt
fallegra muna var í Múlabæ og gamla
fólkinu leiðist svo sannarlega ekki
meðan það dvelur þar enda sagðist
Ólafur helst vilja vera þama alla
daga vikunnar en það fengi hann
ekki.
-ELA
VEITUM ÁBYRCÐ
ÁMÖRGUM
NISSAN OC
SUBARU BÍLUM
B|LAhúsið
sævarhöfda 2 674848 i húsi Ingvars Helgasonar
OPIÐ:
LAUCARDAC
frá 10-17
Minnum sérstaklega á okkar mánaðarlegu tilboð
á 30 notuðum bílum með 80-200 þús. kr. afslætti!!!
Subaru Legacy 1800 st., 4x4, árg.
1991, ekinn 41 þ. km, sjálfskiptur,
rafdr. rúður, samlæsing o.fl. Ath.
skipti á ódýrari. Verð 1430 þús. stgr.
Höfum einnig árg. '90 og 1992.
Mazda 3231300 LX, árg. 1989, ekinn
aðeins 36 þ. km, sjálfskiptur, sum-
ar- og vetrardekk, útvarp o.fl. Að-
eins bein sala. Verð 640 þús. stgr.
Höfum allar árg. af Mazda 323.
Nissan Primera 2000 GTE, árg.
1992, ekinn 21 þ. km, 5 gíra, ABS,
150 hö., topplúga, álfelgur o.fl. Ath.
skipti á ódýrari. Verð 1750 þús. stgr.
Höfum einnig Primera 2000 SLX,
árg. ’91 og 1992.
MMC Colt 1500 GLX, árg. 1989,
ekinn 56 þ. km, sjálfskiptur, rafdr.
rúður o.fl. Ath. skipti á ódýrari.
Verð 630 þús. stgr. Höfum flestar
árg. af MMC Colt.
Pontiac 6000 STE, árg. 1987, ekinn
75 þ. km, sjálfskiptur, digital mæla-
borð, tölva o.m.fl. Ath. skipti á ódýr-
ari. Verð 790 þús. stgr. Höfum einn-
ig Pontiac Grand Prix, árg. 1991.
Subaru Justy J-12 4x4, árg. 1991,
ekinn 33 þ. km, 5 gíra, sumar- vetr-
ardekk o.fl. Ath. skipti á ódýrari.
Verð 790 þús. stgr. Höfum allar
árg. af Justy.
Toyota Corolla 1300 XL, árg. 1991,
ekinn aðeins 16 þ. km, 5 gíra,
vökvastýri o.fl. Aðeins bein sala.
Verð 830 þús. stgr. Höfum allar
árg. af Corolla.
Subaru 1800 st. 4x4, árg. 1988, ek-
inn 84 þ. km, sjálfsklptur, samlæs-
ing o.fl. Ath. sklpti á ódýrari. Verð
780 þús. stgr. Höfum allar árg. af
Subaru 1800.
VW Jetta 1600 GL, árg. 1991, ekinn
30 þ. km, sjálfskiptur, vökvastýri,
samlæsing o.fl. Ath. skipti á ódýr-
ari. Verð 990 þús. stgr. Höfum einn-
ig árg. ’87 og 1988.
Nissan Terrano turbo, dfsil, árg.
1991, ekinn 31 þ. km, 5 gíra, álfelg-
ur, 31" dekk, rafdr. rúður o.fl. Ath.
skipti á ódýrari. Verð 2190 þús. stgr.
Höfum elnnig Terrano, 6 cyl., bens-
ín.
Nissan Patrol, turbo, disil, árg.
1991, ekinn 52 þ. km, 5 gira, upp-
hækkaður, 33" dekk o.fl. Ath. skipti
á ódýrari. Verð 2750 þús. stgr. Höf-
um einniq ára. '89 og 1990.
Cherokee Laredo 4,0 I, árg. 1989,
ekinn 67 þ. km, sjálfskiptur, átfelg-
ur, rafdr. rúður, samlæsing o.fl.
Ath. skipti á ódýrari. Verð 1680 þ.
stgr. Höfum einnig flestar árg.
Isuzu Trooper, árg. 1988, eklnn 86
þ. km, 5 gira, spokefelgur, útvarp
o.fl. Ath. skipti á ódýrari. Verð 980
þús. stgr. Höfum flestar árg. af
Trooper.
Nissan Patrol, turbo, dísil, árg.
1987, ekinn 113 þ. km, 5 gíra, upp-
hækkaður, 33" dekk o.fl. Ath. skipti
á ódýrari. Verð 1700 þús. stgr. Höf-
um einnig árg. ’84, '85 og 1986.
Toyota LandCruiser, árg. 1990, ek-
inn 49 þ. km, 5 gíra, upphækkaður,
35" dekk, loftlæsing framan og aft-
an o.fl. Ath. skipti á ódýrari. Verð
2590 þús. stgr.