Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1993, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1993, Blaðsíða 2
22 MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL1993 Ferðir Heimsferðir: Mexíkó, Barcelona, París og Benidorm - í beinu leiguflugi Beint leiguflug er nú hafiö til Mex- íkó frá íslandi og er það ferðaskrif- stofan Heimsferöir sem býður upp á ferðirnar. Ákvörðunarstaðurinn er Cancun sem er 25 kílómetra langt kóralrif út frá Yucatanskaga. Það er stærsta leiguflugfélag Mex- íkó sem flýgur fyrir Heimsferðir á Boeing 757. Cancun er í dag einn vinsælasti áfangastaður í Karíbahafinu. í ná- grenni Cancuns eru sögufrægar minjar frá tímum Mayanna, allt frá árinu 1500 fyrir Krist. í boði er fiöldi spennandi kynnisferða með íslenskum fararsfiórum, s.s. til Chichen Itza til aö skoða hinn fræga pýramída og til Tulum, fyrr- um helgistaðar Mayanna. Tulum þykir einn fegursti staður Mexíkó. Frægur köfunar- staður Cancun er einn frægasti köfunar- staður í heimi og því möguleikarn- ir miklir fyrir þá sem vilja kynna sér undirheima sjávarins. Nokkuð jafn hiti er í Cancun allt árið en yfir sumartímann er hitinn þó um 30 stig og þar yfir. Allar strendumar á Cancun eru fyrir almenning. Strætisvagnar ganga eftir allri strandlengjunni og niður í miðbæ allan daginn á 2 til 3 min- útna fresti. Ekki gerist þörf að bíða á stoppistöð heldur er nógað veifa næsta strætó til að fá far. Í Cancun er boðið upp á gistingu í 4 sfiörnu íbúðarhóteli og 5 sfiömu lúxushóteli á mismunandi verði. Aðalréttur á 200 kr. Ódýrt er að lifa í Mexíkó og kost- ar aðalréttur á góðum veitingastað 200 til 300 krónur. Úrval veitinga- staða í Cancun er fiölbreytt. Auk mexíkanskra staða eru þar jap- anskir, ítalskir og franskir svo eitt- hvað sé nefnt. Cancunfarar eiga þess að kost að komast til Kúbu á vegum Heims- ferða. Skipulagðar eru þriggja daga ferðir þangað á mjög góðu veröi. Heimsferðir bjóða einnig upp á beint leiguflug til Benidorm á Spáni sem er á Costa Blanca eða Hvítu ströndinni. Efnt er til jeppasafarís til fialla, skoðunarferðar tU Valenc- ia, verslunarferðar til Ahcante, sighngar til Ibiza auk margs konar annarra ferða. Gististaðir Heims- ferða á Benidorm eru ný íbúðahót- el. Hinar heillandi borgir París og Barcelona eru aðrir áfangastaðir Heimsferða í sumar. Beint leigu- flug er til beggja heimsborganna á mjög hagstæðu veröi. Á strönd í Cancun í Mexíkó. Hinn frægi pýramídi í Chichen Itza. Ferðaskrifstofan AIís: Beint flug til Jótlands, Spies- ferðir og húsbíll í Ameríku Krárnar í Danmörku eru vinsælir gististaðir. Sólar notið á strönd Jótlands. Ferðaskrifstofan Alís er eins og undanfarin ár með beint leiguflug til Billund í Jótlandi sem er heima- bær Legolands. Jótland er einstak- ur ferðamannastaður fyrir barna- fiölskyldur og kjörinn upphafs- punktur fiölskylduferðar á bíla- leigubíl. Ökuleiðir um Danmörku og yfir til Þýskalands eru auðveld- ar. Dýra- og skemmtigarðarnir á Jótlandi eru fiölmargir og bjóða upp á margs konar afþreyingu. Nýjung hjá Alís í ár er skipulögð hjólafrí í Danmörku. Golfvéilir eru margir og auðvelt er að fá að spila á þeim. Gistimöguleikarnir eru margir. Alís hefur til dæmis samið um gist- ingu í sumarhúsum fyrir þá sem þess óska og eru húsin við Bork Havn og 0er. Fyrir þá sem vilja ferðast sem ódýrast er boðið upp á „teppi og fiald" á snyrtilegum og vel útbúnum fialdstæðum þar sem allt er til alls. A mörgum fialdstæð- um er einnig hægt að leigja litla bústaði; Gisting á heimilislegum krám Krárgisting gerist æ vinsæfli og selur Alís hagstæðar krárávísanir fyrir gistingu á heimilislegum krám um alla Danmörku. Hver krá hefur sín séreinkenni, hvort heldur er í mat eða drykk. Alís hefur nú einkaumboð fyrir dönsku ferðaskrifstofuna Spies. Alísfarþegum gefst þvi kostur á hagstæðum sólarlandaferðum með Spies. Ferðimar hefiast í Kaup- mannahöfn eða Billund þannig að auðvelt er að bæta dvöl í Dan- mörku framan eða aftan við sólar- ferðina. Á húsbíl um Ameríku Spennandi nýjung, sem Alís býð- ur upp á, er flug og húsbíll í Amer- íku. Húsbílamir em með góðri gisti- og hreinlætisaðstöðu og í þeim er vel búið eldhús. Innifaflð í leigunni á bílnum er afsláttarkort sem gildir á yfir 600 fyrsta flokks fialdstæðum í Norður-Ameríku. Flug og bíll í Bretlandi nýtur mikilla vinsælda. Mikið úrval er af ódýrri gistingu í Bretlandi og selur Alís ávísanir á „Bed and Bre- akfast“-gistingu þar sem í boði er notaleg heimagisting með ríkuleg- um enskum morgunverði. Víða er hægt aö kaupa kvöldverð á heimil- unum. Alís býður upp á Rómarferðir alla miðvikudaga í sumar. Flogið er í gegnum Kaupmannahöfn þar sem gist er eina nótt. Þýskaland, Holland, Austurríki og Spánn em aðrir áfangastaðir sem Alís selur ferðir til.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.