Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1993, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1993, Qupperneq 6
26 MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL1993 Ferðir Ferðaskrifstofan Úrval-Útsýn: Sólarferðir til Mexíkó- flóa og Miðjarðarhafs Frá Andalúsíu á Spáni. Ferðaskrifstofan Úrval-Útsýn leggur eins og áður mikla áherslu á ferðir til Algarve í Portúgal. Al- garve er syðsta og sólríkasta hérað Portúgals og teygir sig efdr endi- langri suðurströnd landsins. Far- þegar Úrvals-Útsýnar dvelja rétt við fiskimannaþorpið Albufeira. Fjöldi kynnisferða er í boði eins og til dæmis tveggja daga ferð til Lissabon, dagsferð til Sevilla og jeppasafarí, svo að eitthvað sé nefnt. Sólarfrí á eiginvegum Beint flug Flugleiða til Barcelona á Spáni opnar möguleika á sól- arfríi á eigin vegum í norðaustur- hluta Spánar. Costa Brava heitir ströndin norður af Barcelona, höf- uðborg Katalóníuhéraðs. Úrval- Útsýn býður dvöl í bænum Lloret de Mar. Samtök sex golfvalla á Costa Brava bjóða golfurum spenn- andi tilboð á vallargjöldum dvelji þeir á íjögurra stjömu hótelinu Hotel Guitard Platja d’Aro sem staðsett er í samnefndum sólarbæ um 20 mínútna akstur norður af Lloret de Mar. Costa del Sol á Suður-Spáni hefur um árabil veriö einn vinsælasti sólarstaður íslendinga á Spáni. Gististaðir Úrvals-Útsýnar á Costa del Sol eru í Torremolinos. Ma- rokkóferðir eru meðal þeirra kynn- isferða sem í boði eru. Annar vinsæll sólarstaður er Mallorca þar sem Úrval-Útsýn býð- ur upp á dvöl á nokkrum stöðum. Kýpur og austanvert Miðjarðarhaf Eyjan Kýpur austast í Miðjarðar- hafmu er sólarstaður sem á fáa sína líka og þangað skipuleggur Úrval-Útsýn ferðir fram í septemb- er í gegnum London. Á Kýpur er boðið upp á dvöl í bænum Limas- sol. Víða á Kýpur eru ævagamlar minjar grísku fommenningarinn- ar. Kýpurfarþegar eiga möguleika á siglingu um austanvert Miðjarðar- hafið með skemmtiferðaskipum og að heimsækja grísku eyjamar, Egyptaland og ísrael í þriggja til sjö daga siglingum. Úrval-Útsýn mun í sumar vera með bækistöð á hinni rómuðu strönd St. Petersburg Beach í Flórída við Mexíkóflóann. Þar munu íslenskir fararstjórar verða farþegum til aðstoðar og ráðlegg- ingar og efna til kynnisferða til markverðra staða. Ferðaskrifstofan býður einnig upp á dvöl í Cancun við Yucatan- skaga í Mexíkó. Tyrkland og Svartiskógur í vor og fram á haust er auk þess boðið upp á fjölda sérferða, eins og til dæmis til Parísar, Svartaskógar, skoska hálendisins, Englands og Jersey, Móseldalsins, Alpafjalla, Norður-Ítalíu og Tyrklands. Sér- stakar golfferðir em skipulagðar og skemmtisiglingar um Miðjarð- arhaf, Karíbahaf og frá íslandi til Bretlandseyja með glæsifleyinu Columbus Caravelle. Úrval-Útsýn býður einnig upp á ferðir með Eim- skip til Evrópu. Auk Edinborgarferða efnir Úr- val-Útsýn í haust til ferða til Manc- hester í Englandi í beinu leigu- flugi. Manchester er af mörgum talin einhver besta verslunarborg Bretlandseyja, leikhúslíf er þar sérlega blómlegt að ógleymdri knattspymunni. Úrvcd-Útsýn hefur einkaleyfi á íslandi fyrir dönsku ferðaskrifstof- una Tjæreborg og em bæklingar frá henni á söluskrifstofum Úr- vals-Útsýnar. Ferðaskrifstofa Kjartans Helgasonar: Búlgaría, Búdapest og Ermarsundseyj ar Ferðaskrifstofa Kjartans Helga- sonar hefur í þrjá áratugi sérhæft sig í ferðum tU Búlgaríu. Einkum hefur verið boðiö upp á ferðir til baðstrandanna Albena og Dmshba. Gistimöguleikar em bæði á hótelum og í sumarhúsum. Skipulagðar verða skoðunarferð- ir af Unni Þorgeirsdóttur sem býr í Búlgaríu og talar bæði búlgörsku og íslensku. Hún mun aðstoða þá sem vflja nota tækifærið og fara í heilsurækt eða á tannlæknastofu á Albenaströndinni sem rekin er af Búlgöram en er í eigu Þjóðveija. Tannlæknaþjónusta þar hefur kostaö um einn fjórða af því sem greiða þarf hér. Kaíró og Istanbul Auk skoðunarferða innanlands í Búlgaríu verður efnt til ferða til Kaíró og Istanbul í flugi. Til Búlg- aríu frá íslandi er farið í gegnum London. Ferðir til Ermarsundseyjanna Jersey og Guemsey em einnig í gegnum London. Miklar bað- strendur em víðsvegar um eyjam- ar, þó fleiri á Jersey. Hægt er að stoppa í bakaleið annaðhvort í Glasgow eða London. Búdapest hefur stundum verið kölluö Lltla-París. Búdapest Ungverjaland er einn áfanga- staða ferðaskrifstofu Kjartans Helgasonar í ár. Boðiö er upp á ýmiss konar hótel í Búdapest og dvöl í sumarhúsum eða hótelum við Balatonvatn. Sigling á Dóná er vinsæll ferða- máti. Flogiö er til Vínar frá íslandi og farið um borð í lúxusfljótaskip. Skipið gengur milli Vínar og Svartahafs. Ferðir með langferðabifreiöum um Skotland, Bretland, til írlands og yfir til Frakklands eru einnig í boði. Flogið er til Glasgow eða Lon- don. Costa Brava og Kanaríeyjar Nýr áfangastaður í sumar er Costa Brava ströndin skammt frá Barcelona í Katalóníu á Spáni. Vikulegar ferðir em til Kanaríeyja allt árið og er flogið í gegnum Amsterdam. Umboðsmenn ferða- skrifstofunnar er með skrifstofur á öllum eyjunum og útvega gistingu eftir óskum hvers og eins. í samstarfi við fyrirtækið Path á íslandi eru í boði ferðir til Keníu um London. Ferðirnar um Keníu eru skipulagöar af Inga Þorsteins- syni, konsúl íslands í Keníu. Auk þessara sumarferða býður ferðaskrifstofa Kjartans Helgason- ar sumarhús í ýmsum Evrópulönd- um og dvöl í málaskólum og hótel- skóla 1 Sviss.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.