Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1993, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1993, Blaðsíða 16
16 FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 1993 FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 1993 25 Iþróttir Iþróttir Valur 0-1 Auöun Helgason (14.) 0-2 Andri Marteínsson (46.) 1-2 Antony Karl Gregory (76.) Liö Vals: Bjarní (1), Bjarki (1), Kristinn (1), Jón Grétar (1), Jón S. (2), Sævar (1), Ágúst (1), Steinar (2), Gunnar (1) (Antony Karl (1) 41,), Þóröur (1) (Arnljótur (1) 71.), Hörður (1). Liö FH: Stefán (3), Jón Erling (2), Þorstcinn H. (1), Þórhallur (2), Mrazek (2), Þorsteinn J. (l), Auð- unn (2), Hallsteinn (1), Höröur (1) (Daviö (2) 46.), Andri (2) (Ólafur Bj. (2) 61.), Ölafur Kr. (3). Gul spjöld: Þórhallur og Ólafur Kr. (FH), Sævar (Val). Rautt spjaid: Bjarki St. (Val). Dómari: Bragi Bergmann. Lét fastan leik ganga og dæmdi ágæt- lega. Ahorfendur: Um 670. Aðstæður: Svalur norðangarri og völiurinn sæmilegur. 0-1 Heimir Guðjónsson (11.) 0-2 Ómar Bendtsen (16.) 0-3 Tómas Tómasson (32.) 0 4 Ómar Bendtsen (35.)ýv.-; 1-4 Óh Þór Magnússon (60.) Lið ÍBK: Ólafur (1), Karl (1), Jó- hann (l), Kristinn (l), Gestur (1) (Ragnai- (l) 46.), Siguröur (1), Gunnar O. (2), Tanasic (1) (Gunnar J. (1) 60 ), Georg (1), Kjartan (1), Óli Þór (1). Liö KR; Ólafur (1), Sigurður (1), Dervic (2), Þormóður (2), Atli (1), Rúnar (1), Tómas (1), Eínar (2), Ómar (2), Heimir (1) (Gunnar S. 84.), Bjarki (2) (Hilmar (l) 77,), Gui spjöld: Engin. Rauð spjöld: Engin. Dómari: Eyjólfur Ólafsson, mjög góður. Áhorfendur: Um 800. Aðstæður: Dálítill vindur, sól í seinni hálfleik og völlurinn ágæt- ur. 0-1 Arni Þór Árnason (4.) 1-1 Bjarni Sveinbjömsson (27.) Lið IBV: Friörik (2), Sigurður (1), Magnús (1), Tryggvi (2), Jón Bragi (1), Rútur (1) (Martin (1) 73.), Anton Björn (1), Ingí (1), Bjarni (1), Nökkvi (1), Stdngrímur (2). Líð Þórs: Lárus (3), Heiömar (1) (Gísli (1) 52.), Birgir (1), Lárus Orri (1), Sveinn (1), Sveinbjöra (2), Ámi Þór (1), Júlíus (1), Páll (2), Þórir (1), Hlynur (2). Gui spjöld: Tryggvi, Anton Bjöm og Nökkvi (ÍBV), Lárus Orri og Sveinbjörn (Þór). Rauð spjöld: Engin. Dómari: Ari Þórðarson, þokka- Ahorfendur: 850. Aöstæðun HásteinsvöUur eins og þeir gerast bestir erlendís, svo notuð séu orð þjálfara Þórs. Aust- an rok og kaldi. ■ deildinni Akranes., FH........ KR Þór Valur Fram..... Keflavik., ÍBV Fylkir :»♦>:«♦»:<♦>:*<»:< :+>:«+>>:<+>y.4<:>:<+>: Víkingur.. . 5 . 6 6 6 6 6 6 . 6 i 4 0 1 19-5 12 3 2 1 13-9 11 3 1 2 16-8 10 3 .... 6 6 10 3 0 3 12-8 9 303 13-12 9 3 0 3 9-15 9 1328-9 6 2 0 3 5-9 6 0 1 5 6-26 1 Getraimadeildin í knattspymu: KR í stuði í Kef lavík Ægir Már Kárason, DV, Siiðumesjum: „Við byijuðum leikinn mjög vel og náðum að gera íjögur mörk á stuttum tíma og við það minnkaöi stressið,“ sagði Rúnar Kristinsson, fyrirliði KR-inga, eftir að vesturbæjarliðið hafði unnið Keflvíkinga, 1-4, í Get- raunadeildinni í Keflavik í gær- kvöldi. KR-ingar byrjuðu geysivel og kraft- urinn var gríðarlegur í liðinu. Það var ekki mikið liðið af leiknum þegar Rúnar skaut í stöngina á marki Keflavíkur. Stuttu síðar skoruðu KR-ingar fyrsta markið og var þar á feröinni Heimir Guðjónsson eftir samspil Atla Eövaldssonar og Bjarka Péturssonar. Ólafur Pétursson, markvörður Keflavíkur, varði í tví- gang vel frá Tómasi Inga Tómassyni en Ómar Bendtsen fann leiðina í markið eftir þvögu í vítateig heima- manna. Tómas Ingi bætti þriöja markinu við með skalla eftir send- ingu frá Atla og Ómar skoraði síðan fiórða markið stuttu síðar. Staöan orðinn 0-4 eftir aðeins 35 mínútur. I síðari hálfleik voru Keflvíkingar mun skárri en að sama skapi slöpp- uðu KR-ingar dálítið af enda með góða stöðu. Óli þór Magnússon náði að minnka muninn fyrir heimamenn á 60. mínútu og bæði lið fengu síðan tækifæri til að bæta mörkum við, sérstaklega Keflvíkingar, en Ólafur varði tvívegis mjög vel. „Þetta var svipað og á móti FH þegar við fengum á okkur klaufa- mörk í byrjun og vorum seinir í gang. Við þurfum að breyta hugarfarinu og þá komum við kannski í veg fyrir svona mistök," sagði Kjartan Más- son, þjálfari ÍBK, eftir leikinn. Keflvíkingar virkuðu seinir og þungir en KR-ingar léku hins vegar mjög vel og oft sáust skemmtilegar syrpur hjá liðinu þar sem hraðinn var geysimikill. Graf og Agassi unnu - á Wimbledon-mótinu í tennis Steffi Graf og Andre Agassi kom- ust auðveldlega í þriðju umferðina á Wimbledon-mótinu í tennis í gær. Þau hafa bæði hafið titilvarnir sínar vel og virðst ekki líkleg til að tapa meistaratitlum sínum. Steffi Graf vann mjög auðveldan sigur á ensku stúlkunni Clare Wood 6-2 og 6-1 í rétt rúmlega klukku- stundar leik. Graf er í miklu stuði þrátt fyrir aö hafa átt við meiðsli aö stríða. Andre Agassi komst einnig áfram en hann sigraði Portúgalann Joao Cunha-Silva, 6-3, 6-2 og 6-0. Stefán Arnarson var í miklu stuði í marki FH gegn Val og varði mjög vel. Hér kastar hann frá marki sinu í leiknum. DV-mynd BG Þróttarvöllur ÞRÓTTUR R - LEIFTUR Laugardaginn 26. júní kl. 14. Láttu sjá þig! Jósep Jósepssan, DV, Austurl. Einheiji sigraði Val, 0-2, á Reyðarfirði í D-riðli 4. defidar í gærkvöldi. Þaö voru þeir Ólafur Ólafsson og Stefán Guðmundsson sem skoruðu mörk Einheija í leiknum. Englendingar binda miklar vonir við Andrew Foster sem tryggði sér að komast í 3. umferð eftir sigur á Mexíkómanninum Luis Herrera, en hann sigraði Jimmy Connors á mót- inu í fyrra. Svíinn Stefan Edberg vann auðveldan sigur á Amos Mansdorf, frá ísrael, í einliðaleik karla á Wimbledon-mótinu í tennis í gær. Edberg vann leikinn, 6-3, 6-4 og 6-4. Sorgarsaga Ivan Lendl á mót- inu hélt áfram í gær en þá féll Lendl úr keppni eftir tap gegn Frakkanum Arnaud Boetsch. -RR Valsmaðurinn Kristinn Lárusson í baráttunni upp við mark FH-inga en þar var Stefán Arnarson markvörður vel á verði og náði boltanum. Varnarmenn FH, Petr Mrazek og Auðun Heigason, fylgjast vel með gangi mála. DV-mynd BG Getraunadeildin í knattspymu: FH-ingar á f leygiferð - komnir í 2. sæti deildarinnar eftir sigur á Val á Hlíðarenda „Það er gaman þegar vel gengur. Við spiluðum vel í fyrri hálfleik en þurftum meira að hafa fyrir hlutunum í þeim seinni. Liðið veiktist við að missa Hörð og Andra út af en við héldum baráttunni uppi og náðum að halda dampi. Þetta var vinnusigur. Núna er bara að halda öðru sætinu en leikimir framundan verða erfiðir,“ sagði fyrirliöi FH-inga, Ólafur Kristjánsson, eftir sigurleikinn gegn Valsmönnum að Hlíöarenda í gær- kvöld, 1-2. Þetta var baráttuleikur en engu að síður áttu FH-ingar sigurinn skilið þegar litið er á leikinn í heild sinni. Skiljanlega var Kristinn Bjömsson, þjálfari Vais, ekki ánægður með sína menn þegar DV ræddi við hann í leiks- lok. „Það má aldrei sofna á verðinum. Lið sem ætlar sér að vera í toppbarátt- unni má ekki við svona sveiflum. Við fengum klaufaleg og ódýr mörk á okkur og liðið komst ekki almennilega í gang,“ sagði Kristinn. Leikurinn fór rólega af stað og mikið var um háloftaspyrnur fram og aftur og upp og niður. Eftir stundarfjórðung dró til tíðinda þegar Ólafur Kristjánsson tók aukaspyrnu fyrir FH, Auðunn Helgason reyndi að skalla boltann en fékk liann strax aftur og skilaði honum í netið af stuttu færi. Staðan orðin 0-1 og fyrsta mark Auðuns í 1. deild staðreynd. Eftir markið jafnaðist leikurinn en FH-ingar voru heldur beittari. Það var síðan á síðustu sekúndum fyrri hálfleiks að Bjami Sigurðsson, markmaður Vals, hélt ekki lausu skoti frá Andra Mar- teinssyni og boltinn lak undir hann í markið. Einkar klaufalegt mark en mark var það. FH-ingar misstu Hörð Magnússon og Andra Marteinsson út af meidda með stuttu miilibUi í seinni hálfleik. Vals- menn komust aðeins meira inn í leikinn en FH-ingar fengu nokkrar beittar skyndisóknir sem þeir nýttu sér ekki. Á 76. mínútu minnkaði Antony Karl Greg- ory muninn fyrir Valsmenn með marki af stuttu færi eftir góðan undirbúning Jóns S. Helgasonar. Þrátt fyrir þyngri sóknir í lokin hjá Val tókst liðinu ekki Jaf ntef li í rokleik / •n: Ómar Garðarasan, DV, Eyjum: Eyjamenn urðu aö sætta sig við 1-1 jafntefli gegn Þórsurum í Getrauna- deildinm í Eyjum í gærkvöldi. Bæði mörkin vora gerð í fyrri hálfieik en í ' dðari hálfleik misnotuðu Eyjamenn vítapsyrau og geta nagað sig í handar- bökin fyrir að hafa ekki fengiö þrjú stig úr leiknum. Leikurinn einkenndist af austanroki sem stóð eftir veiiinum endilöngum en þrátt fyrir rokið sáust góðir kaflar til beggja iiða. Norðanmenn iéku undan vindi i fyrri iiálfleik og skoruðu strax á 4. minútu. Ámi Þór Árnason fékk sendingu frá vinstri og hann skaut umsvifalaust i markhomið hjá Friðrik Friðrikssyni, i marki ÍBV. Þrátt fyrir að Þórsarar hafi sótt meira með vind- inum fengu heimamenn liættulegar skyndisóknir og eftir eina slika jöfn- uöu þeir á 27. mínútu, Bjami Svein- björnsson rak þá endahnútinn á góða sókn og skoraði gegn sínum gömiu fé- lögum. í síðari Mlfleik reyndu heima- menn aö nýta sér vindinn og 12 mínút- um fyrír leikslok virtist þaö ætla aö takast þegar þeir fengu yítaspymú þegar brotiö var á Bjama í teignum en Lárus Sigurðsson varði frábærlega vítaspyrnuna sem Bjarni tók sjálfur. „Þórsarar eru erfiðir andstæðingar og það vissum við fyrír og það er vissu- iega alltaf erfitt að leika við þessar aðstæður," sagði Jóhannes Atiason, þjálfari Eyjamanna, og var ekki alveg : sáttur við úrslitin.;;; ;;:.;. . „Það var út i hött að dæma víti en dómarinn þorði ekki annað út af áhorf- endum. Þetta er í annað skipti sem við fáum svona dómaraævintýri,“ sagði Sigurður Lárusson, þjálfari Þórs, og var ekki ánægður með Ara Þórðarson, dómara leiksins. (meba Víkingar ætla að styrkja lið sitt: Víkingar vilja fá Þjóðverja - Snævar Hreinsson mun leika með liðinu 1. deildar liö Víkings í knattspyrnu hefur ekki lagt árar í bát þrátt fyrir slæma stöðu í Getraunadeildinni eft- ir fyrstu sex umferðir mótsins. Forr-’ áðamenn liösins hafa verið að leita að leikmönnum til að styrkja hðið í þeirri hörðu baráttu sem framundan er hjá hðinu. Miklar líkur em á að Víkingar fái eriendan leikmann til liðs við sig á næstunni og þá hefur Snævar Hreinsson ákveðið að ganga yfir í Víking frá Val. „Við gemm okkur vissulega grein fyrir því að staðan er oröin mjög erf- ið en alls ekki vonlaus. Með tveimur sigurleikjum emm við komnir í bar- áttuna og takmarkið er að ná 7 stig- um út úr þeim þremur leikjum sem eftir em í fyrri umferð. Ég er sann- færður um að við getum krækt okkur í 12-14 stig út úr síðari umferðinni og þau stig ásamt þeim sem við von- andi fáum út úr fyrri umferðinni eiga' að nægja til að halda 1. deildar sæt- inu,“ sagði Láms Guðmundsson, þjálfari Víkings, við DV í gær. Erlendi leikmaðurinn, sem Víking- ar eru með í sigtinu, er Þjóðveiji sem leikur í stöðu framlinumanns og hef- ur verið að leika í þýsku 1. og 2. deild- inni. „Ég þekkti til þessa leikmanns og hann hefur mikinn áhuga á að koma. Ef aiit gengur upp þá vonumst við eftir því að hann geti leikið með okk- ur í næsta leik. Þá bind ég miklar vonir við Snævar Hreinsson. Hann er sterkur leikmaður og hann verður löglegur í næsta leik sem er gegn Fylki,“ sagði Lárus ennfremur. -GH EM í körfuknattleik: Vonlítiðgegn Úkraínumönnum - íslendingar töpuðu, 70-99 íslendingar töpuöu fyrir Úkraínu- mönnum, 70-99, í Evrópukeppninni í körfuknattleik í Austurríki í gær- kvöldi. íslendingar léku vel lengst af og héldu í við geysisterka Úkraínu- menn, sem em með besta lið keppn- innar. íslendingar höfðu yflr undir lok fyrri háifleiks en staðan í leikhléi var 42-50 fyrir Úkraínu. íslendingar léku sterkan vamarleik framan af síðari hálfleik og héldu áfram að halda í við Úkraníumenn en þegar leið á leikinn tóku Úkraínumenn leikinn í sínar hendur og juku mun- inn undir lokin. Nökkvi Már Jónsson var bestur í íslenska hðinu og þeir Guðmundur Bragason og Magnús Matthíasson stóðu vel fyrir sínu. Stig íslands: Guðmundur 15, Magn- ús 11, Nökkvi 10, Teitur 9, Herbert 7, Jón Amar 6, Guðjón 5, Jón Kr. 5 og Falur 2. íslendingar mæta Hollendingum í dag, Litháum á morgun og Skotum á sunnudag. Með sigri í þessu leikjum komastíslendingaráframiEM. -RR að jafna. FH-ingar sýndu meiri baráttuvilja í leiknum og uppskám samkvæmt því. Bestir vom Ólafur Kristjánsson, Þórhallur Víkingsson, Stefán Arnar- son og Andri meðan hans naut við. Valsliðið átti í heild sinni slakan dag. Þeirra skástir vom Steinar Adolfsson og Jón S. Helgason. Miðjan komst aldrei í gang en sóknin hresst- ist aðeins við innákomu Antony Karls en hann hefur verið betri. -bjb - fjórir leikir á dagskrá 12. deild í kvöld lýkur 6. umferð Get- raunadeiidarinnar í knattspymu þegar Fyikir mætir toppliði Skaga- manna í Árbæ. Fjórir leikir verða á dagskrá í 2. deild en þá mætast Breiöablik-Tindastóll, Stjarnan- BÍ, Grindavík-ÍR og KA-Þróttur, N. Fjórir leikir eru einnig á dag- skrá í 3. deild en þar mætast Sel- foss Skallagi-Ímur. Haukar Reyn- ir, S„ Dalvík-HK, Völsungur- Magni og þá fara fram sex 4. deíld. leikir í -RR SPARISJÓDUR VÉLSIJÓRA Gctru unndcildin STÓRLEIKUR 6. UMFERÐAR FYLKISVÖLLUR NÖATtTN I KVÖLD KL. 20.00 FORSALA AÐGÖNGUMIÐA í NÓATÚNI OG BLÁSTEINI 3. námskeið í knattspyrnuskóla Fylkis hefst mánudaginn 25. júní. Skráning í síma 676467. Skalli Hraunbæ Aðalfundur handknattleiks- deiidar Víkings verður haldirm á mánudaginn í Víkinni og liefst klukkan 20.30. mótiðíKópavogi Hið vinsæla Gull- og silfurmót í kvennaknattspymu verður haldið í níunda sinn í Kópavogi dagana 16.-18. júlí. Öll félög sem stunda kvennaknattspymu á landinu hafa fengiö bréf varöandi þetta mót en lokafrestur til aö skila inn þátttökutilkynningum er 30. júni. Keppt er í öllum yngri flokkum kvenna, allt frá 2. flokki niður i 5. flokk. Iið utan af landi geta fengið gistingu í Hjallaskóla og verða rútuferðir á milli skól- ans og keppnisvæðisins, Þátttak- endur á mótinu fá frítt í Sundiaug Kópavogs á meðan á mótinu stendur. Skráiúngognánari upp- lýsingar fást hjá Breiöabliki í síma 641990. -GH Nýrþjálfari hjáRúmenum Anghel lordanescu hefur verið ráöinn þjálfari rúmenska lands- liðsins í knattspyrnu í staö Corn- el Dinu sem rekinn var i kjölfariö á ósigri Rúmena, 5-2, gegn Tékk- um í undankeppni HM fyrr í þess- um mánuði. Iordanescu er fyrr- um leikmaður og síðar þjálfari Steua Bukarest. Hann lék á árum áður 64 leiki fyrir Rúmeniu og skoraði 24 mörk. Hann hefur undanfarin ár þjálfað lið Famag- usta á Kýpur en þar á undan þjálfaði hann lið Steua frá 1986 01990. -GH Kýpurbúa Kevin Keegan, framkvæmda- stóri enska knattspymuliðsins Newcastle, sem tryggði sér sæti í úrvalsdeildinm á næsta keppnis- tímabili, tók upp budduna í gær og festi kaup á Nicky Pappavass- ilou fyrir 125 þúsund pund. Pappavassiiou er frá Kýpur og er landsliösmaður. -GH Línuskautar íLaugardal Alla laugardaga klukkan 13.30 í sumar veröur línuskautakeppni á skautasvellinu í Laugardal. Keppt verður í samhiiðabraut með þrautum og í hraða. Þá verð- ur spilað „streetbokkí" þar sem i hverju liði eru fjórir útispilarar og eirai markvörðui’. Norðurlandamót Norðurlandameistaramót í fijáisum iþróttum öldunga fer fram í Huddinge í Syíþjóð 2.-4. júli. Þátttakendur fi-á íslandi em: í 35 ára flokki, Ámý Heiðarsdótt- ir sem keppir í langstökki og þrí- stökki, Lilja Guðmundsdóttir sem keppir í 800 og 1500 m hlaupi, Sigurður T. Sigurðsson i stangar- stökki og Sigurður P. Sigmunds- son í 5000 m og 10.000 m hlaupi. í 40 ára flokki keppir Eiías Sveinsson í kastgreinum og Kristján Gissurarson í stangar- stökki og 100 m hlaupi. i 45 ára flokki keppir Traust Sveinbjörns- son í 400 rn hlaupi og 400 m grindahlaupi. í 50 ára flokki Helgi Hólm í 400 m hlaupi. í 55 ára flokki Björn Jóhannsson og Jón H. Magnússon í sleggjukasti og Guðmundur Ilallgrímsson í 100 m, 200 m og 400 m hlaupum. í 65 ára flokki Þórður B. Sigurðsson í sleggjukasti og í 75 ára flokki Jóhann Jónsson í langstökki og þristökki, >GH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.