Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1993, Blaðsíða 25
FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 1993
33
Sumaropnun Byggða- og
lista-
safns Árnesinga
á Selfossi hófst meö heföbundnum hætti
17. júni og er opið daglega kl. 14-17 til 31.
ágúst. Byggða- og listasafn Ámesinga er
þriskipt safn. í byggðahúsinu má sjá
safngripi sem tengjast sögu héraðsins,
þar á meðal muni úr Húsinu á Eyrar-
bakka, en ráðgert er að þar verði Byggða-
saih Amesinga opnað að ári. Dýrasafnið
vekur alltaf mikla athygli yngstu kyn-
slóðaiinnar. Þar má m.a. sjá uppstoppað-
an hvitabjöm sem.skotinn var í Fljótavík
á Ströndum fyrir 19 árum. í Listasafni
Ámesinga má m.a. sjá málverkagjöf
Bjamveigar Bjamadóttur og sona henn-
ar, Bjama Markúsar og Lofts Jóhannes-
sonar, til Ámesinga. Þar em sýnd mál-
verk eftir marga þekkta íslenska listmál-
ara þessarar aldar. Safnið er til húsa að
Tryggvagötu 23 á Selfossi. í sumar verður
opið daglega kl. 14-17 nema lokað er um
verslunarmannahelgina. Hægt er að
skoða safnið á öðrum tímum ef haft er
samband við safnvörð í síma safnsins
98-22703.
Karnival í Vík
í Mýrdal
Laugardagskvöldið 26. júní mun hljóm-
sveitin Karnival leika á árlegum dansleik
hestamannafélagsins Sindra í félags-
heimilinu Leikskálum í Vík í Mýrdal.
Hjómsveitina skipa: Sigurður Dagbjarts-
son, gitar og söngur, Jökull ÚÍfsson
trommur, Guðný Snoma söngur, Skarp-
héðinn Hjartarson, hljómborð og söngur,
og Gunnar Karlsson bassi.
Tórúeikar
Listahátíð í Hafnarfirði
Blústónleikar í Straumi í kvöld, föstu-
dagskvöld kl. 20.30. Tregasveitin leikur.
Pé-leikhópurinn sýnir leikritið Fiskar á
þurrn landi í Bæjarbíói kl. 20.30 í kvöld.
Tríó Bjöms Thoroddsen leikur í klúbbi
Listahátíðar í Hafnarborg fóstudags- og
laugardagskvöld.
Tilkynningar
Ljósmyndamaraþon
Félag íslenskra áhugaíjósmyndara mun
standa fyrir 24. klst. ljósmyndamaraþoni
dagana 26. og 27. júní. Maraþonið hefst á
hádegi á laugardag og lýkur á hádegi
sunnudag. Öllum er heimil þátttaka og
hægt er að skrá sig í maraþonið í húsa-
kynnum Félags íslenskra áhugaljós-
myndara að Síðumúla 33, bakhúsi.
Skráning er í dag kl. 12-23 og á laugardag
kl. 10-11.30. Mjög vegleg verðlaun em í
boði. Allar nánari upplýsingar em gefnar
þjá Félagi íslenskra áhugaljósmyndara
að Síðumúla 33, bakhúsi (á skráningar-
tímum).
Athugasemd
vegna Tinda
Vegna fréttar DV í gær um með-
ferðarheimilið á Tindum vill Einar
Gylfi Jónsson, forstjóri Unglinga-
heimilis ríkisins, koma því á fram-
færi að unglingar, sem vistist á Tind-
um, séu unglingar í vímuefnavanda
en ekki eingöngu afbrotaunglingar
eins og skilja megi af fyrirsögn frétt-
arinnar og innihaldi hennar.
-bjb
Leiðrétting
í frétt DV á þriðjudag um gáma-
ketthnga var haft eftir Helgu ívars-
dóttur að síamskettir væru „yfirleitt
grimmir og fordómafuliir". Helga
segist ekki hafa sagt þetta og segir
þá „biíöa og umburðarlynda".
Opin vinnustofa
í tengslum við Óháða hstahátíð er opiö
hús á vinnustofunni Bræðraborgarstíg
7. Þar starfa Ingibjörg Hauksdóttir, Krist-
ín Blöndal, Sveinbjörg Hallgrímsdóttir,
Þóra Björk Schram og Sigríður Valdi-
marsdóttir. Vinnustofan verður opin í
dag, fóstudag, laugardag og sunnudag kl.
14-18.
Félag eldri borgara
í Reykjavík
Göngu-Hrólfar fara frá Risinu, Hverfis-
götu 105, kl. 10 á laugardagsmorgun.
Jass á Sólon
íslandus ,,
í kvöld, fóstudgskvöld, mun tríó skipað
Jenný Gunnarsdóttur söngkonu, Amold
Ludvig bassaleikara og Sunnu Gunn-
laugsdóttur pianísta spila á Sólon ísland-
us. Jenný hefur stundað nám við hinn
kunna skóla Berklee frá áramótum og
Sunna og Amold fara utan til Bandai'íkj-
anna og Kanada í nám í haust. Þau munu
leika létta jassstandarda og er aðgangur
ókeypis.
Bryggjuhátíð á Reyðarfirði
Bryggjuhátíð ’93 verður á Reyðarfirði 26.
júní. Fjölskylduskemmtun hefst kl. 14.
Málþing á Þingvöllum
Undanfarin fjögur ár hefur verið haldið
málþing á Þingvöllum við Öxará sunnu-
daginn í tíundu viku sumars en þá hófst
reglulegt þinghald til foma. Að þessu
sinni ber þetta upp á 27. júrú. Málþing
þetta fjallar um landnám íslands og
landnámsmenn. Hvaðan þeir komu og
hverrar trúar þeir vom, hvemig land var
numið, upphaf þjóðveldisins og endalok,
kristnitakan, þinghaldið og þannig mætti
lengi telja. Þingið verður haldiö í aðal-
salnum á Hótel Valhöll kl. 14 sunnudag-
inn 27. júní.
Græni bíllinn hans Garðars
á Súðavík
Hljómsveitin Græni bíllinn hans Garðars
Ieikur fyrir dansi í Félagsheimilinu í
Súðavík á laugardgskvöldið nk. Meðlimir
hljómsveitarinnar em: Bjami Þór, gítar
og söngur, Matthías Ágústsson bassi,
Viðar Ástvaldsson trommur og Þórarinn
Hannesson söngur. Axel Cortes stjómar
hljóðinu. Dansleikurinn hefst kl. 23 og
stendur fram eftir nóttu. Miðaverð kr.
1500.
Pelican í Vestmannaeyjum
Laugardaginn 26. júní mun hljómsveitin
Pelican spila í Vestmannaeyjum á
skemmtistaðnum „Við félagarnir".
Útskriftarball nemenda
Háskóla íslands
Útskriftarball fyrir nemendur í Háskóla
íslands verður í Súlnasal Hótel Sögu á
laugardagskvöld. Hljómsveit leikur fyrir
dansi. Forsala aðgöngumiða er í dag kl.
14-18 og frá hádegi á laugardag á Mímis-
bar Hótel Sögu. Miðaverð kr. 700.
Hjólhestahald undir jökli
íslenski tjallahjólaklúbburinn og Ferða-
félag íslands efna til léttrar hjólreiðaferð-
ar umhverfis Snæfellsjökul 25.-27. júní.
Lagt verður af stað kl. 20 í kvöld með
rútu frá BSÍ og haldiö að Búðum þar sem
slegiö verður upp tjöldum. Á laugardag
og sunnudag verður hjólað á milli athygl-
isverðra staða og þeir skoðaðir. Fók þarf
að hafa með sér viðlegubúnað en rútan
flytur allan farangur á meðan ferð stend-
ur.
Dagur landnámsmannsins
Ólafs Bekks
Opiö golfmót fyrir aUa verður í Skeggja-
brekku laugardag og sunnudag kl.
9.30- 15. Golfvöllurinn er opinn eftir kl.
15. Frí veiði á veiðistæði veiðifélagsins á
laugardag. Sjóstangaveiði og skoðunar-
ferð að Hvanndalabjargi með m/b Alberti
Finni. Farið verður frá Vesturhöfn kl. 10,
12,14 og 16. Gróðursetning Ólafsfirðinga-
félagsins við Hombrekku kl. 11. Skotfé-
lagið býður fólki að koma og skoða svæði
félagsins við Múlagöng kl. 13-15.
Útimarkaður verður við Tjamarborg kl.
13.30- 16. Firmakeppni hestamannafé-
lagsins á skeiðvellinum kl. 14. Bein lýsing
á leik Leifturs og Þróttar, R„ á Hótelinu
kl. 14. Náttúmgripasafnið opið kl. 14-17.
Sundlaugin opin kl. 9-16. Dýragarðurinn
við Tjömina opinn allan sólarhringinn.
Grillað verður við Tjarnarborg kl. 17 og
dansleikur verður í Tjamarborg kl.
23-03.
Félag eldri borgara
Kópavogi
Félagsvist og dans að Auðbrekku 25 í
kvöld, fóstudag, kl. 20.30. ÞK tríó og Hjör-
dis leika fyrir dansi. Húsið öllum opið.
Laugardagsganga Hana nú
Vikuleg laugardagsganga Hana nú í
Kópavogi verður á morgun. Lagt af stað
frá Fannborg 8 (Gjábakka) kl. 10. Nýlagað
molakaffi.
Ný handbók um framkvæmd
almannatrygginga
Komin er út upplýsingahandbók Trygg-
ingastofnunar ríkisins. Tilgangur hennar
er að auðvelda starfsmönnum Trygg-
ingastofnunar og umboða hennar dagleg
störf. Einnig er hún ætluð starfsmönnum
sjúkrahúsa, dvalarstofnana, félagsmála-
stofnana og öörum sem ætla má að þurfi
að veita almenningi upplýsingar um al-
mannatryggingar. Handbókin skiptist í
sjö kafla. Fyrsti kaflinn er um lífeyris-
tryggingar, annar um slysatryggingar,
fimmti rnn samninga við erlend ríki,
sjötti inniheldur tölulegar upplýsingar
og sá sjöundi fjallar um aðra málaflokka
sem tengjast Tryggingastofnun svo sem
atvinnuleysistryggingar. Bókina ber að
nota samhliða almannatryggingalögun-
um. Hver kafli byggist á lögum, reglu-
geröum, samþykktum og vinnureglum
sem tengjast hverjum málaflokki.
Hjónaband
Þann 22. mai voru gefin saman í hjóna-
band í Laugameskirkju af sr. Jóni Dalbú
Hrjóbjartssyni Stefanía Kjartansdóttir
og Björn Róbert Jensson. Heimili
þeirra er á Akureyri. -
Ljósm. Jóhannes Long.
Þann 17. apríl voru gefin saman í hjóna-
band í Lágafellskirkju af séra Jóni Þor-
steinssyni Guðrún Bjarnadóttir og
Loftur Loftsson. Heimili þeirra er að
Veghúsum 7, Reykjavík.
Ljósm. Rut.
Þann 1. maí voru gefin saman í hjóna-
band í Þingvallakirkju af dr. Jóni Hnefli
Aðalsteinssyni Þóra Þórsdóttir og
Paul Nicholas Garrad. Þau eru búsett
í Englandi.
Ljósm. Rut.
Þann 15. maí voru gefin saman í hjóna-
band í Garðakirkju af sr. Hirti Magna
Jóhannessyni Þórey Iris Halldórsdótt-
ir og Jakob Már Harðarson. Heimili
þeirra er að Hjallavegi 46, Reykjavík.
Ljósm. Jóhannes Long.
Þann 12. apríl voru gefin saman í hjóna-
band í Fella- og Hólakirkju af sr. Guð-
mundi Karh Ágústssyni Ása Bjarna-
dóttir og Árni Valur Árnason. Heim-
ili þeirra er að Baughúsum 8, Reykjavik.
Ljósm. Jóhannes Long.
Leikhús
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Sími 11200
RÍTA GENGUR
MENNTAVEGINN
eftir Willy Russel.
Fös. 25/6 kl. 20.30-Eskifirði.
Lau. 26/6 kl. 20.30 -Fáskrúðsfirði.
Sun. 27/6 kl. 20.30 - Hqfn í Hornafirði.
HAFIÐ
eftir Ólaf Hauk Símonarson.
Lau. 26/6 kl. 20.30 - Bolungarvik.
Sun. 27/6 kl. 20.30 - Hnifsdal.
Mán. 28/6 kl. 20.30 - Patreksfirðl.
Þri. 29/6 kl. 20.30 -Ólafsvík.
KÆRA JELENA
eftir LJudmilu Razumovskaju.
Fös. 25/6 kl. 21.00 - Búðardal.
Lau. 26/6 kl. 21.00 - Stykkishólmi.
Sun. 27/6 kl. 21.00- Borgarnesi.
Mán. 28/6 kl. 21.00 - Akranesl.
Miðasala ferfram samdægurs á sýnlng-
arstöðum. Einnig er tekið á mótl síma-
pöntunum I miðasölu Þjóðlelkhússlnsfrá
kl. 10-17 vlrka daga i síma 11200.
Tapaðfundið
Ullarslæða tapaðist
Tapast hefur lítil ullarslæða. Aðallitur
er dumbrauður með kögri. Slæðan tapað-
ist í kvennahlaupinu 19. júní á leiðinni
frá pósthúsinu að túninu við Hafnar-
fjarðarveg í grennd við Faxatún.
Finnandi vinsamlegast hringi í síma
32877 eða 10539. Fundarlaun.
Safnaðarstarf
Laugarneskirkja: Mömmumorgunn kl.
10.00-12.00.
AWWWWWWWWV
SMÁAUGLÝSINGADEILD
OPIÐ:
Virkadaga frákl. 9-22,
laugardaga frákl. 9-16,
sunnudaga frákl. 18-22.
ATH.! Smáauglýsing í helgar-
blað DV verður að berast
okkur fyrir kl. 17 á föstudag.
Þverholti 11-105 Reykjavík
Sími 91-632700
Bréfasími 91 -632727
Græni síminn: 99-6272
LEIKHÓPURINN-
FISKAR A ÞURRU LANDI
Nýr íslenskur ólíkindagamanleikur eftir Árna Ibsen.
Leikstjóri: Andrés Sigurvinsson. Leikendur: Guðrún Ásmundsd.,
Ólafur Guðmundss., Ari Matthíass. og Aldís Baldvinsd.
Olafu
ííiSt?
4.-30. JONI
Sýningar eru í Bæjarbíói, Hafnarfirði.
25/6,26/6 og 28/6 kl. 20:30. Aðeins þessar sýningar!
Miðasala: Myndlistarskólin:? í Hafnarf., Hafnarborg og verslanlr
Eymundsson í Borgarkringlunni og Austurstræti.
Miðasala og pantanir í sini'.im 654986 og 650190.
Allt í veiðiferðina
ÞORISVATN OG ODDASTAÐAVATN
__________GÓÐ VEIPI________
LAUGAVEGI 178, SÍMAR 16770 - 814455, FAX 813751