Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1993, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1993, Blaðsíða 27
FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 1993 35 dv Fjölmidlar Mannrétt- mdiþel- dokkra Þættir Ríkissjónvarpsins, „Upp, upp min sái“ sem sýndir eru á flmmtudagskvöldum eru eitt- hvert besta sjónvarpsefni sem komiö hefur frá Bandaríkjunum. Fylgst er með lifi, starfi og bar- áttu saksóknarans Forrests Bed- ford og fólks sem tengist honum, aðallega af þeldökkum uppruna. Meginþema þáttanna er barátta þeirra fyrir mannréttindum og viöurkenningu í Suöurríkjum Bandaríkjanna. Framhaldsþættir frá Banda- ríkjunum vilja oft vera ótrúlega einhæfir meö ódýrri úrvinnslu, en áöumefndir þættir eru kær- komin undantekning frá þeirri reglu. Þeir verka mjög trúverðug- ir á áhorfandann og vekja hjá honum sterka samúð yfir örlög- um þeldökkra og þrautagöngu þeirra í þessu „mesta lýöræðis- þjóðfélagi“ veraldar. í gær fóru fram þrír leikir í Getraunadeildinni í knattspymu. Allír voru þeir spennandi og buðu sumir upp á óvænt úrslit eins og hefur verið nánast regla í hverri umferð hingað til. Rás 2 og Bylgjan hafa jafnan fylgst með leikjunum í beinni útsendingu og er það þjónusta sem hlustendur kunna vel aö meta. Þannig er hægt aö fylgjast meö leikjunum heima í stofu eða jafnvel taka meö sér útvarpstæki á völlinn til aö hafa yfirsýn yfir alla leiki kvölds- ins. Aðeins einn galli er á þessu framtaki útvarpsstöövanna. Lýs- endumir eru misfrekir að lýsa og oft viija einstakir lýsendur taka bróöurpartinn af lýsingunni oglítíð heyrist af öðrum leikjum. ísak örn Sigurðsson Andlát Þór Árnason bakarameistari lést í sjúkrcihúsi í Omaha, Bandaríkjun- um, 22. júní. Jarðarfarir Finnborg Örnólfsdóttir, Sólheimum 25, Reykjavík, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni mánudaginn 28. júní kl. 13.30. Jóna Jónsdóttir, áöur til heimilis á Skúiagötu 60, Reykjavík, lést á Hrafnistu, Reykjavík 21. júní. Jarð- arförin fer fram 29. júní kl. 15 frá Nýju kapellunni í Fossvogi. Óskar Júlíus Guðjónsson lést á Sól- vangi í Hafnarfirði 12. júbí. Útforin hefur farið fram. Guðjón Rúnarsson, Súlukletti 6, Borgamesi, verður jarðsunginn frá Borgameskirkju laugardaginn 26. júní kl. 14. Bálför Ólafs Tryggvasonar læknis, Grandavegi 47, verður gerö frá Dóm- kirkjunni mánudaginn 28. júní kl. 15. Lovisa Magnúsdóttir, Aðalstræti 60, Patreksfirði, sem andaðist þann 18. júní, verður jarðsungin frá Patreks- íjarðarkirkju laugardaginn 26. júní kl. 14. BLINDRAFÉLAGIÐ yU^EHDAR gagnvart hvort öðru. Lalli og Lína Slökkvilið-lögregla Reykjavík: Lögreglan sími 11166 og 0112, slökkvilið og sjúkrabifreið sími 11100. Seltjarnarnes: Lögreglan s. 611166, slökkvilið og sjúkrabifreið s.11100. Kópavogur: Lögreglan sími 41200, slökkvilið og sjúkrabifreið sími 11100. Hafnarfjörður: Lögreglan sími 51166, slökkvilið og sjúkrabifreið sími 51100. Keflavík: Lögreglan s. 15500, slökkvilið s. 12222 og sjúkrabifreið s. 12221. Vestmannaeyjar: Lögreglan s. 11666, slökkvilið 12222, sjúkrahúsið 11955. Akureyri: Lögreglan s. 23222, 23223 og 23224, slökkvilið og sjúkrabifreið s. 22222. ísafjörður: Slökkvilið s. 3300, brunas. og sjúkrabifreið 3333, lögreglan 4222. Apótek Nætur- og helgidagaþjónusta apótekanna í Reykjavík 25. júní til 1. júlí 1993, að báðum dögum meðtöldum, verðm- í Borgarapóteki, Álftamýri 1-5, sími 681251. Auk þess verður varsla í Reykja- víkurapóteki, Austurstræti 16, sími 11760, kl. 18 til 22 virka daga og kl. 9 til 22 á laugardag. Upplýsingar um læknaþjón- ustu eru gefnar í síma 18888. Mosfellsapótek: Opið virka daga frá kl. 9-18.30, laugardaga kl. 9-12. Apótek Garðabæjar: Opiö mánudaga- föstudaga kl. 9-18.30 og laugardaga kl. 11-14. Sími 651321. Apótek Kópavogs: Opið virka daga frá kl. 9-19, laugardaga kl. 9-12. Hafnaríjörður: Norðurbæjarapótek opið mánud. til fimmtud. kl. 9-18.30, Hafnarfjarðarapótek kl. 9-19. Bæði hafa opið föstud. kl. 9-19 og laugard. kl. 10-14 og til skiptis helgidaga kl. 10-14. Upplýs- ingar í símsvara 51600 og 53966. Apótek Keflavikur: Opið frá kl. 9-19 virka daga, aðra daga frá ld. 10-12 f.h. Nesapótek, Seltjarnarnesi: Opið virka daga kl. 9-19 nema laugardaga kl. 10-12. Apótek Vestmannaeyja: Opið virka daga kl. 9-12.30 og 14-18. Lokað laugar- daga og sunnudaga. Akureyrarapótek og Stjörnuapótek, Akureyri: Á kvöldin er opið í því apó- teki sem sér um vörslun til kl. 19. Á heigidögum er opið kl. 11-12 og 20-21. Á öðrum tímum er lyfjafræðingur á bak- vakt. Upplýsingar í síma 22445. Heilsugæsla Slysavarðstofan: Sími 696600. Sjúkrabifreið: Reykjavík, Kópavogur og Seltjamames, sími 11000, Hafnarfjörður, sími 51100, Keflavík, simi 12222, Vestmannaeyjar, sími 11955, Akureyri, sími 22222. Krabbamein - Upplýsingar fást hjá fé- lagsmálafulltrúa á miðvikudögum og fimmtudögum kl. 11-12 í síma 621414 Læknar Læknavakt fyrir Reykjavík, Seltjarn- arnes og Kópavog er í Heilsuvemdar- stöð Reykjavíkur alla virka daga frá kl. 17 til 08, á laugardögum og helgidögum allan sólarhringinn. Vitjanabeiðnir, símaráðleggingar og tímapantanir í sími 21230. Upplýsingar um lækna og lyfjaþjónustu í símsvara 18888. Borgarspítalinn: Vakt frá kl. 8-17 alla virka daga fyrir fólk sem ekki hefur heimilislækni eða nær ekki til hans (s. 696600) en slysa- og sjúkravakt (slysa- deild) sinnir slösuðum og skyndiveik- um allan sólarhringinn (s. 696600). Læknavakt Þorfinnsgötu 14. Skyndi- móttaka-Axlamóttaka. Opin 13-19 virka daga. Timapantanir s. 620064. Seltjarnarnes: Heilsugæslustöðin er opin virka daga kl. 8-17 og 20-21, laugar- daga kl. 10-11. Sími 612070. Hafnarfjörður, Garðabær, Álftanes: Neyðarvakt lækna frá kl. 17-8 næsta morgun og um helgar, sími 51100. Keflavík: Neyðarvakt lækna frá kl. 17-8 næsta morgun og um helgar. Vakthaf- andi læknir er í síma 14000 (sími Heilsu- gæslustöðvarinnar). Vestmannaeyjar: Neyðarvakt lækna í síma 11966. Akureyri: Dagvakt frá kl. 8-17 á Heilsu- gæslustöðinni í síma 22311. Nætur- og helgidagavarsla frá kl. 17-8, sími (far- sími) vakthafandi læknis er 985-23221. Upplýsingar hjá lögreglunni í síma 23222, slökkviliðinu í síma 22222 og Akureyrarapóteki í síma 22445. Heirnsóknartírai Landakotsspítali: Alla daga frá kl. 15-16 og 18.30-19. Bamadeild kl. 14-18, aðrir en foreldar kl. 16-17 daglega. Gjör- gæsludeild eftir samkomulagi. Borgarspítalinn: Mánud.-fostud. kl. 18.30-19.30. Laugard.-sunnud. kl. 15-18. Heilsuverndarstöðin: Kl. 15-16 og 18.30-19.30. Fæðingardeild Landspitalans: Kl. 15-16 og 19.30-20.00. Sængurkvennadeild: Heimsóknartími frá kl. 15-16, feður kl. 19.30-20.30. Fæðingarheimili Reykjavíkur: kl. 15-16.30 Kleppsspítalinn: Kl. liLl6 og 18.30- 19.30. Flókadeild: Kl. 15.30-16.30. Grensásdeild: Kl. 16-19.30 virka daga og kl. 14-19.30 laugard. og sunnud. Hvítabandið: Frjáls heimsóknartími. Kópavogshælið: Eftir umtah og kl. 15-17 á helgum dögum. Sólvangur, Hafnarfirði: Mánud.-laug- ard. kl. 15-16 og 19.30-20. Sunnudaga og aðra helgidaga kl. 15-16.30. Landspítalinn: Alla virka daga kl. 15-16 og 19-19.30. Barnaspítali Hringsins: Kl. 15-16. Sjúkrahúsið Akureyri: Kl. 15.30-16 og 19-19.30. Sjúkrahúsið Vestmannaeyjum: Kl. 15-16 og 19-19.30. Sjúkrahús Akraness: Kl. 15.30-16 og 19-19.30. Hafnarbúðir: Kl. 14-17 og 19-20. Vífilsstaðaspitali: Kl. 15-16 og 19.30-20. Geðdeild Landspitalans Vífilsstaða- deild: Sunnudaga kl. 15.30-17. Söfnin Asmundarsafn við Sigtún. Opið dag- lega kl. 13-16. Ásgrímssafn, Bergstaðastræti 74: Op- iö daglega nema mánudaga kl. 13.30-16. Árhæjarsafn: Opiö í júní, júlí og ágúst. Upplýsingar í síma 84412. Borgarbókasafn Reykjavikur Aðalsafn, Þingholtsstræti 29a, s. 27155. Borgarbókasafniö í Gerðubergi 3-5, s. 79122. Bústaðasafn, Bústaðakirkju, s. 36270. Sólheimasafn, Sólheimum 27, s. 36814. Ofangreind söfn eru opin sem hér segir: mánud.-fimmtud. kl. 9-21, fóstud. kl. 9-19, laugard. kl. 13-16. Aðalsafn, lestrarsalur, s. 27029. Opið mánud.-laugard. kl. 13-19. Grandasafn, Grandavegi 47, s.27640. Opið mánud. kl. 11-19, þriðjud.-fóstud. Vísir fyrir 50 árum Föstudagur 25. júní: Óeirðir vaxa í Evrópu. Þjóðverjar hafa rænt 36.000 millj. dollara virði í hernumdu löndunum. Spakmæli Sannur umbótamaður er sá sem bætir sjálfan sig. R.Wendt. kl. 15-19. Seljasafn, Hólmaseli 4-6, s. 683320. Bókabílar, s. 36270. Viðkomustaðir viðs vegar um borgina. Sögustundir fyrir böm: Aðalsafn, þriöjud. kl. 14-15. Borgar- bókasafnið í Gerðubergi, fimmtud. kl. 14-15. Bústaðasafn, miðvikud. kl. 10-11. Sólheimar, miðvikud. kl. 11-12. Lokað á laugard. frá 1.5.-31.8. Kjarvalsstaðir: opið daglega kl. 11-18. Listasafn íslands, Fríkirkjuvegi 7: er opið daglega nema mánud. kl. 12-18. Listasafn. Einars Jónssonar er opið alla daga nema mánudaga kl. 13.30-16. Höggmyndagarðurinn er opinn alla daga kl. 11-16. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar á Laugarnesi er opið mánud.-fimmtud. kl. 20-22 og um helgar kl. 14-18. Kaffi- stofan opin á sama tíma. Náttúrugripasafnið við Hlemmtorg: Opið sunnud., þriðjud., fimmtud. og laugard. kl. 13.30-16. Norræna húsið við Hringbraut: Sýn- ingarsalir í kjallara: alla daga kl. 14-19. Bókasafn Norræna hússins: mánud. - laugardaga kl. 13-19. Sunnud. kl. 14-17. Sjóminjasafn íslands er opið alla daga nema mánudaga 14-18. J. Hinriksson, Maritime Museum, Sjó- og vélsmiðjuminjasafn, Súðarvogi 4, S. 814677. Opið kl. 13-17 þriðjud. -laugard. Þjóðminjasafn Islands. Opið þriðjud., fimmtud., laugard. og sunnud. kl. 12-17. Bilanir Rafmagn: Reykjavík, Kópavogur og Seltjamames, simi 686230. Akureyri, sími 11390. Keflavik, sími 15200. Hafnaríjörður, sími 652936. Vestmannaeyjar, sími 11321. Hitaveitubilanir: Reykjavik og Kópavogur, simi 27311, Seltjamames, sími 615766. Vatnsveitubilanir: Reykjavík sími 621180. Seltjamames, sími 27311. Kópavogur, sími 41580, eftir kl. 18 og- um helgar, sími 41575. Akureyri, sími 23206. Keflavík, sími 11552, eftir lokun 11555. Vestmannaeyjar, símar 11322. Hafnarfjörður, sími 53445. Símabilanir: í Reykjavík, Kópavogi, Seltjamamesi, Akureyri, Keflavík og Vestmannaeyjum tilkynnist í 05. Bilanavakt borgarstofnana, sími 27311: Svarar alla virka daga frá kl. 17 síðdegis til 8 árdegis og á helgidögum er svarað allan sólarhringinn. Tekið er við tilkynningum um bilanir á veitukerfum borgarinnar og í öðrum tilfellum, sem borgarbúar telja sig þurfa að fá aðstoð borgarstofnana. Tilkyimingar AA-samtökin. Eigir þú við áfengis- vandamál að stríða, þá er sími samtak- anna 16373, kl. 17-20 daglega. Leigjendasamtökin Hverfisgötu 8-10, Rvík., sími 23266. Líflínan, Kristileg símaþjónusta. Sími 91-683131. Stjömuspá Spáin giidir fyrir laugardaginn 26. júlí. Vatnsberinn (20. jan.-18. febr.): Eitthvað sem þú heyrir eykur sjálfstraust þitt. Gerðu samt ekki of mikið úr þessu því fljótt skipast veður í lofti. Dæmdu ekki hafir þú aðeins heyrt aðra hlið mála. Fiskarnir (19. febr.-20. mars.): Breytingar eru í vændum og ekki er víst að þú sért sáttur við þær allar. Þú þarft því að grípa til málamiðlana ef þú vilt ná viðun- andi árangri. Hrúturinn (21. mars-19. apríl): Þú færð tækifæri til að kynnast fólki betur og hegðun þess. Þú fagnar ekki öllu sem þú sérð en óþarft er þó að hafa orð á því opinberlega. Nautið (20. apríl-20. maí): Einhver lægð er í ástarmálunum í dag. Þú unir þér vel í hópi félaga þinna. Veittu þeim aðstoð sem eru hjálpar þurfi. Tvíburarnir (21. maí-21. júní): Þú hefur mesta unun af því óvænta. Farðu þó varlega ef þú ert á ferðalagi. Þú hittir fjölda fólks í dag en rólegt verður í kvöld. Krabbinn (22. júní-22. júli): Reyndu að halda sjálfstæði þínu og láttu það ekki á þig fá þótt þú lendir í minnihluta. Þú verður beðinn um aðstoð og það kann að hafa veruleg óþægindi í for með sér. Ljónið (23. júlí-22. ágúst): Valdamál ákveðins aðila verða til þess að þú verður að fara stutta ferð. Þú færð þó þá aðstoð sem þú þarft vegna þessa. Gættu þín á streitu. Meyjan (23. ágúst-22. sept.): Þú nærð betri árangri einn en í hóp. Þú ert svolítiö hvumpinn og lítur á saklausar spumingar sem átroðslu. Vogin (23. sept.-23. okt.): Fólk er reiðubúið að hlusta á sjónarmið þín og veita þá aðstoð sem þarf. Þú lýkur ákveðnum viðskiptum og átt í vændum rólegt og notalegt kvöld. Sporðdrekinn (24. okt.-21. nóv.): Taktu viðbrögöum annarra við hugmyndum þínum ekki illa. Reyndu að slaka á og skýra betur sjónarmið þín. Þá er líklegt að viðbrögð fólks breytist. Bogmaðurinn (22. nóv.-21. des.): Þú vonast eftir rólegum degi en ekki er vist aö þér verði að ósk þinni. Láttu ekki óvarlega athugasemd koma þér úr jafhvægi. Hún hefur ekki sama vægi og þú heldur. Steingeitin (22. des.-19. jan.): Hugsanlegt er að þú bregðist of skjótt við. Þú kannt að lofa upp í ermina þína í fljótræöi. Þú færð svo bágt fyrir þegar þú getur ekki staöið við loforðið. Ný stjörnuspá á hverjum degi. Hringdu! 39,9« ir. minúun

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.