Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1993, Page 32

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1993, Page 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri vjku greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. 632700 Frjálst,óháð dagblao FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 1993. Spenna í opnum flokki Mikil spenna ríkir í opnum flokki á Evrópumótinu í bridge og baráttan er hörö um þau íjögur sæti sem gefa rétt til þátttöku á HM í ágúst. Pólveij- ar og Danir hafa góöa stöðu þegar 4 umferðir eru eför af 31, en ísland, Noregur, Frakkland og Holland berj- ast hatrammlega um næstu tvö sæt- in. Staðan er nú þannig að Pólland er með 527,5 stig, Danmörk 500, ís- land 486, Noregur 484, Frakkland 479 og Holland 477. Landsliðið í opna flokknum tapaði 10-20 í fyrri leik gærdagsins fyrir Pólverjum en fékk síðan 18 stig fyrir yfirsetu. í dag eru spilaðir þrír leik- ir, fyrst leikur gegn Tékklandi, síðan Belgíu og svo gegn Noregi sem getur ráðið úrshtum um hvor þjóðin kemst áfram. Landslið íslands í kvennaflokki á frekar htla möguleika á að verða meðal flögurra efstu þjóða, það vermir nú 9. sæti með 301 stig, 28 stigum á eftir 4. sæti. í gær gerði hð- ið jafntefh, 15-15, við Grikki og vann nauman sigur, 16-14, gegn Finnlandi. í síðustu tveimur umferðum kvenna- flokks eru leikir gegn Mónakó og San Marínó. ÍS Svartur dagur yngri spilaranna Þrír kassar, sem innihalda 240 kg af skotfærum, fundust i olíuhöfninni í Helguvík í gær. Liklegt er að skotfærin séu komin frá Varnarliðinu og hafi verið varpað i höfnina. Á meðan annað er ekki Ijóst verður málið í höndum sýslumanns i Keflavík og tekur hann ákvörðun um framhald þess í dag. Kafari fór ofan í höfnina í Helguvík og fann kassana og telur hann fleiri slíka vera að finna þarna. Samkvæmt heimildum DV eru skotin ekki með öliu hættulaus og ættu þeir sem hafa einhver skot í sinni vörslu að koma þeim til yfirvalda. DV-mynd Ægir Már íslensku landshðin á Norður- landamóti yngri spila hafa heldur gefið eftir í síðustu umferð. Landshð skipað spilurum á aldrinum 20-25 ára átti slæman dag í leikjum gær- dagsins, í fyrri leiknum kom 10-20 tap gegn Norðmönnum og síðan stórtap, 3-25, gegn Finnum. ísland vermir nú 5. sæti með 82 stig, aðeins hð Færeyja hefur skorað færri stig. Lið Danmerkur er í 1. sæti með 131 stig. Landshð skipað spilurum undir 20 ára aldri stendur sig betur, er í 3. sæti af 5. í gær tapaði hðið naumlega gegn Svíum, 14-16, en vann síðan góðan sigur, 21-9, gegn Finnum. Norðurlandamótinu lýkur á morg- un, laugardag. -IS Mjög hvasst var í Vestmannaeyj- um í nótt og þurfti lögregla og björg- unarsveit að aðstoða tjaldbúa í Heij- ólfsdal að hemja tjöld sín. Mörg tjöld rifnuðu í veðurhamnum. Þátttak- endur í Pohamótinu gista í bænum og spha inni í dag. -pp Veðrið á morgun: Víða kaldi Suðaustlæg átt og víða kaldi. Skúrir sunnanlands og vestan en dálítil rigning norðan til frameft- ir morgni. Hiti verður á bhinu 6-15 stig, hlýjast noröanlands. Veðrið í dag er á bls. 36 I.WDSSAMBAND ÍSI . RAFVKRKTAKA TVOFALDUR1. vmningur LOKI Þær eru skrítnar djúpsprengj- urnarhjá Kananum! Báturstrandaði Selma HF 130, ehefu tonna bátur, strandaði í innsighngunni í Grinda- víkurhöfn í nótt. Báturinn náðist á flot hálftíma seinna og urðu skemmdir á kih og skrúfu hans. Hvöss sunnanátt var þegar óhappið varð og telur skipstjórinn, sem var einn í bátnum, sig hafa farið of hægt í innsighnguna og rekið of vestarlega írennunniinníhöfnina. -pp íslenskir aðalverktakar: Kaupa Eldeyjarbaða fyrir170milfj. „íslenskir aðalverktakar hafa gert thboð í togarann Eldeyjarboða GK í eigu Eldeyjar hf. Það kemur í ljós á hádegi í dag hvort tilboðinu verður tekið,“ segir Ragnar Hahdórsson, stjómarformaður íslenskra aðal- verktaka. Thboðið hljóðar upp á 170 mhljónir króna. Samkvæmt heimhd- um DV kaupir Stakksvík hf. Eldeyj- ar- Hjalta GK og mun útgerðarfyrir- tækiðrekabæðiskipin. -GHS Fjórir menn innan við tvltugt viðurkenndu við yflrheyrslur hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins hm- brot í nokkur fyrirtæki, meðal aim- ars í bílaleiguna Gullfoss, og að hafa stohð þaöan útvarpsbhtækj- um. Bhtækin og annaö þýfi seldu þeir i rússneskan togai’a sem lá við bryggju í Njarðvíkurhöfn og fengu þeir greitt fýrir með áfengi. Fengur úr nokkmm hmbrotanna kom í leitirnar eftir yfirheyrslur en sklp- ið var farið úr höfh þegar játning maimanna lá fyrir. „Það er tahð að talsvert af þýfi sé selt í rússnesk flskiskip. Ég veit náttúrlega ekki Qölda slikra th- vika. Það eru fleiri aðilar en við sem rannsaka svona mál en mér er sagt það af lögreglumönnum að margs konar þýfi sé selt í rússnesk skip fyrir áfengi. Þaö eru reyndar engin takmörk fyrir þvlhvað þess- ir menn kaupa. Það þurfa ekki endhega að vera stolnir murúr,“ segir Helgi Daníelsson, yfirlög- regluþjómi hjá Rannsóknarlög- reglu ríkisins, og bætir við að það séu náttúrlega ekki allir rússneskir sjómenn í þessu. Gissur Guðmundsson, rannsókn- arlögreglutnaðuri Haftmrfirði, tek- ur i sama streng og Helgi og segir að á þeim bænum hafi menn engar sannanir en þeir vifi af því að ung- menni í innbrotum selji rassnesk- um togarasjómönnum þýfi úr inn- brotum og fyrir þetta sé greitt meö áfengi og tóbaki. Meðal þess sem sjómennimir kaupi séu hljóm- flutningstæki, myndbandstæki, reiöhjól og margt annað sero stohð sé í innbrotum. Nýlega fundu færeyskir tollverð- ir eftir ítarlega leit 78 flöskur af vodka og 35.200 sigarettur í rúss-- neskum togara. Varningsins var ekki getið á þar til gerðum skýrsl- um og var gerður upptækur. Éng- inn gaf sig fraro sem eigandi varn- ingsins og var útgerðarfélagið látiö: greiöa sekt að upphæð 900 þúsund króntu-. Samtals hafa tæreyskir tohverðir fundið 472 flöskur af áfcngi í seinustu fimm leitum um borð í rússneskum fiskiskipum. Samkvæmt heimildum DV hafa munir, sem erfitt er að trúa að rússneskir sjómenn geti keypt á sínum launum, fundist í rússnesk- : um fiskiskipum eftir ítarlega ieit tollvarða hér á landi. Þá hefur áfengi verið gert upptækt í skipun- mn og einnig á kajanum þar sem þau liggja viö festar. Tohverðir hafa leitað um borð í skipum á leið úr höfn að þýfi úr innbrotum en hingað til hafi leit sem þessi engan árangur borið. Verið getur að varn- ingurinn sé kominn á leynistaöi því ekki sé gerð jafnítarieg leit þegar skip haldi úr höfn og þegar það komi i höfii. Femt á slysa- deild Fernt var flutt á slysadeild þar af eitt barn í fjögurra bíla árekstri við Rauðavatn i gærkvöldi. Slysið varð þannig að vörubifreið, á leið til Reykjavíkur, ók aftan á jeppa sem kastaðist á fólksbíl sem kastað- ist á jeppa. Ökumaður og barn úr fyrsta bílnum og ökumaður og far- þegi úr öðrum bílnum voru flutt á slysadeild en fengu að fara heim að lokinni læknisskoðun. Reyndist tvennt hafa tognað á hálsi. Vörubifreiöin sem olli óhappinu fór yfir á rangan vegarhelming eftir óhappið og endaði utan vegar og telst mildi að engin umferð var á leið úr Reykjavík þegar slysið varð. Vörubifreiðin átti að fara i aukaskoð- un í mai en því var ekki sinnt og verður hún færð í Bifreiðaskoðun í dag þar sem hún verður hemlapróf- uð. -pp DV-mynd Sveinn Vinnuslys á sjó Geirfugl GK-66 kom th hafnar í Grindavík í morgun með slasaðan —sjómann og var hann fluttur með sjúkrabfl á Borgarspítala. Maðurinn er alvarlega slasaður en þóekkiílífshættu. -PP

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.