Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.1993, Blaðsíða 25
FÖSTUDAGUR 13. ÁGÚST 1993
33
Tilkyimingar
Félag fráskilinna
Fundur í kvöld, fostudagskvöld, kl. 20.30
í Risinu, Hverfisgötu 105.
Ofurkraftar í Hveragerði
Kraftakeppni verður haldin í Hveragerði
sunnudaginn 15. ágúst. Keppnisgreinar
verða: 1. Trukkadráttur, 2. 25 kg. steina-
kast, 3. Drumbalyfta, 4. Axlalyfta, 5.
Kraftasleggja og ýmsar fleiri þrautir.
Aðalkeppendur verða: Hjalti Úrsus Áma-
son, Guðni Siguijónsson og Unnar Garð-
arsson. Allir geta tekið þátt í keppninni
og þannig unnið til verðlauna. Keppnin
hefst kl. 14.00 framan við Veitingastaðinn
Kam bar og framhaldið verður í Tivolí-
inu. Allir velkomnir.
Félag eldri borgara í Kópa-
vogi
Félagsvist verður spiluð í félagsmiðstöð-
inni Gjábakka, Fannborg 8, Kópavogi, í
kvöld, fóstudagskvöld, kl. 20.00. Húsið
öllum opið.
Félag eldri borgara í Reykja-
vík
Göngu-Hrólfar leggja af stað frá Risinu,
Hverfisgötu 105, alla laugardaga kl. 10.00.
Dansleikur í Risrnu n.k. sunnudag kl.
20.00. Hljómsveitin Gleðigjafar leikur fyr-
ir dansi ásamt söngkonunni Móeiði Jún-
íusdóttur. Farin verður dagsferð að Bás-
um í Ölfusi laugardaginn 21. ágúst n.k.
Pantanir á skrifstofu félagsins í s. 28812.
íslenska esperanto-
sambandið
íslenska esperanto-sambandið (IEA)
heldur 11. landsþing sitt 14. og 15. ágúst
á Hótel Holiday Inn, Reykjavík. Meðal
þátttakenda verða tveir meðlimir í Aka-
demiu málsins sem hefur úrskurðarvald
um málfarsleg ábtamál. Annar þeirra 81
prótsssor Christer Kiselman, félagi í
sænsku vísindaakademimmi, en hinn er
Baldur Ragnarsson sem er kunnur meðal
esperantista m.a. vegna þýðinga sinna á
íslenskum bókmenntum. Þingiö hefst kl.
13.00 á morgun, laugardag, en því verður
fram haldjö kl. 13.00 á sunnudag.
Risatjaldmarkaður á Selfossi
Á morgim, laugardag, verður mikið um
að vera í miðbæ Selfoss. Nokkur fyrir-
tæki og einstaklingar, í samvinnu við
ferðamálaráð Selfossbæjar, munu gang-
ast fyrir risatjaldmarkaði á gamla kaup-
félagsplaninu. Fólk á að geta gengið að
þvi visu að geta gert góð og hagkvæm
kaup. Fjölbreytnin verður mikil, m.a.
verða á boðstólum matvörur, nýtt græn-
meti, kartöflur, fatnaður, heimibsiðnað-
ur, hljómplötur og fl. Að auki verða svo
ýmsar uppákomur til skemmtunar sam-
hliða sölustarfseminni. Vonast er til að
þetta megi lífga mjög upp á miðbæjar-
stemninguna á Selfossi. Takist þessi til-
raun vel, er meiningin að gera þetta að
árlegum viðburði og hafa þá jafnvel
meira mnleikis í skemmtun og afþrey-
ingu samhbða markaðnum. Markaður-
inn verður opinn frá kl. 10.00-18.00.
Leiksvið fáránleikans
Á morgun, laugardag, heldur Leiksvið
fáránleikans tónleika í Tunglinu við
Lækjartorg. Þetta verður í síðasta sinn,
að sinni, sem sveitin kemur fram. Hljóm-
sveitin hefur tekið miklum breytingum
gegnum tíðina, bæði í Uðsskipan og mús-
íkstefnum. í dag skipa hljómsveitina þeir
Alfreð Alfreðsson, Hreiðar Hreiðarsson,
Harry Óskarsson, Sigurbjöm Úlfarsson,
Ágúst Karlsson og Toffi. Einnig munu
hljómsveitimar Maus, Bróðir minn Brút-
us, Sultur, Yucatan og Curver koma
fram.
Opið lengur í Kringlunni
Á morgim, laugardag, tekur gildi vetrar-
afgreiðslutími í Kringlunni. Þá lengist
aftur afgreiðslutíminn á laugardögum og
em verslanir opnar til kl. 16.00. Kaffihús-
ið og skyndibitastaðimir em opnir nokk-
uð lengur en Hard Rock Café er opið alla
daga vikunnar til kl. 23.30. Verslanir í
Kringlunni em nú opnar mánudaga tíl
fimmtudaga frá kl. 10.00-18.30, föstudaga
frá kl. 10.00-19.00 og laugardaga frá kl.
10.00-16.00.
Safnaðarstarf
Laugarneskirkja: Mömmumorgunn kl.
10.00-12.00.
Tapað fundið
Tveir hringir töpuðust
Tveir gullhringir töpuðust í Versluninni
Nesjum á Höfn í Homafirði miövikudag-
inn 21. júU sl. Finnandi vinsamlegast
hringi í s. 96-26792.
Syiiingar
Sigurlaugur sýnir í Hafnar-
borg
Sigurlaugur EUasson opnaði sýningu á
akrýlmálverkum og tréristum í Hafnar-
borg, menningar- og listastofnun Hafnar-
fjarðar, sl. laugardag. í Sverrissal em
sýnd verk úr safni Hafnarborgar. Sýning-
arsalir era opnir aUa daga frá kl. 12-18,
utan þriðjudaga. Sýning Sigurlaugs
stendur fram til sunnudagsins 22. ágúst.
Árni Rúnar sýnir í Portinu
í Portinu stendur nú yfir sýning á verk-
um Áma Rúnars Sverrissonar þar sem
hann sýnir málverk unnin á sl. þremur
árum. Sýningunni lýkur sunnudaginn 15.
ágúst. Sýningasalir Portsins em opnir
aUa daga nema þriðjudaga frá kl. 14.00-
18.00.
Hanna Jórunn með sýningu
MyndUstarkonan Hanna Jómnn Sturlu-
dóttir opnaði i gær, fimmtudag, sýningu
á teikningum sínum í Hreiðrinu í Borgar-
nesi sem er nýtt veitinga- og kafíihús.
Sýningin mim standa næstu 10 daga.
Ný og öflug öryggisþjónusta
Vökúm er ný öryggisþjónusta sem sér-
hæfir sig í eigna- og öryggisvörslu fyrir
stofnanir, fyrirtæki og heimiU, þ.e.
mannaðri gæslu en þá er átt við nætur-
og helgidagavörslu. Einnig getur veriö
um tímabundin verkefni að ræða, t.d. á
sýningum, í verslunum og á sérstökum
annatímum og fl.
Tombóla
Þessar ungu stúlkur, sem heita Hjördís
Ósk Harðardóttir, Heiðrún Harðardóttir
og Karen Mörk Úlfarsdóttir, héldu nýlega
tombólu. Þær söfnuðu aUs 1515 kr. sem
þær færðu hjálparsjóði RKÍ.
3Z>V
Veiðivon
Uffe Ellemann utanrikisráðherra og Gunnar Sólnes á bökkum Laxár í Aðaldal fyrir fáum dögum. Laxá hafði
gefið 1422 laxa í gærkveldi. DV-mynd Orri
NnrrYnrá í R0^(70rfív-N
'JI -J Uí LA L UGi gCU 111 KJÍ.
Með örugga
forystu ennþá
Orri Vigfússon og Anthon Sigstad, formaður sjómanna i Grænlandi,
stuttu eftir undirritun á kaupum á laxakvóta Grænlendinga.
DV-mynd FERR
skömmu. DV-mynd ÞH
Það sem þarf núna er regn og það
í miklum mæli til að fá súrefni í
árnar. Sumar veiðiárnar eru orðn-
ar vatnslitlar og fiskurinn kemur
ekki í nógum mæli.
„Norðurá hefur gefið á milli 1720
og 1730 laxa núna en vatnið hefur
minnkað verulega í ánni síðustu
vikumar. Laxinn er ljónstyggur
þessa dagana í ánni, það þarf regn,“
sagði Halldór Nikulásson, veiði-
vörður í Norðurá í gærkveldi. En
Norðurá er efsta veiðiáin eins og
er, næst kemur Laxá í Aðaldal með
1422 laxa og svo kemur Þverá í
Borgarfirði með 1200 laxa.
Laxá á Ásum með sínar tvær
stangir er með 1100 laxa sem ætti
auðvitað að ýta henni í efsta sætið
miðað við stangafjölda.
„Það er nýr fiskur að koma enn-
þá, í dag veiddist lax í Kálíhylsbrot-
inu, á Eyrinni og á milli fossa,“
sagði Halldór ennfremur.
Veiddi 21 lax
á hálfum degi
„Korpa hefur gefið 277 laxa og
hann er 12 pund sá stærsti, það er
mikið af fiski víða um ána,“ sagði
Rafn Eyfells sem var að koma úr
Korpu með 21 lax éftir hálfan dag-
inn. Með honum á stöng var Erling
Guðmundsson.
„Við fengum flesta laxana á flug-
ur eins og Collie Dog, Franses
rauða og Labbarador. Laxarnir
voru frá 3 upp í 8 pund. Hvanna-
dalsá í ísafjarðardjúpi hefur gefið
á miUi 30 og 40 laxa á þessari
stundu," sagði Rafn ennfremur.
Flekkudalsáin
hefur gefið 206
„Veiðin hefur gengið ágætlega
hjá okkur, við fengum 4 laxa hollið
í tvo daga, Flekkudalsáin er
skemmtileg og það eru margir góð-
ir flugustaðir í henni,“ sagði Guð-
mundur H. Garðarsson en hann
var að koma úr Flekkudalsá á
Fellsströnd.
„Ég reyndi fluguna um alla á en
það er maðkurinn sem hefur samt
gefið megnið af laxinum. Það eru
komnir 206 laxar úr ánni. Það var
mikið af mávi niður í ósi,“ sagði
Guðmundur í lokin.
Veiddu16punda
í Skoruvíkurá
í næsta nágrenni við Flekkudalsá
á Fellsströnd er Skoruvíkurá. Þar
var Guðmundur Örn Ingólfsson á
veiðislóðum fyrir fáum dögum og
veiddi 16 punda fisk. Líka veiddist
eitthvað af bleikju á sama tíma.
-G. Bender
Allt í veiðiferðina
* NÝJUNGAR í BEITU SEM REYNAST VEL
LAUGAVEGI 178, SIMAR 16770 - 814455, FAX 813751