Alþýðublaðið - 30.03.1967, Page 15
Formarcnaskipti
Framliaia ai l.i siðu.
hana skipa: Katrín Kjartansdótt-
ir og Aldís Kristjánsdóttir. End-
urskoöendur eru einnig þær sömu
og áður, Katrín Kjartansdóttir og
Fanney Einarsdóttir Long, en til
vara Áslaug Kjartansdóttir. A3
loknum kosningum tók hinn ný-
kjörni formaður til máls og þakk-
aði það traust sem sér hefði ver-
ið sýnt með því að kjósa hana for-
mann félagsins. Þakkaði 'hún frá-
farandi formanni mikið og sér-
lega fórnfúst starf hennar í þágu
félagsins og Alþýðuflokksins í
heild óg gat sérstaklega um frá-
bærar vinsældir hennar meðal fé-
lagskvenna og óskorað traust, sem
aldrei 'hefði borið skugga á öll
þessi ár. Að lokum bar hún fram
þá uppástungu að Kvenfélag Al-
þýðuflokks í Reykjavík gerði Soff
íu Ingvarsdóttur að lieiðursfélaga
sínum og var því tekið með dynj-
andi lófataki af fundargestum.
Soffíu var síðan afhentur fagur
tolómvöndur frá meðstjórnarkon-
um hennar. Gu'ðný Helgadóttir
flutti fráfarandi formanni einnig
nokkur þakkarorð fyrir langt og
gott samstarf. Hún hefur verið
ritari félagsins sl. 24 ár.
Soffía Ingvarsdóttir tók síðan
til máls og þakkaði fyrin allan
þann sóma, sem sér hefði verið
sýndur á þessum fundi, en einkum
og sér í lagi kvaðst hún vilja
þakka allt hið góða og skemmtilega
samstarf með hinum ágætu kon-
um í þessu félagi. Hún lauk ræðu
sinni með því að segja að hún
hlakkaði til áframhaldandi starfs
í félaginu meðan sér entist líf og
heilsa.
Að síðustu tók hin nýkjörna
stjórnarkona, Guðrún Sveinbjarn j
ardóttir til máls og þakkaði það
traust sem sér hefði verið sýnt
með því að kjósa sig í stjórn fé-
lagsins.
jk__________________________
Aðalfudur
Framhald af 7. síðu.
kominn frá námi í Austurríki. Það
sem aðallega háir útitónleikahaldi
Lúðrasveitar Reykjavíkur er
skortur 'á hentugum stað til að
leika á og í því sambandi er vert
að benda á að enginn útitónleika-
pallur er til í Reykjavík. Félags-
heimili Lúðrasveitar Reykjavíkur
cr Hljómskálinn.
.Ráðsteína
Framhald af 1 síðu.
ins. 19G3-19GG og skýrði frá því,
hvernig framkvæmd hennar hefði
orðið. Gerði hann í því sam-
bandi mjög fróðlegan samanburð
á fjármag-nsmyndun á ýmsum svið
um bæði hér og erlendis, og er
nánar vikið að fyrirlestri hans í
frétt hér til liliðar.
Að loknu hádegisverðarhléi var
ráðstefnunni haldið áfram og
fluttu þá þrír menn framsögu-
erindi: Sigfinnur Sigurðsson hag-
fræðingur talaði um framkvæmda
áætlanir til langs tíma og sam-
band þeirra við árlega fjárhags-
áætlanir; Jón Sigurðsson hag-
sýslustjóri talaði um Undirbúning
að ákvörðunum um opinberar
framkvæmdir og Guðmundur Á-
gústsson hagfræðingur ræddi um
framkvæmdaáætlun Kópavogs-
kaupstaðar 1966-75.
Ráðstefnunni verður lialdið á-
fram í dag og á morgun, og verð
ur nánar skýrt frá henni hér í
blaðinu síðar.
Framhald 11. síðu.
hreyfanleg vörn og góðar skipt-
ingar.
Birgir Jakobsson átti ágætan
leik og skoraði 12 stig. Agnar
Friðriksson skoraði 9 stig og náði
miklum fjölda frákasta, Birgir
Birgis og Gunnar Gunnarsson
skoruðu 6 stig hvor. Fyrir varnar
liðið skoraði Fortner 13 stig og
Shrout 10. Dómara voru Krist-
björn Albertsson og Shearon, og
dæmdu báðir ágætlega.
Að leik loknum afhenti Bogi
Þorsteinsson, formaður KKÍ fyr
irliða úrvalsins, Kolbeini Páls-
syni, hinn veglega bikar, sem
keppt var um í fyrsta sinn, og
ber nafnið Sendiherrabikarinn.
Jónas
Framhald 7. síðu.
lagasöfnúm.
Ég lét í minni tíð sérprenta
lög, reglugerð og allar vinnu-
reglur útvarpsins til afnota öll-
um stjórnendum og starfsmönn-
um stofnunarinnar. Ég teldi
þarflegt að gefa nú út nýja sér-
prentun, því margt hfur breytzt
á þeim 14 árum, sem síðan eru
liðin.
Einkum vildi ég ráða til þess
að 5. grein útvarpslaganna yrði
sérprentuð stóru letri, fest upp
í vinnusölum og afhent 'hverjum
manni sem vinnur að gerð og
framkvæmd dagskrár Ríkisút-
varpsins. Ákvæði 5. greinar og
vinnubrögð samkvæmt þeim á-
kvæðum eru festarliald virðing-
ar Ríkisútvarpsins, vinsælda þess
og trausts.
Hinn 27. janúar 1953 flutti ég
í útvarpið „Kveðjuávarp" til
starfsmanna Ríkisútvarpsins og
ú'tvarpshlustend|a. Ávarp þetta
hefir enn hvergi verið birt á
prenti. Mér þykir hér við eiga
að birta niðurla'gsorð ávarps
þessa svo hljóðandi:
,,Og að lokum nokkur varnað-
arorð til þjóðarinnar. í dag, við
torottför, er ég mér þess með-
vitandi, 'að toafi ég unnið nokk-
urt happaverk í þjónustu Ríkis-
útvarpsins þá var það sú tilhlut-
un mín að fá tekin inn í 5. grein
útvarpslaganna ákvæðin um það,
að við útvarpið skuli ríkja skoð-
anafrelsi og fyllsta óhlutdrægni
gagnvart öllum flokkum og stefn
um í almennum málum, atvinnu
stofnunum, félögum og einstök-
um mönnum. Vegna þessara á-
kvæða toefir Ríkisútvarpið getað
þjónað sönnu lýðræði. toað hef-
ir getað risið yfir og staðið ótoáð
pólitískra flokkabaráttu. Vegna
þessara ákvæða toefir það getað
ástundað sannindi, þiónað óhlut-
drægni og sönnu réttiæti. bví er
almennt treyst, að útvarnið víl.ii
segia satt og rétt frá staðreynd-
um. Þess er aimennt krafizt, að
það virði og verndi í starfi sínu
Husqvarna
Straujárn
HUSQVARNA
þjónusta
Rafmagnspanna
Hitaplata
Brauðrist
Vöfflujörn
HUSQVARNA
gæði
GUNNAR ASGEIRSSON H.F.
Suðurlandsbraut 16. — Laugavegi 33
Hafnarfjörður Hafnarfjörður;
Spilakvöld
Spilakeppni Alþýðuflokksins í Hafnarfirði heldur áfram í Alþýðuhús-
inu í kvöld fimmtud. 30. marz kl. 8.30 stundvíslega.
Spiluð verður félagsvist. — Kaffiveitingar.
Ávarp kvöldsins flytur Stefán Júlíusson, rithöfundur.
Góð kvöldverÓSaun — Glæsleg helldarverölaun.
HÖRKUSPENNANDI HAPPDRÆTTI.
Vinningur: 15 daga skemmtiferð fyrir tvo með glæsilegasta skemmti-
ferðaskipi, er nú siglir um heimshöfin, m/s Fritz Heckert. (18. apríl
t ■ •
— 2.maí).
Sleppið ekki hinu gullna tækifæri. — Kaupið miða strax í dag.
Öllum er heimill aðgangur.
Spilað á tveimur hæðum.
Aðgöngumiðapantanir í síma 50499.
SPILA NEFNDIN.
jafnan rétt allra manna.
Fyrir því verða mín síðustu
varnaðarorð og eggjan: „Stand-
iff fast á verffi, ísiendingar, um
þessa helgu skyldu, um þennan
helga rétt.“
(Rödd þessi er send öllum dag
blöðum í Reykjavík og „Frjálsri
Þjóð“. Endurprentun toeimil öll-
um blöðum.),
Jónas Þorbergsson.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 15
30. marz 1967