Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.1994, Page 7

Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.1994, Page 7
MÁNUDAGUR 7. FEBRÚAR 1994 7 Lausn á „kvótabraskinu“ liggur ekki enn fyrir: Við getum haft bið- lund nokkra daga segir Hólmgeir Jónsson, framkvæmdastjóri Sjómannasambands Islands Þegar bráðabirgðcilögin voru sett á sjómannadeiluna í síðasta mánuði lofaði ríkisstjómin að fyrir 1. febrúar yrðu tilbúnar tillögur þriggja manna nefndar ráðuneytisstjóra um hvem- ig komið verði í veg fyrir að sjómenn taki þátt í kvótabraskinu svo kaliaða. „Við skiluðum tillögum fyrir mán- aðamótin um það sem kaúað hefur verið kvótaþing. Tillagan var síðan send sjávarútvegsnefnd' Alþingis sem hefur verið að fjalla um hana undanfarið og mun halda þeirri um- fjöllun áfram eftir helgi,“ sagði Ólaf- ur Davíðsson, ráðuneytisstjóri í for- sætisráðuneytinu, en hann var for- maður nefndarinnar. „Það eina sem komiö er fram er hugmynd að kvótaþingi. Sjómanna- samtökin hafa tekið vel í hana að uppfylltum ákveönum skilyrðum. Þau skilyrði eru styrking í lögum um að sjómenn taki ekki þátt í kvóta- braski. Ég ætlast til þess að löggjaf- inn, sem setti bráðabirgðalög á deil- una, leysi þetta mál. Það var talað um að þetta ætti að liggja fyrir 1. fe- brúar. Það má segja að maður geti haft biðlund í nokkra daga en það eT'xétt að það er kominn tími á að maður fái að sjá hvað þessir ágætu herrar ætla að leggja til. Þegar bráða- birgðalöin voru sett á sjómannadeil- una töluðu oddvitar ríkissfjómar- innar um kvótaþing. Nú er hug- myndin komin fram og sjómanna- samtökin hafa tekið vel í hana. Ég vil því fá fréttir af því að menn séu að vinna í frumvarpinu. Þær hef ég ekki fengið enn þá,“ sagði Hólmgeir Jónsson, framkvæmdastjóri Sjó- mannasambands íslands. Össur Skarphéðinsson umhverfis- ráðherra sagði að hann mundi beita sér fyrir því að styrkingarákvæði sem héldi yrði sett inn í frumvarpið. Aöspurður hvort að það væri hægt sagði hann aö það væri ekki bara hægt, heldur væri það auövelt og yrði gert. -S.dór Hæstiréttur: Dráttarvextir felldir niður Hæstiréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjavíkur í máh þrotabús Vínils hf. Hæstiréttur féllst á að lagaheimild hafi brostið til að reikna dráttarvexti af fésekt sem þrotabúinu var gert að greiða sam- kvæmt úrskurði ríkisskattanefndar. Var tilefniö þaö að félagið hafði vantahð skattskylda veltu sína á söluskattsskýrslum. Nam sektin rúmlega einfaldri fjárhæð þess sölu- gjalds sem undan var dregið. Félagið var krafið um dráttarvexti af sekt- inni áður en greiöslu hennar lauk og náði krafan því til hluta þess tíma sem leið frá sektarákvörðuninni. Greiddi félagið skuldina, 620 þúsund krónur, en krafðist endurgreiðslu. Með skírskotun tíl þess að dráttar- vextir eru ekki innheimtuúrræði í eiginlegum skilningi heldur felst í þeim greiðsluskylda, sem að jafnaði verður til við vanskil, féhst Hæsti- réttur á að félagið ætti ekki að greiða dráttarvextina. Þetta taldi Hæstirétt- ur óháð því hvort gripið hefur verið fil innheimtuaðgerða. Einnig var tekið mið af því að þetta væri „mjög skýrt að því er varðar dráttarvexti samkvæmt söluskattslögum þar sem skyldan th greiðslu þeirra er fehd á aðila í formi álags á vangreiddan skatt." Þá var fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs gert að greiða þrota- búi Vínhs 120 þúsund krónur í máls- kostnaðfyrirHæstarétti. -pp Fréttir íslandsfLug: Farþegum fjölgaði um 10%ífyrra Farþegaflutningar íslandsfiugs jukust á síðasta ári um tiu pró- sent en félagið flutti alls tæplega 42 þúsund farþega. Aukningin skiptist jafnt mihi áætlunarflugs og leiguflugs. í fyrra keypti fyrirtækið flugvél af Dornier-gerö en það á eina slíka vél fyrir. Flugvélin var keypt frá Norður-Noregi og verö- ur hún notuð jöfnum hönduro í áætlunar- og leiguflug. -GHS YAMAHA véisleðar Sýnishorn af söluskrá: Exciter 570 árg. '89 Phaser 480E/ST árg. '92 Viking 540 árg. '89. '90 Ventura 480/TF árg. '92 AC Wild Cat 700 árg. '91 BR 250 TF árg. '93 Skútuvogi 12a, s. 812530 ÞREFALDUR H ÆSTIVIN ININGUR D R E G H D ÞRIÐJUDAGINN 8. F E BII íl A R 7MILU ONIR Á EINFALDAN MIÐA Verð miða er aðeins 600 kr. á mánuði. Upplýsingar um næsta umboðsmann t síma 91-22150 og 2313fl ... fyrir lifið sjálft •3 | ■g •e ■S

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.