Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.1994, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.1994, Blaðsíða 19
MÁNUDAGUR 7. FEBRÚAR 1994 31 Sviðsljós Menning Hljómplötur Aðalsteinn Ingólfsson Glæsileikur og sexappíl Anne-Sophie Mutter fiðluleikari er ung og glæsileg kona. Og það sem meira er, hún er ótvírætt í hópi snjöllustu fiðluleikara sem nú eru uppi. Ég hefði ekki haft orð á útliti ungfrú Mutter ef útgáfufyrirtæki henn- ar, Deutsche Grammophon, væri ekki stöðugt að hamra á því með kynþokkafullum myndum. Sjálf er Anne-Sophie Mutter greinilega meðvituð um aðdrátt- arafl sitt, fer vel með það á sviði, vitandi að flutningur á sígildri tónlist er líka angi af sjóbisniss. En aðalmál- ið er auðvitað fiðluleikurinn og þar hefur Anne- Sophie Mutter staðið undir öllum væntingum. Þær voru talsverðar í upphafi ferils hennar; Karajan upp- götvaði hana nefnilega og gerði úr henni stórstjömu meðan hún var enn óharðnaður unglingur. Hann reyndist hafa veðjað á réttan hest, Mutter hélt áfram að dafna þótt Karajans nyti ekki lengur við og hefur sjaldan verið betri en einmitt nú. Anne-Sophie Mutter sker sig ekki úr fyrir sérvisku í spilamennsku; mótar ekki hendingar á eins afgerandi hátt og margir starfs- bræður- og systur hennar, heldur fer yfirleitt skyn- samlegan og gagnvandaöan milliveg í túlkun sinxú, hver svo sem tónlistin er. í hringiðu helgarinnar Utanríkisráöherra, Jón Baldvin Hannibalsson, heiðraði þyrluflugbjörgun- arsveit Varnarliðsins síðastliðið fimmtudagskvöld fyrir atrekið þegar hún bjargaöi sex mönnum af sjö manna áhöfn Goðans af strandstað í Vaðlavík. í ffemri röð sitja skipverjamir af Goðanum sem komust lífs af en í aftari röð má sjá áhafnir þyrlnanna tveggja. Þeim til beggja handa standa Michael D. Haskins, yfirmaður flotastöðvarmnar, og Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra. í Listasafni íslands var um helgina opnuð sýningin Ný aöfóng 1988-1993, fyrri hluti. Á sýningunni em verk sem hafa verið keypt á þessum árum eða verið gefin safninu. Úr þessum nýju aðfongum safnsins hafa verið settar saman tvær heildstæðar sýningar og verður sú seinni opnuð á sama tíma að ári. Á myndinni má sjá Kristin E. Hrafnsson útskýra verk sitt Kröflu fyrir einum sýningargesta. Virtúósatónlist Þetta er einkenni á leik hennar á nýrri geislaplötu með þekktri „virtúósatónlist“, sígaunastemmu Sara- sates, Djöflasónötu Tartinis, „Tzigane" eftir Ravel og fleiri stykkjum í þá veru, það sem sumir kaUa „týpísk aukalög". Ófáir fiðluleikarar láta gamminn geisa í svona tónlist og eru þá ekki aö eltast við öll blæbrigði hennar. Mutter tekur þessi verk alvarlega og leyfir þeim að njóta sín til fullnustu. Því er ef til vill minna „púður“ í leik hennar en ýmissa annarra túlkenda verkanna, en á móti kemur að í meðforum hennar öðlast tónlistin aukna, oft óvænta dýpt. Þessi um- rædda geislaplata er tekin upp með nýrri tækni sem DG nefnir 4D, en hún styttir upptökuferlið til muna Anne-Sophie Mutter. þannig að hljóðfæraleikurinn nær eyrum áhorfandans nánast ótruflaður. Ég skal viðurkenna að ég varð ekki var viö kosti þessarar upptökutækni við „venjulegar" aðstæður, en um leið og ég jók á hljóðstyrkinn gerði ég mér ljóst að flest upptökuhljóð, suð og diskant, voru víðs fjarri. Þetta gleður eflaust hreinstefnumenn- ina, en er vatn á myllu þeirra sem þykjast sjá í geisla- plötunni óæskilegan uppgang ópersónulegrar og geril- sneyddar tónlistarmiðlunar. Anne-Sophie Mutter - Carmen Fantasie Fílharmóniuhljóm- sveit Vinarborgar & James Levine. Verk e. Sarasate, Wieni- awski, Tartini, Ravel, Massenet DG 437 544-2. Umboð: SKÍFAN Það voru margar veiðisögur sagðar í Perlunni á laugardagskvöld þegar Stangaveiðifélag Reykjavíkur hélt árshátíð sína. Hér er það Sverrir Kristinsson sem segir Þórarni Sig- þórssyni frá þeim stóra sem slapp síðasta sumar. DV-myndG.Bender Það hefur stundum viljað loða við stangaveiðiíþróttina að hún væri „karlasport" en konumar létu sig ekki vanta á árshátíð Stangaveiðifé- lags Reykjavíkur sem var haldin á laugardagskvöld. Hér er Sigurður Guðjónsson að ræða málin í hópi „veiði“kvenna. DV-myndG.Bender Stuðningsmenn Þorbergs Aðal- steinssonar úr prófkjöri Sjálfstæðis- flokksins inn síðustu helgi fjöl- menntu í íþróttamiöstöð ÍSÍ á laugar- dag til að fagna góðum árangri. Á meðal þeirra sem skáluðu við Þor- berg voru þeir Hannes Guðmunds- son, Kristján Sveinbjörnsson og Ólaf- NOTAÐIR BILAR ÚRVAL NOTAÐRA BÍLA Sýnishorn úr söluskrá 1. Ford Orion 1,6, ss., hvítur, árg. ’87, ek. 89 þ. V. ca 395 þ. 2. Fiat Uno 45S, árg. ’88, svartur, ek. 42 þ. V. ca 220 þ. 3. M. Benz 300 D, árg. ’85, svartur, ek. 330 þ., góður bíll. V. ca 750 þ. 4. Range Rover Vogue '86, sjálfsk., ek. 104 þ. km. V. ca 1400 þ. 5. Nissan Micra 1,3 LX, ss., hvítur, ek. 13 þ. km. V. ca 900 þ. 6. Daihatsu Charade ’86, hvítur, ek. 94 þ. km. 7. Dodge Dakota 3,9 EFI, árg. ’91, vsk-bíil, hvítur. V. ca 1700 þ. 8. Ford Aerostar, árg. ’91, 8 manna, vínr., ek. 10 þ. V. ca 1590 þ. 9. Dodge Ram 250 4x4, turbo dísil, árg. ’89, ek. 128 þ. V. ca 1590 þ. 10. Ch. Blazer ’85, ss., svartur, góð- ur bíll, vill dýrari fólksbíl. V. ca 850 þ. + 200-300 þ. 11. MMC Pajero ’87, stuttur, hvítur, ek. 130 þ. V. ca 850 þ. Bílasala Garðars (/ ■ +/X///W. /((' Nóatúni 2-105 Reykjavík Sími 619615 Daihatsu Charade TX '91, ek. 19 þ„ hvítur. V. 650 þ. Daihatsu Charade CX '91, grár, ek. 33 þ. V. 650 þ. Ford Escort XR 31 '87, ný vél. V. 450 þ. Toyota Carina II, 2,0 GLI, grár. V. 1350 þ. MMC Galant GLSI '93, grár, ek. 13 þ. V. 1800 þ. MMC Lancer 4x4 station, rauður, árg. '88, ek. 113 þ. V. 600 þ. Nissan Pulsar LX 1,3, árg. '88, ek. 122 þ„ hvítur. V. 450 þ. Isuzu Trooper, 4 d„ rauður, ek. 130 þ. V. 1050 þ. Nissan Sunny 1,6 SLX '91, ss„ grænsans. V. 850 þ. Toyota Corolla hvítur, ek. 44 þ. V. 640 þ. Mazda 323 LXI, steingr., '92, ek. 17 þ. V. 790 þ. Range Rover '83, ek. 110 þ„ 318 vél, Dodge kassar, 38" dekk o.fl., o.fl. V. ca 800 þ. ur R. Jónsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.