Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1994, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1994, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 1994 Fréttir DV Tillögur um hámarksafla fiskveiöiárin 1993/94 og 1994/95 og aflamark samkvæmt ákvöröunum stjórnvalda fiskveiöiáriö 1993/94 — / * / / / t • f ## Háskólanum Díane Kristjánsson í Winnipeg hefur afhent háskólarektor erföafé frá afabróöur hennar, Aðalsteini Krisfjánssyni. Aðal- steinn, sem var fasteignasali og dthöfúndur, fæddist 1878 á Bessahlöðum í Öxnadai en lést í Los Angeles 1949. í erfðaskrá sinni ánafnaði Aðal- steinn fláskólá íslands um hundrað þúsund Kanadadali og skyldi veija vöxtunum af höfuö- stól til þess að stofna kennarastól í náttúruvísindum. Þar sem vext- ir nægðu ekki fyrir launum kenn- ara í fullu starfi var unnið að því að þrefalda höfuðstólinn þannig að sjóðurinn gæti tekið viö tilætl- uðu hlutverki sínu. Þvi marki var náð 1989 og var þá ákveöið að Háskólinn annaðist sjálfur vörslu sjóösins. Með þvf að aðstaaöur höfðu breyst við Háskólann er nám til BS-prófs var tekið upp 1968 var ákveðið að stofna til stöðu rann- sóknarprófessors í nafhí Minn- ingarsjóös Aðalsteins Kristjáns- sonar til eflingar náttúruvísind- um og efnafræði við Háskóla ís- lands. Er stöðunni úthlutað tíma- bundið. Þorskkvótinn á næsta ári: 25 þúsund lestum bætt við tillögur fiskifræðinga - komiö í veg fyrir að þorskaflmn geti fariö fram úr leyfðu aflamagni Ríkisstjórnin ákvað í gær að fara að tillögu Þorsteins Pálssonar sjáv- arútvegsráðherra um að þorskkvót- inn á næsta fiskveiðiári verði 155 þúsund lestir eða 25 þúsund lestum meira en fiskifræðingar Hafrann- sóknastofhunar leggja til að veitt verði. í fyrra lögðu fiskifræðingar tíi 150 þúsund lesta kvóta, ríkisstjórnin leyfði 165 þúsund lestir en veiddar verða um eða yfir 190 þúsund lestir. Með nýjum lögum um stjóm fisk- veiða, sem samþykkt vora á Alþingi í vor, er komið í veg fyrir að þorskafl- inn geti farið svo langt fram úr leyfðu aflamagni eins og verið hefur mörg undanfarin á. Þetta er gert með því að áður en leyfilegum heildarafla er skipt milii einstakra skipa, samkvæmt kvóta þeirra, er dregið frá það aflamagn sem telst utan kvóta vegna línutvö- fóldunar yfir vetrarmánuðina, áætl- aður afli krókabáta og aflaheimildir sem nota skal til jöfnunar. Vegna þessa frádráttar er úthlutun á afla- marki þorsks nú miðuð viö 113 þús- und lestir af þeim 155 þúsund lesta heildarafla sem stjómvöld leyfa. Aflamark einstakra skipa lækkar því um 17,17 prósent fyrir þorsk. Sjávarafurðaframleiöslan er talin dragast saman um 3,5 prósent milii áranna 1994 og 1995. Áður var gert ráö fyrir 1 prósents aukningu. I krón- um talið svarar þessi munur til um 3,5 milljarða króna í breytingu út- flutningsverðmætis milli ára. A móti vegur hins vegar að nú er talið að verðmæti sjávarafuröa verði tölu- vert meira á þessu ári en áður var spáð. Hagvöxtur verður um það bil 1 prósenti minni á árinu 1995 en reiknað var með. Ríkisstjómin telur að áhrif á atvinnu og imisvif í þjóðar- búskapnum séu, þegar á allt er litið, fremur lítil enda breytist þjóðarút- gjöld mun minna til lækkunar frá fyrri áætiunu en landsframleiðsla þar sem ekki er gert ráö fyrir sér- stökum aðhaldsaðgerðum. I ■> Norðurlöndin em nú orðin eitt menntunarsvæöi. Mennta- og vísindamálaráðherrar Norður- landa hafa undirritað samning sem felur í sér að norrænir náms- menn skuli eiga rétt til inngöngu í háskólanám hvarvetna á Norð- urlöndunum með sömu eða sam- bærilegum skilyrðum og heima- menn. Heimilt verður að beita takmörkunum fyrstu árin eftir nánara samkomulagi ef nauðsyn- legt reynist í einstökum greinum. Að sögn Sveínbjöms Bjöms- sonar háskólarektors verður þó um þá breytingu að ræða að heimaland námsmanns greiðir fyrir þá kennslu sem hann fær í öðru landi. ísland fær þó undan- þágu fyrst um sinn. Á sínum tíma bám Danir fram tiilögu um greiðslu heimalands innan Evr- ópusambandsins en sú tillaga var ekki samþykkt. Hún fékk hins vegar hljómgrunn í Norður- landaráðl Þessi tillaga hefur leitt til ýmissa vangaveltna. Á þingi norrænna rektora, sem haldið var ÍReykjavík i byrjun þessarar viku, varpaði Per Nyborg, aðal- ritari norska háskólaráðsins, fram þeirri spumingu hvort auð- veldara yrði aö borga fyrir náms- plássin þegar reikningurinn kæmi tii dæmis fiá Ðanmörku eöa Svíþjóð þegar ekki fengist lengur heimild í fiárlögum til að fjölga námsplássum í Noregi. Brynhildur Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri Stúdentaráðs Háskóla íslands, fagnar samn- ingnum um jafnan aðgang að háskólanámi á Norðurlöndum „Ég vona samt að ekki verði reynt að beina námsmönnum í ódýrt nám þegar að því kemur að ísland þurfi að greiöa fyrir kennslu ann- ars staöar/ tekur hún fram. Núfáum eitt þúsund íslending- ar ókeypis kennslu annars staðar á Noröurlöndunum. í dag mælir Dagfari____________ Yfirburðastaða Fjölmiðlar og almenningur hossa sér yfir sigri R-listans í Reykjavík. Fagnaðarlátunum hefur enn ekki linnt. Ingibjörg Sólrún er sveipuð slíkum dýröarljóma að halda mætti að enginn hefði áður unnið sigur í íslenskri pólitík, hvað þá að áður hafi verið kosnir borgarstjórar í Reykjavík. Það er sem sagt kátt í höllinni og mikið um dýrðir. En hvað var það sem gerðist? Gáum að því. Sjálfstæðisflokkurinn hefur ver- ið í ríkisstjóm undanfarin ár á erf- iöleikatímum. Það bitnar á flokkn- um. Það var óðs manns æði að halda aö Sjálfstæðisflokkurinn gæti haldið fylgi sínu í síkum mót- byr sem verið hefur í þjóðfélaginu. Samt fær hann 48% atkvæða. Þetta er í rauninni mikill og stór sigur. Sjálfstæðisflokkurinn hefur þurft aö skipta þrisvar sinnum um borg- arstjóra. Fyrst missti flokkurinn Davíð Oddsson sem var vinsælasti borgarstjóri allra tíma. Síðan missti flokkurinn Markús Öm sem fékk rússneska kosningu í próf- kjöri. Síðan kom Ami Sigfússon þegar flokkurinn mældist aðeins með 37% fylgi og hann jók það um 10% eða upp í 47% áður en yfir lauk. Þannig yfirvann flokkurinn hvert áfallið af fætur ööm og nú eru menn almennt sammála um að Ámi Sigfússon hafi unnið glæsileg- an vamarsigur sem er í rauninni upphafið að ennþá glæsilegri sigri eftir fiögur ár. R-listafólkið varar sig ekki á því að Sjálfstæðisflokkurinn var ekki í beinni kosningu núna, enda kosn- ingamar tapaöar fyrirfram, heldur var flokkurinn að búa sig undir næstu kosningar. Þess vegna er of snemmt fyrir R-listann að fagna sigri í þessum kosningum því hann á eftir aö tapa í þeim næstu. Davíð Oddsson, formaður flokks- ins, hefur bent á að Sjálfstæðis- flokkurinn hefur yfirburðastöðu í Reykjavík. Hann hafi einn 47% at- kvæða meðan aðrir flokkar hafi alls ekki boðið fram nema undir fólsku flaggi og það sýnir óvana- lega sterka stöðu Sjálfstæðisflokks- ins. Kosningaúrslitin undirstrik- uðu þessa sterku stöðu og satt að segja má fullyrða aö sameiginlegt framboð hinna flokkanna hafi hjálpað Sjálfstæðisflokknum til að ná svo sterkri stöðu, þessari yfir- burðastööu. Þá hafa sjálfstæðismenn lagt á það áherslu að úrslitin hafi ekki komið á óvart. Þetta mátti sjá fyr- ir, bæði í skoðanakönnunum og svo af þeirri staðreynd að Sjálfstæðis- flokkurinn á undir högg að sækja. Enginn þarf að vera hissa á sigri R-listans, hvað þá að kætast eins og það hafi verið óvænt og óvið- búið. Þvert á móti gátu allir sér þetta fyrir og þar af leiðandi hálf- hjákátlegt að vera með þessi fagn- aðarlæti út af meirihluta R-listans. Menn em sammála um að Ami Sigfússon hafi staöiö sig frábærlega vel. Hann gerði allt sem í hans valdi stóð. Hann gat ekki meira og fékk ekki meira fylgi og þaö var ekki honum að kenna heldur kjósend- um. Þess vegna er við kjósendur að sakast en ekki Sjálfstæðisflokk- inn hvemig fór. Sjálfstæðisflokk- urinn tapaði ekki þessari kosningu heldur kjósendur og í raun og vem var það Ámi Sigfússon sem var sigurvegari því hann fékk öll þau atkvæöi sem hann gat náö í. Er hægt að fara fram á meira? Stærsti sigur Sjálfstæöisflokks- ins er hins vegar fólginn í því að nú kemst R-listinn að og nú kemst upp um strákinn Tuma. Nú geta kjósendur séð það svart á hvítu hveijir það vom sem fengu meiri- hlutann. Það var ekki Ingibjörg Sólrún né heldur R-istinn sem slík- ur. Það vom gömlu flokkamir sem foldu sig á bak við grímumar og komu ekki í ljós fyrr en DV tók mynd af þeim með Ingibjörgu Sólr- únu eftir að úrslit lágu fyrir. Sjálfstæðismenn héldu þessu fram í kosningabaráttunni og nú hefur það sannast. Það er sigur Sjálfstæðisflokksins að hið rétta kemur í ljós. Það rétta í þessu máli er að það var rangur listi sem var kosinn. Ef réttur listi hefði náð kjöri hefði hið ranga faðemi R-listans aldrei verið upplýst. Þess vegna var nauð- synlegt að bíða ósigur til að sanna að sigurinn er þeirra sem töpuðu vegna þess að þeir sem sigmðu em alls eklti þeir sem þeir þóttust vera. Eða hvemig geta þeir sigrað sem em ekki þeir sem þeir þykjast vera? Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.