Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1994, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1994, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ1994 Viðskipti Ysa á fiskm. k'/Kg' Þr...Mi...Fi Fö MS Þr Hlutabr. Islandsb. 0,89 ‘ Þr Mi Fi Fð Má Þr Hráolía $/mnna p r Sterlingspundið Þr Mi Fi Fö Má Þr Kauph. í Tokyo Fö Má Þr MetíTokyo Samkvæmt upplýsingum frá Reiknistofu fiskmarkaða viröist slægð ýsa vera á uppleið. Meðal- verðið í gærmorgun var rúmar 90 krónur kílóið. Hlutabréf íslandsbanka lækk- uðu í verði í síðustu viku um rúm 4% þegar gengi bréfanna fór úr 0,94 í 0,90. Lítils háttar viöskipti voru á mánudag á genginu 0,90 en engin viðskipti fóru fram í gær. Olíumarkaðir í London voru lokaðir á mánudag en fyrir helgi virtist hráolíuverð vera á upp- leið. Þá stóð tunnan í 16,39 dollur- um. Líkt og með dollar hefur gengi pundsins verið stöðugt. Sölu- gengið var 106,81 króna í gær. Lífleg hlutabréfaviðskipti eiga sér stað í Tokyo þessa dagana. Nikkeivísitalan slær hvert sögu- lega metið með degi hverjum og nálgast 21000 stig. Magnús Gunnarsson, formaður VSÍ, á tali við Þórð Friðjónsson, forstjóra Þjóðhagsstofnunar, á aðalfundi VSI i gær. DV-mynd Brynjar Gauti Skattheimta til uppbyggingar atvinnulífi: Alvarleg brenglun sem ég vara við - sagði Magnús Gunnarsson á aðalfundi VSÍ Á aöalfundi Vinnuveitendasam- bands íslands, VSÍ, sem fram fór á Hótel Sögu í gær, var formanni VSÍ, Magnúsi Gunnarssyni, tíðrætt um þátttöku hins opinbera í atvinnulíf- inu. Magnús sagði að því stærri sem hlutur Hins opinbera væri þeim mun minni hluti hagkerfisins væri agaður til ýtrustu hagkvæmni. Frammistað- an yrði lakari og vöxturinn minni. Magnús hvatti í raun til meiri einka- væðingar og sagði að í fjölda tilvika væri hagkvæmara fyrir ríki og sveit- arfélög að kaupa ýmsa þjónustu af einkaaðilum á samkeppnismarkaði en að standa í því sjálf. Magnús nefndi þetta í tilefni þess að í umræðu um atvinnumál undan- farið hefur töluvert borið á hug- myndum um aukinn hlut hins opin- bera. Magnús varaði við þessum hugmyndum því fjármunir nýttust ekki betur þótt stjórnmála- og emb- ættismenn færu um þá höndum. „Skattheimta til að byggja upp at- vinnu er ekki til. Það er alvarleg hugsanabrenglun sem ég vara við því skattar og álögur á atvinnurekstur- inn draga úr arðsemi, uppbyggingu og vexti. Við megum ekki láta at- vinnuleysi dagsins glepja okkur svo sýn að viö grípum til hagstjómaraö- ferða sem hvarvetna hafa leitt af sér stöðnun og afturfór," sagði Magnús. í máh formanns VSÍ kom fram að bæjarútgerðir og niðurgreiðslur á framleiðslukostnaði fyrirtækja héldu niðri lífskjörum en bættu þau ekki. „Við þurfum ekki niðurgreiðslur á vinnuaíli. Við þurfum almenn já- kvæð starfsskilyrði sem laða að fjár- festingu og gefa fyrirtækjunum færi á að hagnast og byggja upp styrka eiginíjárstöðu. Það er og verður hagnaðarvonin sem fær einstakling- ana þúsundum saman til að leggja sig fram um að leysa verkefnin á hagkvæmari hátt og finna ný tæki- færi til sóknar. Af þessum sökum hefur Vinnuveitendasambandið var- að við þeirri starfsemi Atvinnuleys- istryggingasjóðs sem fahst hefur í beinum styrkjum við atvinnufyrir- tæki. Það er óheihabraut sem engu skilar," sagði Magnús m.a. á aðal- fundinum. Hlutabréfamarkaöurinn í síðustu viku: 120 milljóna viðskipti Það hefur varla farið fram hjá neinum aö hlutabréfaviðskipti í hð- inni viku hafa verið lífleg og fjörið eingöngu snúist um hlutabréfakaup- in í íslenska útvarpsfélaginu. Eins og komið hefur fram gat DV sér rétt til um kaupandann nokkrum dögum áður en kaup Siguijóns Sighvatsson- ar voru gerð opinber. Ahs námu viðskiptin í síðustu viku riflega 120 milljónum króna, þar af voru viðskipti með bréf íslenska út- varpsfélagsins upp á 105 mihjónir frá þriðjudegi til fóstudags. Frá 20. maí voru alls keypt bréf í félaginu fyrir 150 mihjónir. Sé htið th annarra hlutafélaga í síð- ustu viku þá urðú nokkur viðskipti með hlutabréf Eimskips, Hlutabréfa- sjóðsins og Sjóvár-Almennra. Eim- skipsbréfin hafa á nokkrum dögum lækkað um rúm 5% og seldust á mánudag á genginu 4,26. Flugleiða- bréfin hafa um nokkum tíma selst á genginu 1,24. Breytingar hafa sömu- leiðis verið htlar á bréfum Ohs og Skeljungs, miðað viö stöðuna eftir sl. mánudag. Bréf Olíufélagsins hækk- uðu í síðustu viku um tæp 5%. Lækkanir framundan? Þegar á hehdina er htið lækkaði gengi hlutabréfa ef marka má hluta- bréfavísitölur. Þingvísitala hluta- bréfa fór lækkandi í síðustu viku en steig örlítið upp á við á mánudag. Að mati Landsbréfa hf. hefur sú hækkunarbylgja á markaðnum sem hófst um miðjan aprh náð hámarki og virðist frekar á niðurleið. Minnk- andi kvóti og OECD-skýrslan hafa valdið því að væntingar fjárfesta um hagnað fyrirtækja hafa minnkað. Það er tahð leiða th minni eftirspurn- ar og verðlækkunar á hlutabréfa- markaöi. Tölur í horni meðfylgjandi grafa- pakka eru eftir viðskipti sl. mánu- dags nema hlutabréfavísitala VÍB sem er frá því í gær. Verðbréf og vísitölur 5 2 s— 1,4 II \\/A\ 19 J V O fi 1,85 J 4,26 0,0 1,24 1,8 1,93 F M A M F M A M | | F M A M IKIII 0,8 0,6 0,90 F...M A M 950 800 fí 750 884,5 F M A M DV Þriðjungsfækk- unmatvöru- verslana í skýrslu sem Ásdís Hlökk The- odórsdóttir vann fyrir Borgar- skipulag Reykjavíkur um þróun verslunar í Reykjavik kemur m.a. fram aö matvöruverslunum hefur fækkað um þriðjung síðan 1981. Þá voru matvöruverslanir 131 talsins i borginni og 637 íbúar um hverja verslun. En árið 1994 eru verslanirnar 87 og 1.171 íbúi er um hverja. Tekið er fram i skýrslunni að sambærileg þróun hafi átt sér stað í nágrannalönd- unum. Á sama tíma og matvöruversl- unum hefur fækkað hefur hús- næðispláss þeirra stækkað. Árið 1981 var matvöruverslun að með- altah 240 fermetrar að stærð en í dag er hún 472 fermetrar að með- altali. Þetta skýrist að sjálfsögðu af auknum hlut stórmarkaða í borginni. Frá þvi fyrsti stórmark- aðurinn var opnaður i Reykjavík árið 1970 er hlutur þeirra í mat- vöruverslun í borginni kominn yfir 50%. Islandsflugtil Kanada Eins og kom fram í DV í gær hefur íslandsflug tekið í notkun nýja 19 sæta skrúfuþotu af gerð- inni Metro th innanlandsflugs, leiguflugs og fraktflutninga Fyrsta leiguflugsverkefni vélar- innar verður í þessari viku fyrir grænlenska aðila th Kanada og fraktflug til Englands hefst um næstu helgi. Forráðamenn félagsins eru bjartsýnir um reksturinn í ár en í fyrra jókst veltan um 20%. Það sem helst gerir íslandsflugsmenn grama þessa dagana er notkun Flugleiða á sérleyfi sínu á Sauð- árkróki en Flugleiöir sömdu við Flugfélag Noröurlands um flug þangað nokkrum sinnum i viku í sumar. íslandsflug óskaði eftir því að taka farþega á Sauðárkróki í tengslum við Sigluíjaröarflug en þeirri beiðni var hafnað og Flug- leiðir hafa fengiö grænt ljós yfir- valda á samninginn viö FN. Ráðstef na tim tækniframfarlrí landbúnaði Þann 10. júni nk. fer fram í íþróttahúsinu á Sauöárkróki ráð- stefnan „Landbúnaður 2000 - þekking, tækni, framfarir". Ráð- stefnunni er ætlað „að marka upphaf sóknar íslensks landbún- aðar inn i nýja öld og aö kynna og móta hugmyndir um nýja tækrú og nýjar aðferðir í land- inu“, eins og segir í fréttatilkynn- ingu frá aðstandendum ráðstefn- unnar. Þeir eru Rannsóknastofn- un landbúnaðarins, Háskóli ís- lands, Bændaskóhnn á Hólum og Kaupfélag Skagfirðinga. Meðal annars verður fjallað um markaðs- og fræðslumál varð- andi ferðaþjónustu og hrossa- rækt en auk þess verða ljölmörg erindi um nýjustu tækni og vís- indi í gróðurrækt. OlíuskipSkeij- ungskomið OUuskipiö sem DV greindi frá á dögunum að Skeljungur hefði keypt í Svíþjóð kom tíl landsins í síöustu viku. Skipið, sem nefnist Skeljungur II, mun þjóna við- skiptavinum félagsins á Faxa- flóasvæðinu. Skeljungur II tekur 260 þúsund litra af eldsneyti og öflugar dælur geta afkastað aht að 120 þúsund lítrum á klukkustund. Skipið ér smíðað áriö 1973, endumýjað 1982 og kostaði um 40 milljónir króna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.