Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1994, Qupperneq 5

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1994, Qupperneq 5
LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 1994 5 Fréttir Margþætt símaskrárklúður áttum að gefa okkur meiri tíma, segir ritstjóri tvískiptu símaskrárinnar „Þaö má kannski segja að skráin beri þess merki að farið hafi verið of hratt, við hefðum átt að gefa okkur meiri tíma í undirbúning. En vitleys- umar eru ekki meiri en þær hafa verið undanfarin ár, þær eru í raun færri,“ sagði Sóley Sigurðardóttir, ritstjóri símaskrárinnar, við DV. Eftir að símaskráin kom út tvi- skipt, í nafnaskrá og atvinnuskrá, hefur margvíslegt klúður komið í ljós og valdið notendum óþægindum. Til að byrja með voru yfir eitt hundrað farsímanúmer ekki prentuð, duttu út. Marga vantar í atvinnuskrána „Þegar keyra átti farsímaskrána og símaskrána saman voru ekki meiri gögn á bak við farsímaskrána en svo að mörg númer duttu út. Það hefur kannski verið farið fullhratt í þetta,“ sagði Sóley. Hún sagði að ekki hefði verið ákveðið hvað ætti að gera fyrir þá farsímanotendur sem þannig lentu milh skips og bryggju. Nefndir hafa verið möguleikar á prentun límmiða til að setja í skrána, útgáfu sérstakrar farsímaskrár eða að aug- lýsa númerin. Fjölda fyrirtækja og stofnana er ekki að finna í atvinnuskránni. Skýr- ing Pósts og síma er að viðkomandi aðilar greiði ekki atvinnusímagjald, sem er hærra, þar á meðal margir einyrkjar. Sóley þvertekur fyrir að Póstur og sími hafl séð tekjumögu- leika í tvískiptingu skrárinnar með því þannig að neyða alla í atvinnu- rekstri til greiðslu atvinnusíma- gjalds. Hún fullyrðir ennfremur að engir fái undanþágu frá greiðslu at- vinnusímagjalda. í ljós kemur þó að Póstur og sími kann ekki nægileg deili á viðskipta- vinum sínum. Þjóðminjasafnið, Listasafn íslands, SÁÁ og Sjálfsbjörg eru meðal aðiia sem ekki eru í at- vinnuskránni en ættu með réttu að Guðmundur Magnússon: Seðlabankinn megnar ekki meir „Vöxtunum var haidið niðri með aögerðum Seðlabankans og hann þoldi orðið lítið meira. Mér þykir lík- legt að bankinn sé nánast búinn með þaö sem hann megnar og þá þarf mjög Mtið til að vextir breytist," segir Guðmundur Magnússon prófessor. Þó Seðlabankinn hafi í fyrradag hækkað ávöxtunarkröfu sína í húsbréf og langtímaskuldabréf segir Guð- mundur ekki tímabært að draga þá ályktun að verðbólguskrúfan sé farin af stað. Ástæðan sé einkum sú að Seðla- bankinn hafi ekki lengur bolmagn til að halda vöxtum niðri. Að auki megi gera ráð fyrir að ásókn í innlent lánsfj- ármagn hafi aukist á almenna markað- inum, utan bankanna. Stálsmiðjan: Greiðslustöðvun framlengd Greiðslustöðvun Stálsmiðjunnar hf. hefur verið framlengd um þijá mánuði og hafa stjórnendur fyrir- tækisins því frest fram tii 23. sept- ember að endurskipuieggja rekstur- inn. „Við erum að vinna í að leysa þessi mál. Við hijótum að ræða við lánar- drottna fyrirtækisins sem eru sjóðir og ýmsir aðilar. Við erum bjartsýnir að okkur takist að klára okkar mál innan ekki allt of langs tíma,“ segir Skúli Jónsson, forstjóri Stálsmiðj- unnar; vera það. Ekki er vitað til að sam- band hafi verið haft við þessa aðila um að komast í atvinnuskrána og greiða um leið atvinnusímagjald. „Það hefur aldrei verið gert neitt í þessu máli. Það var einfaldlega klippt eftir ákveðinni línu,“ segir Sólveig. Ekki farið að tillögu Gunn- laugs Briem Sólveig leggur áherslu á að aðalá- stæða fyrir tvískiptingu símaskrár- innar hafi verið kvartanir yfir að skráin hafi veriö orðin of stór, þung og ómeðfærileg. í ljósi þeirra raka mætti ætla að Póstur og sími hefði tekið vel tillögu Gunnlaugs Briem, heimsþekkts leturgerðarmanns, um 30 prósent minna letur í símaskrána. Hún yrði þá feitletruð og jafn læsi- leg. Einfoldustu reikningar sýna að um ríflega 1000 blaðsíðna skrá hefði ekki orðið nema 700-800 síður, álíka stór og nýja nafnaskráin ein og sér. Að sögn Pósts og síma er leturtillaga Gunniaugs enn í athugun. Skurðurinn á símaskránni er mis- jafn en á sumum síðum er letrið kom- ið alveg niður á síöubotninn og hefur í nokkrum tilfellum farið út fyrir þannig að neðstu nöfn dálka hafa fallið út. Sólveig kann ekki skýringu á þessu en segir að fólk eigi umsvifa- laust að biðja um nýja skrá sé þetta tilfellið. Vitað er að mörg fyrirtæki hafa þurft að auglýsa í báðum skránum og orðið fyrir kostnaðarauka þess vegna, verulegum í sumum tilfellum. Það vekur upp spurningar úm fjár- hagslega útkomu af útgáfu síma- skrárinnar 1994. „Við vitum ekki nið- urstöðuna, hún hggur ekki fyrir enn- þá,“ sagði Sóley. Ceorg „umhverfisrábgjafi Islandsbanka" verbur í beinu sambandi á Bylgjunni og hvetur ykkur til dába. Með umhverfið á hreinu! Á afmœlisári lýöveldisins er lögö enn ríkari áhersla á umhverfismálin í starfsemi íslandsbanka. Nú hefur bankinn gefiö út bœkling um umhverfismál sem er fullur af fróöleik og ábendingum um þaö hvaö þú getur gert til aö lifa í sátt viö umhverfiö. Þar fœröu svör viö mörgum áleitnum spurningum. Spurningaleikur í tengslum viö bœklinginn „í sátt viö umhverfiö" bregöum viö okkur ískemmtilegan sumar- leik meö allri fjölskyldunni. Þú fœrö þátttökuseöil og bœkling í næsta útibúi íslandsbanka eöa á Edduhótelum. Taktu þátt í leiknum og svaraöu tíu spurningum um umhverfismál, svörin er öll aö finna í bœklingnum. Þeim ber aö skila fyrir 15. júlí. Dregiö veröur úr réttum svörum og veitt eftirfarandi verölaun: • Þrjár œvintýraferöir um ísland aö eigin vali fyrir tvo aö verömceti 50.000 kr. hver • Tíu 5.000 kr. innlegg á Sparileiö í íslandsbanka og 100 bolir í aukaverölaun Fróöleikur Þekking á umhverfinu er nauösynleg, því meiri, þeim mun betra. Frá 20. júní til 2. júlí, milli kl. 8 og 9 og 17 og 18 mun Ari Trausti Guömundsson flytja stutta pistla á Bylgjunni í boöi íslandsbanka. Þetta eru fróöleiksmolar um umhverfiö og náttúruna sem þú œttir ekki aö missa af. Þab er leikur ab lœra um umhverfib meb abstob íslandsbanka. Fylgstu meb og vertu meb. ^etílsstarf Ísla„dí6 'l'erkab vW*1' ISLANDSBANKI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.