Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1994, Síða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1994, Síða 9
LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ1994 9 Sviðsljós Julia Roberts með John Malkovich. Eruð þið orðnir þreyttir á margendurteknum sprunguviðgerðum. Talið við okkur því við höfum lausnina. Síðan árið 1981 höfum við klætt yfir 500 hús víðs vegar um landið með ISPO-MÚR. ISPO-MÚR er góður og ódýr kostur. /SPOi-klæðning er mun ódýrari en þú heldur. Gerum föst verðtilboð þér að kostnaðarlausu. Múrklæðning hf. Smiðsbúð 3, 210 Garðabæ, sími 658826, fax 658824 Julia Roberts: Himinlifandi meðnýjahlut- verkið Bandaríska leikkonan Julia Ro- berts er núna stödd í Englandi við upptökur á kvikmyndinni Dr. Jekyli og Hr. Hyde. Með aðalhlutverk ásamt Juliu Roberts fer John Malkovich. Sam- starf þeirra virðist ganga mjög vel enda er Julia himinlifandi með hlut- verkið. „Ég vissi um leið og ég hafði lokið viö að lesa handritið að mig langaði til að leika í kvikmyndinni. Fyrst fékk ég íiðring í magann sem síðan ágerðist og núna er eins og hann sé fuiiur af fiðrildum svo mikil er spennan, sagði Juiia Roberts. Aðdáendur hennar bíða spenntir eftir nýju myndinni enda hefur stjama hennar lækkaö eilítið eftir tvær frekar misheppnaðar myndir. Sharon Stone er ekki hrædd við vágesti enda sefur hún með byssu undir koddanum. Byssuglöð leikkona Hin þekkta leikkona Sharon Stone, sem lék m.a. í myndinni Basic Instinct, er byijuð að vígbúast af ótta við geðveikan aðdáanda. Undanfarnar vikur hefur Stone verið að fá hótunarbréf frá óþekktum manni. Það hefur komið í ljós að þe.ssi sami maður hefur verið að senda Margréti prinsessu svipuð bréf. Stone ætlar ekki að taka neina áhættu og sefur nú með byssu undir koddanum. Hún hefur einnig verið á námskeiði í skotfimi og hefur náð góðum árangri. „Ég mun ekki láta siðfræðina flækjast fyrir mér. Ef ég verð vör við einhvem ókunnan gest um miðja nótt þá mun ég skjóta hann. Ég er í góðri æfingu, bæði er ég nýbúin að leika í kúrekamynd þar sem ég lærði að bregðast skjótt við og svo er ég sveitastúlka og hef því handfjatlað byssur frá blautu bamsbeini," sagði Sharon Stone. Um daginn lét hún svo reyna á fimni sína með því að skora á Siivester Stallone í skotkeppni. Shar- on tapaði naumlega en var þó nokk- uð sátt við árangurinn. Greiðsluáskorun Innheimtumenn ríkissjóðs skora hér með á gjaldendur, sem enn hafa ekki staðið skil á staðgreiðslu og tryggingagjaldi til og með 5. tímabili með eindaga 15. júní 1994 og virðisaukaskatti til og með 16. tímabili með eindaga 5. júní 1994 og gjaldföllnum álagningum og ógreiddum hækkunum er féllu í gjalddaga til og með 15. júní s.l. á staðgreiðslu, tryggingagjaldi og virðisaukaskatti, virðisauka- skatti í tolli, launaskatti, bifreiðagjaldi, slysatryggingagjaldi ökumanna, föstu árgjaldi þungaskatts, þungaskatti skv. ökumælum, viðbótar- og aukaálagningu söluskatts vegna fyrri tímabila, skemmtana- skatti og miðagjaldi, virðisaukaskatti af skemmtunum, tryggingagjaldi af skipshöfnum ásamt skráningargjöldum, vinnueftirlitsgjaldi, vörugjaldi af innlendri framleiðslu, aðflutningsgjöldum og út- flutningsgjöldum, verðbótum á ógreiddan tekjuskatt og verðbótum á ógreitt útsvar, skipulagsgjaldi, skipagjaldi, fisksjúkdómagjaldi, jarðaafgjaldi og álögðum opinberum gjöldum, en þau eru: tekjuskattur, útsvar aðstöðugjald, eignarskattur, sérstakur eignarskattur, slysatryggingagjald vegna heimilisstarfa, tryggingagjald, iðnlánasjóðs- og iðnaðarmálagjald, lífeyristryggingagjald skv. 20. gr. laga nr. 67/1971, slysatryggingagjald atvinnurekanda skv. 36. gr., atvinnuleysistryggingagjald, kirkjugarðsgjald, gjald í framkvæmdasjóð aldraðra og skattur af verslunar- og skrifstofuhúsnæði. Gjaldendum skal bent á að gera skil nú þegar eða í síðasta lagi innan 15 daga frá dagsetningu áskorunar þessarar. Fjámáms verður krafist án frekari fyrirvara fyrir vangoldnum eftirstöðvum gjaldanna ásamt dráttarvöxtum og öllum kostnaði sem af innheimtu skuldarinnar kann að leiða, á kostnað gjaldenda, að þeim tíma liðnum. Athygli skal vakin á því að auk óþæginda hefur fjámámsgerð í för með sér verulegan kostnað fyrir gjaldanda. Fjámámsgjald í ríkissjóð er allt að 10.000 kr.' fyrir hverja fjámámsgerð. Þinglýsingargjald er 1.000 kr. og stimpilgjald er 1,5% af heildarskuldinni, auk útlagðs kostnaðar eftir atvikum. Em gjaldendur hvattir til að gera full skil sem fyrst til að forðast óþægindi og kostnað. Jafnframt mega þeir gjaidendur, sem skulda staðgreiðslu, tryggingagjald og virðisaukaskatt, búast við því að starfsemi þeirra verði stöðvuð án frekari fyrirvara. Reykjavík, 25. júní 1994 Gjaldheimtan í Reykjavík Tollstjórinn í Reykjavík Sýslumaðurinn í Kópavogi Gjaldheimtan á Seltjamamesi Gjaldheimtan í Garðabæ Sýslumaðurinn í Hafnarfirði Gjaldheimtan í Mosfellsbæ Sýslumaðurinn í Keflavík Gjaldheimta Suðumesja Sýslumaðurinn á Keflavíkurflugvelli Sýslumaðurinn á Akranesi Sýslumaðurinn í Borgamesi Sýslumaðurinn í Stykkishólmi Sýslumaðurinn í Búðardal Sýslumaðurinn á ísafirði Sýslumaðurinn í Bolungarvík Sýslumaðurinn á Patreksfirði Sýslumaðurinn á Hólmavík Sýslumaðurinn á Siglufirði Sýslumaðurinn á Sauðárkróki Sýslumaðurinn á Blönduósi Sýslumaðurinn á Akureyri Sýslumaðurinn á Húsavík Sýslumaðurinn á Ólafsfirði Sýslumaðurinn á Seyðisfirði Sýslumaðurinn á Neskaupstað Sýslumaðurinn á Eskifirði Sýslumaðurinn á Höfn Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum Sýslumaðurinn á Selfossi Sýslumaðurinn í Vík Sýslumaðurinn á Hvolsvelli Gjaldheimta Vestfjarða Gjaldheimta Austfjarða Gjaldheimtan í Vestmannaeyjum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.