Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1994, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1994, Qupperneq 10
10 LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 1994 Tvíburabræðurnir Marinó og Hlynur Sigurðssynir leika Bamm Bamm í Steinaldarmönnunum: Ótrúlega skemmti - leg lífsreynsla - segja foreldramir Ágústa Hreinsdóttir og Sigurður Ómar Sigurðsson „Viö höfum búiö í Kaliforníu í rúm þrjú ár og þaö var fyrir tilviljun aö Gústa sá auglýsingu frá Universal Studio í blaði þar sem auglýst var eftir eineggja tvíburum á aldrinum 4-6 ára í hlutverk Bamm Bamm í bíómynd um Fred Flintstone. Ekki var krafist nokkurrar leikreynslu," segir Sigurður Ómar Sigurösson, faöir tvíburanna Marinós og Hlyns sem leika í kvikmyndinni The Flint- stones. Hún var frumsýnd í Banda- ríkjunum um miöjan maí og verður frumsýnd á íslandi 22. júlí. Móðir tvíburanna, Ágústa Hreinsdóttir, segir að henni hafi strax fundist eins og hlutverkiö væri sniðiö fyrir þá bræður. „Okkur datt síðan í hug að skreppa í sunnudagsbíltúr og fá að kíkja bak- sviðs í Universal meö því aö fara með strákana í prufu. Við gerðum okkur ekki nokkrar vonir um að þeir fengju hlutverkið," segir Sigurður. Ágústa bætir við að aðstandendur myndar- innar hafi verið að taka á móti tví- burum stöðugt í tvo daga. „Við fórum seinni daginn og komum reyndar rétt áður en þessu var lokið,“ segir hún. Völdu sér gull- og silfurstóla „Móttakan var í stórri skemmu þar sem allir veggir voru kolsvartir. Búið var að koma fyrir stóru tjaldi sem skipti hluta skemmunnar. Þarna voru tvö borð og um 40 stólar. Við hittum fyrst aðstoðarráðningarstjór- ann sem varð strax hrifinn af strák- unum. Hann lét okkur fá blöð til að útfylla og við settumst á fellistóla úr járni sem þama voru. Þá þurfti Mar- inó að fara á klósett svo pabbi hans fór með hann en Hlynur varð eftir hjá mér. Hins vegar átti hann erfitt með að vera kyrr og fór að brölta um og færa til stóla með tilheyrandi hávaða. Hann kom þá auga á gylltan stól sem þar var skammt frá, sótti hann, stillti honum upp við hliðina á mínum stól og settist eins og prins. Þegar Marinó kom til baka og sá fína stólinn sem Hlynur var sestur í fór hann að leita um salinn að öðrum og kom með silfurlitaðan stól til baka. Mér fannst þetta svolítið skemmtileg tilviljun því þetta voru einu stólamir í húsinu sem voru í öðmm litum,“ segir Ágústa þegar hún rifjar upp þennan eftirminnilega dag. Máttu ekki klippa sig „Eftir viðtöl og prufur hjá leikstjór- anum, Brian Levant, og aðstoðar- mönnum hans var okkur sagt að haft yrði samband við okkur. Við sögðum strákunum aldrei hvað stæði til svo þeir gerðu sér engar vænting- ar. Eftir að við höfðum farið í kvik- myndaverið fórum við í dýragarð og áttum skemmtilegan dag. Stuttu eftir að við komum heim um kvöldið hringdi ráðningarstjórinn og sagði að leikstjórinn hefði verið mjög hrif- inn af strákunum og bað okkur að koma í aðra prufu. Þá brá okkur svo- lítið,“ segir Ágústa. „Ráðningarstjór- inn hringdi aftur daginn eftir til að minna okkur á aö láta ekki klippa þá fyrir prufutökur því að engu mátti breyta,“ heldur hún áfram. Siguröur Ómar bætir við að þetta sem þeir verða viöstaddir. Gerður hefur verið samningur um tvær myndir í viöbót hjá Universal ef gert verður framhald myndarinnar. Fjöl- skyldan er hins vegar ákveðin í að flytja heim eftir eitt og hálft ár en þá lýkur starfstímabili Sigurðar. „Ég starfa hjá fyrirtæki sem heitir Kögun en við erum að vinna að verkefni í sambandi við loftvarnakerfi fyrir herinn. Kögun kemur til með að sjá um hugbúnaðarviðhaldið. Við erum að vinna með fyrirtæki í Kaliforníu við að byggja þetta kerfi upp þannig að við getum starfað með það þegar það verður flutt hingað heim eftir um það bil eitt og hálft ár,“ útskýrir hann. Tviburasysturnar Elaine og Melaine léku dóttur Freds Flintstone, Pebb- les, og tvíburabræðurnir Marinó og Hlynur léku Bamm Bamm. Það er ómögulegt að sjá hver þeirra eru hér í hlutverkum sinum. Minna á Neander- dalsmanninn Þeim Sigurði og Ágústu fannst ekki mikið mál að fara með fjögur börn til Ameríku fyrir þremur árum enda segjast þau hfa fyrir líðandi stund og vera tilbúin að breyta til ef slíkt kemur upp. Þau höfðu áður fariö til Bandaríkjanna árið 1981 þegar Sig- urður Ómar fór í nám. Þá var aöeins eldri dóttirin, Sandra Ósk, fædd og sú yngri, íris, bættist síðan í hópinn. Fjölskyldan var í fimm ár í Banda- ríkjunum en flutti síðan heim. Tví- burarnir Marinó og Hlynur fæddust á íslandi 16. júni árið 1988 en voru tveggja og hálfs árs þegar fjölskyldan flutti á nýjan leik til Bandaríkjanna. íslensku tvíburamir Marinó og Hlynur þóttu hafa sérstakt útht og minna svolítið á Neanderdalsmann- inn. „Þeir hafa glampann í augun- um,“ útskýrði leikstjórinn þegar tíl- kynnt var hveijir fengju hlutverkið. Ágústa, móðir þeirra, segir að þetta hafi ekki raskað lífi þeirra neitt sér- staklega mikið enda hafi hún verið heimavinnandi húsmóðir. „Dætur okkar voru velkomnar í þetta hka og fengu að taka fuhan þátt í þessu með okkur. Einnig fengu þær aö leika aukahlutverk, fóru í búninga og förðun þannig að þetta var mikil Marinó og Hlynur i fanginu á föður sinum, Sigurði Ómari Sigurössyni, og mamman, Ágústa Hreinsdóttir, og önn- ur systirin, íris 9 ára, samankomin heima hjá afa og ömmu á íslandi. DV-myndir GVA hafi verið mjög spennandi og skemmthegt andrúmsloft. „Þama var eitthvaö að gerast sem maður hafði aldrei hugleitt að maður ætti eftir að verða hluti af,“ segir hann. „Við höfðum engan umboðsmann og vorum ekkert að eltast við að komast þama að. Það er mikh aðsókn for- eldra að koma bömum sínum í kvik- myndir og sumir gera út á þetta,“ segir hann. Viku síðar fóra tvíburamir í aðra prufutöku þar sem leikstjórinn og aðstoðarfólk hans spjöhuðu viö þá fyrir framan myndavéhna. „Við bið- um á biöstofu á meðan. Strákarnir fóm í nokkrar prufur eftir þessa og nokkur tími leið áður en við fengum að vita hvort þeir yrðu ráðnir. Leik- stjórinn þurfti að bera ráöninguna undir framleiðendur og fleiri að- standendur myndarinnar," segja for- eldramir. Bamm Bamm á frönskum Markaðssetning myndarinnar í Bandaríkjunum er ekki minni en fyrir t.d. Jurassic Park. Það em komnar á markaðinn brúður, bæk- ur, myndir, bolir, húfur, afmæhs- diskar og hvaðeina fleira úr bíó- myndinni. Einnig hefur McDonald’s hamborgarakeðjan gert samning um að birta myndir af Bamm Bamm á öskjum undir franskar kartöflur. Þeir Marinó og Hlynur tóku með sér sýnishorn af öllum þessum hlutum heim th íslands og einnig aðdáenda- bréfm sem voru farin að streyma heim th þeirra. Fjölskyldan kom heim th íslands th að vera viðstödd lýðveldisafmæh þjóðarinnar enda skundaði hún á Þingvöll á sautjánda. Þau munu dvelja hér th 5. júlí en strákamir verða farnir þegar fmmsýning verð- ur á The Fhntstones. Hins vegar mun verða aukasýning þann 3. júh þar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.