Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1994, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1994, Page 12
12 LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 1994 Erlendbóksjá Metsölukiljur Bretland Skáldsögur: 1. John Grisham: The Client. 2. Roddy Doyle: Paddy Clarke Ha Ha Ha. 3. Jitly Cooper: The Man Who Made Hus- bands Jealous. 4. John le Carré: The Night Manager. 5. Barbara Taylor Bradford: Angel. 6. Jeffrey Archer: Honour among Thieves. 7. Jack Higgíns: Thunder Polnt. 8. Thomas Keneally: Schindler's List. 9. Barbara Víne: Ast'as Book. 10. Carol Shields: The Stone Diaries. Rit almenns eölis: 1. Jung Chang: Wild Swans. 2. J. McCarthy & J. Morrell: Some Other Rainbow. 3. Alan Clark: Diaries. 4. Jill Tweedie: Eating Children. 5. Brian Keenan; An Evil Cradling. 6. Blake Morríson; And When Did You Last See Your Father? 7. Howard Rheingold: Stereogram. 8. Margaret Forster; Daphne du Maurier. 9. Nick Hornby: Fever Pitch. 10. Ros Asquith: I Was a Teenage Worrier. (Byggt á The Sunday Times) Danmörk Skáldsögur: 1. Peter Heeg: Froken Smillas fornemmelse for sne. 2. Troels Klevedal: Oerne under vínden. 3. Alice Walker: Andetemplet. 4. Kirsten Thorup: Den yderste grænse. 5. Dorothy L. Sayers: Peter Wimsey i Oxford. 6. Dan Turéll; Vrangede billeder. 7. Peter Hoeg: Fortaellinger om natten. (Bygyt é Politikon Sondag) N asreen 1 felum Öll heimsbyggðin hefur lengi fylgst með rithöfundinum Salman Rushdie sem var dæmdur til dauða af trúar- leiðtogum í íran fyrir meira en hálf- um áratug. Hann er enn í felum, í vandlegri gæslu öryggisvarða. En Rushdie er ekki eini rithöfund- urinn sem hefur kallað yfir sig dauðadóm öfgasinnaðra múslíma, fatwa. í ríkinu Bangladesh, sem á landamæri að Indlandi, fer skáld- konan Taslima Nasreen nú huldu höfði á meöan æstur múgurinn fjöl- mennir í hópgöngur til að krefjast þess að hún verði handtekin og tekin aflífi. Margra ára stríó Taslima Nasreen, sem er 32 ára, hefur lengi átt í stríði við trúarleið- toga múslíma í heimalandi sínu - enda eru skoðanir hennar afdráttar- lausar og lifshættir í litlu samræmi við strangar kröfur múslíma. Bók- stafstrúarmenn í röðum múslíma telja sem kunnugt er að konur eigi að vera körlum undirgefnar í öllu; svo sé fyrir mælt í trúarritinu mikla, Kóraninum. Nasreen hefur barist hatrammlega gegn slíkum kenning- um, hvatt konur til frelsis og sjálf- stæðis og lifaö sjálf í samræmi við það. Hún er til að mynda þrígift - og skilin. Nasreen hefur lagt áherslu á frelsi kvenna, meðal annars í ástarmálum og trúmálum, í skáldsögum sínum sem eru vinsælar þótt deilt sé um Taslima Nasreen: heittrúaðir múslímar í Bangladesh krefjast þess að hún verði tekin af lífi. Simamynd Reuter Umsjón Elías Snæland Jónsson bókmenntalegt gildi þeirra. Á síðasta ári keyrði hins vegar um þverbak í samskiptum hennar við trúarleið- toga múslíma. Þá sendi hún frá sér skáldsöguna „Lajja“ (Skömm). Þar íjallar hún um hóp Hindúa sem hlýt- ur afar illa meðferð af hálfu múslímskra meðbræðra sinna. Trú- arleiðtogar urðu æfir en bókin hlaut gífurlegar vinsældir meðal Hindúa. Sagan var til dæmis á metsölulista Indlands allt áriö og hefur nú verið þýdd á ensku og ýmis fleiri tungu- mál. Dauðadómur Vegna bókarinnar kváðu samtök heittrúarmanna upp dauðadóm, fatwa, yfir Nasreen og hétu nokkurri greiðslu til hvers þess sem vildi vinna slíkt ódæði. Hún lét þetta ekki á sig fá og hélt áfram að búa á heim- ili sínu í Dhaka, höfuðborg Bangla- desh. Málin tóku hins vegar nýja stefnu þegar indverska dagblaðiö The Stat- esman birti viðtal við Nasreen fyrir fáeinum vikum. Þar gagnrýndi hún mjög Kóraninn, sem væri vopn til að halda konum niðri, og hvatti til endurskoðunar þessarar biblíu mú- slíma. Viðbrögð heittrúarmanna voru geysihörð. Fjölmennar mótmæla- göngur fóru um götur höfuðborgar- innar. Þar var sett fram krafan um að Nasreen yrði handtekin og tekin af lífi fyrir að svívirða trúarbrögð múslíma. Ríkisstjórn landsins lét undan þrýstingi og gaf út handtöku- skipun. Þá lét Nasreen sig hverfa og er ekki vitað um dvalarstað hennar. Nasreen nýtur stuðnings margra menntamanna í heimalandi sínu, þótt þeir séu ekki alltaf sammála vinnubrögðum hennar. Enda er hér tekist á um grundvallarmannrétt- indi, það er rit- og tjáningarfrelsi - alveg eins og í máli Salmans Rushdi- es. Metsölukiljur Bandaríkin Skáldsögur: 1. Scott Turow: Pleading Guilty. 2. John Grisham: The Cfient. 3. Robert Ludlum: The Scorpio lllusion. 4. Mary Higgins Clark: l’ll Be Seeing You. 5. Nancy Taylor; Interest of Justice. 6. Kevin J. Anderson: Dark Apprentice. 7. E. Annie Proulx. The Shipping News. 8. Anne Rivers Siddons: Hill Towns. 9. Patrícta D. Cornwell: Cruel & Unusual. 10. Dean Koontz: The Funhouse. 11. Lawrence Sanders: McNally's Risk. 12. Susan Isaacs: After All These Years. 13. Stephen Coonts: The Red Horseman. 14. Stephen King: The Stand. 15. John Grisham: A Time to Kill. Rit almenns eðlis: 1. Thomas Moore: Care of the Soul. 2. Bailey White: Mama Makes up Her Mind. 3. M. Scott Peck: The Road Less Travelled. 4. Peter D. Kramer: Listening to Prozac. 5. Lewis B. Puller Jr.: Fortunate Son. 6. Joan W. Anderson: Where Angels Walk. 7. Maya Angelou: I KnowwhytheCaged Bírd Sings. 8. M. Hammer & J. Champy: Reengineering the Corporation. 9. Susanna Kaysen: Girl, Interrupted. 10. Deborah Laake: Secret Ceremonies. 11. Cornel West: Race Matters. 12. Benjamin Hoff: The Tao of Pooh. 13. Cornelius Ryan: The Longest Day. 14. Peter Mayle: A Year in Provence. 15. Gail Sheehy: The Silent Passage. (Byggt á New York Times fiook fteview) Vísindi 2000 ára prinsessa snyrt og snurfusuð Vísindamennirnir, sem sjá um iík Leníns í Moskvu, glíma nú við forna prins- essu. Líf á öðmm hnöttum Nýlegar Ijósmyndir frá Hubble geimsjónaukanum sýna að rykagnir mynda eins konar kringlu utan um margar stjömur í Óríon stjörnuþokunni. Hugsan- legt er að plánetur verði einhvern tíma til úr rykkringlum þessum, eins og jörðin og aðrar plánetur í sólkerfinu okkar fyrir 4,5 millj- örðum ára. Þessi uppgötvun þykir auka lik- urnar á því að líf finnist annars staðar i himingeimnum. Stjörnumar í Óríon þokunni em hins vegar ungar, yngri en einnar milljón ára og nokkrar aðeins þrjú hundruö þúsund ára gamlar. Stjömuþokan er í 1500 ljósára fjarlægð frá jörðu. Blóðflögur búnartil Hópar vísindamanna í Banda- ríkjunum og Frakklandi hafa ein- angraö efni það sem líkaminn notar til að framleiða bióðflögur sem em nauðsynlegar til þess að blóð storkni. Uppgötvun þessi gæti gagnast krabbameinssjúklingum sem fara í iyíjameðferö eða merg- flutning og hafa þess vegna of lít- ið af þessum blóðflögum. Aukin hætta er á blæðingum hjá slíkum sjúkiingum. Umsjón Guðlaugur Bergmundsson Vísindamennirnir sem sjá um að varðveita lík Vladimirs Leníns, bylt- ingarleiðtoga úr Sovétríkjunum sál- ugu, hafa nú tekið að sér enn erfið- ara verkefni, nefnilega að koma aftur til fyrra horfs múmíu tvö þúsund ára gamallar prinsessu af hinni forn- írönsku hirðingjaþjóö Skýþum sem byggði sléttur Suður-Rússlands. Rússneskir fomleifafræðingar fundu smurða múmíuna í fyrra á hinni afskekktu Umok hásléttu í suð- urhluta Síberíu. Þeir kalla ungu prinsessuna „Dömuna". Múmían var send til Novosibirsk þar sem hún var geymd í kæliklefa fyrir mjólkurafurðir í átta mánuði. Hörand hennar hefur hins vegar skroppið saman og dökknað eftir að það komst í snertingu við andrúms- loftið en var mjólkurhvítt þegar Da- man fannst. Múmían er nú í höndum vísinda- stofnunar þeirrar í Moskvu sem hef- ur séð um að varðveita smurt lík Leníns í grafhýsinu á Rauða torgi. „Við ætlum að færa htaraft hennar til eðliiegra horfs,“ segir Vladislav Kozeltsev, sem hefur fengist við líkið af Lenín í fimmtán ár. „Maður getur séð hvenær fólk hef- ur verið í megmn af því að hörundið er alit laust. Þaö litur bústnara út ef maður gefur því að borða. Það ætlum viö gera viö múmíuna." Ekki vill Vladislav þó segja frá því hvaða aðferðum verður beitt. „Smumingsaðferð okkar var eitt sinn ríkisleyndarmál en nú er hún viðskiptaleyndarmál," segir hann. Vísindamönnunum í Moskvu hef- ur þegar oröið nokkuð ágengt í að flikka upp á múmíuna. Þegar hún fannst fyrst var húðflúr af goðsögu- legum ófreskjum sjáaniegt á öxl hennar og þumh en eftir aðeins tveggja vikna dvöl á vísindastofnun- inni sést húðflúrið á öllum hand- leggnum. Sex hestar og reiðtygi þeirra vom grafnir með prinsessunni, auk þess diskar, spegiil og örlítið af kannabis til að koma henni á auðveldari hátt inn í annað líf. Sjálf var hún klædd í hvítan silkikjól og skarlatsrautt ull- arpils. Vísindamennimir segja að prins- essan hafi látist að vetrarlagi en ekki verið grafin fyrr en síðla vors. Lík hennar lá í holum lerkitrésbol sem var skreyttur með útskommum leð- urmyndum af dádýrum og snjóhlé- börðum. Eftir aö gröfinni var lokað seytlaði vatn niður í hana og fraus og þannig varöveittist Daman í tutt- ugu aldir. Vonast er til að hægt verði að senda múmíuna aftur til Novosibirsk fyrir árslok og verður henni þá komið fyr- ir í glerkassa, alveg eins og Lenín í grafhýsi sínu í Moskvu. Kemst hraðar en Miguel Alcubierre, sérfræðing- ur í afstæðiskenningunni við Walesháskóla í Cardiff, segist hafa sannað stærðfræöilega að möguiegt sé að ferðast hraðar en ijósið. Það mun vera hægt með því að aflaga geiminn. Slíkt gengur i berhögg við einn grundvallarþátt afstæðiskenn- ingar Einsteins sem segir að ekk- ert komist hraðar en ljósið. Alcubierre segir að útreikning- amir sé mjög einfaldir og hann hafi gert þá á einum degi, bara aö gamni sínu. Hann segir þó óvist að þessi kenning verði nokkum tíma að raunveruleika. En ef svo færi yröu ferðalög um geiminn mun auðveldari. Stúturundir stýri búinn Þess verður ef til viU ekki langt aö bíða að drukknir ökumenn heyri sögunni til. Jú, þaö er nefni- lega búið aö finna upp eins konar svartan kassa sem lætur öilum iilum látum ef ölvaður maöur sest undir stýri. Þegar kassinn nemur vínanda inni í bílnum er ekki hægt að gangsetja ökutækiö og ef öku- maöur þráast við fara ljós að biikka. Svo er ekki einu sinni hægt að gahha kassann með því að láta edrú farþega anda i hann því tækið nemur alla áfengislykt í bflnum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.