Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1994, Síða 14
14
LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 1994
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM
Aðstoðarritstjóri: ELlAS SNÆLAND JÓNSSON
Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og GUÐMUNDUR MAGNÚSSON
Auglýsingastjórar: PALL STEFANSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI 11,
blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 14, 105 RVlK. SlMI (91)63 27 00
FAX: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91 )63 29 99
GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Askrift: 99-6270
AKUREYRI: STRANDG. 25. SlMI: (96)25013. BLAÐAM.: (96)26613.
FAX: (96)11605
Setning, umbrot, mynda- og plötugerð:
PRENTSMIÐJA FRJALSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11
Prentun: ÁRVAKUR HF. - Askriftarverð á mánuði 1400 kr. m/vsk.
Verð í lausasölu virka daga 140 kr. m/vsk. - Helgarblað 180 kr. m/vsk.
Haustkosningahvati
Bætt staða ríkisstjómarflokkanna í nýjustu skoðana-
könnun DV er þegar farin að hvetja þá til haustkosn-
inga. Þótt stjómarflokkamir hafi ekki náð öllu fylgi sínu
úr síðustu kosningum, em þeir þó greinilega mun betur
settir en þeir hafa verið í könnunum síðustu tvö árin.
Ekki falla samt röksemdir málsins allar 1 einn og sama
farveg. Kosningaspáin, sem byggist á skoðanakönnun-
inni, felur í sér 21 þingmann Sjálfstæðisflokksins og 9
þingmenn Alþýðuflokksins. Það dugar þeim ekki til að
endurnýja núverandi stjómarmynztur eftir kosningar.
Einnig þarf að hafa í huga, að hefð er fyrir því að líta
vinsamlegri augum þær ríkisstjómir, sem halda út í
heil kjörtímabil, heldur en þær, sem gefast upp fyrir tím-
ann. Þolgæði er af mörgum talið vera merki um gott
stjómarsamstarf og jafnvel traust stjórnarfar.
Þriðja atriðið mælir gegn haustkosningum. Það er, að
Jóhanna Sigurðardóttir mun vafalítið reynast hafa meira
fylgi en flokksformaður hennar í prófkjöri, sem hugsan-
legt er, að flokkurinn neyðist til að halda í Reykjavík,
ef hann getur ekki afsakað sig með tímahraki.
Flest annað stuðlar að haustkosningum. Eftir óvænt
hvarf Jóhönnu úr ráðherrastóli verður erfiðara fyrir rík-
isstjómina að ná saman meirihluta á Alþingi og hefur
það þó reynzt vera nógu erfitt fyrir. Einkum verður þetta
bagalegt við næstu fjárlagaumræðu á Alþingi.
Ekki þarf nema atkvæði Jóhönnu og Inga Bjöms Al-
bertssonar til að koma ríkisstjóminni í minnihluta, ef
hún nær ekki atkvæðum frá stjómarandstöðunni. Ýmsir
aðrir þingmenn stj ómarflokkanna hafa sýnt tilhneigingu
til að hlaupa út undan sér í viðkvæmum málum.
Ljóst er, að ríkisstjórnin mun að vori ekki geta sýnt
neinn árangur í starfi umfram þann, sem hún getur sýnt
í haust. 'Meira að segja er hætta á, að næsta vor verði
komin meiri bilunareinkenni í lágu vextina og htlu verð-
bólguna, sem ríkisstjómin mun hrósa sér af í haust.
Fjármálaráðherra hefur gefið tóninn með plaggi, sem
sýnir ýmsa möguleika á aðhaldi í ríkisrekstri á næsta
kjörtímabili, eftir að slíkt aðhald hefur að mestu mistek-
izt á þessu kjörtímabili. Við hverfulan meirihluta á Al-
þingi er ólíklegt, að stjómin bæti þessa stöðu í vetur.
Seðlabankinn hefur þegar neyðzt til að hækka vaxta-
kröfu í sumum tegundum langtímalána. Þótt bankastjóri
Sjálfstæðisflokksins segi þetta ekki fela í sér neina spá
um aukna vexti og verðbólgu á næstunni, er ljóst, að
hækkuð vaxtakrafa felur í sér ótta við framtíðina.
Áhugi á haustkosningum er meiri í Sjálfstæðisflokkn-
um en Alþýðuflokknum, því að ýmsir vilja skipta út
Alþýðuflokloium fyrir Framsóknarílokkinn, sem tahnn
er hafa færzt til hægri við formannaskiptin, þegar Hah-
dór Ásgrímsson tók við af Steingrími Hermannssyni.
Um leið hefur smám saman komið í ljós, að miklir
annmarkar em á, að samstaríið um Reykjavíkurhstann
og hhðstætt samstarf í ýmsum öðrum byggðum geti end-
urspeglazt í landsmálum, þar sem línur mihi flokka eru
mun skarpari en í sveitarstjómarmálum.
Um þessar mundir er því að draga úr ótta í Sjálfstæðis-
flokknum um, að yfirvofandi haustkosningar muni draga
flokka Reykjavíkurhstans í sameiginlegt landsframboð,
sem muni eftir kosningar neyða þá flokka til að mynda
með sér vinstri stjóm gegn Sjálfstæðisflokknum.
Samanlagt era þau atriði heldur fieiri og þungvægari,
sem hvetja stjómarflokkana til haustkosninga, heldur
en hin, sem letja þá til að mæta kjósendum að hausti.
Jónas Kristjánsson
Nánara samband
Rússlands og
vesturveldanna
Hindranir eru aö láta undan í sam-
skiptum Vesturlanda og Rússlands
á því sviði sem erfíðast er viðfangs
eftir það sem á undan er gengið en
skiptir líka mestu ef í harðbakkann
slær, skipan öryggismála í Evrópu
allri.
Á fundi í janúar ákváðu ríki
Norður-Atlantshafsbandalagsins
að sinna ekki í næstu framtíð ósk-
um ríkjanna milh Rússlands og
aðildarríkja NATO um aðild aö
bandalaginu, ekki síst vegna and-
stöðu Rússlandsstjórnar við
stækkun þess í austur. í staðinn
var boðin aðild að laustengdum
samstarfsvettvangi, Félagsskap
um frið sem stæði opinn öllum
fyrrum aðildarríkjum Varsjár-
banbalagsins og Sovétríkjanna.
Ekki fór leynt að stjórnum ríkja
eins og Póllands og Eystrarsalts-
ríkjanna þótti þetta þunnur þrett-
ándi en komust þó að þeirri niður-
stöðu aö Félagsskapur um frið
væri betri en ekki neitt. Hafa tveir
tugir gerst aðilar.
Félagsskapur um frið gerir ráð
fyrir samráði milh NATO og hinna
ríkjanna hvers um sig um verkefni
eins og gerð hernaðaráætlana, her-
æfingar og friðargæslu. Þar að auki
fá ríkin að koma upp skrifstofum í
Brussel fyrir hermálafuhtrúa sína
hjá NATO.
Rússlandsstjórn sagði strax að
stórveldi eins og Rússlandi nægði
ekki að verða sett á bekk með
smærri ríkjum Mið- og Austur-
Evrópu. Hefur togstreita um sam-
bandið milli NATO og Rússlands
staðið síðustu mánuði.
Meðal annars kom Pavel Grat-
sjov, landvamaráðherra Rúss-
lands, á fund starfsbræðra sinna
frá ríkjum Atlantshafsbandalags-
ins. Var málflutningur hans þar
túlkaður svo af gagnaðilanum að
Rússlandsstjóm færi fram á að fá
Erlend tídindi
Magnús Torfi Ólafsson
neitunarvald um ákvarðanir af
hálfu NATO. Var sá skilningur
lagður í tihögu Rússa um að NATO
ásamt öðmm öryggisstofnunum í
Evrópu yrði sett undir Ráðstefn-
una um öryggi og samstarf í Evr-
ópu, samtök 50 ríkja, þar sem
ákvarðanir verður aö taka í einu
hljóði.
Nú er samningaþófi lokiö. Á mið-
vikudag undirritaði Andrei Kos-
írev, utanríkisráðherra Rússlands,
aðild þess að Félagsskap um frið í
Brussel. Jafnframt var gengiö frá
sameiginlegri yfirlýsingu Rúss-
landsstjómar og NÁTO um sam-
starf þeirra um fram það sem Fé-
lagsskapurinn áskilur.
Þar er lýst yfir að Rússland og
bandalag vestrænu ríkjanna hafi
ákveðið að halda uppi sín á milli
samráði um póhtísk og hemaðar-
leg viðfangsefni sem Evrópu varöa.
Þá ætla aðilar að ráðgast um kjam-
orkuvopnabúnað og öryggi og um
ráðstafanir til að afstýra dreifingu
gereyðingarvopna, sér í lagi til
svæða þar sem óstöðugleiki ríkir.
Andstæöingar Jeltsíns Rúss-
landsforseta á þingi reyndu þegar
í stað að nota aðildina að Félags-
skap um frið gegn honum, sögðu
hana enn eitt dæmið um undir-
lægjuhátt stjórnar hans við vestur-
veldin. Tillaga um að ógilda undir-
ritun Kosírevs í Brussel, borin
fram af þjóðemissinnum og komm-
únistum í sameiningu, féll með níu
atkvæða mun.
Helstu póhtískir árekstrar stjóm-
ar Rússlands og vesturveldanna í
Evrópumálum upp á síðkastið hafa
orðið út af því að Rússum þykir
fram hjá sér hafa verið gengið við
ákvarðanatöku, til dæmis um loft-
árásir á Bosníu-Serba. Verði sam-
ráðið sem ákveðið var í Brussel að
veruleika ætti framvegis að mega
sneiða hjá slíkum erjum.
Nú er líka í augsýn að útflutning-
ur Rússlands til Evrópusambands-
ins verði greiðari en áður, en við-
skiptin við það em höfuðskilyrði
fyrir að efnahagur Rússa rétti við.
Viðskiptasamningur Rússlands og
ESB hefur legið fyrir í misseri en
undirritun hefur strandað á kröfu
Frakklandsstjómar um tryggingu
fyrir að yfirburðastaða Frakka á
markaðinum fyrir auðgað úran til
kjarnorkuvera verði ekki skert
með undirboðum af hálfu Rússa.
Nú er þessi vandi leystur og þeg-
ar þetta er ritað er Jeltsín Rúss-
landsforseti kominn til grísku eyj-
arinnar Korfú til að undirrita
samninginn ásamt æðstu mönnum
ESB sem þar halda fund.
Eftir mánaöamót er svo í vænd-
um fundur æðstu manna sjö helstu
iönríkja heims í Napoh og þangað
er Jeltsín boöið til sérstakra viö-
ræðna. Loks skýrði utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna frá því í
Brussel að Rússlandsforseti hefði
þegið boð Bills Clintons forseta um
fund þeirra í Washington með
haustinu.
Borís Jeltsin Rússlandsforseti umkringdur fréttamönnum á Korfú. Þar undirritaði hann ásamt forustumönnum
ríkja Evrópusambandsins samning um viðskipti og pólitísk og efnahagsleg tengsl Rússlands og ESB.
Símamynd Reuter
Skoðaiiir annarra
Sjaldan fellur eplið .. .
„Á hverju ári fæðast nærri fjögur hundruð þús-
und börn stúlkum sem hafa ekki lokið framhalds-
skólanámi, sem eiga ekki eiginmenn og sem eiga htla
framtíðarmöguleika. Áttatíu prósent þessara barna
munu kynnast fátækt og líklegra en ekki er að munu
ekki bíða þess bætur. Mörg þeirra munu feta í fót-
spor mæðra sinna og verða einstæðir foreldrar. Brátt
verða þau ábyrg fyrir þriðja hveiju barni sem fæðist
í Bandaríkjunum. En ekki fjárhagslega ábyrg.“
Úr forustugrein New York Times 18. júní.
Hætta á klofningi
„Meirihlutastuðningur við aðhd að ESB á flokks-
þingunum tveimur (sænska og norskra jafnaðar-
manna) endurspeglar ekki afstöðu almennra flokks-
manna og kjósenda. Þar er andstaöan miklu meiri
og þess vegna er hætta á að í Noregi og Svíþjóð komi
upp klofningur mhli póhtísku hástéttarinnar og kjós-
enda eins og maður sá í dönsku atkvæðagreiðslunum
um Maastricht-samninginn."
Úr forustugrein Politiken 21. júní.
Björgum milljónum
„Þingið getur verndað ungt fólk og aðstoðað 80
prósent þeirra sem vilja hætta að reykja með því að
veita matvæla- og lyfjaeftirlitinu vald th þess að
banna söluvélar og aðra sölustaði þar sem unglingar
geta nálgast sígarettur á auðveldan hátt. Það getur
aðstoðað með því að banna að tóbaksvörur séu gefn-
ar og krefjast fyllri upplýsinga um áhrif reykinga á
hehsuna í auglýsingum. Slæmu tíðindin fyrir tóbaks-
iðnaðinn eru aö slíkar reglur mundu draga úr sölu.
Góðu tíðindin fyrir þjóðina eru að mhljarðar dollara
mundu sparast og mhljónum mannslífa yrði bjarg-
að.“ Úrforustugrein USA Today 22. júní.