Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1994, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1994, Qupperneq 15
LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 1994 15 Trufliiní skyndisókn ana. Brasilíumenn eiga viö mörg vandamál aö stríöa, sagði nýlega í grein í vikuritinu Newsweek. Vanda Brasilíumanna var síðan lýst og var sá listi ekki fallegur. Þar er verðbólgan há, fátækt mikil og pólitísk spilling á háu stigi. En þetta er þó hjóm eitt hjá þeirri sál- arangist Brasilíumanna að 24 ár eru hðin frá því að karlalandslið þeirra vann síðast heimsmeistara- titil í knattspyrnu. Newsweek sagði að þetta væri mikil byrði að bera fyrir landshð Brashíu. Blaðið bætti því hins veg- ar við að í liðinu væru frábærir knattspymumenn og sigurvilji liðsins mikih. Af þessari lýsingu sést hve gríðarleg áhersla er lögð á þjóðaríþróttina, knattspyrnuna. Kröfurnar, sem almenningur gerir til sinna manna, eru nær ómennsk- ar. Ef vel gengur eru hð og einstakl- ingar nánast teknir í guðatölu en geri menn mistök eða tapi stendur ekki steinn yflr steini. Þjálfari og einstakir leikmenn eru þá úthróp- aðir og eiga sér ekki viðreisnar von - nema þá að góður sigur vinnist næst. Knattspyrna ogþjóðlíf Þessi knattspymudýrkun er mest áberandi í Suður-Ameríku. Víðar er þó skjálfti og ekki þarf að fara lengra en til nálægra Evrópuþjóða. Það var til dæmis mikið áfall fyrir gróin knattspyrnustórveldi eins og England og Frakkland aö komast ekki til Bandaríkjanna í loka- keppni heimsmeistaramótsins. Þá hafa Danir tæpast glaðst enda ný- lega Evrópumeistarar. Þjóðir eins og Norðmenn, sem ekki hafa átt hð í lokakeppni áratugum saman, hugsa hins vegar varla um annað en gengi hðs síns í Bandaríkjunum. Norsk blöð eru undirlögð af knattspyrnufréttum og frægt varð verkfall sjónvarpsmanna norska sjónvarpsins í upphafi keppninnar. Þá lá við átökum enda óttuðust landsmenn það að missa af beinum útsendingum af hetjum sínum vestanhafs. Það mál leystist þó á síðustu stundu. Við íslendingar eigum ekki fuh- trúa í þessari lokakeppni í Banda- ríkjunum. Það breytir þó ekki því að beinar útsendingar Jtíkissjón- varpsins setja þjóðlífið að nokkru úr skorðum. Svo mikhl er áhuginn á knattspyrnunni. Það er að vísu ekki svo að við gleymum öhu öðru eins og Brasilíumenn, sem muna þessa stundina hvorki eftir verð- bólgu né fátækt. En margt verður þó undan að láta hjá þeim löndum okkar sem verst eru haldnir af fót- boltaáráttunni. Flestvíkur fyrirboltanum Ekki þarf að kvarta undan frétta- leysi undangenginna daga hérlend- is. Nýhðið er sögulegt uppgjör í forystusveit Alþýðuflokksins þar sem Jóhanna Sigurðardóttir varð undir í formannskosningum. Af- leiðingarnar eru nú að koma í Ijós með afsögn Jóhönnu úr ráðherra- embætti. Líkur aukast á haust- kosningum vegna afsagnarinnar og ekki ætti það að letja forystu- menn ríkisstjómarinnar að stjórn- arflokkamir auka fylgi sitt sam- kvæmt nýrri skoðanakönnun DV. Þá hafa ljósmyndir í blöðum og myndskeið í sjónvarpsfréttum nú sýnt okkur hvað á gekk á miðunum við Svalbarða. Þar kemur fram, og einnig í sjóprófum sem haldin hafa verið, að norskir strandgæslumenn virðast hafa þverbrotiö ahar sigl- ingareglur með glæfrasiglingu á mhli íslenskra togara á svæðinu. Þessar stórfréttir em að sjálf- sögðu í umræðunni en þó fer það varla á milli mála hvaö helst er rætt á vinnustöðum og heimhum manna. Það er áðumefnd heims- meistarakeppni í knattspyrnu. Það verður þó að viðurkennast að um- ræðan er nokkuð kynskipt. Flestir karlar eru spenntir. Þeir ræða leik- ina frá því í gær og þá sem fram- undan era. Sumar konur eru á sömu nótum en fleiri era þær þó sem eru pirraðar á öllu þessu standi. Karlpeningurinn hggur flatur fyrir framan sjónvarpið. Menn gera ekki mikið annað ef þeir ætla sér að horfa á beinar út- sendingar tveggja th þriggja leikja á dag. Miðill í umræðunni Sumir gagnrýna sjónvarpið harkalega fyrir allar þessar beinu fótboltasendingar en aðrir lofa það og prísa. Það hlýtur að vera kjör- staða fyrir þá stofnun. Hún er stöð- ugt í umræðunni og heldur þeirri stöðu sinni meðan keppnin stendur eða í hehan mánuð. Umræðan, já- kvæð jafnt sem neikvæð, er hagur Laugardagspistill Jónas Haraldsson fréttastjóri sjónvarpsins. Það er fjölmiðill sem tekið er eftir og talað er um. Sjón- varpinu veitir raunar ekki af því oft hafa menn kvartað undan skylduáskrift og fátæklegri dag- skrá. Víst má telja að stór hópur manna borgar sína áskrift að sjón- varpinu með glöðu geði þessa dag- Á sama tíma og menn sitja hmdir fyrir framan Ríkissjónvarpið vinna eigendur keppinautarins, Stöðvar 2, að því aö eyðheggja árangur fjölmiðilsins með átökum um eign- arhald á króganum. Fráfarandi sjónvarpsstjóri Stöðvar 2 lýsti þvi yfir í fréttatíma að átök meiri- og minnihluta hluthafa Stöðvar 2 væru eins og hatrömm átök for- eldra í forræðisdehu um barn sitt. Sú deha gæti endað með því að for- ræðisdehan gengi af afkvæminu dauðu. Vel valið frí Þessir sumardagar era því dagar Sjónvarpsins hvort sem mönnum líkar það betur eða verr. Sumir miða sitt daglega líf við beinar út- sendingar fótboltaleikja. Einn vinnufélagi minn, knattspymuá- hugamaður af guðs náð, var ekkert að hika. Hann bað snemma um sitt sumarfrí, frá 17. júní th 17. júh eða nákvæmlega þann tíma sem heims- meistarakeppnin í Bandaríkjunum stendur. Fyrir keppnina var hann búinn að kaupa sér stórt sjónvarp. Ég hitti hann nýlega og hann var hamingjusamur að sjá. Þaö eina sem skyggði á gleðina var aö hann missti 3 mínútur úr einum leik vegna þess að hann varð að bregða sér á klósettið. Þessi vinnufélagi minn er kjark- maður en ég spurði hann samt hvernig betri helmingurinn tæki því að eyða sumarfríinu í þetta. „Ég er húsbóndi á mínu heimili," sagði kappinn og ræddi það ekki frekar. Eg er líka titlaður húsbóndi á mínu heimili en viðurkenni þó strax að ég hefði aldrei þorað að stinga upp á svona sumarfríi. Ekki það að ég gæti ekki hugsað mér það. Þótt ég sé ekki jafn ástríðufull- ur aðdáandi knattspyrnunnar og nefndur vinnufélagi minn hef ég gaman af þessum beinu knatt- spyrnuútsendingum heimsmeist- arakeppninnar. Ég læt því lítið fara fyrir mér heima við og kveiki á sjónvarpinu á réttum tíma. Ég veit að mín ágæta eiginkona sýslar við annað á meðan. Fótbolti er ekki innan hennar áhugasviðs. Konan hefur þó verið umburðarlynd og yflrleitt látið þetta gláp mitt af- skiptalaust. Tiltekteða bein útsending Þó hefði ég kosið heldur meiri nærgætni í minn garð nú um miðja vikuna. Þannig stóð á að við, eða öllu heldur konan, héldum'upp á afmæh yngsta barnsins. Að ýmsu var að hyggja daginn fyrir afmælis- veisluna. Það þurfti að baka og taka til, kaupa blöðrur og fleira sem nauðsynlegt er í afmæh barns. Ég vissi af beinni útsendingu sem byrjaði síðdegis og viðurkenni það hér að ég sogaðist að Sjónvarpinu á vinnustaðnum. Ég sá fleiri kyn- bræður mína í sömu sporam. Sam- visku minnar vegna horfði ég þó ekki á allan leikinn heldur hélt heim í kvöldmat og afmælisundir- búning. Ég gleypti í mig og horfði á konuna hræra og baka. Tengda- mamma var komin og aðstoðaði við baksturinn. Þá sá ég mér leik á borði og lét mig hvérfa enda nálg- aðist nú fyrsti leikur Brasilíu- manna í sjónvarpinu. Af því mátti ég ekki missa. Ég gleymdi stund og stað og fylgdist með snihi Brashíumanna. Eg fann að vísu þessa ágætu bök- unarlykt og taldi vist að þær mæðg- ur hefðu nóg að gera og hefðu gleymt húsbóndanefnunni og fóður afmælisbarnsins. Svo var þó ekki því í miðri skyndisókn suður- amerísku snhhnganna heyrði ég konuna spyrja mig nokkuð hastar- lega hvort ég ætlaði ekki að laga til í kjallaranum. „Jú, elskan," svar- aði ég blíðlega og reyndi að vinna tíma. Einn leikur til Ég taldi mig hafa nokkra vöm af tengdamömmu meðan á leiknum stóð og svaraði því elskulega öhum athugasemdum konunnar um leið og ég hélt áfram að horfa á leikinn. Ég komst upp með það og svo hepphega vhdi th að konan skutl- aði móöur sinni heim eftir bakstur- inn rétt fyrir leikslok. Þegar hún kom heim var undirritaður því í kjaharanum með ryksuguna og lét eins og thtekt væri helsta áhuga- máhð. Betri helmingurinn gerði ekki athugasemdir og kom sér fljótlega í hvhu enda þreytt eftir bakstur og afmæhsstúss. Ég dró það hins veg- ar að ganga th náða og var önnum kafinn í thtektinni. Eg vissi það nefnilega, sem konan vissi ekki, að Hollendingar áttu að spha sinn fyrsta leik rétt fyrir miönættið. Maður missir nú ekki af slíku.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.